Dagrenning - 01.12.1958, Qupperneq 52
Til kaupenda
DAGRENNINGAR
MEÐ ÞESSU hefti lýkur 13. árgangi ritsins. Kaupendur eru beðnir vel-
virðingar á því, að þetta hefd, sem átti að koma út í nóvember, kem-
ur fyrst nú. Ástæðan til þess er sú, að verið var að athuga ýmsar leið-
ir, sem til greina gátu komið með að breyta fyrirkomulagi á útgáf-
unni. Meðal annars var athugaður sá möguleiki að stofna félag, sem
tæki að sér útgáfu ritsins, og breyta því þá í óháð stjórnmálarit. En
af því varð ekki.
ÉG VAR og um skeið að hugsa um að losa mig við önnur störf, sem ég
hefi tekið að mér, og halda lieldur Dagrenningu áfram, en hvarf frá
því að athuguðu máli.
ÞEIM KAUPENDUM DagTenningar, sem haldið hafa ritinu saman, en
vantar einhver blöð inn í, vildi ég benda á það, að athuga nú sem allra
fyrst hvort þau tölublöð eru fáanleg í afgreiðslu ritsins, því líklegt
er að upplagið af þeim heftum, sem enn eru til, týnist fljótlega eftir
að regluleg útkoma ritsins hættir. Þau hefti sem til eru verða seld
ódýrt. i,
ÞAR SEM Dagrenning hættir nú að koma út eru allir þrettán árgang-
arnir allmikils virði, ef ekkert vantar í ritið, og því nokkurs vert að
hyggja að því, að það sé heilt og óskemmt.
DAGRENNING
Pósthólf 1196 — Reynimel 28 — Simi 1-11-96
REYKJAVÍK