Morgunblaðið - 30.01.2015, Síða 27

Morgunblaðið - 30.01.2015, Síða 27
27 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. JANÚAR 2015 Félags- og mannvís- indadeild Háskóla Ís- lands hefur auglýst há- degisfund í stofu 101 í Odda í dag, föstudaginn 30. janúar, þar sem Gísli Pálsson mann- fræðingur og fleiri kynna bók, sem Gísli ritstýrði ásamt Banda- ríkjamanni, Gambling Debt. Iceland’s Rise and Fall in the Global Economy. Ég hef ekki tök á því vegna rannsókna erlendis að sækja fundinn, en ég hef lesið bókina. Í henni er hvellur reiðitónn, sem fer illa í vísindariti, en rómverski sagn- ritarinn Tacitus sagði forðum, að segja ætti sögur „sine ira et studio“, án reiði og ákafa. Gísli Pálsson vísar í inngangi til frægrar lýsingar á „hversdagslegri mannvonsku“ Adolfs Eichmanns og bætir við: „Yet Eichmann and his li- kes were not just following orders; they passionately believed in the cause and the system for which they worked. Neoliberalism is just as ba- nal. We argue that the ideology of neoliberalism, with its powerful cult- ural revolution that started in the United States (Doukas 2003) and culminated in the Shock Doctrine (Klein 2007), its intense and incess- ant propaganda machine (Durren- berger and Erem 2010), and the as- cent of the Chicago School economists and the formulation of neoliberalism as a coherent doctrine, is a historical parallel: It seems normal, no one seems responsible, and everyone is simply obeying or- ders.“ Eitt sinn var sagt, að deilum ætti að hætta, þegar nasisminn væri dreginn inn í þær, en Gísli Pálsson byrjar beinlínis árás sína á frjáls- hyggju með því að líkja henni við nas- isma. Eichmann og lagsbræður hans myrtu ekki aðeins sex milljónir Gyð- inga í útrýmingarbúðum, heldur hófu líka mannskæða heimsstyrjöld. Var Eichmann hengdur í Jórsölum fyrir ódæði sín. Gísli segir fleira ótrúlegt í inngangi sínum. Hann talar (bls. xviii) um „Icelandic bandit- financiers“ og kveður (bls. xix) Geir Haarde forsætisráðherra hafa með sjónvarpsávarpi í bankahruninu „been reduced to a prophet and a clown“. Hann segir (bls. xxii), að Ragnar Árnason prófessor sé „clo- sely affiliated with the Boat Owners’ Association“ (og hefði þá átt að geta þess, að Þór Saari alþingismaður hlaut dóm fyrir svipaða aðdróttun, sem talin var staðlaus). Svo mætti lengi telja. Sæma þessar upphróp- anir og aðdróttanir í vísindariti? Furðulegar villur Þótt Gísli Pálsson spari ekki stór- yrðin í innganginum, hefur hann ver- ið naumari á tíma í yfirlestur. Í bók- inni eru furðulegar villur. Til dæmis kennir Gísli sjálfur (tvisvar á bls. xxii) skýrslu um siðferði fyrir banka- hrun við Árnason, Nordal og „Ást- geirsson“, en eflaust er um að ræða Kristínu Ástgeirsdóttur. Kristín Loftsdóttir segir (bls. 6), að Ísland hafi verið hluti danska konungsrík- isins til 1944, en Ísland varð fullvalda konungsríki 1918. Hún segir líka (bls. 13), að Jón Ásgeir Jóhannesson hafi nefnt snekkju sína Viking. En Jón Ásgeir nefndi lystisnekkju sína 101. Hann viðurkenndi aldrei að hafa átt bátinn Thee Viking, og fyrirtæki ann- ars manns var skráð fyrir henni, eins og alræmt varð. Örn D. Jónsson seg- ir (bls. 29), að bankarnir hafi verið seldir 1998–2003. En Útvegsbankinn var seldur 1990, þegar Íslandsbanki var stofnaður. Það hlýtur einnig að valda ruglingi erlendra lesenda, sem bókin er ætl- uð, að orðið „Central Bank of Ice- land“ er þar ýmist haft um Seðla- bankann, eins og rétt er, eða Landsbankann. Til dæmis kynnir Már Mixa (bls. 38) til sögunnar „The main investor of the Central Bank of Ice- land“. Hann hlýtur að eiga við Landsbankann. Már skrifar líka (bls. 43): „It became general knowledge that being associated with the In- dependence Party en- hanced one’s chances of being hired at the Cent- ral Bank of Iceland, as was the case with a former director of the Independence Party becoming one of the bank’s board members.