Morgunblaðið - 30.01.2015, Síða 24
24 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. JANÚAR 2015
Verð fr
á
KAI eru:
• Japanskir hágæða hnífar sem hafa verið framleiddir í yfir 100 ár
• Gerðir úr hágæða stáli
• Yfir 23.000 hnífar seldir á Íslandi
• Hnífar fyrir fagmanninn
jafnt sem áhugamanninn
Hágæða hnífar
SEKI MC
Shun Prem
iere
Pure coma
chi 2
Wasabi Bla
ck
2.250
kr.
Shun
Allt fyrir eldhúsið
Allir velkomnir
Progastro | Ögurhvarfi 2, Kópavogi
Sími 540 3550 | progastro.is
Opið alla virka daga kl. 9–17, laugard. kl. 11-14.
Þórunn Kristjánsdóttir
thorunn@mbl.is
Vísindamenn sem rannsaka ebólu-
faraldurinn í Gíneu segja vírusinn
hafa stökkbreyst. BBC, breska rík-
isútvarpið, greinir frá þessu. Aðrar
sambærilegar rannsóknir sem gerð-
ar voru í Síerra Leóne á fyrstu 24
dögum eftir að ebólufaraldurinn
breiddist út sýndu að ebólan stökk-
breyttist mikið.
Á Pasteur-rannsóknarstofnuninni
í Frakklandi er verið að rannsaka
hvort ebólan sé orðin meira smit-
andi. Í heildina hafa meira en 22 þús-
und manns smitast af ebólu og yfir
8,810 hafa samtals dáið í Afríkulönd-
unum Gíneu, Síerra Leóne og Líb-
eríu.
Vísindamenn greina nú blóðsýni
úr hundruðum sjúklinga sem hafa
smitast af ebólu í Gíneu til frekari
rannsókna. Þeir rannsaka m.a.
hvernig vírusinn breytist og kanna
hvort hann smitist á auðveldari hátt
á milli manna.
Vírusinn breytist hratt
„Það sem við vitum er að vírusinn
breytist mjög hratt,“ segir Anavaj
Sakuntabhai, doktor í mannerfða-
fræði við Pasteur-rannsóknarstofn-
unina í Frakklandi.
„Þessi vitneskja er mikilvæg,
hvort tveggja fyrir greiningu á nýj-
um tilfellum og við meðferð. Við
verðum að vita hvernig vírusinn
breytist svo við getum haldið í við
óvininn,“ segir Sakuntabhai.
Það er ekki óalgengt að vírus
breytist. Ebóla er vírus af RNA-
stofni líkt og HIV og inflúensa. Mikl-
ar líkur eru á að þessar gerðir af vír-
us stökkbreytast. Það gerir vírusinn
mun hæfari til að aðlagast og einnig
aukast líkurnar á að hann verði
meira smitandi.
„Við sjáum nokkur tilfelli þar sem
fólk er smitað af ebólu en hefur eng-
in sjúkdómseinkenni. Þetta fólk gæti
mögulega verið það sem gæti breitt
út vírusinn, en við erum þó ekki al-
veg viss. Vírusinn getur breyst frá
því að vera ekki eins lífshættulegur
yfir í að verða meira smitandi og það
óttumst við,“ segir Sakuntabhai.
Jonathan Ball, prófessor í veiru-
fræði við Háskólann í Nottingham,
bendir á að það sé enn óljóst hvort
fleiri í þessum faraldri en í þeim sem
hafa geisað áður séu smitaðir af veir-
unni en sýni ekki einkenni sjúkdóms-
ins. Hann segir erfitt að fullyrða um
slíkt.
Smitleiðin gæti breyst
Til að smitast af ebólu þarf að
komast í snertingu smitaðan ein-
stakling. Ebóla smitast ekki með
lofti. „Þó að smitleiðin sé með þess-
um hætti núna þá geta vísindamenn
ekki fullyrt að það eigi ekki eftir að
breytast. Kannski gerist það,“ segir
Noel Tordo, veirufræðingur við Pas-
teur-stofnunina í Frakklandi.
Tordo segir að enn sé margt
órannsakað varðandi ebólu og því
ekki hægt að fullyrða hvernig hún
eigi eftir að haga sér.
Um 40% þeirra sem smitast af
ebólu lifa það af. Vísindamenn í París
binda vonir við að rannsókn á þeim
einstaklingum eigi eftir að veita svör
við því hvers vegna sumir lifa af en
aðrir ekki. Við stofnunina er unnið að
því að þróa tvenns konar bóluefni við
ebólu. Í lok ársins er reiknað með að
hægt verði að prófa bóluefnið á fólki.
