Ægir - 01.02.2015, Side 31
31
lítill. Núna er þetta alveg öfugt,
grásleppan er komin snemma
upp í fjörurnar og mikill afli
strax í byrjun þó lítið mælist af
henni á meira dýpi. Enda viss-
um við af því að strax í janúar
voru netabátar hér fyrir Norður-
landi að verða mikið varir við
grásleppu á grunnslóðinni og
upphaf vertíðarinnar er í takti
við það. Breytingin milli ára er
því mjög mikil og raunar held
ég að það sé afskaplega erfitt
að mæla stofnstærð hennar á
hverju ári með mikilli ná-
kvæmni,“ segir Ingvar Þór.
Afla af bátum Ingvars Þórs er
landað á Kópaskeri og keyrt til
Dalvíkur þar sem fyrirtækið
Mar úlfur ehf. annast vinnslu;
hrognasöltun og frystingu á
hvelju. Hann segist vongóður
um gott verð á hrognum og
smám saman þokist verð á
frystri hvelju upp á við en sú
vara fer á markað í Kína.
„Það ræðst af dagafjöldan-
um og fleiru hvernig við hög-
um þessu í vor. Í fyrra rérum við
á tímabili með tvo báta í einu
og gætum gert það líka í nú í
vor ef þannig hagar til,“ segir
hann.
Hagstæðar markaðsaðstæður
Magnús Ölver Ásbjörnsson á
Drangsnesi var á heimstíminu
eftir fyrstu netalögn á grá-
sleppuvertíðinni þegar Ægir
heyrði í honum. Hann er bjart-
sýnn á vertíðina.
„Hér við Húnaflóann virtist
þetta byrja rólegar en fyrir aust-
an en engu að síður lítur vel út
með vertíðina,“ segir Magnús
Ölver en hann hefur yfir að ráða
tveimur bátum með grásleppu-
leyfi og reiknaði með róa á
þeim báðum ef leyfilegur daga-
fjöldi fari í 30 eða þar yfir.
„Menn voru farnir að nefna
allt mögulegt varðandi daga-
fjöldann en við vitum það af
reynslunni að það er takmark-
aður ávinningur af því að of-
metta markaðinn. Það kemur
þá bara niður á næstu vertíð á
eftir. Núna er ástandið mjög
gott hvað varðar birgðir og eft-
irspurn þannig að markaðsað-
stæður eru okkur hagstæðar,“
segir hann.
Magnús Ölver landar grá-
sleppuaflanum til vinnslu á
Drangsnesi en 10 heimabátar
róa þaðan á sleppuna. „Síðan
spilar veðrið auðvitað mjög
stórt hlutverk í þessu öllu sam-
an og ef vindar verða jafn miklir
og verið hafa síðustu mánuði
þá mun það hafa mikil áhrif á
vertíðina. Það er aldrei á vísan
að róa.“
Magnús Ölver Ásbjörnsson á Drangsnesi er bjartsýnn á nýhafna vertíð. Hann hefur róið lengi á grásleppuna og er myndin tekin fyrir fáeinum árum
þegar Magnús og félagi hans, Ægir Ingólfsson, komu með hlaðinn bát til hafnar á Drangsnesi.