Morgunblaðið - 30.01.2015, Side 42
42 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. JANÚAR 2015
Birgir Engilbertsson er múrarameistari á Selfossi og vinnurhjá verktakafyrirtækinu Jáverk. „Við erum núna á fullu aðbyggja við sundlaugina hér á Selfossi, erum að bæta við bún-
ingsklefum og aðstöðu fyrir líkamsræktarstöð. Viðbyggingin er alls
2.000 fermetrar.“
Kona Birgis er Harpa Hreggviðsdóttir, smíðakennari í Flóaskóla,
og þau eiga tvær dætur, Agnesi Björgu 14 ára og Árdísi Evu 8 ára.
„Við fjölskyldan eigum tólf hross og erum að stússa við þau um
vetrartímann. Svo er maður að byrja að huga að aðaláhugamálinu
sem er stangveiðin, fægja stangirnar og annað slíkt. Við búum í
Langholti sem stendur við Hvítá, þar er eins og hálfs kílómetra
veiðisvæði sem tengdafaðir minn á, rétt fyrir ofan þar sem Sogið
kemur að Hvítá og verður að Ölfusá.
Veiðin hefur gengið vel, þetta eru um 200 laxar og 150-200 sjó-
birtingar á ári og það er búið að selja tvo þriðju af veiðileyfunum.
Þau eru ódýr og renna út.“
Hvað á að gera í tilefni afmælisins? Það stendur til að fara í Hum-
arhúsið á Stokkseyri og fá sér gott að borða.“
Birgir Engilbertsson er fimmtugur í dag
Í Flórens Birgir í bílferð um Evrópu ásamt fjölskyldunni.
Farinn að huga
að stangveiðinni
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson,Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Kópareykjum Eydís Ósk Dorn Jónsdóttir fæddist 25. febrúar 2014 kl. 18.44.
Hún vó 3.970 g og var 52 cm löng. Foreldrar hennar eru Rebecca Dorn og Jón
Eyjólfsson.
Nýir borgarar
S
igríður fæddist í Reykja-
vík 30.1. 1975 en flutti
nokkurra mánaða norður
til Húsavíkur þar sem
faðir hennar tók við starfi
yfirlögregluþjóns: „ Ég var sjö ára
er pabbi lést og þá flutti mamma
með okkur til Reykjavíkur til að vera
nær fjölskyldu sinni. Við fluttum í
Laugarnesið og ég gekk í þennan
fallega Laugarnesskóla sem hefur
sem betur fer fengið að halda sínu
upprunalega útliti þrátt fyrir miklar
endurbætur. Síðan tók við gagn-
fræðastig í Laugalækjarskóla.
Ég hafði frábæra kennara í báðum
þessum skólum. Eftirminnilegust er
Ásdís Jóhannesdóttir sem las fyrir
okkur smákrakkana goðafræði og
Íslendingasögur í nestistímanum
meðan aðrir hlýddu á ævintýri.
Auk þess var ég í sveit í Syðri-
Hraundal á Mýrunum, hjá móður-
ömmu minni, Guðrúnu Þórðardóttur
bónda. Það varð mér dýrmætur
ævintýraheimur.“
Sigríður lauk stúdentsprófi frá
MH um jól 1994, vann síðan m.a. á
Café au Lait, víðfrægu kaffihúsi frú
Sigríður Rún Tryggvadóttir prestur – 40 ára
Kaffitími F.v.: Úlfur Elí, Sigríður, Skarphéðinn, vinur bræðranna, Mikael Nói, Ingvi Örn og Tryggvi Hrafn.
Prestur í víðfeðmasta
prestakalli landsins
Seyðisfjarðardætur Benedikta Guðrún Svavarsdóttir, presturinn og Hanna
Christel Sigurkarlsdóttir, slá í gegn á þorrablótinu fræga um síðustu helgi.
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is
Heyrðu umskiptin
Fáðu heyrnartæki til reynslu
Það er næstum því sama hvernig heyrnarskerðingu þú ert með
og hvernig lifi þú lifir, því ReSound heyrnartækin eru vel til þess
fallin að hjálpa þér við að skilja talmál, hafa framúrskarandi
hljómgæði og snjalla þráðlausa tengingu.
FYRSTU SNJALL-
HEYRNARTÆKIN
Apple, Apple merkið, iPhone, iPad og iPod touch eru
vörumerki Apple Inc, skráð í BNA og öðrum löndum.
App Store er þjónustumerki Apple Inc. Hlíðasmára 11 · 201 Kópavogur · Sími 534 9600 · heyrn.is