Morgunblaðið - 30.01.2015, Qupperneq 46

Morgunblaðið - 30.01.2015, Qupperneq 46
46 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. JANÚAR 2015 „Lagið er um leitina að hinum eina sanna eða þeim einstakling sem er fyrir þig. Boðskapur lagsins er að maður er ekki einn heldur er við- komandi líka að leita. Það er líka hlutgerving yfir það að leita bara að einhverju markmiði og ekki gef- ast upp.“ Þetta segir Ásta Björg Björgvinsdóttir, lagahöfundur og meðlimur sveitarinnar Hinemoa. Lag þeirra heitir „Þú leitar líka að mér“ og er Bergrún Íris Sævars- dóttir textahöfundurinn. Ásamt Ástu samanstendur Hinemoa af þeim Rakel Pálsdóttur, Sindra Magnússyni, Kristófer Nökkva Sig- urðssyni, Gísla Páli Karlssyni og Regínu Lilju Magnúsdóttur. Hine- moa var stofnuð síðasta vor og hef- ur spilað mikið saman síðan. Ásta Björg segir að undirbúningur fyrir keppnina gangi vel. „Við erum mjög þéttur hópur. Okkar stíll er reyndar miklu rólegri heldur en stíllinn í þessu lagi,“ segir Ásta. „Þetta lag er meira partí.“ Ásta Björg segir að sveitin taki eitt skref í einu. „Maður brennir sig alltaf á því að fara á undan sér og gleyma að njóta augnabliksins. Auðvitað langar okkur að vinna, en við gleymum okkur ekki þar. Það skiptir mestu máli að hafa gaman og gera sitt besta.“ audura@mbl.is Ljósmynd/Ólöf Erla Einarsdóttir 900-9902 Ásta Björg flytur ásamt hljómsveitinni Hínemoa lagið Þú leitar líka að mér. Gleyma ekki að njóta augnabliksins „Þetta lag er um söknuð og það að vilja fá einhverskonar lokatæki- færi. Þetta er nú bara klassískt við- fangsefni fyrir ástarballöðu,“ segir söngvarinn Friðrik Dór Jónsson, spurður um inntak lagsins „Í síð- asta skipti“. Friðrik Dór er texta- höfundur lagsins ásamt þeim Pálma Ragnari Ásgeirssyni, Ás- geiri Orra Ásgeirssyni og Sæþóri Kristjánssyni sem jafnframt sömdu lagið. Segir Friðrik Dór að þeir fé- lagar hafi ákveðið saman hvernig lag þeir vildu semja og út kom lag sem er nokkuð frábrugðið þeirri tónlist sem Friðrik Dór hefur sam- ið sjálfur á sínum ferli. „Það er frekar frábrugðið fyrir mig en þar af leiðandi dæmigerðara lag fyrir Eurovision,“ segir Friðrik Dór. Friðrik Dór segist ekki hafa leitt hugann að því hvort hann komist alla leið til Austurríkis. „En auðvit- að er það ætlunin og von mín að svo fari. En ég þarf bara að negla þetta á laugardaginn, sjá hverju það skil- ar og svo sjáum við bara til.“ audura@mbl.is Ljósmynd/Ólöf Erla Einarsdóttir 900-9904 í Síðasta skipti með Friðriki Dór. Flytjendur og höfundar úr öllum Fyrra undanúrslitakvöld Söngvakeppni Ríkis- sjónvarpsins fer fram í beinni útsendingu annað kvöld. Flutt verða sex lög og eru miklir reynslu- boltar meðal keppenda. Auður Albertsdóttir og Lára Halla Sigurðardóttir heyrðu í höfundum. Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Rithöfundurinn Óttar M. Norðfjörð hefur lokið skrifum á handriti kvik- myndarinnar The Hidden, sem byggt er á sögu og hugmynd auglýs- ingaleikstjórans Þórhalls Sævars- sonar. Þórhallur átti í fyrravor fundi með kvikmyndaframleiðendum í Los Angeles sem leist vel á söguna sem rakin er í myndinni og segist hann vongóður um að myndin verði gerð og þá framleidd af Íslendingum og Bandaríkjamönnum. Önnur funda- lota er fyrirhuguð núna í vor. „Það eru tvö ár síðan við byrj- uðum að vinna í þessu saman en sag- an nær töluvert lengra aftur, þetta er hugmynd sem ég var búinn að ganga með í langan tíma,“ segir Þór- hallur um samstarf þeirra Óttars. Hann segir söguna í grunninn byggða á íslenskum þjóðsögum af huldufólki og að kvikmyndin, ef af henni verður, muni