Morgunblaðið - 07.02.2015, Side 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. FEBRÚAR 2015
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
Shaman Durek hafði sjálfursamband við mig vegnaþess að hann frétti af mérog minni vinnu sem þjálfara
í gegnum sameiginlega kunningja í
New York. Hann sagði við mig að
hann hefði það á tilfinningunni að
það væri tímabært fyrir sig að koma
til Íslands og deila því sem hann býr
yfir. Ég hef ekki persónulega
reynslu af hans aðferðum en vinir
mínir í New York hafa farið til hans
og lýst undraverðum árangri,“ segir
Þórdís Filipsdóttir en hún hafði
milligöngu um komu Shamans Du-
reks hingað til lands nú í febrúar.
Hann er frægur andlegur leiðbein-
andi og hæfileikaríkur heilari sem
ætlar að halda námskeið fyrir Frón-
búa um næstu helgi.
Að auka hamingju fólks
Shaman Durek býr í Los Angel-
es og starf hans felst í því að vera
eins konari miðlari eða brú milli hins
andlega og líkamlega sviðs. Í starfi
sínu styðst hann við forna andlega
visku sem og einlæga ástundun
sinna fræða. Markmiðið er alltaf að
stuðla að árangri hjá því fólki sem
leitar til hans, auka hamingju þess
og heila það. Hann segir að takmark
lífs síns sé að kenna fólki að efla eig-
in styrk með því að opna sig meira
fyrir andlegum krafti. Hann segist
hjálpa fólki að koma auga á það sem
það ekki sér sjálft. Í glímunni við lík-
amlega og andlega kvilla sem hrjá
fólk tengir Shaman Durek sig m.a
við vættinn sem fylgir fólki.
Skjólstæðingar Shamans Dur-
eks koma úr öllum stéttum og má
þar nefna kvikmyndastjörnur frá
Hollywood, forstjóra stórfyrirtækja
sem og kóngafólk í Evrópu. Einnig
er hann eftirsóttur fyrirlesari og
kennari.
Allir búa yfir eigin heilara
Durek fæddist í Norður-
Kaliforníu, faðir hans kom frá Haítí
en móðir hans er frá Austur-Indíum.
Margir forfeðra hans störfuðu á and-
lega sviðinu, m.a. langamma hans,
Mamal. Snemma komu eðlislægir
hæfileikar hans í ljós og hann hóf
andlega þekkingarleit sína aðeins 12
Kennir fólki að
efla eigin styrk
Hann segist vera miðlari á milli efnisheims og anda-
heims. Shaman Durek er heimskunnur andlegur leið-
beinandi sem býður upp á námskeið á Íslandi nú í
febrúar. Ástin er hans aðalverkfæri og því vel við hæfi
að námskeið hans verður á valentínusardeginum.
Eitt af þeim verkum semverða til sýnis á Vetrarhá-tíðinni sem nú stendur yfir
heitir „Austfirsk ljós í myrkri“ og
kemur úr smiðju Ólafar Bjarkar
Bragadóttur, myndlistarmanns og
kennslustjóra Listnámsbrautar
Menntaskólans á Egilsstöðum. Í
verkinu sameina krafta sína nem-
endur Ólafar í samtímalistum og
nokkur austfirsk skáld, þau Ás-
grímur Ingi Arngrímsson, Hrafn-
kell Lárusson, Hulda Sigurdís Þrá-
insdóttir, Ingunn Snædal, Sigurður
Ingólfsson, Stefán Bogi Sveinsson
og Steinunn Friðriksdóttir.
Verkefnið er framhald á verkinu
„Lista-ljós í myrkri“ sem sýnt var
fyrir austan á vetrarhátíð Austfirð-
inga, „Dögum myrkurs“ rétt fyrir
jól. Að þessu sinni verða verkin
sýnd í nýju samhengi á Sundlaug-
arnótt í Laugardalslauginni í kvöld.
