Morgunblaðið - 30.01.2015, Síða 29
UMRÆÐAN 29
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. JANÚAR 2015
Talsmaður Isavia, Friðþór Eydal,
sendi frá sér pistil í gær, 29.01.
2015, undir fyrirsögninni „Betri
gögn – Vandaðra áhættumat“. Þar
vísar hann til þess að ýmsir stjórn-
málamenn hafi í gegnum tíðina gert
sín í milli eitt og annað sam-
komulag sem miðar að því að fækka
flugbrautum á Reykjavíkurflugvelli.
Ekki fylgir sögunni að gjarnan var
það afleiðing afarkosta þar sem
borgarstjórn veitti ríkisstjórn leyfi
fyrir ákveðnum nauðsynlegum
framkvæmdum á flugvellinum gegn
loforði um fækkun flugbrauta. Slík
hrossakaup með flugöryggi eru enn
við lýði, þar sem heimild borg-
arstjórnar til uppsetningar aðflug-
sljósa við A/V flugbraut og felling
trjáa sem skaga upp í öryggissvæði
sömu brautar er skilyrt lokun á
NA/SV flugbraut. Það er lítið gef-
andi fyrir samkomulag sem þvingað
er fram með slíkum afarkostum.
Í desember 2013 sendi forstjóri
Isavia frá sér skýrsluna „Afleið-
ingar lokunar norðaustur suðvestur
flugbrautar Reykjavíkurflugvallar
fyrir sjúkraflug“. Skipulagsfulltrúi
Reykjavíkurborgar studdist við um-
rædda skýrslu sem helsta stoðgagn
til að hafna athugasemdum hags-
munaaðila vegna breytinga á deili-
skipulagi Reykjavíkurflugvallar,
sem samþykkt var af borgarstjórn
1. apríl 2014 og strokar NA/SV
flugbraut út af deiliskipulagi.
Þetta væri ekki markvert nema
fyrir það að umrædd skýrsla for-
stjóra Isavia fjallar um „nothæf-
isstuðul“, sem er skilgreint hugtak í
reglugerð um flugvelli nr. 464/2007
og með hvaða hætti hann skuli
reiknaður. Umrædd skýrsla fer al-
gerlega á svig við forskrift reglu-
gerðar, er því algerlega marklaust
plagg og virðist aðeins framreidd til
að styðja við pólitískan vilja meiri-
hluta borgarstjórnar til að loka NA/
SV flugbrautinni. Umræddri
skýrslu var harðlega mótmælt af
Flugmálafélagi Íslands, Flugfélag-
inu Mýflugi og Öryggisnefnd Fé-
lags íslenskra atvinnuflugmanna.
Svo fór að í apríl 2014 sendi for-
stjóri Isavia bréf til skipulagsfull-
trúa titlað „Staðreyndarvillur í um-
sögn skipulagsfulltrúa
Reykjavíkurborgar: „Samantekt á
athugasemdum vegna breytinga á
deiliskipulagi Reykjavíkurflug-
vallar“, 10. mars 2014“. Í bréfi
þessu eru ýmsar rangfærslur
skipulagsfulltrúa Reykjavíkur-
borgar leiðréttar, þó ekki rang-
færslur forstjóra Isavia um nothæf-
isstuðul.
Hvað aðför talsmanns Isavia
varðar að fagmennsku fulltrúa í
upprunalegum áhættumatshópi
áhrærir, þá byggist hún einnig á
rangfærslum. Fullyrt er að Sam-
göngustofa hafi gert alvarlegar at-
hugasemdir við upprunaleg drög að
áhættumati. Frá Samgöngustofu
bárust athugasemdir í
sjö liðum. Í lið 1 var
beðið um starfsheiti
og reynslu þátttak-
enda svo unnt væri að
meta hvort rétta
þekkingin væri til
staðar. Á því leikur
enginn vafi að í hópn-
um voru fulltrúar
flugrekstaraðila, al-
mannaflugs, flug-
öryggisfulltrúar og
flugstjórar með ára-
tuga reynslu. Þá
koma fimm liðir sem
sneru að framsetn-
ingu, skilgreiningum
og gagnrýni á að
vinnuleiðbeiningum sé
ekki fylgt. Ábyrgð-
araðili verkefnisins er
Isavia, verkefnisstjóri
starfsmaður þess og
ferlið unnið í innan-
hússkerfi þess.
