Morgunblaðið - 30.01.2015, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 30.01.2015, Blaðsíða 34
34 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. JANÚAR 2015 ✝ KristinnPálmason fæddist á Patreks- firði 26. maí 1963. Hann lést á krabbameinsdeild Landspítalans 21. janúar 2015. Foreldrar Krist- ins eru Sigurþóra Magnúsdóttir, f. 20.6. 1931, og Pálmi Magnússon, f. 22.12. 1936, d. 1975. Systkini Kristins eru Helgi Páll, f. 23.10. 1960, Guðný Freyja, f. 3.12. 1961, og Skjöldur, f. 17.2. 1968. Kristinn ólst upp á Patreks- firði. Árið 1984 kynntist hann eiginkonu sinni, Salóme Þor- björgu Guðmundsdóttur, og eignuðust þau tvö börn, Re- bekku, f. 4.3. 1989, gift Björg- vini Rúnari Valentínussyni, og Gabríel, f. 13.7. 1993. Dótt- ursonur Kristins er Alexander Örn Björgvinsson, f. 2.4. 2012. Kristinn stundaði sjó- mennsku á yngri árum en árið 1985 byrjaði hann að vinna í Mjólkurstöð Vestur-Barða- strandarsýslu og í kjölfarið fór hann í nám til Danmerkur þar sem hann lærði mjólkuriðn og útskrifaðist sem mjólkurtæknifræð- ingur árið 1992. Frá Danmörku flutti fjölskyldan á Selfoss þar sem hann vann sem mjólkurfræðingur hjá Mjólkurbúi Flóamanna allt þar til að hann hætti vegna veikinda. Fjölskyldan átti allan hug Kristins og undi hann sér hvergi betur en í faðmi hennar. Kristinn missti föður sinn þegar hann var aðeins 12 ára gamall og það mótaði hann mikið og hafði áhrif á áhuga hans á andlegum og trúar- legum málefnum. Kristinn var meðhjálpari í Selfosskirkju frá árinu 2007. Kristinn átti fjölmörg áhuga- mál í gegnum tíðina sem hann sinnti af miklum móð og má þar nefna svifdrekaflug, seglbrettasiglingar, leiklist, svifflug, líkamsrækt, hjólreiðar og bókalestur sem var alltaf hans stærsta áhugamál. Útför Kristins fer fram frá Selfosskirkju í dag, 30. janúar 2015, kl. 15. Öll við fáum okkar kvóta af meðlæti og mótlæti. Flest við munum einnig hljóta okkar skerf af ástinni. Farðu í friði góði vinur þér fylgir hugsun góð og hlý. Sama hvað á okkur dynur aftur hittumst við á ný. Úr hjarta mínu hverfur treginn er ég hugsa um hlátur þinn. Bros þitt veitti birtu á veginn betri um stund varð heimurinn. Farðu í friði góði vinur þér fylgir hugsun góð og hlý. Þar til heimsins þungi dynur þokar okkur heim á ný. Sólin skín á sund og voga sumar komið enn á ný. Horfið burt í bláum loga stjörnublik á bak við ský. (Magnús Eiríksson) Elsku Kiddi minn, með tárum mínum kveð ég þig. Salóme. Bréf til pabba. Elsku pabbi, við þökkum þér fyrir lífið sem þú gafst okkur, við værum ekki hér án þín. Allt sem þú kenndir okkur munum við ætíð varðveita í hjörtum vorum. Þú kenndir okkur hvernig koma eigi fram við náungann, af virð- ingu og hreinskilni, þú kenndir okkur réttlæti og þolinmæði og að allir hafa sama tilverurétt. Ást þín á lífinu smitaði út frá sér til allra sem þig þekktu, faðmlögum þínum og væntumþykju gleymir enginn. Þú og mamma sýnduð okkur hvernig sönn ást er, hvernig tvær manneskjur verða sem eitt. Að hafa gefið þér afastrák er mín stærsta gjöf til þín, að sjá ykkur leika saman, að sjá hve mikið þú dáðir hann og dekraðir, eru dýr- mætustu minningar mínar. Vin- átta ykkar tveggja verður varð- veitt um alla tíð og munum við kenna komandi afabörnum allt sem þú kenndir okkur. Þó þú sért farinn úr líkama þínum lifir þú enn í hjörtum okk- ar, þú lifir í sólinni, þú lifir í vind- inum, þú lifir allt í kringum okk- ur. Við munum alltaf sakna þín. Við elskum þig í þessum heimi og við munum elska þig í þeim næsta. Við hlökkum til að sjá þig þegar þar að kemur. Þín börn, Gabríel, Rebekka, Björgvin og Alexander. Lífið er óvissuferð … Því höf- um við svo sannarlega fengið að