Morgunblaðið - 30.01.2015, Page 32

Morgunblaðið - 30.01.2015, Page 32
32 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. JANÚAR 2015 ✝ Nanna Helga-dóttir fæddist á Eskifirði 16. jan- úar 1928. Hún lést á Landspítalanum við Hringbraut 16. janúar 2015. Foreldrar henn- ar voru Guðný Björg Einarsdóttir frá Eskifirði, f. 1. nóvember 1896, d. 20. september 1985, og Helgi Guðmundsson frá Höfnum, f. 6. maí 1902, d. 28. maí 1956. Systkini Nönnu eru Guðríður Erna, f. 1926, Einar Erlendur, f. 1932, d. 2013, og Guðmundur Ásgrím- ur, f. 1936. Árið 1947 giftist Nanna Kristjáni Fr. Guðmundssyni, f. 13. desember 1923. Foreldrar Kristjáns voru Rannveig Ma- jasdóttir frá Bolungarvík, f. 1891, d. 1972, og Guðmundur Magnússon frá Digranesi, f. 1870, d. 1934. Börn Nönnu og Kristjáns eru: 1. Helga, f. 1949, fyrrverandi eiginmaður Krist- ján Þorsteinsson, þeirra börn: a) Vilhjálmur, f. 1972, börn hans og Aðalbjargar Jóns- dóttur, f. 1964 eru Rúna Björg, f. 1993, og Helga Sóley, f. 1999, b) Lilja, f. 1976, og c) Helgi, f. 1991, unnusta hans er Elín Edda Sigurðardóttir, f. Stefánsson, f. 1966, b) Smári Freyr, f. 1981, sambýliskona hans er Guðrún Edda Ein- arsdóttir, sonur þeirra er Björgvin Freyr, f. 2013, b) Svavar Friðrik, f. 1989. Nanna ólst upp á Eskifirði. Rétt fyrir fermingu veiktist hún af berklum og lá á Sjúkra- húsinu á Seyðisfirði í þrjú ár. Eftir sjúkraleguna vann hún á sjúkrahúsinu, flutti 1946 til Reykjavíkur, fljótlega eftir komuna þangað kynntist hún Kristjáni og hófu þau búskap að Nönnugötu 8. 1949 flytja þau til Húsavíkur þar sem þau bjuggu í sjö ár vegna atvinnu Kristjáns. Þau bjuggu í Garða- hreppi og Hafnarfirði en síð- ustu árin í Kópavogi. Með hús- móðurstarfinu vann Nanna utan heimilis í mörg ár, m.a. við saumaskap með vinkonu sinni Kristgerði Kristinsdóttur. Síðustu starfsárin vann hún hjá Stefáni Skaftasyni lækni. Nanna tók virkan þátt í fé- lagsstörfum, gekk í Kvenfélag Garðabæjar 1958, sat í stjórn og gegndi þar formennsku. Þau hjónin störfuðu saman í Sam-frímúrarareglunni í rúm 50 ár. Útför Nönnu fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík í dag, 30. janúar 2015, og hefst at- höfnin kl. 13. 1989. Unnusti Helgu er Halldór Guðbjarnason, f. 1946. 2. Guð- mundur Friðrik, f. 1950, kona hans er Jenný Karitas Steinþórsdóttir, f. 1956, börn þeirra: a) Kristján Friðrik, f. 1978, giftur Tönju Larsen, f. 1975, þau eiga Gabriellu, f. 2014, fyrir átti Tanja Michelle og Cecilíu og b) Karitas Eir, f. 1992, unnusti hennar Nicolai. Fyrir átti Jenný soninn Eirík Gauta Jóns- son, f. 1975, sem Guðmundur gekk í föðurstað. 3. Guðný Björg, f. 1957, maður hennar er Markús Jóhannsson, f. 1951, börn þeirra: a) Nanna Mjöll, f. 1979, gift Páli Friðrikssyni, f. 1981, börn þeirra eru Kristín Björg, f. 2005, og Markús Frið- rik, f. 2012, b) Lísa María, f. 1984, hennar maður er Hannes Steindórsson, f. 1978, dóttir þeirra Eva Nadia, f. 2014, fyrir átti Hannes Söru Nadiu, f. 2005, og Steindór Örn, f. 2007, c) Sindri, f. 1988. 