Morgunblaðið - 30.01.2015, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 30.01.2015, Qupperneq 25
FRÉTTIR 25Erlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. JANÚAR 2015 Stjórnvöld í Jórdanínu vilja fanga- skipti við hryðjuverkasamtökin Ríki íslams en þau tóku til fanga flug- manninn Moaz al-Kasasbeh. Liðs- menn Ríkis íslams (IS) krefjast þess að fá hina írönsku Sajida al- Rishaw í staðinn fyrir flugmanninn. Hún er sögð tengd al-Queda og sit- ur í fangelsi í Jórdaníu. BBC, breska ríkisútvarpið, greinir frá þessu. Áður en fangaskiptin fara fram vilja jórdönsk stjórnvöld fá sönnun þess að flugmaðurinn, al-Kasasbeh, sé á lífi. Ríki íslams hefur hótað að taka flugmanninn af lífi ef það fái ekki hryðjuverkamanninn til sín. Ríki íslams er einnig með í haldi Japanann Kenji Goto. Ríki íslams hefur ekki sæst á kröfu Jórdana um að sleppa flugmanninum heldur vill frelsa Japanann og fá í staðinn um- ræddan liðsmann. Eiginkona Goto staðfesti þessi skilyrði sem Ríki íslams hefur sett. Jórdanía er hluti af bandalagi sem berst gegn völdum Ríkis íslams á þessu svæði. Bandarísk stjórnvöld leiða það bandalag. Það er ljóst að konungurinn í Jórdaníu er undir miklum þrýstingi, bæði frá fjölskyldu al-Kasasbeh um að frelsa hann og einnig að láta ekki undan ofbeldi Ríkis íslams. Moaz al-Kasasbeh er fyrsti Jórd- aninn sem Ríki íslams nær til sín. Hann er 26 ára gamall og árið 2009 gekk hann í jórdanska flugherinn. Hann var í flugvél sem hrapaði yfir Sýrlandi í árás sem Jórdanar ásamt Bandaríkjamönnum gerðu í Raqqa 24. desember síðastliðinn. Ríki ísl- ams er með tögl og hagldir í Raqqa. Vilja skipta á flugmanni og hryðjuverkamanni  Jórdönsk stjórnvöld vilja sönnun þess að flugmaðurinn lifi EPA Frelsi Jórdanar krefjast þess að fá flugmanninn aftur á lífi. Náðu þér í aukin ökuréttindi Fagmennska og ökufærni í fyrirrúmi Öll kennslugöng innifalin www.bilprof.is Upplýsingar og innritun í síma 567 0300 og 894 2737 • Opið 10-17 alla daga Næsta námskeið hefst 4. febrúar ÖKUSKÓLINN Í MJÓDD – yfir 40 ár í fagmennsku Meirapróf Þekking og reynsla í fyrrirúmi Lífið er til þess að njóta gæða – veldu steik eins og steik á að bragðast Barónsstíg 11 101 Reykjavík argentina.is Borðapantanir 551 9555 Ungt fólk sem býr við fötlun fékk að fara í sleðaferða með hundum af teg- undinni Husky. Tilefnið er kynning á Husky-endurhæfingarstöðinni fyrir fatlaða. Ferðast var um Sokolniki-garðinn í Moskvu í Rússlandi. Þeyst um á hundasleða EPA Husky-hundarnir heillandi í snjónum Að minnsta kosti níu létu lífi í sjálfs- morðsárás í jarðarför í borginni Mehtarlam í Afganistan. Fimm lög- reglumenn og fjórir borgarar lét- ust auk þess særðust um 34 manns, samkvæmt AFP. Einstaklingurinn sprengdi sjálfan sig í loft upp þegar lögreglan kom auga á hann. Verið var að jarða þá sem höfðu orðið fyrir sprengingu í austur- hluta Afganistans. Níu létust eftir sjálfsmorðsárás AFP Árás Létust í sjálfsmorðsárás í jarðarför. AFGANISTAN Óveður gekk yfir Norður-Noreg í gær og varð rafmagnslaust þar á stórum svæðum. Neyðarlínan, 112, lá niðri á nokkrum stöðum í fleiri klukkutíma og var fólki bent á að hringja í annað númer í staðinn, norska ríkisútvarpið, NRK, greinir frá þessu. Grípa þurfti til neyðarrafstöðva í sjúkrahúsum í Tromsö, Harstad og Narvik. Fólk er hvatt til að halda sig heima enda er býsna snjóþungt og kraftmikill vindur. Ekki var vitað um slys á fólki. NOREGUR Víða rafmagnslaust í miklu óveðri Rafmagnslaust Í Norður-Noregi fór rafmagn víða af á stórum svæðum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.