“ Þótt Már eigi eflaust aftur við Landsbankann, er setningin illskiljanleg. Hann telur setu fyrrverandi framkvæmdastjóra Sjálfstæðisflokksins, Kjartans Gunn- arssonar, í bankaráði Landsbankans vera dæmi um, að sjálfstæðismenn gætu vænst þess umfram aðra að vera ráðnir til bankans. En Kjartan var ekki ráðinn til bankans. Hann var einn stærsti einstaki hluthafinn í bankanum að undanteknum Björg- ólfsfeðgum. Og Már hefði mátt geta þess, að aðalráðgjafi Björgólfsfeðga í fjölmiðlamálum var varaþingmaður Samfylkingarinnar, Ásgeir Frið- geirsson. Vilhjálmur Árnason gerir svipaða villu. Hann segir (bls. 48), að Davíð Oddsson hafi verið formaður banka- ráðs Seðlabankans. En hann var það ekki, heldur formaður bankastjórn- arinnar, sem bankastjórarnir þrír skipuðu. Vilhjálmur kallar líka (bls. 55) Danske Bank „the Danish Cent- ral Bank“. En Danske Bank var einkabanki, sem danski seðlabankinn varð raunar að bjarga frá falli haustið 2008 með lánsfé frá bandaríska seðla- bankanum. Fáránlegasta staðhæfingin í bók- inni er þó sennilega frá Dimitra Dou- kas, sem segir um íslensku láns- fjárbóluna (bls. 218): „The bubble started with the „virtual fish“ of the ITQ system, a so-called market- based solution that was born from the fevered brow of a neoliberal eco- nomist in British Columbia.“ Ís- lenska kvótakerfið myndaðist við reynslu happa og glappa, ekki í koll- inum á neinum hagfræðingi. Kvótum var fyrst úthlutað í síld 1975, og urðu þeir brátt framseljanlegir. Þannig varð kerfið sveigjanlegra. Síðan var kvótum úthlutað í loðnu, og hið sama gerðist, að þeir urðu framseljanlegir eftir nokkur ár. Í botnfiski var um skeið reynt að takmarka sóknina með leyfilegum veiðidögum (sókn- arkvóta), en það gafst illa, því að þá hófst kostnaðarsamt kapphlaup um að veiða eins mikið og mögulegt var þessa leyfilegu daga. Þess vegna var tekið upp sambærilegt kerfi afla- kvóta í botnfiski 1984 og hafði áður myndast í uppsjávarfiski, síld og loðnu. Heildarlög voru sett um kvóta í öllum fiskistofnum 1990, og urðu þeir þá framseljanlegir án verulegra takmarkana. Íslenskir hagfræðingar, aðallega Rögnvaldur Hannesson og Ragnar Árnason (sem þá voru einu fiskihagfræðingar okkar), veittu vissulega ráðgjöf um þessi lög og hvöttu til þess, að kvótar yrðu fram- seljanlegir og varanlegir, enda er það besta ráðið til að tryggja hagkvæmni. Samtímis myndaðist slíkt kerfi á Nýja Sjálandi, og hafa kvótar síðan víða verið teknir upp í fiskveiðum. Ekkert orsakasamband Aðferðin í þessari bók er einföld. Hún er að hrúga saman ýmsum hug- myndum, sem höfundum er í nöp við, og kalla einu nafni orsök, en lýsa síð- an bankahruninu sem afleiðingu þessara hugmynda. Ein hugmyndin, sem höfundum er meinilla við, er, að kvótakerfið sé hagkvæmt. Þeirri hugmynd til stuðnings má þó nefna þá einföldu staðreynd, að íslenskur sjávarútvegur er í senn sjálfbær og arðbær, en víðast annars staðar eru fiskveiðar reknar með tapi og stór- kostlegum opinberum styrkjum. Og fráleitt er að kalla kvótakerfið eina af orsökum bankahrunsins. Það mynd- aðist árin 1975–1990 og hafði náð þroska um miðjan tíunda áratug. Hin alþjóðlega lánsfjárkreppa skall hins vegar á 2007 og var vitanlega ekki kvótakerfinu að kenna. Íslensku bankarnir féllu, af því að allar