Morgunblaðið - 30.01.2015, Qupperneq 44
44 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. JANÚAR 2015
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Vertu viðbúinn því að þurfa að verja
mál þitt fyrir háttsettum aðilum. Reyndu að
læra sem mest af sem flestum því það er
gott veganesti út í lífið.
20. apríl - 20. maí
Naut Þér kann að finnast erfitt að ná sam-
bandi við vini þína í dag vegna þess að þú
finnur til einmanaleika og einangrunar. Leit-
aðu uppi skemmtilegheit því gleðin hressir,
bætir og kætir.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Samskipti við systkini og aðra fjöl-
skyldumeðlimi gætu orðið stirð í dag.
Gleymdu samt ekki að leyfa öðrum að njóta
hlutanna með þér.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Gættu þín í umgengni við aðra, eink-
um þá sem þú hefur ekki ástæðu til að telja á
þínu bandi. Aðrir munu bregðast fljótt við at-
hugasemdum þínum.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Spyrðu sjálfan þig hvað þú værir að
gera ef þú værir ekki að leysa úr alls konar
flækjum. Ekki vera með stæla – stattu við orð
þín og gjörðir.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þig langar að kaupa eitthvað í dag
vegna þess að þér finnst að þú verðir einfald-
lega að eignast það. Sláðu á létta strengi til
að laga andrúmsloftið.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þú telur mikilvægt að bæta samskipti
þín við maka þinn. Sérhver samkoma í dag
verður skemmtileg þar sem allir þátttakendur
fá notið sín.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þú hefur mikla hæfileika til þess
að ná árangri í fjármálum. Samskipti þín við
stofnanir og hópa fólks ættu einnig að ganga
mjög vel í dag.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Án nokkurs vafa ertu miðja allrar
athygli í félagslífinu. En samt fylgirðu pró-
gramminu nákvæmlega, gerir allt sem hún
segir þér að gera og ferð jafnvel snemma að
sofa.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Vertu á varðbergi gagnvart óhöpp-
um sem tengjast rafmagni eða eldi. Láttu
einskis ófreistað til að ná settu marki.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Hrintu áætlunum um endurbætur
og standsetningu í framkvæmd. Trúnaðarmál
þarf að geyma á öruggum stað.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Forðastu rifrildi við vini eða félaga í
dag, þér hættir til að ýta undir ágreining með
framkomu þinni núna. Vertu bara rólegur og
láttu öfund þeirra lönd og leið.
Þessi vorvísa Sigrúnar Haralds-dóttur minnir okkur á að vorið
lifir í okkur – jafnvel á þorra!
Mig dreymdi í nótt
að vikið nú hefði
vetrarins þunga kvöð
við húsvegginn stæðu
heiðgulir fíflar
hundrað í beinni röð
og vordísin sjálf
hún væri að skrifa
hin skærgrænu ljóð
á skógarins ungu blöð
Sigurlín Hermannsdóttir rifjar
það upp á Leirnum að í liðinni viku
komu kettir og ýmislegt þeim við-
komandi talsvert við sögu:
Í fréttum fullt af köttum,
fæði þeirra og klæði.
Whiskas keypti vaskur
og vænar baunir grænar.
Við Bengaldýr ei bangin,
bróklaus nokkra tók þá.
Brjóstahöldin huldu
hennar flótta-rennu.
Helgi R .Einarsson sendi mér
þessa limru á mánudaginn eftir að
hafa lesið Vísnahornið:
Með kisurnar útsmogin ók,
sem ófrjálsri hendi hún tók.
Svo aftur fór heim
frá ósköpum þeim
berbrjósta í engri brók.
Hallmundur Kristinsson hafði
tíðindi að segja:
Skeggjaði karlinn á Kletti
ketti á markaðinn setti.
Seldi þá svo
sjötíu og tvo
alla á einu bretti.
Ármann Þorgrímsson yrkir af því
tilefni að í nýrri reglugerð er lagt
bann við því að taka minka í búri
upp á skottinu einu saman:
Minkurinn þó versti vargur sé
og víða lagt til höfuðs mikið fé,
upp á skotti ekki taka hann,
er við slíku strangt í lögum bann.
Frelsið meira annars staðar er,
undarlegt það stundum sýnist mér,
ef ég laxi orm á króki býð
enginn minnist þá á dýraníð.