4. Smári, f. 1960, kona hans er Soffía Júlía Svavarsdóttir, f. 1953, börn þeirra: a) Heiða, f. 1974, hún á Júlíu Sól, f. 1999, sambýlis- maður Heiðu er Þorvaldur Elsku fallega amma mín hefur kvatt þennan heim. Eins og það er nú sárt að þurfa að kveðja hana fyrir fullt og allt þá sitja eftir fal- legar og dýrmætar minningar um einstaka manneskju, amma var alltaf góð, yndisleg, falleg og passaði uppá að líta alltaf vel út. Þegar horft er um öxl þá er ég mjög heppin og þakklát fyrir að hafa átt þig fyrir ömmu. Þegar amma var ung þá kynnist hún afa og leiðir þeirra hafa aldrei skilið síðan þá. Allt hefur sitt upphaf og sinn endi. Kæra amma mín, ég á eftir að sakna þín sárt og mun ylja mér við allt það góða sem við áttum saman. Þú ert nú komin á góðan stað með þínu fólki. Hvíldu í friði, elsku fallega sál. Lilja. Það er föstudagur, 16. janúar, afmælisdagurinn hennar ömmu Nönnu. Sólin skín og jörðin er þakin snjó, þetta er svo fallegur dagur. Ég var kát og glöð þennan morgun því ég hélt að elsku amma mín myndi ná sér eftir viku veik- indi, samt var ég með einhverja skrítna tilfinningu í hjartanu. Ég var að fara hringja í mömmu og óska henni til hamingju með dag- inn því amma var ennþá á spít- alanum, en mamma var fyrri til að hringja, amma var dáin. Skyndi- lega var ekki bjart lengur, tárin streymdu niður kinnarnar, ég vildi ekki trúa því sem mamma sagði mér. Ég fékk sáran sting í hjartað og fannst þetta svo óraun- verulegt því að mér fannst amma eiga svo mikinn tíma eftir með okkur. Ég á svo margar góðar minn- ingar um ömmu og gæti hreinlega skrifað í allt kvöld um allar stund- irnar okkar saman. Amma var einstaklega hjartgóð og ljúf kona, hún og afi hafa alltaf hugsað hlýtt til allra og voru ætíð sérstaklega góð við vini sína og fjölskyldu. Þau voru fyrirmyndarhjón sem ég hef alltaf litið upp til og hef ósjaldan sagt að ég ætli að verða eins og amma Nanna þegar ég er orðin stór. Þau hafa verið góð fyr- irmynd fyrir önnur hjón um það hvernig eigi að lifa í sátt og sam- lyndi, koma vel fram hvort við annað og náungann. Ég á erfitt með að sætta mig við það að ég muni ekki finna aftur kærleikann sem stafaði af ömmu, finna ekki hlýjuna og góðmennskuna. Þegar afi lá inni á spítala í fyrra þá áttum við margar góðar stundir saman og ræddum um lífið og tilveruna. Afi sagði mér að vináttan væri mikilvægust af öllu, amma og afi voru bestu vinir og amma var vin- kona allra. Ég er svo þakklát fyrir síðustu stundirnar okkar Evu Nadíu með ömmu og afa saman. Við fórum í heimsókn til þeirra í Boðaþingið í vikunni sem hún veiktist og drukkum með þeim kaffi. Amma hélt á Evu sem var í heklaðri peysu frá henni og það skein af henni gleðin. Mér þykir sorglegt að amma fékk ekki fleiri stundir með henni og mér finnst skrítið að geta ekki gengið aftur til ömmu með Evu í vagninum, kíkt í heim- sókn til þeirra og jafnvel fengið smákökur og annað bakkelsi sem hún bakaði á færibandi, þá að verða 87 ára gömul. En mér þykir vænt um síðasta skiptið sem ég sá þig, elsku amma mín, við vorum í fyrsta tímanum í ungbarnasundi í Boðanum með Evu. Við