Morgunblaðið - 30.01.2015, Page 25
FRÉTTIR 25Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. JANÚAR 2015
Stjórnvöld í Jórdanínu vilja fanga-
skipti við hryðjuverkasamtökin Ríki
íslams en þau tóku til fanga flug-
manninn Moaz al-Kasasbeh. Liðs-
menn Ríkis íslams (IS) krefjast
þess að fá hina írönsku Sajida al-
Rishaw í staðinn fyrir flugmanninn.
Hún er sögð tengd al-Queda og sit-
ur í fangelsi í Jórdaníu. BBC,
breska ríkisútvarpið, greinir frá
þessu.
Áður en fangaskiptin fara fram
vilja jórdönsk stjórnvöld fá sönnun
þess að flugmaðurinn, al-Kasasbeh,
sé á lífi.
Ríki íslams hefur hótað að taka
flugmanninn af lífi ef það fái ekki
hryðjuverkamanninn til sín.
Ríki íslams er einnig með í haldi
Japanann Kenji Goto. Ríki íslams
hefur ekki sæst á kröfu Jórdana um
að sleppa flugmanninum heldur vill
frelsa Japanann og fá í staðinn um-
ræddan liðsmann.
Eiginkona Goto staðfesti þessi
skilyrði sem Ríki íslams hefur sett.
Jórdanía er hluti af bandalagi sem
berst gegn völdum Ríkis íslams á
þessu svæði. Bandarísk stjórnvöld
leiða það bandalag.
Það er ljóst að konungurinn í
Jórdaníu er undir miklum þrýstingi,
bæði frá fjölskyldu al-Kasasbeh um
að frelsa hann og einnig að láta ekki
undan ofbeldi Ríkis íslams.
Moaz al-Kasasbeh er fyrsti Jórd-
aninn sem Ríki íslams nær til sín.
Hann er 26 ára gamall og árið 2009
gekk hann í jórdanska flugherinn.
Hann var í flugvél sem hrapaði yfir
Sýrlandi í árás sem Jórdanar ásamt
Bandaríkjamönnum gerðu í Raqqa
24. desember síðastliðinn. Ríki ísl-
ams er með tögl og hagldir í Raqqa.
Vilja skipta á flugmanni
og hryðjuverkamanni
Jórdönsk stjórnvöld vilja sönnun þess að flugmaðurinn lifi
EPA
Frelsi Jórdanar krefjast þess að fá
flugmanninn aftur á lífi.
Náðu þér í aukin ökuréttindi
Fagmennska og ökufærni í fyrirrúmi
Öll kennslugöng innifalin
www.bilprof.is
Upplýsingar og innritun í síma 567 0300 og 894 2737 • Opið 10-17 alla daga
Næsta
námskeið
hefst
4. febrúar
ÖKUSKÓLINN Í MJÓDD – yfir 40 ár í fagmennsku
Meirapróf
Þekking og reynsla
í fyrrirúmi
Lífið er til þess að njóta gæða
– veldu steik eins og steik á að bragðast
Barónsstíg 11
101 Reykjavík
argentina.is
Borðapantanir
551 9555
Ungt fólk sem býr við fötlun fékk að fara í sleðaferða með hundum af teg-
undinni Husky. Tilefnið er kynning á Husky-endurhæfingarstöðinni fyrir
fatlaða. Ferðast var um Sokolniki-garðinn í Moskvu í Rússlandi.
Þeyst um á hundasleða
EPA
Husky-hundarnir heillandi í snjónum
Að minnsta kosti níu létu lífi í sjálfs-
morðsárás í jarðarför í borginni
Mehtarlam í Afganistan. Fimm lög-
reglumenn og fjórir borgarar lét-
ust auk þess særðust um 34 manns,
samkvæmt AFP. Einstaklingurinn
sprengdi sjálfan sig í loft upp þegar
lögreglan kom auga á hann.
Verið var að jarða þá sem höfðu
orðið fyrir sprengingu í austur-
hluta Afganistans.
Níu létust eftir
sjálfsmorðsárás
AFP
Árás Létust í sjálfsmorðsárás í jarðarför.
AFGANISTAN
Óveður gekk yfir Norður-Noreg í
gær og varð rafmagnslaust þar á
stórum svæðum. Neyðarlínan, 112,
lá niðri á nokkrum stöðum í fleiri
klukkutíma og var fólki bent á að
hringja í annað númer í staðinn,
norska ríkisútvarpið, NRK, greinir
frá þessu.
Grípa þurfti til neyðarrafstöðva í
sjúkrahúsum í Tromsö, Harstad og
Narvik.
Fólk er hvatt til að halda sig
heima enda er býsna snjóþungt og
kraftmikill vindur. Ekki var vitað
um slys á fólki.
NOREGUR
Víða rafmagnslaust í miklu óveðri
Rafmagnslaust Í Norður-Noregi fór
rafmagn víða af á stórum svæðum.