Sigurlín Hermannsdóttir tekur
þennan pól í hæðina:
Ef veiðikló sem velferð maðka styður
og veigrar sér að þræða upp á krók
en notar bara flugustöng og fiður
því frétt um dýraníð hann illa tók,
segjum þá hann vænum laxi landi
og lætur nægja taka eina mynd,
honum er á höndum nokkur vandi;
má halda í sporðinn eða telst það synd?
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Af köttum, minkum
og flugulaxi
Í klípu
„ÖLL ÞESSI ÁR ÞAR SEM ÞÚ SPARAÐIR
AURINN HAFA LOKSINS BORGAÐ SIG.
VERÐIÐ Á KOPAR VAR AÐ HÆKKA Á NÝ.“
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„EF ÉG FÆ EKKI LAUNAHÆKKUN BRÁÐUM,
ÞÁ MUN ÉG LJÓSTRA UPP UM ÞENNAN
ÖMURLEGA DÝRAGARÐ.“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... þegar hann kemur til
þess að kæta þig.
ÉG HEF EKKERT
AÐ GERA
NEIBBS... EKKERT...
EKKERT TIL AÐ GERA...
VAR ÉG BÚINN AÐ
SEGJA AÐ ÉG HEF
EKKERT AÐ GERA?
ÞÚ
GÆTIR
HALDIÐ
KJAFTI!
PSSSST,
HRÓLFUR.. HVAÐ?!
ÞÚ HEFÐIR ÁTT AÐ
FATTA ÞAÐ FYRR!
Í aðdraganda og byrjun þorra vartöluvert rætt um áfengisdrykkju
fyrrverandi ráðherra og afleiðingar
hennar. Sitt sýnist hverjum en það er
ekki nýtt að ráðherrar fái sér staup af
og til og hefur þó almennt ekki verið
fréttaefni.
x x x
Margar sögur eru til af áfeng-isdrykkju þingmanna og ráð-
herra. Flestar skemmtilegar en það
er helst að sjónvarpið hafi skemmt
þessa iðju með því að sýna þingmenn-
ina í áfengisham.
x x x
Víkverji las skemmtilega bók semkom út fyrir jólin, Vestfirskir
stjórnmálamenn í blíðu og stríðu – Al-
þýðusögur í léttum dúr að vestan,
sem Hallgrímur Sveinsson og Bjarni
G. Einarsson tóku saman og Vest-
firska forlagið gaf út. Þar er meðal
annars eftirfarandi saga:
x x x
Eins og allir vita þykir flestum Vest-firðingum gott í staupinu og var
Jón Baldvin liðtækur í þeim efnum
líka. Eftirfarandi saga hefur gengið
hér vestra um árabil og er hún látin
fljóta hér með til gamans þótt ekki sé
hún talin alveg trúverðug.
Þegar Jón var utanríkisráðherra
var hann eitt sinn staddur á utanrík-
isráðherrafundi Evrópuríkja í Hels-
ingi. Eftir fundinn fengu þeir sér í
staupinu vinirnir Jón og Uffe Elle-
man Jensen, utanríkisráðherra Dana.
Ekki vildi betur til en svo að Jón rúst-
aði barinn á hótelinu þar sem þeir
gistu. Daginn eftir kom hann til Úffa
og bar sig illa. Nú yrði allt vitlaust og
þetta yrði blaðamatur og skandall.
Úffi sagði Jóni bara að borga skuld-
irnar þrefalt og myndi þá málið
örugglega látið niður falla. Jón gerði
það og allt féll í ljúfa löð.
x x x
Næst utanríkisráðherrafundur varhaldinn í Kosovo í Bosníu. Þeir
vinirnir Úffi og Jón fengu sér að
venju vel í staupinu eftir fundinn.
Morguninn eftir verður Jóni litið út
um gluggann og sér hann að borgin
er í rúst. Hann hljóp þá skelfingu
lostinn yfir í herbergi Úffa, tók um
höfuð sér og sagði: Úffi minn, nú
borgar þú.“ víkverji@mbl.is
Víkverji
Lofaður sé Guð er hvorki vísaði bæn
minni á bug né tók frá mér miskunn
sína. (Sálmarnir 66:20)