Loks segir orðrétt í
lið 7: „Alvarleiki ör-
yggisafleiðinga er metinn mikill í
öllum númeruðum hættum, s.s.
slys, mannslíf tapast eða búnaður/
tæki eyðileggjast. Þá eru líkur á
slíkum atvikum metnar miklar.
SGS kallar eftir frekari gögnum og
rökstuðningi fyrir þessu mati, þ.e.
tilvísunum í sambærileg eða töl-
fræði.“
Einhugur var í hópnum um al-
varleika öryggisafleiðinga, enda
metinn samkvæmt fyrirlögðu verk-
lagi. Alvarleiki afleiðinga er skil-
greindur Slys, Mannslíf tapast og/
eða Búnaður/tæki eyðileggjast. Lík-
ur eru ekki metnar miklar eins og
fram kemur ranglega í athugasemd
Samgöngustofu, heldur eru þær
metnar Sjaldan, Ólíklegt en mögu-
legt (hefur gerst einstaka sinnum).
Samkvæmt meðfylgjandi áhættu-
töflu 3 í kerfisverklagi Isavia
(KV100 21-1) leiðir þetta til óásætt-
anlegrar áhættu (sjá mynd).
Á fundum áhættumatshópsins
var þessi niðurstaða rökstudd með
vísan í nýleg atvik, slys 2011 þar
sem flugvél frá Flug-
félag Íslands hlekktist
á í lendingu í Nuuk.
Blessunarlega varð
ekki mannskaði en
flugvélin, Dash 8, var
ónýt eftir. Hitt atvikið
var slys 2014 þar sem
samskonar flugvél frá
Greenland Air hlekktist
á í lendingu í Ilullisat.
Þrír einstaklingar hlutu
minniháttar áverka, en
flugvélin var ónýt.
Þá segir í yfirlýsingu
Isavia: „Hópnum tókst
ekki að komast að nið-
urstöðu um áhættu af
breytingunni þar sem
hagsmunaaðilar ve-
fengdu nú þau ítarlegu
gögn sem lögð höfðu
verið fram.“
Þetta er einfaldlega
rangt. Hið rétta er að
hagsmunaaðilar voru
ósáttir við einhliða túlk-
un á niðurstöðum
gagnanna. Hópurinn fékk aldrei að
sjá hin ítarlegu gögn, þrátt fyrir að
hafa beðið um þau á þeim fundi
sem varð síðasti fundur áhættu-
matshópsins. Þeirri bón var svarað
af verkefnisstjóra Isavia með vísan
í vefsíðu Isavia þar sem óska má
eftir upplýsingum á grundvelli upp-
lýsingalaga.
Af framangreindu má ráða að téð
yfirlýsing Isavia er lítt dulinn róg-
burður á hendur þeim sem að upp-
runalega áhættumatinu stóðu. Það
er full ástæða til að benda á að
framkvæmt var faglegt áhættumat
af hópi sem samanstóð af fagaðilum
úr flugrekstri auk starfsmanna
Isavia. Unnið var samkvæmt við-
urkenndu greiningarferli og komist
að sameiginlegri niðurstöðu um að
lokun á NA/SV flugbraut 06/24
hefði í för með sér óásættanlega
áhættu gagnvart flugöryggi.
Talsmanni Isavia svarað
Eftir Sigurð Inga
Jónsson
» Yfirlýsing
Isavia er lítt
dulinn rógburð-
ur á hendur
þeim sem að
upprunalega
áhættumatinu
stóðu.