ákváðum að fara í sund þangað svo að þú og afi gætuð komið og séð litlu Evu taka fyrstu sundtökin sín. Það var tilviljun að þú komst óvænt inn í fyrsta sundtímann, þá varstu að fara yfir til afa en við höfðum ákveðið að bjóða ykkur að koma og horfa á næsta tíma. Þú kallaðir á okkur yfir laugina þegar þú sást okkur og þú varst svo glöð, þú bjóst ekki við því að sjá okkur þarna. Þetta var í síðasta skipti sem ég sá þig, elsku amma mín, og mikið er ég þakklát fyrir það. Elsku amma mín, ég mun varð- veita góða minningu um þig í hjartanu mínu alla tíð og ég mun halda uppi minningu um þig við litlu stelpuna mína. Elsku amma mín, ég segi við þig með tárin í augunum eins og þú sagðir alltaf við litlu Evu mína, ástin þín, hvíldu í friði, elsku amma. Lísa María Markúsdóttir. Sögusviðið er á Hlíðarenda á Eskifirði. Við vorum fjögur systk- inin, ég elst, þá Snúlla systir, næstur var Bommi sem lést fyrir rúmu ári og yngstur er Gummi. Við áttum góða æsku og nutum þess að leika okkur í fjörunni og fara til berja. Mjóeyrin heillaði og dró að sér ungviðið sem naut þess að busla í sjónum. Árin liðu og við systurnar fluttum suður og stofn- uðum fjölskyldur. Samgangur á milli okkar systra og fjölskyldna var alla tíð mikill. Um helgar og á frídögum var oftar en ekki farið í lautarferðir. Smurt brauð og heimalagað bakkelsi var ómiss- andi í þeim ferðum. Einnig áttum við systur saman margar sam- verustundir í útlöndum. Fyrsta ferðin okkar til útlanda var sigling með Gullfossi til Englands haust- ið 1962 og áttum við eftir að fara í fleiri ferðir sem eru eftirminnileg- ar. Það er sérstök tilfinning að fylgja systur minni til grafar og minnist ég hennar með þakklæti fyrir allt sem hún gerði fyrir mig. Það var sama hvað hún gerði, það lék allt í höndunum á henni enda var hún flink hannyrðakona, list- ræn og smekkvís. Snúlla eignaðist góðan lífsförunaut og einkenndist samband þeirra af gagnkvæmri virðingu og ást. Kæri Kristján, ég votta þér og afkomendum innilega samúð mína. „Kærleikurinn er mjúk hönd, sem hljóð- lega mjakar örlögunum til hliðar.“ (Sigfrid Siwertz) Erna Helgadóttir. Í dag er kvödd Nanna Ingi- björg Helgadóttir, Snúlla frænka. Andlát hennar bar brátt að og eft- ir sitjum við og söknum hennar. Það er erfitt að sætta sig við að hún skuli horfin af þessari jarð- vist. Við minnumst hennar með miklum kærleik og virðingu. Kiddi og Snúlla bjuggu í nokkur ár norður á Húsavík og þá hittum við þau ekki oft. Þau fluttu suður til Reykjavíkur á 6. áratug síðustu aldar og þá kynntumst við Snúllu frænku betur. Hún var einstak- lega hlý, vönduð og grandvör kona. Henni hefur eflaust þótt nóg um þegar ein okkar var úti að leika með börnum hennar, þeim Helgu og Gumma, þegar þau bjuggu á Teigunum, og stóð og skutlaði af sér skónum bara til að athuga hversu langt hann færi, skórinn lenti í stofuglugganum hjá nágrönnum sem brotnaði. Snúlla tók þessu með jafnaðar- geði og benti fallega á það að slíkt yrði ekki endurtekið. Með Snúllu og fjölskyldu eyddum við mörgum jóla- og nýársdögum með foreldr- um