falla í flokk hroll- vekja. Sagan segi af bandarískum jarðfræðinemum sem stundi rann- sóknir á hálendi Íslands og komist að því að huldufólkssögurnar eigi sér stoð í raunveruleikanum. „Þess- ar rannsóknir uppi á hálendinu hafa banvænar afleiðingar,“ segir Þór- hallur. Spenntir fyrir hugmyndinni Þórhallur er auglýsingaleikstjóri og hefur leikstýrt um allan heim sl. 13 ár eða þar um bil. „Ég er ágæt- lega tengdur við kvikmyndageirann í Bandaríkjunum, búinn að vera lengi í auglýsingunum og fór því á nokkra fundi í fyrravor í Los Angel- es. Þá vorum við komnir á þriðja uppkast að handritinu þannig að það var orðið þéttur grunnur. Ég náði að taka nokkra fundi með þokkalegum leikmönnum þarna úti og allir voru rosalega spenntir fyrir hugmynd- inni, ég fékk mjög góð viðbrögð við henni,“ segir Þórhallur sem átti m.a. fund með Ralph Winter sem hefur m.a. framleitt fyrstu X-Men mynd- irnar og Fantastic Four. Þórhallur segir að mönnum þyki spennandi að taka upp kvikmynd á hálendi Ís- lands og að hún eigi að gerast á Ís- landi. „Ísland hefur aldrei verið not- að sem Ísland,“ bendir Þórhallur á og nefnir sem dæmi kvikmyndirnar Prometheus og Thor: The Dark World, dýrar Hollywood-myndir Ísland í hlut- verki Íslands  Hefnigjarnt huldufólk í The Hidden Klassískt viðfangs- efni ástarballöðu „Lagið er í rauninni svolítið sorgleg ástarsaga. Lagið fjallar um konu og það kemur maður inn í líf hennar eitt sumarið, allt gerist mjög fljótt og svo er hann bara farinn. Eftir sitja hjartasárin,“ segir Erna Hrönn Ólafsdóttir, en hún flytur lag Arnars Ástráðssonar, „Myrkrið hljótt“. Erna Hrönn samdi textann að lag- inu. Erna Hrönn er enginn byrjandi í Söngvakeppninni en hún hefur sungið bakraddir í rúmlega fimmtíu lögum og fjórum sinnum sem aðal- söngkona. Þar að auki hefur hún tvisvar farið út í Eurovision sem bakrödd, fyrst með Jóhönnu Guð- rúnu árið 2009 og ári síðar með Heru Björk. „Ég hef alltaf verið mikill aðdáandi Eurovision. Ég man til dæmis vel eftir því þegar Sandra Kim vann keppnina. Það kannski svona kveikti neistann til þess að komast alla leið,“ segir Erna Hrönn. „Það er alltaf draumurinn að fara alla leið og taka þátt fyrir Íslands hönd, en þar sem það er svo gaman að taka þátt í Söngvakeppninni þá yrði það bara bónus.“ audura@mbl.is Ljósmynd/Ólöf Erla Einarsdóttir 900-9901 Myrkrið hljótt með Ernu Hrönn. Sandra Kim kveikti kannski neistann Elín Sif Halldórsdóttir er yngsti höfundur og flytjandi í Söngva- keppninni í ár. Hún samdi lagið, „Í kvöld“, inni á baði á hótelherbergi á Ítalíu þar sem hún var í fríi með fjöl- skyldu sinni. „Ég var orðin frekar leið á foreldrum mínum þannig að ég fór inn á bað en ég hafði heyrt að Paul Simon [innsk. blaðam. í dúett- inum Simon & Garfunkel] hefði sagt að hann færi oft inn á baðhergi, skrúfaði frá krananum og hlustaði á vatnið. Þannig fyndist honum best að semja lög,“ segir Elín. „Ég ákvað að prófa það og þannig kom þessi melódía. Þetta kom frekar fljótt, ég held að lagið hafi bara verið komið það kvöld. Seinna tók um viku að semja íslenskan texta,“ segir Elín og tekur fram að það leggist vel í sig að stíga á svið í Háskólabíói. „Ég held að ég gæti verið mikið stress- aðri en ég er,“ segir hún. „Vinir mín- ir hafa spurt mig hvort ég sé klikk- uð. Ég held samt að þau hafi alveg búist við þessu frá mér. Ég á það til að gera svolítið skrýtna hluti.“ larahalla@mbl.is Ljósmynd/Ólöf Erla Einarsdóttir 900-9903 Elín Sif syngur lagið Í kvöld. Samdi lagið á hót- elherbergi á Ítalíu Söngvakeppnin 2015

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.