Sigurður Ingi Jónsson
Höfundur er fyrrv. forseti Flugmála-
félags Íslands og fulltrúi Fluggarða í
áhættumatshópi.
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson| brids@mbl.is
Spilað milli djúpra lægða um
Súgfirðingaskálina
Fjórða lota í keppni um Súgfirð-
ingaskálina var spiluð milli djúpra
lægða í byrjun þorra. Fimmtán pör
mættu til leiks.
Sveinbjörn Jónsson og Sigurður
Ólafsson tóku risaskor, það hæsta
sem náðst hefur í keppninni.
Úrslit kvöldsins urðu eftirfarandi
en meðalskor er 156 stig.
Sveinbjörn Jónsson -
Sigurður Ólafsson. 208
Karl Bjarnason - Ólafur Ólafsson 179
Finnbogi Finnbogas. - Magnús Jónss. 167
Rafn Haraldsson - Jón Sveinsson 159
Kristján Pálss. - Ólafur Karvel Pálss. 159
Flemming Jessen - Kristján Björnss. 159
Eðvarð Sturluson - Mortan Hólm 159
Heildarstaðan, meðalskor 624
stig.
Hafliði Baldurss. - Árni Guðbjörnsson 696
Kristján Pálsson -
Ólafur Karvel Pálsson 686
Flemming Jessen - Kristján H. Björnss. 670
Rafn Haraldss. - Jón Sveinsson 661
Karl Bjarnason - Ólafur Ólafsson 658
Sturla G. Eðvarðss. - Björn Guðbjss. 647
Næsta lota, sú fimmta verður spil-
uð í byrjun góu, mánudaginn 23.
febrúar.
Gullsmárinn
Spilað var á 13 borðum í Gull-
smára mánudaginn 26. janúar.
Úrslit í N/S:
Viðar Valdimarsson - Óskar Ólason 308
Guðlaugur Nielsen - Pétur Antonss. 307
Jón Bjarnar - Katarínus Jónsson 296
Sigurður Björnss. - Halldór Jónss. 284
A/V:
Gunnar Alexanderss. - Elís Helgason 311
Sigurður Njálsson - Pétur Jónsson 310
Guðbj. Gíslad. - Sigurður Sigurðss. 293
Kristín G.Ísfeld - Óttar Guðmss. 293
Félag eldri borgara Rvík
Mánudaginn 26. janúar var spil-
aður tvímenningur á 14 borðum hjá
bridsdeild Félags eldri borgara í
Reykjavík
Efstu pör í N/S
Björn Arnarson – Kolbrún Þórhallsd. 385
Kristín Guðmundsd. –
Kristján Guðmss. 354
Hrafnh. Skúlad. – Guðm. Jóhannsson 352
Björn Árnason – Auðunn R. Guðmss. 339
A/V
Tómas Sigurjss. – Björn Svavarsson 369
Albert Þorsteinss. – Bragi Björnsson 368
Jón Þ.Karlsson – Björgvin Kjartanss. 343
Þorsteinn Bergmann – Axel Láruss. 337
Spilað er í Síðumúla 37.
SAMKVÆMT BÓKSÖLU Í PENNANUM EYMUNDSSON UM LAND ALLT
METSÖLULISTI EYMUNDSSON
VIKAN 21.01.15 - 27.01.15
1 2
5 6
7 8
109
43
Ljónatemjarinn
Camilla Läckberg
Veislan endalausa
Ragnar Freyr Ingvarsson
Kamp Knox
Arnaldur Indriðason
DNA
Yrsa Sigurðardóttir
Bjór
Stefán Pálsson
Heilsubók Röggu nagla
Ragnhildur Þórðardóttir
Afturgangan
Jo Nesbø
Sveitin í sálinni
Eggert Þór Bernharðsson
Þín eigin þjóðsaga
Ævar Þór Benediktsson
Dagbók Kidda klaufa 6
Kaldur vetur
Jeff Kinney