kynnast, óviðráðanleg ytri öfl ákveða hvernig og hvenær mað- ur hrekkur upp af, en áður en að því kemur erum við svo heppin að njóta þess góða sem lífið býð- ur upp á. Ég ætla einmitt að tala um brot af því sem sem lífið bauð Kidda mági mínum upp á. Fyrir 30 árum sendu englarnir litlu systur mína vestur á Patreks- fjörð, þar kviknaði ástin þeirra á milli, Kiddi var blíður í ástum, því í öllum þurrleikanum og von- brigðunum var ástin honum eins óþrjótandi og grasið. Kiddi mágur minn fann upp faðmvæðinguna, bræður mínir streittust lengi vel á móti, þeir vildu rétta honum spaðann, Kiddi tók það ekki í mál og um- vafði þá örmum sínum þétt og lengi, að lokum létu þeir undan. Hann var sáttur við alla, hann hlustaði á aðra, líka þá leiðinlegu og óupplýstu, þeir eiga líka sína sögu, hann forðaðist þá hávaða- sömu og freku, þeir angra sál- ina. Kiddi hafði að geyma ótelj- andi mannkosti, hann gat alltaf séð það fyndna við lífið, hann sá aldrei neitt neikvætt í nokkurri mannveru, hann náði að laða fram það besta í öllum, af hverju mátti hann ekki halda því áfram? Hann bar sig aldrei sam- an við nokkra manneskju, því hann vissi að það eru til mik- ilvægari og léttvægari persónur en hann sjálfur. Kiddi hafði gaman af að dæla adrenalíninu bæði hjá sér og sín- um nánustu, hann stundaði alls- konar sport sem krafðist hug- rekkis, eins og að hlaupa fram af fjalli með flugdreka á bakinu, hvernig virkar það? Og síðar að svífa um í vélarlausum vélum, svokallað svifflug, sem kostaði hann og son hans næstum lífið einu sinni. Þetta er bara brot af sportinu sem hann stundaði … Verndarenglar hans höfðu í mörgu að snúast, bjarga honum frá hinu og þessu, alltaf snéri hann heim, mislaskaður eftir hverja ferð. Hann hlúði að andlegum styrk sínum og reyndi að vernda sig fyrir skyndilegum óhöppum, hann hélt alltaf sálarró sinni í þessum hávaðasama heimi. Það komst enginn undan því að faðma þennan góða mann, síðustu dagana krafðist hann þess af mér að faðmlag skyldi það vera, ég reyndi ekki að fær- ast undan því, ég skyldi umvefja hann örmum mínum. Með öllum þeim leiðindum og brostnu draumum í þessum heimi er þetta samt dásamlegur heimur, með dásamlegar minn- ingar um dásamlegan mann. Það er á hreinu að minningin um hann mun lifa með okkur, það verða sagðar margar sögur af honum í framtíðinni, og afkom- endur hans munu vonandi aldrei þreytast á að heyra sögur um afa Kidda. Við skulum ekki gleyma eft- irlifendum, geymum ekki til hinsta dags að leggja þeim blóm- sveig, látum þau fá hann strax, geymum ei hrósið, hrósum þeim nú, geymum ei að breiða yfir brestina, breiðum yfir þá í dag. Elsku hjartans litla systir. Re- bekka, Gabríel, Björgvin og Al- exander Örn … Tíminn einn getur límt saman brotið hjarta … Guðrún Margrét Guðmundsdóttir. Við systkinin minnumst Kidda sem indælasta frænda okkar sem gaf innilegustu og þéttustu knús- in. Það skein úr augum hans hversu vænt honum þótti um sína nánustu, enda var hann mik- ill fjölskyldumaður. Hann hafði þann eiginleika að gera fólkið í kringum sig einlægt og opið, ein- mitt vegna þess að það var ná- kvæmlega eins og hann var. Svo hlýr og opinn og tilbúinn að tala um tilfinningar, enda sérlegur áhugamaður um hin andlegu mál. Kiddi og pabbi áttu einstak- lega gott samband og það var í ófá skipti sem við vissum af pabba einum úti í potti að eiga langt og gott spjall við Kidda frænda. Það er ofboðslega sárt að kveðja elsku Kidda. Við vitum hins vegar að nú ert hann kom- inn á góðan stað þar sem honum mun líða vel. Við viljum skilja eft- ir ljóð í minningu hans sem Guðný Gígja samdi. Kiddi mun alltaf eiga stórt pláss í huga okkar og hjarta. Lít um