lána- línur til þeirra lokuðust og áhlaup var gert á innstæður. Enginn banki stenst það, enda hefðu erlendir stór- bankar eins og RBS í Skotlandi, UBS í Sviss og Danske Bank í Danmörku fallið, hefðu seðlabankar þessara landa ekki með stuðningi bandaríska seðlabankans og annarra aðila bjarg- að þeim. Bankarnir íslensku höfðu hins vegar vaxið svo hratt, að það var íslenska ríkinu einu og óstuddu um megn að bjarga þeim. Úrslitum réð, að íslenska seðla- bankanum var neitað um sömu lausa- fjárfyrirgreiðslu erlendis og allir aðr- ir seðlabankar fengu. Jafnframt lokaði ríkisstjórn breska Verka- mannaflokksins breskum bönkum í eigu Íslendinga, um leið og hún bjargaði öllum öðrum breskum bönk- um, og síðast, en ekki síst, setti þessi stjórn hryðjuverkalög á Ísland, ekki aðeins á Landsbankann, heldur líka Seðlabankann og Fjármálaeftirlitið. Vegna skeytingarleysis Bandaríkja- manna og fólsku bresku stjórn- arinnar breyttist fyrirsjáanleg kreppa í hrun. En nú er komið í ljós, að bresku bankarnir tveir í eigu Ís- lendinga, KSF og Heritable Bank, áttu vel fyrir skuldum. End- urheimtur í búum bankanna eru líka betri en búist var við. Verst er höfundum bókarinnar við frjálshyggju, sem þeir kalla jafnan „nýfrjálshyggju“. Hún er að þeirra sögn meginorsök bankahrunsins. Vissulega jókst atvinnufrelsi á Ís- landi verulega árin 1991–2004, eins og ég benti á í Wall Street Journal 2004 og Gísli Pálsson vitnar til í inn- gangi. Samkvæmt alþjóðlegum mæl- ingum á atvinnufrelsi var íslenska hagkerfið hið 13. frjálsasta af 130 hagkerfum árið 2004. En það merkir, að tólf hagkerfi voru þá frjálsari, þar á meðal Singapúr, Hong Kong, Sviss, Bretland, Bandaríkin, Nýja Sjáland, Ástralía, Eistland og Lúxemborg. Ef aukið atvinnufrelsi var ástæðan til bankahrunsins, hvers vegna koll- steyptust þá ekki hagkerfi þessara landa í hinni alþjóðlegu láns- fjárkreppu? Höfundar þessarar bók- ar líta fram hjá annarri staðreynd: Regluverkið á íslenska fjár- málamarkaðnum var hið sama og á fjármálamörkuðum í öðrum aðild- arríkjum Evrópska efnahagssvæð- isins. Hvers vegna kollsteyptust þá ekki hagkerfi þessara landa? Þó er kaldhæðnislegur sannleiks- kjarni í þeirri kenningu, að banka- hrunið hafi verið sök frjálshyggj- unnar. Markaðskapítalismi áranna 1991–2004 skilaði svo miklum ár- angri, að orðspor Íslands snarbatn- aði. Þetta góða orðspor smitaði út frá sér til íslensku bankanna, svo að þeir fengu aðgang að ódýru lánsfé um all- an heim. Þegar sást síðan til stærsta skuldunautar bankanna kaupóðs er- lendis, með sítt hár og í leðurjakka, ýmist á einkaþotu eða lystisnekkju, versnaði orðspor íslensku bankanna, og það smitaði út frá sér til íslenska ríkisins, sem kom hvarvetna að lok- uðum dyrum haustið 2008. Klíkukapítalisminn 2004–2008 Bókarhöfundar leggja alla íslenska kaupsýslumenn og bankastjóra að jöfnu. En í skýrslu rannsókn- arnefndar Alþingis kemur skýrt fram, að hóparnir þrír, sem nefndin greindi í atvinnulífinu, voru mis- jafnir. Baugsklíka Jóns Ásgeirs Jó- hannessonar skuldaði miklu meira en aðrir hópar, eins og sést hér á línurit- inu, og hún skuldaði, ólíkt þeim, í öll- um bönkunum. Hennar vegna varð til sérstök og sjálfstæð kerfisáhætta. Í skýrslu rannsóknarnefndarinnar er líka rakið, hvernig Baugsklíkan faldi eignarhald sitt á fyrirtækjum með flóknum gerningum. Aðrir gerðu vissulega ýmislegt svipað, en enginn gekk eins langt og þessi klíka. Höf- undarnir líta líka fram hjá því, að Baugsklíkan var miklu öflugri í krafti fjölmiðlaveldis síns og aðgangshörku en aðrir hópar kaupsýslumanna. Hún fékk jafnvel forseta