Morgunblaðið - 07.03.2015, Blaðsíða 49

Morgunblaðið - 07.03.2015, Blaðsíða 49
MENNING 49 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. MARS 2015 Einntilníu nefnist einkasýn- ing Söru Riel sem opnuð verður í dag kl. 17 í Lista- mönnum galleríi, Skúlagötu 32-34. Á sýningunni má sjá nýjar teikningar og málverk eftir Söru sem fjalla um stærðfræði og formfræði og vísa stílbrigðin sterkt í ab- straktlist og módernisma, skv. sýningartexta. „Útgangspunkturinn er rúmfræðilegur en hefur sterka og í raun beina teng- ingu í algebru og talna- fræði. Byggt er á ströngum leikreglum (frumsemdu- kerfi) og verkfærum þar sem unnið er með einhver hreinustu rúmfræðileg form sem við þekkjum: hring, línu, þrí-, fer-, fimm-, sex-, sjö-, átt- og níhyrning. Grunnverkfærin eru blýant- ur, sirkill og reglustika,“ segir um verkin. Í þessum leiðangri afmái Sara mörkin milli myndlistar, tónlistar, stærðfræði og vísinda og bjóði sýningargestum að finna mátt myndrænnar skynjunar á þessum fyrirbærum. Með könnun sinni minni hún jafnframt á að draumur Evklíðs, sem í raun sé draumur margra stærðfræðinga fram að okkar tímum, um hið fullkomna stærðfræðilega kerfi sé ómögulegur. Þannig verði annaðhvort alltaf til mótsagnir eða staðhæf- ingar sem séu sannar en ósannanlegar. Rúmfræðilegur útgangspunktur Morgunblaðið/RAX Einntilníu Sara með eitt verka sinna. Finnska tónlistarkonan Mirel Wagner hlaut í fyrradag Norrænu tónlistarverðlaunin fyrir árið 2014 fyrir plötu sína When The Cellar Children See The Light Of Day. Er það í fyrsta sinn sem Finnar hreppa verðlaunin. Í umsögn dómnefndar um plötuna segir m.a. að hún hafi að geyma lokkandi og agaðar smá- sögur og að söngur og hljóðfæra- leikur sé undurfagur. Fólk megi ekki láta titil plötunnar fæla sig frá en hann mætti þýða svo: Þegar kjallarabörnin sjá dagsljósið. Wagner fær í verðlaunafé 30 þús- und norskar krónur. Fyrir hönd Íslands voru tilnefnd- ar plöturnar Sorrí með Prins Póló og Trash from the Boys með Pink Street Boys. Norrænu tónlistarverðlaunin til Wagner Undurfögur Plata Mirel Wagner er undurfögur, að mati dómefndar. TÓNLIST Arnar Eggert Thoroddsen arnareggert@arnareggert.is Það var eitthvað undarlegtvið það að sjá hina mátt-ugu Madonnu – sem ekkert virðist nokkurn tíma bíta á – detta harkalega á rassinn á nýaf- staðinni Brit-hátíð. Hún er mann- leg eftir allt saman! Hún lét það hins vegar ekkert á sig fá, klár- aði lagið með pompi og prakt en í textanum við það er talað um að „let down my guard“, „stumble“, „fall“ og „I picked up my crown, put it back on my head“. Bíddu nú við, var þetta kannski hluti af atriðinu eftir allt saman? Þessi „mistök“ fengu enda ærna um- fjöllun í kjölfarið og atriðið mun meiri athygli en ella. Madonna neitar eðlilega öllu en svei mér þá, ég ætla að halda pínulítið í þá trú að þetta hafi verið snilldar- bragð frá meistara Madonnu. Það er eitthvað rétt við það. Sviðsljós Alla tíð hefur Madonna vafið fjölmiðlum um fingur sér af fá- dæma öryggi. Hún er ótrúlega nösk á hvað það er sem þarf og hvenær rétt er að ganga bara að- eins of langt. Ekki