öxl, um farinn veg. Leiðin löng, leiðin ströng. Eitt eyðimerkursandkorn, eitt augnablik sem stjörnublik augna þinna. Haltu mér fast, slepptu mér, hugsar þú, hugsa ég. Eitt eyðimerkursandkorn í dulargervi. Hlutgervi hugsana minna… …til þín. Til þín. Í margfeldi stjarnanna hugsa til þín. Svanhvít Sjöfn, Guðný Gígja og Pálmi Snær Skjaldarbörn. Nú hefur hann Kiddi vinur minn lokið sinni vegferð allt of snemma eftir nokkurra ára bar- áttu við krabbamein. Fráfall hans ætti því kannski ekki að vera alveg óvænt en þannig upp- lifði ég það samt. Hann var mjög hraustur að upplagi og eftir að hafa staðið af sér mörg og alvar- leg slys við iðkun áhugamála, sem spönnuðu allt frá hjólreiðum til svifdreka- og svifflugs, þá var ég farinn að trúa því að það næð- ist að halda meininu í skefjum og hann ætti mörg ár eftir ólifuð. En glíman við þennan sjúkdóm er víst erfiðari og óútreiknanlegri en maður vill gera ráð fyrir. Við Kiddi þekktum hvor til annars alveg frá barnæsku en urðum þó ekki vinir fyrr en hann kom í nám suður til Reykjavíkur. Fyrir hálfgerða tilviljun lágu leiðir okkar saman og það endaði með því að ég kynnti hann fyrir mínum vinum þar sem hann féll strax vel inn í hópinn. Fljótlega kom í ljós að áhugamál okkar sköruðust víða. Eins og sönnum Vestfirðingum sæmdi þá þótti okkur gaman að lyfta glösum og kíkja út á lífið og frá þessum tíma á ég margar skemmtilegar minn- ingar þar sem Kiddi kemur oftar en ekki við sögu. Það var þó ann- ar þráður sem tengdi okkur sam- an þannig að úr varð ævilangur vinskapur. Við höfðum báðir áhuga á bókmenntum, heimspeki og trúmálum og lásum töluvert um þau málefni. Þegar þetta sameiginlega áhugasvið kom upp á yfirborðið hófst samræða sem hefur fylgt okkur í gegnum tíð- ina og myndað kjarnann í vin- áttu okkar. Það er ótrúlegt að hugsa til þess að þrátt fyrir að hafa brallað margt saman öll þessi ár þá höfum við aldrei rifist og varla orðið sundurorða nema þá helst í akademískum rökræð- um um trúmál þar sem skoðanir okkar fóru ekki alveg saman. Kiddi var trúaður í besta skiln- ingi þess orðs, trúði á góðan og umburðarlyndan guð og eilíft líf, á meðan vinur hans var öllu tor- tryggnari á almættið. Þegar ég sit hér og rita það sem kalla mætti lokaorð í langri samræðu okkar þá vona ég innilega hann hafi haft sannleikann sín megin og sé nú staddur á góðum stað í úrvals félagsskap. Þrátt fyrir að Kiddi hafi misst föður sinn ungur að árum og lent í ýmsum óhöppum á lífsleiðinni þá hef ég alltaf litið á hann sem gæfumann. Hann var heppinn með sjálfan sig og upplag sitt, virkaði sáttur í starfi og áhuga- málum, átti góða stórfjölskyldu og vini, var einstaklega vel gift- ur, átti efnileg börn og tengda- son, svo ekki sé minnst á dótt- ursoninn Alexander sem var sannkallaður sólargeisli í veik- indum hans. Kæra Salóme, Gabríel, Rebekka, Björgvin, Al- exander og stórfjölskylda. Við Elsa Dögg, Guðjón og Sólrún sendum ykkur innilegar samúð- arkveður á erfiðum tímum. Minningin um góðan dreng mun svo sannarlega lifa. Jósef Gunnar Sigþórsson. Á lífsgöngunni kemur það stöku sinnum fyrir að á vegi manns verður einstaklingur sem auðgar mann svo, að lífssýn og viðhorf breytast varanlega. Kristinn Pálmason var þannig maður, hann hafði mikil og já- kvæð áhrif á alla sem kynntust honum. Hann dæmdi aldrei neinn og ef umræður þróuðust í þá átt, dró hann sig einfaldlega í hlé. Þessi góði vinur minn vissi enda sem var að enginn er full- kominn og engum er alls varnað. Mitt lán var að við urðum vinir. Leiðir okkar lágu fyrst saman á Patreksfirði á seinni hluta síð- ustu aldar þegar leikfélagið þar setti upp leikritið „Vér morðingj- ar“, sem við lékum báðir