Felur sig í náttúrunni
„Þessi tiltekni ebólufaraldur getur
dvínað eða horfið en við eigum ein-
hverntíma eftir að kljást við annan
ebólufaraldur. Það er vegna þess að
þessi tiltekni vírus felur sig í nátt-
úrunni, t.d. í litlum dýrum og fólki
stafar hætta af því í framtíðinni,“
segir James Di Santo, prófessor í
ónæmisfræði við stofnunina.
Hann segir lausnina felast í bólu-
setningu á heimsvísu og bætti við að
ebólufaraldurinn væri verkefni sem
allur heimurinn þyrfti að leysa og
ekki eingöngu vandamál Afríku.
Þó nýgreindum ebólutilfellum hafi
fækkað um þriðjung í þeim löndum
Afríku sem hafa orðið verst úti þá
þýðir það hins vegar ekki að tökum
hafi verið náð á faraldrinum. Þetta
sagði David Nabarro hjá Alþjóða-
heilbrigðismálastofnuninni (WHO)
við AFP-fréttaveituna í vikunni.
Hann sagði ennfremur að margt
væri hægt að læra af þeim aðstæðum
sem hafa komið upp og viðurkenndi
að mistök hefðu átt sér stað þar sem
gripið hefði verið of seint til aðgerða.
Ebólan hefur stökkbreyst
og gæti breyst frekar
Ebólan breytist hratt Hafa ekki náð tökum á faraldrinum þó að færri greinist
AFP
Ebóla Bóluefni gegn ebólu er í þróun og verður líklega tilbúið í lok árs.
Malasíska ríkisstjórnin gaf formlega
út að hvarf vélar Malaysian Airline,
MH370, hefði verið slys og að enginn
hefði lifað af, AFP greinir frá.
Ekkert brak úr vélinni og engin
lík hafa fundist. Vélin hvarf 8. mars
2014. Hún var á leið frá Kuala
Lumpur til Peking.
Yfirvöld segja að flaksins sé enn
leitað, en að í gær hafi allir sem voru
um borð, 239 manns, formlega verið
úrskurðaðir látnir.
Enn er ekki vitað með vissu hvað
varð um vélina. Þó er talið líklegast
að hún hafi hrapað í sunnanvert Ind-
landshaf.
Azharuddin Abdul Rahman, flug-
málastjóri í Malasíu, hvatti aðstand-
endur til að halda áfram, „það er
mikilvægt fyrir fjölskylduna sem
eftir lifir að reyna að lifa eðlilegu
lífi“.
Með því að úrskurða alla sem voru
um borð látna er hægt að greiða út
bætur til aðstandenda fórnarlamb-
anna. Talsmaður malasíska flug-
félagsins sagði að haft yrði samband
við fjölskyldur þeirra sem létust svo
hægt yrði að greiða þeim réttmætar
dánarbætur.
Margir aðstandendur lýstu yfir
efasemdum um að þetta væri sann-
leikanum samkvæmt og hafa vænt,
stjórnvöld og flugfélagið um lygar.
AFP
Flugslys Fjölskylda eins farþegans sem fórst með flugvélinni MH370.
Hvarf malasísku flug-
vélarinnar var slys
Höfuðkúpa sem
fornleifafræð-
ingar fundu í Ísr-
ael gæti varpað
ljósi á flutninga
mannkynsins frá
Afríku fyrir 60
þúsund árum.
Flutningar
mannsins frá
Afríku urðu til
þess að mann-
kynið dreifðist um allan hnöttinn
og varð einnig til þess að Neander-
thalsmaðurinn dó út.
Höfuðkúpan fannst í Manot-helli
og er talin vera 55 þúsund ára göm-
ul. Hún gæti mögulega tilheyrt
fyrsta brottflutta Afríkumanninum.
Þetta kemur fram í nýjasta hefti
tímaritsins Nature, BBC, breska
ríkisútvarpið, greinir frá þessu.
Fyrsti brottflutti Afr-
íkubúinn fundinn?
Hauskúpan sem
fannst í hellinum.
ÍSRAEL
Að minnsta kosti tveir létust þegar
öflug gassprengja sprakk við
barnaspítala í Mexíkó, 54 slösuðust
til viðbótar, þar af 22 börn, að sögn
stjórnvalda í Mexíkó. AFP greinir
frá.
Slökkviliðsmenn náðu að koma
fólki úr byggingunni áður en hluti
hennar hrundi til grunna. Óléttar
konur, nýburar og börn eru á spít-
alanum.
Annar hinna látnu var kona sem
fannst í rústunum. Stjórnvöld telja
ekki ólíklegt að fleiri eigi eftir að
finnast þar. Talið er að um 40%
spítalans hafi eyðilagst.
Létust í gasspreng-
ingu í barnaspítala
Gassprengja Hlúð að særðum.
MEXÍKÓ
8,810
Hafa látist af völdum ebólu
3.686
í Líberíu
3.199
í Síerra Leóne
1.910
í Gíneu
DAUÐSFÖLL
»