Morgunblaðið - 07.02.2015, Blaðsíða 22
Margrét Kr. Sigurðardóttir
margret@mbl.is
Hlutabréf í Icelandair Group lækk-
uðu um ríflega 6% í Kauphöllinni í
gær sem bendir til þess að fjárfestar
hafi orðið fyrir nokkrum vonbrigðum
með uppgjör félagsins fyrir árið 2014
sem birt var í fyrradag, þrátt fyrir
bestu afkomu þess frá upphafi. Um-
talsverð viðskipti voru með bréf Ice-
landair Group í gær og sveiflaðist
gengi töluvert í kjölfar þess að félag-
ið kynnti afkomu sína fyrir síðasta ár
og nærri níu milljarða króna hagnað.
Verðið var 23,10 krónur á hlut við
opnun markaða í gær, tók dýfu
snemma morguns og sveiflaðist frá
21,30 krónum þegar lægst var og
hæst fór það í 22,96 krónur. Velta
með bréf félagsins var 1,5 milljarðar
króna og endaði gengið í 21,70 krón-
um á hlut í lok dags og hafði því
lækkað um 6,06%.
Eins og fram kom í Morgun-
blaðinu í gær var afkoma síðasta árs
betri en stjórnendur höfðu áætlað í
upphafi árs, þótt fjórði ársfjórðungur
hefði skilað tveggja milljarða króna
tapi. Áætlanir stjórnenda fyrir 2015
gera ráð fyrir 4% aukningu í hagnaði
ársins fyrir afskriftir, fjármagnsliði
og skatta (EBITDA).
Of varkárar horfur
Sveinn Þórarinsson, sérfræðingur
í hlutabréfum hjá hagfræðideild
Landsbankans, segir að horfur fé-
lagsins um afkomu ársins séu lægri
en búast hefði mátt við miðað við
aukið flugframboð, meiri sætanýt-
ingu og lækkun olíuverðs. „Um
helgina verður rýnt betur í hvað fé-
lagið ætlar sér. Það hefur komið
mönnum í opna skjöldu að félagið
setur fram svo varkárar horfur mið-
að við upplýsingar sem gefa tilefni til
bjartsýni. Hagnaður félagsins mynd-
ast að jafnaði á öðrum og þriðja árs-
fjórðungi, þannig að tap á fyrsta árs-
fjórðungi kemur ekki á óvart. En
búast hefði mátt við að félagið setti
fram bjartsýnni horfur yfir árið í
heild.“
Ingólfur Bender, forstöðumaður
greiningardeildar Íslandsbanka, tek-
ur í sama streng og segir að vænt-
ingar markaðarins hafi verið meiri til
félagsins. „Það munar talsverðu á því
sem fjárfestar væntu og þess sem fé-
lagið skilaði í afkomu, þó að í sjálfu
sér hafi afkoman verið góð. Tekjur
félagsins voru undir væntingum og
afkoman á fjórða fjórðungi,“ segir
Ingólfur.
Áherslan er á innri vöxt
Á afkomufundi Icelandair Group í
gær kom fram að heildartekjur hefðu
aukist um 9% á milli ára og félagið
skilaði jákvæðri EBITDA upp á
154,3 milljónir dollara, eða 20,3 millj-
arða króna. Í samtali við Morgun-
blaðið sagði Björgólfur Jóhannsson,
forstjóri Icelandair Group, að helstu
ástæður þess að félagið skilaði á síð-
asta ári sinni bestu afkomu til þessa
væru að áherslan væri fyrst og
fremst á innri vöxt. „Við horfum á fé-
lagið sem íslenskt félag og þótt við
hefðum kannski getað tekið stærri
skref þá er þetta tiltölulega stöðugur
vöxtur. Fyrst og síðast er það þó
reynsla starfsfólks og sveigjanleiki
sem er mikilvægt í rekstri sem þess-
um þannig að við náum þeim árangri
sem raun ber vitni.“
Í ljósi þess að félagið er með mikið
handbært fé, en í lok árs var það
rúmir 24 milljarðar króna, var Björg-
ólfur spurður hvort ástæða hefði ver-
ið til að greiða hærri arð til hluthafa
en þá 2,5 milljarða króna sem stjórn
félagsins leggur til. „Stefnan er að
greiða 20-40% af hagnaði ársins en
þó með þeim fyrirvara að félagið
standist þá ákveðin markmið í fjár-
hagslegri stöðu og uppbyggingu. Það
eru töluverðar fjárfestingar fram-
undan í nýjum flugflota þannig að við
höfum horft til þess að félagið þurfi
að halda þessu fé. Flugfélög þurfa
töluvert mikið lausafé til að takast á
við sveiflur sem gerast mjög hratt.
Ákvörðun um 30% arðgreiðslu er því
best fyrir félagið og hluthafana til
lengri tíma litið.“
Miklar sveiflur í gengi
Icelandair eftir uppgjör
Hlutabréf Töluverð viðskipti voru með bréf Icelandair Group í gær.
