Ægir - 01.02.2015, Page 33
33
markaðurinn. Samt sem áður
má segja að bein markaðssetn-
ing hafi verið í algjöru lágmarki
en við höfum alfarið byggt
vöxtinn á orðsporinu sem fer af
búnaðinum. Ég hef mörg dæmi
um fyrirspurnir sem koma í kjöl-
farið á sölu véla á eitthvert
svæði en það má segja að okkar
markaður sé bæði meginland
Evrópu, Bretlandseyjar, Kanada,
Ameríka og Noregur. Það er
okkur alltaf mikið ánægjuefni
þegar aðilar sem hafa keypt af
okkur vélar hafa samband á ný
og vilja fleiri vélar eða bæta við
öðrum vélum frá okkur. Slíkt
gerist oft og er ákveðin viður-
kenning á því að viðskiptavin-
irnir finna að vélarnar skila
þeim beinum ávinningi. Sem er
auðvitað okkar markmið. Við er-
um í samkeppni á þessu sviði
við Baader og markmiðið er
ekki að framleiða sem ódýrastar
vélar heldur miklu frekar gæða-
vélar sem hjálpa viðskiptavin-
um okkar að ná betri árangri í
sínum rekstri,“ segir Elliði.
Norðmenn stórir viðskiptavinir
Norsk sjávarútvegsfyrirtæki eru
stórir kaupendur vélbúnaðar frá
Curio og segir Elliði að þar í
landi séu merki um þróun og
breytingar í fiskvinnslu.
„Mér sýnist vera vakning í
fiskvinnslunni í Noregi þó vissu-
lega flytji Norðmenn mjög mik-
ið út af óunnum fiski. Engu að
síður er fjöldinn allur af grónum
og öflugum fiskvinnslum í Nor-
egi en í kjölfar falls norsku krón-
unnar virðist meiri áhugi í bol-
fiskvinnslunni. Við munum því
áfram horfa til sölu á okkar vél-
um til Noregs líkt og annarra
markaða. Það hefur sýnt sig að
það er mikill kostur fyrir fyrir-
tæki á borð við Curio ehf. að
selja á marga markaði í einu og
oftar en ekki eru uppsveiflur á
einum markaði þó niðursveifla
sé á öðrum. Ég er bjartsýnn á
komandi ár,“ segir Elliði.
Vél frá Curio að taka á sig mynd á gólfi fyrirtækisins í Hafnarfirði.
Fiskvinnsluvélaframleiðandinn Curio í Hafnarfirði:
Hraður vöxt-
ur í takti
við erlenda
eftirspurn
Unnið við hausara frá Curio.