Morgunblaðið - 30.01.2015, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 30.01.2015, Blaðsíða 21
Í átta vikna ferðalagi blaðamanna Morgunblaðsins um hverfin í Reykjavík og sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu er fjallað ummannlíf og menningu, atvinnulíf og opinbera þjónustu, útivist og umhverfi og skóla og skipulag með sérstakri áherslu á það sem einkennir hvern stað. MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. JANÚAR 2015  Vífilsfell er bæjarfjall Kópavogs. Fyrir liðlega ári var efnt til kosn- ingar um þetta á vef bæjarins og 68% 177 þátttakenda nefndu fjall- ið, sem nefnt er eftir Vífli sem var einn þræla landnemans Ingólfs Arnarsonar. Aðrir sem kusu nefndu t.d. Bláfjöll og Víghól. Vífilfell blasir við af Sandskeiði og er á hægri hönd þegar ekið austur fyrir fjall. Það er nær austast í landi Kópa- vogs og ekki langt frá landamærum bæjarins og Árnessýslunnar. Víðsýnt er af Vífilsfelli sem 655 metra hátt. Greiðgengt er á fjallið, en þá er arkað upp frá gryfjum sem eru við fjallið norðanaustanvert. Sú þumalputtaregla gildir að gefa sér tvo til þrjá tíma í ferðalagið. Allar frekari upplýsingar um fjallið er annars að finna á vifilsfell.is, ágætum vef sem fór í loftið fyrir rúmu ári fyrir tilstilli Sigurðar Sigurðarsonar útivistarmanns. Víðsýnt er af bæjarfjallinu Vífilsfell Fjarlægðin gerir fjöllin blá. Morgunblaðið/Sigurður Bogi  Sextíu ára afmæli Kópavogsbæjar verður fagnað í vor, 11. maí. Afmæl- isnefnd leggur nú á ráðin um fjöl- breytta afmælisdagskrá. „Við hyggjumst bjóða Kópa- vogsbúum upp á glæsilega tónleika og fleiri viðburði. Afmæli Kópavogs mun ekki fara framhjá íbúum og von- andi mæta sem flestir á viðburðina. Svona nokkuð er kjörið tækifæri fyrir íbúa að hittast og tengjast bæjar- félaginu sterkari böndum,“ segir Ár- mann Kr. Ólafsson bæjarstjóri. Kópavogsbær fékk kaupstaðarrétt- indi 1955 en Kópavogshreppur var stofnaður 1948. Þá voru íbúar 900. Afmælishátíð í maímánuði Hvammar Í Kópavogi fyrir 40 árum. Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon Theódór Júlíusson leikari var útnefndur heið- urslistamaður Kópavogs árið 2014. Lista- og menn- ingarráð Kópavogsbæjar útnefndu leikarann en Ár- mann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri, og Karen E. Halldórsdóttir, formaður lista- og menningarráðs, afhentu heiðurslistamanninum kantalúpu Gerðar Helgadóttur sem er táknræn gjöf bæjarins til heið- urslistamanna. Með útnefningunni vildi lista- og menningarráð sýna Theódóri þakklæti fyrir ómet- anlegt ævistarf sem hefur auðgað menningar- og listalíf bæjarbúa og landsmanna. Theódór er fæddur 21. ágúst árið 1949 á Siglufirði þar sem hann ólst upp. Hann lauk Diploma í leiklist frá The Drama Studio London og hefur meðal annars starfað hjá Leikfélagi Akureyrar og Borgarleik- húsinu, og leikstýrt og leikið í útvarpsleikritum og sjónvarps- og kvik- myndum. Theódór hefur þrisvar verið tilnefndur til Grímuverðlauna en auk þess hefur hann hlotið verðlaun sem besti leikarinn á kvik- myndahátíðinni Eurasia í Kazakstan og kvikmyndahátíðinni í Sao Paulo. Árið 1990 fluttist hann ásamt eiginkonu sinni, Guðrúnu Stef- ánsdóttur, og börnum á Þinghólsbraut í Kópavogi þar sem þau hjón hafa verið allar götur síðan. HEIÐURSLISTAMAÐUR Theódór Júlíusson Auðgar listalíf bæjarbúa verið lærdómsríkt fyrir okkur,“ seg- ir Blær. Blær segir krakkana og skóla- yfirvöld hafa tekið þeim opnum örmum. „Við vorum dálítið smeykar um hver viðbrögðin yrðu því við vor- um að