Morgunblaðið - 30.01.2015, Qupperneq 52
Bandaríski leikmaðurinn Stefan Bon-
neau stal senunni þegar fjórir leikir
fóru fram í Dominos-deild karla í
körfuknattleik í gærkvöldi. Skoraði
hann 44 stig fyrir Njarðvík sem vann
nokkuð óvæntan sigur á Tindastóli
107:99 eftir framlengdan leik. Skalla-
grímur vann afar mikilvægan sigur á
Haukum eftir tvíframlengdan leik í
Borgarnesi. » 2-3
Framlengt í tveimur
leikjum af fjórum
FÖSTUDAGUR 30. JANÚAR 30. DAGUR ÁRSINS 2015
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 460 ÁSKRIFT 4995 HELGARÁSKRIFT 3120 PDF Á MBL.IS 4420 I-PAD ÁSKRIFT 4420
1. „Hefði örugglega sagt nei“
2. Hópuppsagnir hjá …
3. Þekkir þú konuna?
4. Höll eftir Guðjón Samúelsson
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Hljómsveitin Boys, ein vinsælasta
diskósveit Póllands, heldur tónleika í
Kaplakrika í Hafnarfirði á morgun og
einnig söngkonan Eva Basta ásamt
hljómsveit. Pólsk diskótónlist, nefnd
Disco Polo, verður í öndvegi á tón-
leikunum sem hefjast kl. 20. Skipu-
leggjendur tónleikanna eru umsjón-
armenn fréttasíðunnar Iceland News
Polska og segir í tilkynningu frá þeim
að tónleikarnir verði stærsti pólski
tónlistarviðburðurinn sem fram hafi
farið á Íslandi til þessa. Boys var
stofnuð árið 1991, er vel þekkt í Pól-
landi og vinsæl og hefur hlotið fjölda
tónlistarverðlauna. Forsprakki Boys,
Marcin Miller, er kallaður konungur
pólskrar diskótónlistar og nýtur sú
tónlist enn mikilla vinsælda í Pól-
landi. Eva Basta skaust upp á
stjörnuhimininn árið 2011, hóf þá
m.a. samstarf við Boys og er drottn-
ing Disco Polo. Á myndinni sést
diskósveitin Boys.
Pólsk diskóveisla
haldin í Kaplakrika
Video-veggurinn í skartgripagall-
eríi Erlings gullsmiðs, Aðalstrætis
10, verður vígður í dag kl. 17 með
sýningu myndlistarmannsins Finns
Arnars Arnarssonar en á veggnum
munu myndlistarmenn sýna mynd-
bandsverk sín. Í myndbandsverkum
síðustu ára hefur Finnur birt einfald-
ar og magnaðar myndir úr nútíma-
samfélagi sem gerir látlausar kröfur
til þegna sinna og hefur Finnur
markað sér sérstöðu
innan íslenskrar
myndlistar með
áleitinni umfjöllun
sinni um karl-
hlutverkið, segir í
tilkynningu.
Finnur vígir vegginn
Á laugardag Norðvestlæg átt, 5-10 m/s og bjart með köflum, en
stöku él við norður- og vesturströndina. Talsvert frost.
Á sunnudag Norðaustlæg átt, dregur úr frosti vestantil.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Dregur smám saman úr vindi, norðan 8-18
m/s og dálítil él, hvassast austast, en léttskýjað sunnan- og vest-
anlands. Frost 0 til 5 stig, en kólnandi.
