Morgunblaðið - 30.01.2015, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 30.01.2015, Blaðsíða 1
F Ö S T U D A G U R 3 0. J A N Ú A R 2 0 1 5 Stofnað 1913  25. tölublað  103. árgangur  TÖKUR Á ÓFÆRÐ Á SIGLUFIRÐI FYRIR SJÓNVARP LEIKFÖNG, SKREYTINGAR OG VEITINGAR SEX LÖG Í FYRRI UNDAN- ÚRSLITUM BARNAAFMÆLI 16 SÍÐUR SÖNGVAKEPPNIN 2015 46ÞÁTTARÖÐ 49 Baldur Arnarson baldura@mbl.is Leiguverð á höfuðborgarsvæðinu hefur hækkað um tugi prósenta á síðustu fjórum árum eða langt um- fram varðlagsþróun á tímabilinu. Þannig hefur vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu hækkað um 40% síðan í ársbyrjun 2011 en vísi- tala neysluverðs um 16%. Athygli vekur að síðastliðna 12 mánuði hefur vísitala leiguverðs hækkað um 7,5%. Til samanburðar er 12 mánaða verðbólga nú 0,8%. Jóhann Már Sigurbjörnsson, for- maður Samtaka leigjenda á Íslandi, segir mikinn skort á leiguhúsnæði. Leigufélög hafi gengið á lagið og hækkað leiguverðið milli ára. Svanur Guðmundsson, löggiltur leigumiðlari og framkvæmdastjóri hjá vefnum húsaleiga.is, telur að byggja þurfi 7-8 þúsund íbúðir til að mæta eftirspurn eftir íbúðum til kaups og leigu á Íslandi. Tekur hann þar með undir með Samtökum iðn- aðarins sem telja að það skorti þús- undir íbúða á húsnæðismarkaðnum. Svanur segir skort á húsnæði koma fram í því að ungt fólk búi orð- ið lengur í foreldrahúsum. Þá séu dæmi um að efnalítið fólk neyðist til að sofa í bílum í bílastæðahúsum. Hækkandi leiguverð er talið auka á vanda vaxandi fjölda tekjulágs fólks sem býr orðið í leiguhúsnæði. Leiguverðið rýkur upp  Vísitala leiguverðs hækkaði um 40% árin 2011-2014  Verðlag hækkaði um 16%  Leigumiðlari segir kynslóð ungs fólks búa lengur í foreldrahúsum vegna skorts MEkkert lát á hækkun »4 37,5% aukning » Neytendasamtökunum bár- ust yfir 2.000 fyrirspurnir í fyrra vegna leiguhúsnæðis. » Fyrirspurnum fjölgaði um 37,5% frá árinu 2013. » Samtökin telja „stöðuga umframeftirspurn eftir leigu- húsnæði“ á Íslandi. Ökumenn urðu vitni að litskrúðugu sólsetri þeg- ar þeir áttu leið um hraunið á milli Garðabæjar og Hafnarfjarðar í gær. Spáð er norðaustan og norðan þrettán til tuttugu m/s í dag og snjó- komu eða éljagangi norðan- og austanlands, en annars heldur hægari og léttskýjuðu veðri. Einn- ig er spáð kulda næstu daga en um helgina er út- lit fyrir að frost verði á bilinu eitt til tíu stig, mest inn til landsins. Gullnir geislar sólar kvöddu er hún seig í hraunið Morgunblaðið/RAX  Danski seðla- bankinn lækkar stýrivexti frá og með deg- inum í dag um 15 punkta og verða þeir þá orðnir neikvæð- ir um 0,5%. Þeir hafa aldrei verið jafn lágir, að sögn FT. Til- kynning um lækkunina var gefin út í gær. Þetta er þriðja stýrivaxtalækk- un bankans á tíu dögum í viðleitni hans við að verja tengingu dönsku krónunnar við evruna. Lækkar stýrivexti í 3. sinn á tíu dögum Danmörk Stýri- vextir lækkaðir. Agnes Bragadóttir agnes@mbl.is Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur að undanförnu rannsakað lek- ann sem varð þegar gögnum var sl. haust lekið til Kastljóss Sjónvarps- ins um rannsókn Samkeppniseftir- litsins á Eimskip og Samskipum og kæru Samkeppniseftirlitsins (SKE) á svonefndum ellefumenningum Eimskips og Samskipa til sérstaks saksóknara. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins hefur rannsókn lögreglu m.a. leitt til þess að hún lagði hald á ákveðin tölvugögn í Samkeppniseft- irlitinu, og við rannsókn þeirra gagna hefur einn starfsmaður Sam- keppniseftirlitsins hlotið réttarstöðu grunaðs manns. Dregist á langinn Samkvæmt upplýsingum Morgun- blaðsins hefur rannsókn lögreglunn- ar staðið um nokkurt skeið, en það var í október í fyrra, sem Eimskip kærði til lögreglu leka á upplýsing- um til Kastljóss sem voru um rann- sókn Samkeppniseftirlitsins á meint- um brotum Eimskips og Samskipa á samkeppnislögum, auk þess sem kæru Samkeppniseftirlitsins til sér- staks saksóknara frá því í mars 2014 á hendur þeim ellefumenningum hjá Eimskip og Samskipum, sem rann- sóknin beindist að, var lekið til Kast- ljóss. Sérstakur saksóknari beindi kær- unni skömmu síðar til ríkissaksókn- ara, sem ákvað að fela lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu að rannsaka þetta lekamál. Nýverið mun lögreglan í Reykja- vík hafa lagt hald á ákveðin tölvu- gögn í Samkeppniseftirlitinu, og ákveðin tölvupóstsamskipti sem rannsökuð hafa verið, hafa nú, sam- kvæmt upplýsingum Morgunblaðs- ins, leitt til þess að ákveðinn starfs- maður Samkeppniseftirlitsins hefur nú réttarstöðu sakbornings. »6 Með réttastöðu grunaðs manns  Starfsmaður Samkeppniseftirlitsins grunaður um að hafa lekið trúnaðargögn- um til Kastljóss í október í fyrra, um kæru SKE á svonefndum ellefumenningum  Bæjarlistamenn Kópavogs héldu námskeið í rappi fyrir nemendur í 10. bekk grunnskólans í bænum. Þetta eru stöllurnar í hljómsveitinni Tazmaníu. Rætt er við eina þeirra, Þuríði Blæ Jóhannsdóttur, í umfjöll- un dagsins um bæjarfélagið í greina- flokknum Heimsókn á höfuðborg- arsvæðið. Að auki er sagt frá byggingarframkvæmdum í hinu nýja Glaðheimahverfi, rætt við blómasala við Nýbýlaveg og forvitn- ast um stöðuna í verslunarmiðstöð- inni Smáralind. »20-21 Kenndu ung- mennum að rappa  Miklar breytingar hafa orðið á skriðjöklum landsins á síðustu 20- 30 árum, en Landmælingar Íslands reyna að halda við grunngögnum, kortum og hæðarlínum skriðjökl- anna. Sem dæmi má nefna að Vatnajökull minnkaði um samtals 83 ferkílómetra á árabilinu 2000- 2006 og ný ókortlögð svæði komu í ljós. Annað dæmi sem Magnús Guð- mundsson, forstjóri Landmælinga, nefnir í samtali við Morgunblaðið er að við sunnanverðan Mýrdals- jökul hafa orðið til 150 metra djúpir dalir sem til skamms tíma voru huldir tungum skriðjökla. »18 150 metra djúpir dalir í stað skriðjökla  Bæjarráð Akraness sam- þykkti í gær að fela bæjarstjóra að leita eftir formlegu sam- starfi við þjóð- minjavörsluna, forsætisráðu- neytið og mennta- málaráðuneytið varðandi málefni Kútters Sig- urfara. Menningar- og safnanefnd Akra- ness var búin að leggja til að gerð yrði áætlun um að fjarlægja skipið af safnasvæði Byggðasafnsins í Görðum. Skipið er mjög illa farið og dýrt að gera það upp. »12 Leita samstarfs um Kútter Sigurfara Kútter Sigurfari Smíðaður 1885.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.