biðja krakka um að skapa eitthvað sem þau höfðu kannski aldrei gert áður. Við fengum að vera einar með krökkunum sem hjálpaði þeim að opna sig fyrir okkur. Þann- ig gátum við fundið út hvað þeim fannst áhugavert. Þetta var líka ákveðið tækifæri fyrir krakkana til þess að setja egóið til hliðar og gera sig að fífli fyrir framan bekkjar- félagana,“ segir Blær. Á rapp- námskeiðinu sömdu krakkarnir svo erindi og viðlag eftir því sem var þeim hugleikið. „Í fyrsta skólanum sem við fórum í voru búningsklefar innblástur að textanum en strák- arnir voru mjög uppteknir af því að í búningsklefa stelpnanna væri loft- ræstirör. Stelpurnar bentu þá á að í búningsklefa strákanna væri stærri spegill. Við skiptum þeim því í þrjá hópa; strákahóp og stelpnahóp sem töldu hitt kynið hafa það betra og sömdu sitt erindið hvor, og hlut- lausan hóp sem var sama um bún- ingsklefana og samdi því viðlagið,“ útskýrir Blær. Sprengja eftir nokkur ár Blær segir mikilvægt að gefa krökkum tækifæri til þess að vera skapandi og gera mistök. „List get- ur verið feimnismál á þessum aldri og þykir ekki alltaf kúl. Það eru ein- hverjir sem ná ekki að pluma sig í kjarnafögunum en eru góðir í ein- hverju allt öðru án þess að gera sér grein fyrir því. Það er gott fyrir þá að fá tækifæri til þess að gera eitt- hvað skapandi í grunnskóla og fá viðurkenningu fyrir það,“ segir Blær. Þá segir hún Kópavog eiga marga upprennandi listamenn. „Þessir krakkar eru búnir að kenna okkur svo mikið. Ég held að það eigi eftir að verða sprengja eftir nokkur ár þegar allir þessir krakkar koma í sviðsljósið og láta ljós sitt skína.“ Flottar Listakonurnar í Tazmaníu halda áfram að heimsækja 10. bekkinga. Starfsemi í Smáralind mun eflast á næstu misserum og svæðið verður æ fastara í sessi sem miðja höf- uðborgarsvæðis. Þetta segir Sturla Eðvarðsson, framkvæmda- stjóri versl- unarmiðstöðv- arinnar. Mjög munar um starf- semi í norð- urturni Smára- lindar, sem nú er verið að reisa, háhýsi þar sem allt að 500 manns munu starfa. Atvinnu- starfsemi við Dalveg verður æ öfl- ugri og 2.000 manna byggð í Glað- heimum og Smárabyggð mun að sjálfsögðu hafa mjög góða áhrif á Smáralind, að mati kunnugra. „Svæðið liggur vel við umferð- aræðum og leiðin er greið. Við höfum kannað hvaðan við- skiptavinir okkar koma, Smáralind er greinilega ofarlega á blaði t.d. hjá Suðurnesjamönnum, Hafnfirð- ingum, Garðbæingum, Breið- holtsbúum og svo að sjálfsögðu Kópavogsbúum,“ segir Sturla. Markaðurinn er síkvikt afl og þess sér stað í Smáralind að því leyti að fyrirtæki og verslanir koma og fara. „Þessi hreyfing er mjög eðlileg. Hér eru í kringum 100 verslanir. Starfsemi sumra þeirra gengur vel og önnur síður. Slíkt er mjög eðlilegt; þetta rokkar á kannski 2-3 verslunum á ári sem koma nýjar í stað þeirra sem fara,“ segir Sturla og bætir við að ný og áhugaverð fyrirtæki hafi komið inn í Smáralind að und- anförnu; það eru meðal annars tískuvöruverslanirnar Kasual og Comma, snyrivöruverslunin Cool- cos og A4 sem selur ritfanga-, föndur- og skrifstofuvörur. sbs@mbl.is Morgunblaðið/Þórður Margmenni Útsölur og fleiri slíkir viðburðir í Smáralind eru fjölsóttir. Smáralind styrkist  Verslanir koma og fara  Mjög munar um norðurturn  Suðurnesjamenn mæta Sturla Eðvarðsson SPORT MARKAÐUR OPIÐ: MÁN. - FÖS. KL. 12 - 18 - LAU. KL. 12-16 ALLT AÐ 80% AFSLÁTTUR! SPORTÍS MÖRKIN 6 108 REYKJAVÍK S:520-1000 SPORTIS.IS FLOTT ÚRVAL OG FLOTT VERÐ! KOMDU ÞÉR Í GÍRINN

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.