Uppgjör
Icelandair Group
» Gengi hlutabréfa félagsins
féll um 7,8% snemma dags í
gær.
» Gengið hafði lækkað um lið-
lega 6% í lok dags í 1,5 millj-
arða króna veltu.
» Áætlun stjórnenda félagsins
gerir ráð fyrir um 4% aukningu
EBITDA-hagnaðar á þessu ári.
Besta afkoma Icelandair Group til þessa en markaðurinn vænti meira
22 FRÉTTIRViðskipti | atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. FEBRÚAR 2015
Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is
Úrval af vörum frá Kartell
Fly loftljós
verð 37.300,-
Take borðlampar
verð 14.900,- stk.
Bourgie
borðlampar
verð frá
42.900,- stk.
Componibili hirslur
verð 22.900,- stk.
!
"
"
#!
$%
"
#%
!
&'()* (+(
,-&.&+/0 -'+(1(23& 45+(2/5
!
%
!
"$
#
$#
#$
$!"
$
"
"$#$
#$%
$
#$
#!#
"
#!
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
● Hampiðjan hefur stofnað sölufyr-
irtæki í Brisbane á austurströnd Ástr-
alíu til að sinna þröfum markaðarins
fyrir net, kaðla og ofurtóg. Fyrirtækið,
sem mun bera nafnið Hampidjan Austr-
alia, verður stofnað í samstarfi við Þor-
stein Benediktsson sem hefur búið og
unnið í Ástralíu undanfarin átta ár og
rekið þar fyrirtæki sem hafa sinnt
sjávarútvegi og selt vörur til útgerða
með góðum árangri. Hampiðjan mun
eiga 80% af hlutafé nýja fyrirtækisins
og Þorsteinn 20%. Þorsteinn Bene-
diktsson mun einnig verða fram-
kvæmdastjóri fyrirtækisins. Samhliða
því að selja vörur Hampiðjunnar mun
Hampidjan Australía selja vörur til út-
gerðar frá öðrum framleiðendum.
Hampiðjan opnar sölu-
fyrirtæki í Ástralíu
● Pipar/TBWA tók saman heildarveltu
og skiptingu PIPAR\MEDIA á milli miðla
árið 2014 og eru dagblöð sem fyrr
stærsti miðillinn með 29% heildarveltu.
Netmiðlar eru í öðru sæti með 26% og
taka fram úr sjónvarpsauglýsingum sem
koma í þriðja sæti með 23%. Ísland sker
sig frá helstu samanburðarlöndum að
því leyti að almennt er sjónvarp stærsti
miðillinn erlendis. Nánar á mbl.is.
Netauglýsingar sækja
hratt fram á Íslandi
STUTTAR FRÉTTIR ...
Stefán Einar Stefánsson
ses@mbl.is
Stoðtækjafyrirtækið Össur hefur
burði til að ráðast í allt að 80-90 millj-
ón dollara, eða 9-11 milljarða króna,
yfirtökur á öðrum fyrirtækjum án
þess að auka við hlutafé sitt. Komi til
stærri fjárfestinga geta fjármagns-
höft á Íslandi sett strik í reikninginn
þar sem fjármagn sem fengist við út-
gáfu nýs hlutafjár yrði að þriðjungs-
hluta fast innan gjaldeyrishafta hér
á landi og myndi þar með ekki nýtast
til fjárfestinga erlendis. Jón Sigurðs-
son, forstjóri félagsins, fjallaði á
fundi með fjárfestum í gær um þau
vandkvæði sem tengjast tvöfaldri
skráningu félagsins í Kauphöll Ís-
lands og þeirrar í Danmörku þar
sem 70% hlutafjár félagsins eru
skráð á síðarnefnda staðnum en 30%
hérlendis.
Núverandi hluthafar hafa for-
kaupsrétt að nýju hlutafé og ósenni-
legt er að mögulegt væri að gefa allt
nýtt hlutafé út í Danmörku en til
þess þyrftu íslenskir hluthafar að
falla frá sínum forkaupsrétti.
Stór hluti vaxtar félagsins í gegn-
um tíðina hefur tengst kaupum á fyr-
irtækjum í tengdum rekstri.
Á fundinum, sem Jón og Sveinn
Sölvason fjármálastjóri héldu í
tengslum við ársuppgjör félagsins,
kom einnig fram að ekki stæði til að
ráðast í meiriháttar kaup á öðrum fé-
lögum á næstu þremur til sex mán-
uðum. Innan fyrrgreindra marka
hefði félagið þó getu til þess að
bregðast við ef álitleg kauptækifæri
kæmu upp sem féllu að framtíðar-
stefnu Össurar.
Höftin takmarka
fjárfestingagetu
Morgunblaðið/Eggert
Fjárfestingar Jón Sigurðsson, for-
stjóri Össurar, kynnti uppgjör í gær.
Össur ræður við
9-11 milljarða kaup
án aukins hlutafjár