Íslands til að hafna fjölmiðlalögunum 2004, en hvergi er á þau minnst í bókinni. Þá höfðu þeir Gísli Pálsson og félagar tækifæri til að andæfa. Hvers vegna þögðu þeir? Baugsklíkan þoldi öðrum ekki ádeilur. Þeir blaðamenn, sem birtu óþægilegar fréttir um hana, voru umsvifalaust reknir, og tveir einstaklingar úr Baugsfjölskyldunni gengu jafnvel eitt sinn á fund há- skólarektors til að krefjast þess, að ég yrði rekinn úr prófessorsembætti fyrir gagnrýni á hana. Jafnframt greiddi þessi klíka fjölda rithöfunda fyrir regluleg skrif í blöðum hennar, til dæmis Þorvaldi Gylfasyni, Guð- mundi Andra Thorssyni og Hallgrími Helgasyni. Þegar Jón Ásgeir Jó- hannesson sætti lögreglurannsókn, kváðu Baugspennarnir hana póli- tíska. Svo sannarlega var annarlegt andrúmsloft á Íslandi árin 2004– 2008, þegar klíkukapítalismi hafði leyst markaðskapítalismann af hólmi, en í þessa bók er lítinn fróðleik um það að sækja. Þessi bók einkennist ekki aðeins af reiði, heldur líka yfirlæti. Örn D. Jónsson kallar (bls. 30) íslensku bankamennina „a bunch of ama- teurs“. En ef ævintýri Peters Straa- rups í Danske Bank, Sir Freds Go- odwins í RBS og Marcels Ospels í UBS eru skoðuð, þá blasir við, að þessir „þaulreyndu“ bankamenn voru ekki hótinu skárri. Enginn ís- lensku bankanna lenti þrátt fyrir allt í verulegum erfiðleikum vegna undir- málslánanna bandarísku. Enginn þeirra tók þátt í peningaþvætti eða hagræðingu LIBOR-vaxta. Enginn þeirra var staðinn að því eins og UBS að eyða skjölum um reikninga látinna gyðinga. Auðvitað fóru íslensku bankamennirnir allt of geyst, meðal annars af því að þeir létu Baugsklík- una teyma sig út í ófæru. En það er engin skýring, heldur aðeins klifun (tautology) að segja, að mistök séu gerð, af því að mennirnir, sem gerðu þau, séu mistækir. Bankahrunið varð ekki vegna þess, að íslensku banka- mennirnir væru aular eða af- brotamenn. Það varð ekki heldur vegna þess, að íslenska bankakerfið væri of stórt: Bankakerfi Sviss, Skot- lands, Lúxemborgar og Kýpur voru svipuð að stærð hlutfallslega. Mun- urinn var sá, að þeim var bjargað, en hinu íslenska ekki. Höfundar þessarar bókar reyna af einkennilegum ákafa að gera lítið úr Íslendingum. Þeir geta þess ekki, að breskir ráðamenn sögðu hvað eftir annað ósatt um Íslendinga, svo að ekki sé minnst á fólskuverk þeirra. Engar ólöglegar millifærslur reynd- ust vera frá Lundúnum til Reykja- víkur fyrir bankahrun. Íslenski fjár- málaráðherrann sagði aldrei, að Íslendingar myndu svíkja skuldbind- ingar sínar, eins og Alistair Darling hélt fram. Ísland var ekki gjaldþrota, eins og Gordon Brown fullyrti. Þótt höfundar þessarar bókar geri lítið úr Íslendingum, gera þeir enn minna úr sjálfum sér, ef þeir líkja frjálshyggju við nasisma Adolfs Eichmanns. Væntanlega kemur fram á fundinum í dag, hvort ritstjórinn tali þar fyrir hönd þeirra allra. Eftir Hannes H. Gissurarson » Aðferðin í þessari bók er einföld. Hún er að hrúga saman ýms- um hugmyndum, sem höfundum er í nöp við, og kalla einu nafni or- sök, en lýsa síðan bankahruninu sem af- leiðingu þessara hug- mynda. Hannes Hólmsteinn Gissurarson Höfundur er prófessor í stjórn- málafræði í Háskóla Íslands og sat í bankaráði Seðlabankans 2001–2009. Reiðilestur í stað rannsóknar Lánsfjárbólan var Baugsbóla Heildarskuldir í millj. evra 31. 1. 2005 30. 9. 2008 6.000 5.000 4.000 3.000 2.000 1.000 0 Lán til Baugsklíkunnar Lán til Exista-hópsins Lán til Björgólfsfeðga og tengdra aðila Samsett mynd. Hóparnir þrír, sem nefndin greindi í atvinnulífinu, voru misjafnir.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.