okkar sem eru nú í dag dýr- mætar minningar. Við kynntumst Snúllu enn betur þegar við kom- umst í fullorðinna manna tölu og hittumst reglulega í frænkuboð- um með henni og dætrum hennar Helgu og Guðnýju Björgu og mömmu okkar, sjö frískar systur, mæðgur og frænkur ættaðar að austan. Þetta voru skemmtileg frænkuboð og hlátrasköllin óm- uðu langt út í tómið. Við fórum í styttri ferðir saman bæði í sum- arbústað og norður í land en skruppum einnig til Kaupmanna- hafnar og áttum þar viðburðaríka helgi og leið okkur líkt og ungum stúlkum á heimavist þar sem við gistum. Þá var svo kátt að við sofnuðum hlæjandi og vöknuðum jafn kátar í bragði. Hún var fé- lagslynd og tók þátt í ýmiss konar félagsstarfi, fylgdist vel með þjóð- félagsumræðu líðandi stundar, hafði sterkar skoðanir en virti jafnframt skoðanir annarra. Að leiðarlokum þökkum við þér, elsku Snúlla frænka, fyrir samfylgdina og alla hlýjuna sem þú auðsýndir okkur. Í minninga- bankanum geymum við mynd af fallegri, ljúfri og listrænni konu sem okkur þótti undurvænt um. Minningin lifir. Fósturlandsins Freyja, fagra Vanadís, móðir, kona, meyja, meðtak lof og prís! Blessað sé þitt blíða bros og gullið tár: Þú ert lands og lýða ljós í þúsund ár! (Matthías Jochumsson) Kristbjörg , Jórunn Lísa og Magðalena Kjartansdætur. Í dag fer fram útför góðrar konu sem alltaf reyndist mér sem og öðrum vel. Mér er ljúft að minnast konu sem ég átti mikil og góð samskipti við, lengst af sem tengdasonur hennar. Það var fyrir hartnær 45 árum að ég kom fyrst á heimili Nönnu og Kristjáns við Álfaskeið í Hafn- arfirði í fylgd Helgu dóttur þeirra. Strax frá fyrstu kynnum skynjaði ég þá hlýju sem stafaði frá þeim hjónum. Nanna sem og Kristján reyndust okkur mjög vel og studdu okkur mikið á fyrstu bú- skaparárunum. Nanna og Krist- ján hófu rekstur matvöruverslun- ar árið 1972 sem þau ráku í fjölda ára. Þar var gott fyrir fólk sem lít- ið átti að versla. Oftast þegar vitn- að var til Nönnu eða Kristjáns þá voru þau bæði nefnd í sömu andrá. Samheldnin og gagnkvæm væntumþykja þeirra var slík að erfitt var að nefna aðeins annað þeirra. Það var sama hvort þau voru í atvinnurekstri, í fé- lagsstörfum eða fjölskyldumál- um, allt gerðu þau það saman með einni undantekningu þó. Nanna starfaði mikið fyrir Kvenfélag Garðabæjar, m.a. sem formaður 1967-1969. Um 50 ára skeið störfuðu Nanna og Kristján í Alþjóða Sam- Frímúrarareglunni á Íslandi. Á heimasíðu Reglunnar er tilgangi hennar lýst þannig „Tilgangur frí- múrarastarfsins er mannrækt. Frímúrarareglur leggja fram ákveðna aðferð til að kynnast sjálfum sér, til að kynnast innri veruleika sínum til aukins andlegs þroska. Menn stefna að því að bæta sjálfan sig til þess að geta tekið þátt í að bæta heiminn. Með viðleitni til aukins þroska vaknar skilningur á óeigingjarnri þjón- ustu, svo að unnt sé þannig að stuðla að auknum mannskilningi, gagnkvæmri virðingu, jafnrétti og réttlætiskennd. Þannig er stefnt að réttlátara samfélagi manna og bjartari framtíðarvon- um“. Nanna og Kristján hafa svo sannarlega