Dagrenning - 01.12.1958, Qupperneq 50
ina, sem áður hafði flutt óhamingju í
hús hennar.
ÖRLÖG
BARKER-FJÖLSKYLDUNNAR.
Hin sagan, sem einnig er sönn og
gerðist fyrir fáum árum, er á þessa
leið:
Árið 1942 dvaldi enskur liðsforingi,
Ralph Barker að nafni, sér til hvildar
og hressingar í Kairó, en hann hafði
særzt í bardögunum við Tobruk. Hann
hafði þegar náð sér svo vel, að hann
var að leggja af stað aftur til vígstöðv-
anna, og síðasta kvöldið, er hann var að
ráfa um göturnar, rakst hann á gamlan
Araba, sem stöðvaði hann.
Ralph Barker kannaðist vel við þessa
tötralegu náunga, sem héngu utan í út-
lendum hermönnum og ferðafólki til
þess að bjóða því minjagripi og ýmis
konar fágæta muni. í þetta skipti var
honum sýndur þunnur, brúnleitur hlut-
ur, sem hann hugði í fyrstu að væri
greinarbútur. Hann áttaði sig þó brátt
á, að þetta var þurrkaður mannsfingur.
Arabinn kvaðst geta lagt eið út á, að
fingurinn væri af konungssmyrlingi.
Barker hugsaði sig um nokkra stund,
hvort hann ætti að kaupa þetta, og nið-
urstaðan varð sú, að hann gerði það.
Hann lét konungsfingurinn niður í
tösku sína og hafði hann með sér til
vígstöðvanna.
Ralph Barker liðsforingi féll í Afríku
hinn 13. september 1942, fyrsta daginn,
sem hann var á vígstöðvunum eftir
veikindaleyfið. Hlutir þeir, sem hann
hafði með sér til vígstöðvanna, voru
sendir til fjölskyldu hans í Newcastle.
Hin unga ekkja tók grátandi upp úr
töskunni og rakst loks á múmíufingur-
inn. Hún starði á hann, sleppti honum
síðan, rak upp hljóð og féll andvana á
gólfið. Læknirinn kvað upp þann úr-
skurð, að hún hefði fengið hjartaslag.
Fimm ára sonur Barkers fórst nokkru
síðar í umferðarslysi. Ógift systir hans
og faðir þeirra létust sama árið, og þar
með var öll Barker-fjölskyldan úr sög-
unni — tólf mánuðum eftir að liðsfor-
inginn keypti múmíufingurinn.
Voru það óviðráðanleg örlög, sem
máðu Barkers-nafnið út? Eða varð
Barkers-fjölskyldan fyrir barðinu á
„formælingu faraós“, sem svo mjög hef-
ur verið deilt um?
Hinir mörg þúsund ára gömlu,
egypzku konunga-smyrlingar eru þög-
ulir. En þegar þeir voru lagðir til
hinztu hvíldar, voru látnar hjá þeim,
ásamt áhöldum og skrautgripum, lítil
manngervi með áletrunum, sem sýna
hvert hlutverk þeirra hefur verið:
„— vardveita friðinn á hinum helga
stað og ró hinna framliðnu, bægja frá
öllum óvinum og aðskotadýrum. Tor-
tíma þeim, í hvaða gervi og á hvaða
tíma, sem þeir kynnu að koma ...“
Flest bendir til, að hinir þöglu graf-
arvarðmenn hafi rækt hlutverk sitt, a.
m. k. að nokkru leyti.
48 DAGRENNING