í. Þá strax tókst með okkur einlæg vinátta og vorið 1990 settum við upp tvíleikinn „Saga úr dýra- garðinum“ og fengum vin okkar Jósep Blöndal, héraðslækni, til að leikstýra. Mikið var nú gaman að vinna með þessum tveimur snillingum. Annars var ekki auð- velt að fylgja Kristni eftir í áhugamálum, enda ekki nema fyrir kjarkmenn að sigla einn á seglbretti úti á miðjum Patreks- fjarðarflóa og því meiri vindur, því betra. Meðalmaðurinn á heldur ekki auðvelt með að fljúga fram af vestfirsku fjöllun- um í svifdreka. Og ekki hef ég enn þorað upp í svifflugu. Minn- ist þó fallegrar miðsumarsnætur á Hlaðseyri fyrir nokkrum árum þar sem ég hafði mig í að róa með honum út á spegilsléttan Patreksfjörðinn á kajak. Sú nótt rennur seint úr minni, þar sem við áttum góðar samræður undir skini miðnætursólar, við undir- leik fuglasöngs. Kristinn var sannarlega kjarkmaður en and- leg málefni voru honum líka hug- leikin. Hann kynnti sér jóga- fræðin og iðkaði þau um langan tíma. Hann kynnti mér þau og hef ég notið góðs af þeirri upp- fræðslu við að vinna úr þeim erf- iðu verkefnum sem lífið ber að höndum. Þegar við fluttum á Hvolsvöll um aldamótin var gott að eiga kæra vini í nágrenninu. Mörg eftirminnileg gamlárskvöldin átt- um við saman og þvílíkar skemmtanir. Uppbyggilegar samræður fram á morgun milli þess sem lagið var tekið. Kristinn söng af þrótti, þó aldrei hafi nú komið sérstaklega til tals að gefa út einsöngsplötu. En leikgleðin var ósvikin og smitaði út frá sér. „Gengið hefur um garð gestur forn, heimt til fylgdar hal vænan.“ (Jörundur Gestsson) Að leiðarlokum þakka ég Kristni, mínum kæra vini, fyrir samferðina og harma að hún verði ekki lengri. Heimurinn er fátækari en minning um góðan og gegnheilan dreng lifir, sem og þau jákvæðu áhrif sem Kristinn hafði á það fólk sem hann hitti. Einhver sagði á dögunum að Kristinn hefði faðmlagsvætt þá sem hann umgekkst. Þá rifjaðist upp fyrir mér að hann faðmlags- væddi mig. Ég lærði það af hon- um að auðsýna vinum og vanda- mönnum þá umhyggju og kærleika sem birtist í faðmlagi. Faðmlag er orðið mér svo eðl- islægt að ég hafði gleymt hvaðan það kom. Það og fleira sem Krist- inn kenndi mér mun fylgja mér um ókomna tíð. Við Ólöf og börn okkar vottum Salóme, börnum þeirra hjóna, tengdasyni og barnabarni inni- lega samúð okkar og biðjum Guð að veita þeim styrk. Minningin um góðan og gegnheilan dreng lifir. Sigurður Skagfjörð Ingimarsson. Í dag kveðjum við okkar ást- kæra bekkjarbróður og vin, Kidda P, eins og hann var ávallt kallaður í okkar hópi. Hvernig á að minnast jafn stórbrotins félaga? Ef við ættum öll að tína til og skrifa allar okkar minningar um hann dugir Morg- unblaðið í heild sinni ekki og Al- fræðiorðabókin yrði eins og lítið hefti í þeirri minningabók. Hópurinn hefur oft komið saman síðan leiðir skildi á Patró og þá er alltaf eins og við hefðum hist síðast í gær. Okkur verður öllum hugsað til síðasta bekkj- armóts 2012 á sjómannadags- helginni á Patró. Þar var góður hópur mættur, meðal annars Kiddi. Við hittumst á laugar- dagsmorgni í morgunmat og vor- um saman í ýmsum uppákomum þá helgi. Kiddi lék á als oddi. Hann gat sagt frá og hermt eftir löngu liðnum atburðum sem við hin vorum búin að gleyma. Hann var frábær eftirherma svo við hreinlega emjuðum af hlátri og spurðum okkur að því hvort við hefðum virkilega verið í sama bekk og hann. Óhætt er að segja að þessi helgi verður okkur öllum mjög dýrmæt minning. Er við hugsum um Kidda kem- ur fyrst upp í hugann hversu mikill gleðigjafi og mannvinur hann var. Já, hann Kiddi var sannkallaður eðalpúki frá Patró. Hans verður sárt saknað næst þegar við komum saman. Stórt