Morgunblaðið - 17.02.2015, Síða 24
24 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. FEBRÚAR 2015
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson| brids@mbl.is
Bridsfélag eldri borgara
í Hafnarfirði
31 par mætti til leiks þriðjudaginn
10. febrúar. Spilaður var 26 spila tví-
menningur.
Efstu pör í N/S:
Hulda Hjálmarsd. - Hrafnh. Skúlad. 61,6
Björn Árnason - Lúðvík Ólafsson 60,1
Friðrik Jónsson - Björn Svavarsson 59,7
Gróa Þorgeirsd. - Kristín Óskarsd. 56,8
A-V
Guðm. Sigursteinss. - Auðunn Guðmss. 68,6
Sigurður Hallgrs. - Steinmóður Einarss.59,4
Ágúst Stefánsson - Helgi Einarsson 55,6
Tómas Sigurjss. - Jóhannes Guðmannss.55,2
Föstudaginn 13. febrúar var spil-
aður tvímenningur með þátttöku 26
para.
Bestum árangri náðu í N/S:
Kristín Óskarsd. - Unnar Atli Guðmss. 66,8
Erla Sigurjónsd. - Jóhann Benediktss. 66,0
Örn Ingólfsson - Pétur Antonsson 61,0
Tómas Sigurjss. - Björn Svavarss. 53,1
Jón Sigvaldason - Katarínus Jónss. 49,6
A-V
Sigurður Tómasson - Guðjón Eyjólfss. 64,8
Skarphéðinn Lýðss. - Stefán Ólafsson 61,6
Anton Jónsson - Ólafur Ólafsson 59,3
Haukur Guðmss. - Sigurður Kristjánss. 57,7
Kristján Þorlákss. - Bjarni Þórarinsson 53,8
BFEH spilar á þriðjudögum og
föstudögum í félagsheimili eldri
borgara í Hafnarfirði að Flatahrauni
3. Spilamennska byrjar kl. 13.
Keppnisstjóri er Sveinn R. Eiríks-
son og hjálpar hann til við myndun
para ef spilarar mæta stakir.
Á sama tíma og stjórn Strætó hefur reynzt vanhæf, vegna margra hneyksl-
anlegra tilfella í ferðaþjónustu fyrir fatlaða, sem hún hafði þó „skipulagt“ um
margra mánaða skeið, þá hækkar hún almennt fargjald í strætisvagna upp í
400 kr. og skerti á þessu ári þjónustuna með því að hætta að selja farþegum
leiðabækur! Mættum við biðja um nýja stjórn Strætó bs.
Jón Valur Jensson.
Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12 velvakandi@mbl.is
Gallar á þjónustu Strætó
Strætó Á milli áfangastaða er tækifæri til að hvíla sig og láta hugann reika.
Morgunblaðið/Kristinn
Bílaverkstæði Jóa býður upp á alla almenna
þjónustu fyrir flestar gerðir bifreiða.
Er kominn tími á að
smyrja bílinn þinn
Opið: mánud. – fimmtud. 8-17 föstudögum 8-15
með allt fyrir bílinn
Dalvegi 16a - 201 Kópavogi | Sími: 564 5520 | bilajoa@bilajoa.is | www.bilajoa.is
Að smyrja bílinn
reglulega er hagkvæm og
ódýr leið til þess að tryggja betri og
lengri endingu vélarinnar.
564 5520
bilajoa.is
Morgunblaðið gefur út þann
12. mars glæsilegt
sérblað um HönnunarMars
–– Meira fyrir lesendur
PÖNTUNARFRESTUR
AUGLÝSINGA:
fyrir kl. 12,
mánudaginn
9. mars.
NÁNARI
UPPLÝSINGAR
GEFUR:
Katrín Theódórsdóttir
Sími: 569 1105
kata@mbl.is
Hátíðin verður haldin
víðs vegar um Reykjavík
þar sem saman koma
íslenskir hönnuðir og
sýna fjölbreytt úrval
nýrrar íslenskrar hönn-
unar og arkitektúrs af
margvíslegu tagi.
HönnunarMars
DesignMarch
Reykjavík 12.-15.03.2015
Í tillögu til þings-
ályktunar til Alþingis er
lagt til að seinka klukk-
unni á Íslandi í stað-
artíma -1. Haldið er
fram að viðvarandi tog-
streita sé yfir veturinn á
milli líkamsklukku Ís-
lendinga og stað-
arklukkunnar. Þung-
lyndi, tóbaks- og
áfengisneysla gæti
minnkað m.m.
Nú hafa stærðfræðingar þróað app
gegn flugþreytu. Appið segir þeim
sem vilja fara að leiðbeiningum hve-
nær þeir eiga að sækja í ljós eða
myrkur til að komast yfir flugþreyt-
una sem fyrst.
Frávik landfræðilegrar legu
ríkja/landsvæða í tímabelti
frá völdum staðartíma
Ef litið er til annarra landa sem
liggja á 60°- 70° N er staðartími svæð-
isins einum til þremur tímum á undan
sólartíma. Austasti hluti Íslands er 24
mínútur frá því að ná að vera jarð-
fræðilega í tímabeltinu 0.
Öll ríki Vestur-Evrópu, að undan-
teknum Írlandi, Bretlandi og Portú-
gal, hafa sameinast um tímabelti +1.
Vestasti hluti Spánar er jarðfræðilega
í sama tímabelti -1 og Ísland, en er
með sumartíma +2. Hvers vegna á
ekki að taka mið af því og setja stað-
artíma Íslands á +1, vetrartíma Vest-
ur-Evrópu, en óbreytt að sumr? Þá
hefur líkamsklukkan stöðugleika. Það
virkar sem huglægt högg þegar
klukkunni er seinkað í lok sumartím-
ans að hausti, yfirþyrmandi depurð
setur að manni. Dæmi um frávik stað-
artíma eru: Azoreyjar með staðar-
tíma +1 í stað -3 og svæði í Rússlandi
sem nær yfir þrjú tímabelti +7 til +9
en staðartími þess er +10. (Heimild:
Wikapedia, tímabelti dags. 20. sept-
ember 2011.)
