Morgunblaðið - 30.01.2015, Side 20

Morgunblaðið - 30.01.2015, Side 20
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. JANÚAR 2015 KÓPAVOGUR H EI MS ÓKN Á HÖFUÐBO R G A R S V Æ Ð IÐ 2015 Nýtt hverfi í Kópavogi, Glað- heimar, verður reist á næstu árum. Uppbyggingin verður tekin í skref- um, en nú þegar hafa lóðir á aust- ursvæði hverfisins verið auglýstar til umsóknar. Í Glaðheimum verða um 300 íbúðir í fjölbýli þegar svæðið er fullbyggt. Nýbyggð þessi verður við hlið Lindahverfis, austan Reykjanes- brautar og Smárahverfis. Sér- staðan er, borið saman við önnur nýbyggingahverfi, að þjónusta er þegar til staðar, s.s. skólar, íþróttaaðstaða, verslanir og í kaupbæti eru góðar tengingar við aðalæðar gatna höfuðborgarsvæð- isins. Í tilkynningu er haft eftir Ár- manni Kr. Ólafssyni bæjarstjóra í Kópavogi er ætla megi að hverfið verði eftirsótt á meðal fjölskyldu- fólks. Lagt er upp með að þéttleiki byggðar verði mikill og krafa bæj- aryfirvalda er sú að vandað sé mjög til hönnunar og útlits húsa og lóða. Einnig að opin svæði séu til staðar og strætóferðir góðar og greiðar. Í fyrsta áfanga verður bygging- arrétti úthlutað á níu lóðum og þar verða reistar 260 íbúðir í 9 fjöl- býlishúsum sem verða með 11 til 40 íbúðir hvert. Húsin verða hæst 10 hæðir en yfirleitt 4 til 6 hæðir og flest með bílakjallara. Gert er ráð fyrir að lóðir verði bygging- arhæfar í júlí nk. Umsóknarfrestur um byggingarrétt er til 3. mars en þá þurfa verktakar að skila um- sóknum og fylgigögnum sem útlist- uð eru á heimasíðu bæjarins, segir Sigríður Björg Tómasdóttir upp- lýsingafulltrúi Kópavogsbæjar. Glaðheimalóðirnar verða tilbúnar í júlí Hugmyndir Svona sjá menn fyrir sér að nýja Glaðheimahverfið verði. „Nýbýlavegurinn býður upp á mikla möguleika. Ég hef tröllatrú á þessu svæði,“ segir Jóhanna Ein- arsdóttir sem rekur Blómabúðina í portinu við Nýbýlaveg 8 í Kópa- vogi. Segja má að öll starfsemi vest- ast á Nýbýlaveginum gangi nú í endurnýjun lífdaga. Þarna voru áð- ur höfuðstöðvar Toyota á Íslandi, en eftir að sú starfsemi var flutt er allt að lifna við aftur með fjöl- breyttum verslunum, veitinga- stöðum, hönnunarbúðum og fleiru slíku. „Ég sé hér fyrir mér bjarta tíð með blóm í haga. Er spennt fyrir framtíð Portsins sem býður upp á óendanlega möguleika og hér eru ennþá laus rými fyrir áhugaverða starfsemi,“ segir Jóhanna. Fylla með sumarblómum Framundan eru blómlegir dagar, í bestu merkingu þeirra orða. Bóndadaginn er nýafstaðinn. Val- entínusardagurinn, sem er banda- rískur að uppruna, er 14. febrúar og konudagurinn 23. „Og svo tel ég dagana þangað til hægt verður að fylla allt með sumarblómum,“ segir Jóhanna, blómaskreytir og kaup- maður til 10 ára. sbs@mbl.is Morgunblaðið/Eggert Bros Sé fyrir mér bjarta tíð með blóm í haga, segir Jóhanna Einarsdóttir. Nú eru blómlegir dagar framundan  Nýbýlavegurinn í endurnýjun lífdaga Benedikta Br. Alexandersdóttir benedikta@mbl.is Þrjár listakonur voru útnefndar bæjarlistamenn Kópavogs á síðasta ári. Þær Þuríður Blær Jóhanns- dóttir, Tinna Sverrisdóttir og Salka Sól Eyfeld sem skipa rapp- hljómsveitina Tazmaníu gerðu samning um að taka þátt í fræðslu- og menningarstarfi skólabarna síð- astliðið haust og í vor. Lista- og menningarráð hefur útnefnt heið- urslistamann á afmælisdegi bæj- arins frá árinu 1988. Í fyrsta sinn voru bæjarlistamenn valdir sam- hliða. Með síðarnefnda valinu er verið að hampa ungu og efnilegu listafólki og gefa því kost á að miðla list sinni og sköpun til skólabarna. Tvær listakvennanna eru uppaldar í Kópavogi en allar eru þær leikkonur að mennt. Þuríður Blær, sem er betur þekkt sem Blær, segir hljómsveit- armeðlimina hafa fengið frelsi til þess að ákveða sjálfar hvað þær vildu gera með skólabörnunum í samráði við bæjaryfirvöld. „Okkur langaði að hitta alla 10. bekkinga í Kópavogi og ræða við þau um mál- efni sem væru þeim hugleikin og halda rappnámskeið,“ segir Blær. Listakonurnar voru forvitnar um að kynnast málefnum sem brunnu á efstu bekkingum að sögn Blær. „Þó það séu ekkert mjög langt síðan við vorum í 10. bekk þá finnum við fyrir miklum mun á milli kynslóðanna. Það hafa orðið miklar tækni- framfarir á stuttum tíma og krakk- arnir eru því að takast á við hluti sem við þurftum ekki að gera. Þessi kynslóð elst upp við internetið, tölvuleiki, snjallsíma og þykir eðli- legt að taka sjálfsmynd á hverjum degi. Við vorum því spenntar að kynnast krökkunum og þetta hefur Heiður Ármann Kr. Ólafsson og Karen E. Halldórsdóttir ásamt bæjarlistamönnum og heiðurslistamanni Kópavogs. Upprennandi listamenn rappa um loftræstirör  Bæjarlistakonurnar í Tazmaníu kenna unglingum að rappa Skeifunni 8 | Kringlunni | sími 588 0640 | casa.is BOURGIE Hönnun: Ferruccio Laviani

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.