Ljóðskáldin völdu eða skrifuðu
sérstaklega ljóð fyrir verkefnið en
ljóðin áttu að tengjast að einhverju
leyti vetrinum, ljósi og hinu magn-
aða myrkri. Listanemarnir mynd-
gerðu síðan ljóðin þannig að til
urðu vídeóverk út frá ljóðum skáld-
anna. Markmiðið var að kanna
hvernig má nýta skammdegið til
uppsprettu listsköpunar. Þannig er
ýmist búið að hljóðgera mynd-
böndin með upplestri skáldanna á
ljóðum sínum eða þau vinna með
öðrum hætti textaverk inn í mynd-
böndin og bæta jafnvel tónlist við.
Auk þess verður sýnt verk eftir
Lóu Björk og Sigurð Ingólfsson
skáld, tileinkað Lagarfljótinu, lit-
brigðum þess og margbreytileika
eftir árstíðum. Og að lokum sýnir
hún við sama tækifæri nýtt tónlist-
armyndband við lagið Special Place
unnið af Muted, Austfirðingnum
Bjarna Rafni Kjartanssyni tónlist-
armanni, Sindra Steinarssyni sem
gerir myndbandið og söngkonunni
Jófríði Ákadóttur úr Samaris.
Videóverkum Lóu og nemenda
hennar verður varpað upp í rými
Laugardalslaugar á Sundlaug-
arnótt í kvöld. Eitt af markmið-
unum með sýningu þessa verkefnis
nú er að sýna hvað býr í austfirsk-
um listanemum og kynna um leið
hvað Listnámsbraut Mennta-
skólans á Egilsstöðum hefur upp á
að bjóða.
Vonast er eftir að sem flestir
landsmenn komi og njóti þess sem
fer fram í kvöld á Safnanótt í Laug-
ardalslaug. Milli klukkan 17-19
verða ýmsar uppákomur fyrir alla
fjölskylduna ásamt leiktækjum í
innilaug og einnig verður lögð
áhersla á notalega stemningu með
kyndlum á útisvæði ásamt lág-
stemmdri tónlist. Verkið „Austfirsk
ljós í myrkri“ hefst um klukkan 19
og stendur til miðnættis.
Austfirsk ljós í myrkri í sundlaug á Vetrarhátíð
Ljós í myrkri Þetta fagra ljós lýsti upp trén í myrkrinu fyrir austan þegar
hópurinn sýndi verkið „Lista-ljós í myrkri“ á vetrarhátíð Austfirðinga.
Listanemar myndgera ljóð
Austfirsk ljóðskáld og
nemendur við listnáms-
braut Menntaskólans á
Egilsstöðum sameina
krafta sína í verki sem
sýnt verður í kvöld í
Laugardalslauginni.
NÝR NISSAN NOTE
VISIA, DÍSIL, BEINSKIPTUR
EYÐSLA 3,6 L/100 KM*
3.050.000KR.
OPIÐ Í DAG FRÁ 12–16
NÝR NISSAN JUKE
ACENTA, DÍSIL, BEINSKIPTUR
EYÐSLA 4,0 L/100 KM*
3.590.000KR.
HVAÐA NISSAN
HÖFÐAR TIL ÞÍN?
NÝR NISSAN PULSAR
ACENTA, DÍSIL, BEINSKIPTUR
EYÐSLA 3,6 L/100 KM*
3.650.000KR.
BL ehf
Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík
525 8000 / www.bl.is
GE bílar
Reykjanesbæ
www.bilahusid.is
420 0400
Bílasalan Bílás
Akranesi
www.bilas.is
431 2622
Bílasala Akureyrar
Akureyri
www.bilak.is
461 2533
Bílaverkstæði Austurlands
Egilsstöðum
www.bva.is
470 5070
IB ehf.
Selfossi
www.ib.is
480 8080
*Miðað við uppgefnar tölur framleiðanda um eldsneytisnotkun í blönduðum akstri.