Morgunblaðið - 30.01.2015, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. JANÚAR 2015
Styrmir Gunnarsson vekur eft-irtekt á pólitískum snúningi:
Utanríkisráðherrar 28 aðild-arríkja Evrópusambandsins
koma saman til fundar í Brussel í
dag, fimmtudag. Á
dagskrá þess fundar
verður m.a. hvort
auka eigi refsiað-
gerðir gegn Rússum
og fjölga þeim ein-
staklingum, sem
þær beinast að.
Á fundinum verður nýr utanrík-isráðherra Grikkja, Nikos
Kotzias, prófessor í stjórn-
málafræði, sem aðhyllist nánara
samband við Rússland. Samþykki
allra aðildarríkjanna þarf til þess
að auka refsiaðgerðir gegn Rúss-
landi.
Eitt aðildarríki getur komið íveg fyrir að það verði gert.
Gríska dagblaðið Kathimerini hefur
heimildir fyrir því að hin nýja rík-
isstjórn Alexis Tsipras ætli að beita
því neitunarvaldi og hugsanlega
beita því vopni í baráttu við ráða-
menn ESB vegna skulda Grikkja,
sem hin nýja ríkisstjórn vill að verði
afskrifaðar um helming.
Fyrsta vísbending um að þettageti gerzt kom fram í upphaf-
legum mótmælum grísku rík-
isstjórnarinnar gegn yfirlýsingu
framkvæmdastjórnar ESB um frek-
ari aðgerðir gegn Rússum og sagt
hefur verið frá hér á Evrópuvakt-
inni.“
Rétt er að hafa í huga að rík hefðer fyrir því að ESB gerir ekk-
ert með andóf smáríkja sinna,
hvorki ríkisstjórna né þjóða sem
segja nei við útþenslu. Spurningin
snýst því um hvaða afbrigði verður
notað til að gera ekkert með and-
ófið nú.
Styrmir
Gunnarsson
Neitunarvaldið
gildir ekki
STAKSTEINAR
Virðing
RéttlætiVR KRINGLUNNI 7 103 REYKJAVÍK S. 510 1700 WWW.VR.IS
Hefur þú áhuga á
að starfa í forystuVR?
Samkvæmt 20. gr. laga VR auglýsir kjörstjórn félagsins eftir einstaklingsframboðum til
formanns og í stjórn félagsins og listaframboðum í trúnaðarráð.
Um er að ræða annars vegar einstaklingsframboð til formanns, sjö sæti í stjórn og þrjú
til vara. Skrifleg meðmæli 50 félagsmanna þarf vegna einstaklingsframboðs til formanns
og 15 vegna einstaklingsframboðs til stjórnar og varastjórnar.
Hins vegar er um að ræða listaframboð fyrir 41 sæti í trúnaðarráð. Til að listi vegna
trúnaðarráðs sem borinn er fram gegn lista uppstillinganefndar sé löglega fram borinn þarf
skrifleg meðmæli 300 félagsmanna sem og skriflegt samþykki frambjóðenda á listanum.
Framboðsfrestur er til kl. 12:00 á hádegi fimmtudaginn 6. febrúar 2015. Framboðum og
framboðslistum skal skilað til kjörstjórnar á skrifstofu VR, Húsi verslunarinnar, Kringlunni 7.
Frambjóðendum er bent á heimasíðu VRwww.vr.is, þar sem eyðublöð vegna framboða eru
aðgengileg og ítarlegari upplýsingar birtar um framboð til stjórnar og trúnaðarráðs. Kjörstjórn
VR veitir einnig frekari upplýsingar í síma 510 1700 eða með tölvupósti til kjorstjorn@vr.is.
30. janúar 2015
Kjörstjórn VR
Veður víða um heim 29.1., kl. 18.00
Reykjavík 1 skýjað
Bolungarvík -1 skýjað
Akureyri 0 snjókoma
Nuuk -15 snjóél
Þórshöfn 7 skúrir
Ósló -3 heiðskírt
Kaupmannahöfn 2 skýjað
Stokkhólmur 0 skýjað
Helsinki 0 snjókoma
Lúxemborg 2 skýjað
Brussel 6 léttskýjað
Dublin 7 súld
Glasgow 7 skýjað
London 8 léttskýjað
París 6 alskýjað
Amsterdam 7 léttskýjað
Hamborg 6 skýjað
Berlín 3 skúrir
Vín 3 skýjað
Moskva -6 snjóél
Algarve 16 heiðskírt
Madríd 12 léttskýjað
Barcelona 12 heiðskírt
Mallorca 13 léttskýjað
Róm 8 heiðskírt
Aþena 11 léttskýjað
Winnipeg -5 þoka
Montreal -15 alskýjað
New York -5 þoka
Chicago -1 alskýjað
Orlando 9 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
30. janúar Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 10:15 17:08
ÍSAFJÖRÐUR 10:37 16:55
SIGLUFJÖRÐUR 10:21 16:38
DJÚPIVOGUR 9:49 16:33
Bridshátíð hófst formlega í gær á Hótel
Natura en þetta er í 34. skiptið sem hátíðin
er haldin. Yfir fjögur hundruð keppendur
eru skráðir til leiks en í þeim hópi eru
þekktir evrópskir og amerískir spilarar.
Þar má nefna Norðmanninn Tor Helness,
sem að þessu sinni spilar við son sinn Fre-
drik, Danann Gus Hansen og Pakistanann
Zia Mahmood sem spilar við Bretann And-
rew Robson. Mótinu lýkur með verðlauna-
afhendingu um klukkan 18 á sunnudaginn
kemur.
Bridshátíð
sett í 34. sinn
Morgunblaðið/Kristinn
Spil Glatt var
á hjalla í Hótel
Natura þegar
Bridshátíð
var sett.
Skógrækt rík-
isins og Skóg-
ræktarfélag Ís-
lands hafa í
sameiningu geng-
ið í Evrópu-
samtök jólatrjáa-
framleiðenda.
Ísland er 13.
landið sem fær
aðild að samtök-
unum. Rækt-
endur jólatrjáa í Belgíu, Danmörku
og Englandi bundust samtökum í
byrjun 9. áratugar 20. aldar. Evr-
ópusamtökin voru stofnuð 1989.
Fulltrúi Íslands í samtökunum er
Else Møller skógfræðingur að því er
fram kemur á vefnum skogur.is.
Else hefur unnið ötullega að mál-
efnum jólatrjáaræktenda um árabil
og stundar jafnframt ræktun og til-
raunir á Akri í Vopnafirði. Þá heldur
hún námskeið og fyrirlestra um jóla-
trjáarækt víða um land.
Talið er víst að íslenskir jólatrjáa-
framleiðendur geti haft gagn af
tengslunum við evrópska starfs-
bræður og -systur, ekki síst varð-
andi gæðaflokkun jólatrjáa og mark-
aðssetningu. gudni@mbl.is
Evrópskur
vettvangur
jólatrjáa
Ísland fær aðild
Jólatré Ræktun
þeirra fer vaxandi.