skarð er höggvið í hópinn sem aldrei verður fyllt. Við bekkjarfélagarnir þökkum Kidda fyrir yndislega samfylgd í gegnum árin. Blessuð sé minning Kristins Pálmasonar. Þó að kali heitur hver, hylji dali jökull ber, steinar tali og allt hvað er, aldrei skal ég gleyma þér. (Vatnsenda-Rósa) Elsku Salóme, börn, tengda- barn, barnabarn, Þóra, systkini og aðrir aðstandendur. Okkar innilegustu samúðarkveðjur. Einstakur maður er fallinn frá. Fyrir hönd bekkjarfélaga úr árgangi 1963 frá Patró, Kristinn Halldórsson. Í dag kveðjum við vinnufélaga og vin, Kristinn Pálmason, mjólkurfræðing. Hann hóf störf í Mjólkurbúi Flóamanna 30. júlí 1992 en þá var hann nýbúinn að ljúka námi frá Dalum Mejeri- skole í Danmörku. Kristinn, eða Kiddi eins og flestir kölluðu hann, vann ýmis störf í mjólk- urbúinu en þó lengst af við fram- leiðslu á skyri og jógúrti. Þegar hann fluttist á Selfoss eftir námsdvölina þá voru hann og fjölskyldan fljót að aðlagast nýjum heimkynnum og nýjum vinnustað. Hann var mjög vina- margur og hafði einstaka hæfi- leika til að laða að sér fólk. Hann hlustaði á alla, allir fengu athygli og hann hafði skilning á skoð- unum annarra þó svo að hann væri ekki alltaf sammála. Hann var leikari af Guðs náð og oft notaði hann leikhæfileika sína í daglegu amstri. Það var alltaf stutt í glensið hjá honum og það var honum eðlislægt að sjá jákvæðu og skondnu hliðarnar á flestum málum, hann var lífsglaður og smitaði frá sér gleði. Hann hélt tryggð við æsku- stöðvar sínar og átti hann marg- ar góðar sögur frá uppvaxtarár- um sínum sem við fengum oft að heyra, þær voru allar skemmti- legar og uppfullar af hlýju og gleði. Dulspeki var honum huglæg og átti hann oft djúpar og inni- haldsríkar samræður við ákveðna vinnufélaga sem voru ekki alltaf sammála honum. Stundum mátti greina að hiti var kominn í umræðuna en á ákveðum tímapunkti sneri Kiddi umæðunni á þann veg að menn fóru sáttir frá með bros á vör. Kiddi var stundum að flýta sér og þá fannst honum að afköst á vélbúnaði mættu vera meiri og kom hann oft með tillögur til breytinga þar að lútandi. Það gladdi hann að fylgjast með vinsældum Skyr.is sem hann var þátttakandi í að þróa á sínum tíma en þessi vara hefur náð mikilli útbreiðslu hérlendis og erlendis á síðustu árum. Hann var traustur starfsmað- ur og honum þótti vænt um vinnustaðinn og að fyrirtækinu vegnaði sem best. Hann leysti öll þau verkefni sem honum voru falin af fagmennsku, metnaði og áhuga. Minningin um góðan dreng mun lifa áfram í hjörtum okkar hjá MS Selfossi. Ég votta aðstandendum sam- úð mína og bið Guð að styrkja ykkur í sorginni um góðan dreng. Kveðja frá MS Selfossi, Guðmundur Geir Gunnarsson. Trú, kjarkur, áræði, traust eru orð sem lýsa Kidda vel, góð- um félaga og vini. Hann var víð- lesinn og vitur. Vissi margt um flest trúarbrögð heimsins, sagði vel frá og fræddi aðra. Allir fóru ríkari af hans fundi og viðræðum um hin fjölbreyttu efni. Hann átti alltaf svör, hafði viðað að sér fróðleik um öll sín áhugamál. Hámenntaður maður af eigin rammleik og miðlaði öðrum. Áhugamaður um fagurbók- menntir og leiklist, einnig voru tónlist og myndlist ekki fjarri. Hugur hans mun flytjast á önnur svið. Ástvinum hans votta ég mína dýpstu samúð. Magni. Kiddi Pálma er látinn. Kynni okkar voru stutt en góð, og minningin um þennan góða dreng mun ekki fölna. Það var einkum Leikfélag Patreksfjarðar, sem var vett- vangur okkar samstarfs og vin- áttu. Kristinn var mikill áhuga- maður um leiklist og ágætur leikari – lék enda ýmis hlutverk á vettvangi félagsins. Þá hafði hann yndi af að syngja, en það Kristinn Pálmason

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.