yfir strikið – en samt. Myndband hennar við Staðið í lappirnar Kamelljón Ögrandi og tvíræð skilaboð eru máttur og megin Madonnu. „Like a Prayer“ var mögnuð tákna-orgía þar sem henni tókst að fá alla sem máli skiptu upp á afturlappirnar. Þessi ótrúlega listakona – sem er einn vinsælasti og áhrifamesti dægurtónlistar- maður allra tíma – hefur þannig náð að halda sér í sviðsljósinu meira og minna frá því að hún kom fyrst fram í upphafi níunda áratugarins. Hvað plöturnar varðar hafa áhrifin þó verið minni undan- farið, síðasta verk sem eitthvað verulega er spunnið í er Ray of Light (1998) en samt koma þær enn út á ca. þriggja ára fresti. Sú síðasta var MDNA (2012) sem fékk þessa hefðbundnu la la dóma. Þessu hyggst Madonna, sá ódrepandi vinnuhestur og allra handa kögull, að sjálfsögðu breyta með Rebel Heart. Í gegnum tíðina hefur Ma- donna vandað sig hvað samstarfs- menn varðar, á plötunum vinna einatt móðins tónlistarmenn og það er engin undantekning á því hér. Þeir sem aðstoða við upp- tökustjórnun eru m.a. Avicii, Blood Diamonds, Diplo og sjálfur Kanye West. Nicki Minaj, Chance the Rapper, Nas, Alicia Keys og Mike Tyson (!) koma þá við sögu í sjálfum lögunum. Dágóðum slatta af prufuupptökum var svo lekið ólöglega á netið í desember síð- astliðnum og Madonna brást ókvæða við, talaði um listræna nauðgun og hryðjuverkastarfsemi og fjölmiðlar stukku óðar á yf- irlýsingarnar. Hljómar kunnug- lega? Þversögn Titillinn Rebel Heart lítur út eins og óður til eigin ferils og Madonna lét hafa það eftir sér að hann væri tvíþættur, fjallaði um tvær hliðar á sálarlífinu, þ.e. ann- ars vegar byltingarmanninn sem braut allar reglur og mótaði nýj- ar í upphafi ferilsins og svo hins vegar þessa rómantísku, hjart- næmari hlið. Platan átti á tíma- bili að vera tvískipt að þessu leyt- inu til en eftir lekann var ákveðið að hræra þessu öllu saman í eina fjórtán laga plötu (fleiri lög fylgja ýmiss konar veglegheita- útgáfum). Titillinn lýsir líka ágætlega vissri þversögn hvað Madonnu varðar. Hún virðist á stundum gera allt til að vekja á sér athygli og það er eins og hún sé alltaf í essinu sínu þegar spjótin standa á henni. En um leið er hún ofur- viðkvæm, eins og alvöru lista- mönnum er tamt, og viðbrögðin við lekanum voru öll á þá lund. En gleymum því ekki heldur að Madonna er tónlistarmaður og í nýlegu viðtali við Billboard sést að hún veit alveg hvað hún syng- ur í þeim efnum, hefur góða þekkingu á samtímastraumum og glúrið innsæi í það hvernig skuli beita sér í samhnoðningu hljóm- platna. Já, mikill er máttur hinn- ar mannlegu Madonnu! »Hún virðist ástundum gera allt til að vekja á sér athygli og það er eins og hún sé alltaf í essinu sínu þegar spjótin standa á henni.  Poppdrottningin Madonna gefur út Rebel Heart  Eitt magnaðasta kam- elljón dægurtónlistarsögunnar 2 VIKUR Á TOPPNUM! aðalhlutverki Ertu Duff eða ertu töff? www.laugarasbio.is Sími: 553-2075 SÝNINGARTÍMA MÁ NÁLGAST Á LAUGARASBIO.IS, MIDI.IS OG EINNIG Á SÍÐUNNI HÉR VIÐ HLIÐINA Á - bara lúxus

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.