Afleiðingar frávika
frá legu og staðartíma
Maðurinn hefur frá örófi alda við-
haldið sinni hegðun á æskuskeiði,
sumir fara að leiðbeiningum og að-
stæðum, en aðrir gera eins og þeim
hugnast hverju sinni,
óháð frú Klukku. Því er
hin fálmkennda skýring
að það sé klukkunni að
kenna að erfitt sé að
vakna á morgnana, til
vinnu eða skóla.
Mér er mjög til efs að
stjórnendur ríkjanna/
landsvæðanna hafi ekki
haft eða fengið vís-
indalega vitneskju um
eða ráðgjöf, hversu
mikla viðvarandi tog-
streitu, andlega vanlíð-
an, heilsumein og sóun á fé í heil-
brigðiskerfinu þeir væru að kalla yfir
hundruð, jafnvel þúsundir milljóna
íbúa ríkja sinna, ef það hljótist af því
að flýta klukkunni miðað við jarð-
fræðilegan staðartíma, eins og gert
var 1968 á Íslandi. Hádegi er kallað
þegar sólmiðjan er í hásuðri, sem er
nú eftir árstíð t.d. í Reykjavík kl.
13.11-13.42.
Tímahringur heilans, líkams-
klukkan, er ekki sniðinn að 24 stunda
klukku samfélagsins. Birtan stýrir
hringferlinu. Hjá 8 af hverjum 10 er
takturinn styttri eða ögn lengri en 24
klst. og vakna auðveldlega að morgni,
segir S. Pallesen í háskóla Bergen.
Líkamsklukkan fínstillir sig um flakk-
andi hádegis- og miðnæturbil.
Reglubundinn svefn er mikilvægur
til þess að framleiðslutaktur stjórn-
andi efna verði stöðugur og í föstum
skorðum. Þar af leiðir að óheppilegt
er að flýta og seinka klukkunni vor og
haust. Komið hefur í ljós að eftir að
klukkunni er flýtt á sumartíma fækk-
ar slysum.
Niðurstaða
Beinast liggur við að taka upp stað-
artíma +1 á Íslandi, en án sumar-
tíma, takandi tillit til þeirra sem
temja sér reglulegan svefn og vöku-
takt. Allt árið yrði sami tími á Íslandi
og í Vestur-Evrópa að vetri. Sól verð-
ur þá hæst á lofti t.d. í Reykjavík um
kl. 14.11-14.42 eftir árstíð. Með þess-
ari breytingu yrði margt til hagsbóta
fyrir þá sem erfitt eiga í skammdeg-
inu, almenna þjóðfélagsþegna og við-
skipti austan Atlantsála. Lending-
artími flugvéla austan- og vestanhafs
gæti haldist óbreyttur. Vissulega
vakna menn lengur í myrkri að
morgni í skammdeginu, en það tel ég
léttvægt eftir tilkomu rafvæðing-
arinnar búandi og farandi til sýslunar,
náms eða vinnu, í vel upplýst húsnæði
þar sem litarhitastig ljósgjafa er
meira en 4000°K, lýsing meiri en 600
lux og Ra-gildi hærra en 85. Þar mun
vakningarefnið orexin og hormónið
serotonin fljótt ná fullum styrk í raf-
birtunni sem liggur nærri dags-
birtunni og síðar hin ánægjulega til-
finning að sjá dagrenninguna. Fyrir
þá ungu eru lok skóladags t.d. um kl.
14 og þá nálgast hádegi, sól hæst á
lofti og langur bjartur dagur eftir, til
leiks úti, meira að segja ekki komið
myrkur fyrr en kl. 17.48 þó 20. des-
ember sé, en birting kl. 11.02. Þeir
sem eru að vinna úti þurfa varla að
setja upp vinnuljós nema að morgni.
Hinir ungu foreldrar sækja börnin sín
á leikskóla í björtu og geta átt stund
með þeim úti á eftir og nært líkama,
án sólgleraugna, með D-vítamíni ef
sól skín eða bjart er yfir.
Að koma heim frá vinnu í björtu er
unaður, einkum fyrir þá sem erfiðlega
ráða við skammdegisþunglyndið. Ég
er sannfærður um að aukið hlutfall af
D-vítamíni í blóði gerir mikið gagn til
að komast í gegnum skammdegið.
Þegar líður að vori/sumri/hausti verð-
ur sól hærra á lofti framyfir kvöld-
verð og hlýrra og bjartara á góðu
grillkvöldi. Með því að flýta klukkunni
til samræmis við tímabelti +1 verður
ekki eins og nú bæði myrkur að
morgni til vinnu og skóla og myrkur á
leið heim, sem er óbærilegt og nið-
urdrepandi, dagurinn búinn. Bjart
heim úr skóla og vinnu síðdegis alla
daga ársins er allra hagur.
Heimild: Tímar; og skilgreining hádegis;
birtingar og myrkurs. Almanak. Útgefandi
Háskóli Íslands.
Flýtum klukkunni á Íslandi til
jafns við Vestur-Evróputíma +1
» Öll ríki V-Evrópu
nema þrjú hafa sam-
einast um tímabelti +1.
Vestasti hluti Spánar er
í sama tímabelti -1 og
Ísland. Bjart úr skóla og
vinnu er allra hagur.
Svavar Þorvarðsson
Höfundur er smiður.
Eftir Svavar
Þorvarðsson