náð að tileinka sér þessi gildi og látið aðra sem um- gengust þau njóta þess, enda eru þau mikilsvirt í Reglunni sem og annars staðar. Einn af þeim mikilvægu þátt- um sem sköpuðu hjá mér tilfinn- ingu um að jól væru að nálgast var heimsókn mín til Nönnu og Krist- jáns, oftast á Þorláksmessu eða aðfangadag í yfir fjörutíu skipti. Þá naut ég rausnarlegra veitinga hjá Nönnu. Heitt rjómasúkkulaði, hvítar og brúnar randalínur og smákökur voru fram bornar í ómældu magni. Þó leiðir okkar Helgu hafi ekki legið saman und- anfarin níu ár, þá breyttist ekkert í því góða viðmóti er Nanna og Kristján sýndu mér. Ég heimsótti þau síðast á aðfangadag á hjúkr- unarheimili DAS í Kópavogi þar sem Kristján hefur búið síðastlið- ið ár. Þar tóku þau Nanna og Kristján á móti sínu fólki með sömu reisn og hlýhug og á árum áður. Nanna var vel á sig komin. Ekki hvarflaði að mér að þetta yrði mín síðasta heimsókn til þeirra Nönnu og Kristjáns sam- an. Mér er efst í huga þakklæti og virðing er ég kveð með þessum fá- tæklegu orðum fyrrverandi tengdamóður mína um leið og ég votta Kristjáni og fjölskyldu hans samúð. Kristján Þorsteinsson. Nanna lést á afmælisdaginn sinn, hún varð 87 ára. Hún gekk í Sam-frímúrararegluna, ásamt Kristjáni Fr. Guðmundssyni, eig- inmanni sínum, fyrir röskum 50 árum. Þau voru stofnendur stúk- unnar Sindra og þar lágu leiðir okkar fyrst saman. Mér fróðari menn munu kunna og segja sögu þeirra og allt það sem þau lögðu Reglunni til. Nanna var okkur í stúkunni sem kærleiksrík móðir, hún studdi okkur fyrstu sporin og leiddi okkur svo og leiðbeindi. Sjálf vann hún af alúð og ná- kvæmni og vænti þess af okkur systkinunum að við gerðum slíkt hið sama. Vegsemd og hagur stúkunnar var henni hjartans mál. Hún gaf okkur Sindra systkin- um það veganesti sem enginn get- ur frá okkur tekið. Við syrgjum, en vonum og trúum að ljós visku hennar muni lýsa okkur veginn. Fyrir vináttu hennar og Krist- jáns við mig og mína verð ég æv- inlega þakklát. Handleiðslu þeirra og óþrjótandi þolinmæði, tryggð og velvild verður ekki með orðum lýst, en er rist í hjörtun. Nanna var falleg kona, svo fín- leg og nett með sitt silfraða hár. Hún var líka svo sterk og stór. Það sýndi hún ekki síst eftir að Kristján veiktist alvarlega. Hún stóð við hlið hans, eins og bjarg sem bifast ekki, studdi hann og hvatti, en var eins og eikin, sem „bognar ekki en brotnar í bylnum stóra seinast“. Nanna er dáin, það er víst, en kærleikur hennar, vináttan, góð- vildin og umhyggjusemin – allur hennar andlegi styrkur – er enn í fullu gildi – það vitum við. Það allt er raunverulegt – það getur ekki dáið. Víst er söknuður okkar sár, en mestur er missir Kristjáns og fjöl- skyldunnar, sá einn missir mikið, sem mikið hefur átt. Háa skilur hnetti himingeimur, blað skilur bakka og egg; en anda, sem unnast, fær aldregi eilífð að skilið. (JH) Guð gefi Kristjáni og ástvinum Nönnu styrk í sorg og söknuði og leiði hana í ljósið eilífa. Vilhelmína Þór. Nanna var einstök kona, glæsi- leg, hlýleg og fyrirmynd margra. Mamma og Nanna voru