VEÐUR
Keflvíkingurinn Elías Már
Ómarsson, sem valinn var
efnilegasti leikmaður síð-
asta Íslandsmóts í knatt-
spyrnu, hefur náð sam-
komulagi við norska
úrvalsdeildarfélagið Våle-
renga og mun að öllum lík-
indum skrifa undir samning
við félagið á allra næstu
dögum. Elías skoðaði að-
stæður hjá félaginu í haust
og er hæstánægður með
niðurstöðuna. »1
Elías Már til liðs
við Vålerenga
Katar er fyrsta Asíuþjóðin sem kemst
í fjögurra liða úrslit á heimsmeist-
aramóti karla í handknattleik. Ekkert
var til sparað til að tefla fram sem
sterkustu landsliði á mótinu, sem
fær ríkulega greitt fyrir góðan árang-
ur. Í liði gestgjafanna eru leikmenn
frá Svartfjallalandi, Bosníu, Frakk-
landi, Kúbu, Spáni,
Egyptalandi og Túnis,
ásamt nokkrum
heimamönnum. »4
Fjölþjóðalið Katar í
fjögurra liða úrslitum
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Benedikt Bóas
benedikt@mbl.is
Marika Alavera, deildarstjóri og
tónlistarkennari í Stórutjarnaskóla
í Þingeyjarsveit, fletti nýju
kennslubókinni Tónlist og Afríka í
verkfalli tónlistarkennara og las
þar kaflann um hvernig ætti að
gera hljóðfæri að
afrískum sið.
Hún ákvað að
láta hendur
standa fram úr
ermum og þegar
verkfallið leystist
fór hún að skoða
í kringum sig í
skólanum og
fann fjölmargar
niðursuðudósir
sem voru ekkert nýttar, hafði sam-
band við fiskvinnslu og fékk þorsk-
roð gefins. Grunnurinn að afr-
ískum trommum var kominn.
Hún mætti svo í kennslustund
og börnin föndruðu trommur með
endurnýtanlegum efnum. „Þetta
eru trommur af öllum stærðum og
gerðum og við fengum marga og
skemmtilega hljóma, reyndar
hljóma baunadósirnar ekkert sér-
staklega,“ segir hún og hlær.
„Krökkunum finnst mjög gaman að
tromma og kannski vegna þess að
þau gerðu þær alveg sjálf. Þau
vilja fara með trommurnar heim
og það helst í dag en þau fá það
ekki fyrr en í vor.“
Ætlaði að stoppa í eitt ár
Marika flutti hingað til lands frá
Eistlandi árið 1999 og elti þá eig-
inmann sinn sem hafði komið ári
áður. Hún byrjaði að kenna í
Stórutjarnaskóla ári síðar og líkar
vel, hún er allavega hætt að hugsa
hvenær hún ætli aftur til Eist-
lands.
„Fyrst ætluðum við að vera í eitt
ár en þegar það leið þá ætluðum
við að vera eitt ár í viðbót. Þegar
það var búið ákváðum við að taka
tvö ár en núna erum við alveg
hætt að pæla í hvenær við förum.
Það er svo gott að búa hér í sveit-
inni.“
Við Stórutjarnaskóla er kennsla
á hljóðfæri fléttuð inn í námskrána
og allir krakkarnir eru í kór. Frá
fyrsta bekk og upp í þann tíunda.
„Við kennum á hljóðfæri á skóla-
tíma, tónmennt er kennd upp í átt-
unda bekk og það er skylda að
vera í kór. Það eru tveir kórar
starfræktir hér, einn fyrir yngri
einn fyrir og eldri nemendur.
Það er mikil tónlist hérna í
sveitinni – við erum að ala börnin
upp fyrir þorrablótin. Þau þurfa að
kunna að syngja þegar þau fara á
blótin,“ segir Marika og skellir upp
úr.
Dósatrommur með fiskroði
Taktfast stuð í
tónlistarkennslu
Stórutjarnaskóla
Ljósmynd/Jónas Reynir Helgason
Stuðbekkir Trommurnar eru hugsaðar fyrir þriðja og fjórða bekk en bekkirnir eru saman í tónmennt á Stórutjörn-
um. Það vantaði reyndar tvo nemendur, annar hafði fengið flensu en hinn komst ekki í skólann vegna ófærðar.
Trommur Roðið er strekkt yfir dósirnar, það bundið með snæri og látið
harðna í tvo daga. Þá verður það slétt, hart og gefur skemmtilegan hljóm.
Marika Alavera