miklar vinkonur í tæp 70 ár og mágkonur næstum jafnlengi. Góð vinátta og tengsl hafa ætíð verið á milli fjöl- skyldna okkar. Þegar maður hugsar til baka þá hafa Nanna og Kiddi bróðir hennar mömmu, Kristján Fr. Guðmundsson, alltaf verið til staðar í lífi okkar. Fjölskylduheimsóknir þar sem heyrðist spjall og hlátrasköll frá fullorðna fólkinu á meðan við krakkarnir lékum okkur saman. Það var alltaf gott að koma til þeirra. Nanna bauð upp á heima- bakað bakkelsi á stífstraujuðum dúk með útsaumuðum löber ofan á. Hvort sem komið var til þeirra með fyrirvara eða óvænt var alltaf tekið svo fallega á móti manni og Nanna sjálf svo glæsileg og allt svo fallegt í kringum hana. Umhyggjan og lífsgleðin ein- kenndi hana Nönnu. Ef eitthvað bjátaði á var hún og þau hjónin alltaf komin í heimsókn til að sýna stuðning. En hún hafði sínar ákveðnu skoðanir og kom þeim al- veg skýrt til skila. Hún var ákveð- in og vildi hafa reglu og hlutina eins og þeim bar að vera. Þó voru aldrei læti eða yfirgangur, aðeins hlýleg ákveðni í rökum hennar. Nanna var einstaklega lagin í höndunum og saumaði meðal ann- ars stórglæsilegan brúðarkjól Rannveigar systur. Í gegnum Nönnu og Kidda kynntust Ragnhildur og maður hennar Sam-Frímúrarareglunni. Þar hefur í gegnum árin verið ómetanlegt að njóta visku, reynslu og leiðsagnar Nönnu. Sú leiðsögn mun fylgja okkur um ókomna tíð. Þegar horft er til baka og hugs- að til Nönnu, sér maður strax fyr- ir sér glæsilegt, brosmilt og hlý- legt andlit hennar þar sem var alltaf stutt í hláturinn. Nönnu er sárt saknað, hún snerti líf margra. Minningin um þessa mögnuðu konu mun lifa um ókomin ár og þakklæti fyllir hjörtu okkar sem kynntumst henni. Við systkinin sendum innilegar samúðarkveðjur til Kidda og allr- ar fjölskyldunnar. Ragnhildur Jónsdóttir, Jón Diðrik Jónsson, Gunnar Jónsson, Rannveig Jónsdóttir. Nanna I. Helgadóttir Hún Dúna, fyrr- verandi tengdamóð- ir mín, var allt í senn, falleg, bros- mild, hjartagóð og velviljuð og á ég ekkert nema hlýjar minningar um þá góðu konu. Sem dæmi tók hún upp á því af- sinni hjartagæsku að færa dætr- um mínum Hjördísi og Öglu jóla- gjafir og töluðu þær litlar um „ömmu Dúnu“ sem þær áttu í sameiningu með Gunnari, Önnu og Ágústi. Dúna var einhver mesti snyrti- pinni sem ég hef kynnst um ævina en það breytti því ekki að henni Guðrún Ólafsdóttir – Dúna ✝ Guðrún Ólafs-dóttir (Dúna) fæddist 12. ágúst 1933. Hún lést 17. janúar 2015. Útför Dúnu fór fram 23. janúar 2015. þótti afar vænt um skrattakollinn Gunnar son minn sem var með ömmu Dúnu í vasanum, en hann fór létt með að snúa heilu húsi við þegar hann var í stuði og á eftir orm- inum gekk amma Dúna: „Meiddir þú þig nokkuð, Gunni minn?“ En þó eru sumir sem láta sér lynda það að lifa út í horni óáreittir og spakir, því það er svo misjafnt sem mennirnir leita að og misjafn tilgangurinn sem fyrir þeim vakir. (Tómas Guðmundsson) Þakka góða samfylgd. Með samúðarkveðjum til sómamannsins Gunnars, barna og barnabarna. Hjörtur Aðalsteinsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.