Morgunblaðið - 07.03.2015, Blaðsíða 51

Morgunblaðið - 07.03.2015, Blaðsíða 51
MENNING 51 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. MARS 2015 Það magnaða við örmyndir er að þær geta verið í nær hvaða formi sem er,“ segir Harpa Fönn Sigur- jónsdóttir, einn skipuleggjenda ör- myndahátíðarinnar Örvarpsins sem fram fer í Bíó Paradís um helgina. „Fjölbreytnin er mikil, eina skil- yrðið er að verkið sé ekki lengra en fimm mínútur. Þetta er í annað skiptið sem við höldum hátíðina. Okkur bárust sextíu og tvær mynd- ir að þessu sinni og voru tólf þeirra valdar til birtingar,“ segir hún. Tvær teiknimyndir Það má segja að hátíðin hafi verið í gangi frá því síðasta haust en þá fékk fjöldi örmynda að njóta sín á vef RÚV en sérstök valnefnd valdi síðan tólf þeirra til birtingar í Bíó Paradís á laugardaginn og munu þær þar keppa um Örvarpann, verðlaun fyrir örmynd ársins. Auk þeirra mynda sem voru valdar munu stjórnendur velja nokkrar myndir aukalega til að hafa til sýn- ingar. Samtals verða því sýndar um tuttugu örmyndir en meðal þeirra sem eiga verk á hátíðinni eru Kitty Von-Sometime, Ari Alexander Erg- is Magnússon og Laufey Elíasdótt- ir. „Í hópnum eru líka tvær teikni- myndir. Það getur verið mjög tíma- frekt og dýrt að gera slíkar myndir og örmyndaformið því tilvalið fyrir slíka listamenn. Dómnefndina, sem kemur til með að velja vinnings- myndina sem síðar verður sýnd á RÚV, skipa Hafsteinn Gunnar Sig- urðsson, Davíð Óskar Ólafsson og Margrét Elísabet Ólafsdóttir. Haf- steinn er þekktur kvikmyndagerð- armaður og Davíð Óskar er fram- leiðandi. Margrét Elísabet kemur síðan úr myndlist þannig að þetta er rosalega víður hópur. Örmynda- formið getur náttúrlega, eins og áð- ur segir, náð til mjög margra list- greina,“ segir Harpa Fönn. Örmyndavettvang vantað Nokkuð jafn áhugi virðist vera á milli kynja þegar kemur að ör- myndum en þrettán af þeim tuttugu og fjórum leikstjórum sem eiga verk á hátíðinni eru konur. Frá því hátíðin var sett á laggirnar hafa um 150 örmyndir komið á hennar borð og segist Harpa Fönn vonast til þess að hátíðin sé komin til þess að vera. „Það er bara spurning hvernig RÚV tekur í þetta. Hátíðin hefur fengið mjög góðar viðtökur enda hefur þennan vettvang algjörlega vantað hér á landi,“ segir Harpa Fönn að lokum. Kvikmyndahúsið verður opnað klukkan 18 og lýkur formlegri dagskrá um kl. 21. davidmar@mbl.is Örvarpskonur Harpa Fönn Sigurjónsdóttir og Halldóra Rut Baldursdóttir, skipuleggjendur Örvarpsins. Örmyndir verða sýndar í Bíó Paradís. Örvarpinn afhentur í annað sinn  Örmyndahátíð Örvarpið fer fram í Bíó Paradís um helgina Yfirlitssýning á verkum Iðunnar Ágústsdóttur verður opnuð í dag kl. 15 í Listasafninu á Akureyri, Ketilhúsi. Tilefnið er 75 ára af- mæli listakonunnar sem fædd er og uppalin á Ak- ureyri. Iðunn hóf myndlist- arferil sinn árið 1977 en fyrsta einkasýning hennar var haldin 1979 í Gallerí Háhóli. Hún var einn meðlima Mynd- hópsins sem stofnaður var 1979 og var meðal annars formað- ur hans og gjaldkeri um tíma, eins og segir í tilkynningu. Iðunn vann aðallega með olíuliti og pastelkrít í verkum sínum og hennar helstu viðfangsefni hafa verið landslagið, náttúran, fólk og hið dulræna. Iðunn hefur haldið fjölmargar einkasýningar og tek- ið þátt í fjölda samsýninga bæði hér á landi og erlendis. Þetta er fyrsta yfirlitssýningin á verkum hennar og á henni er lögð áhersla á olíu- og krítarverk. Sýningarstjóri er sonur Iðunn- ar, Eiríkur Arnar Magnússon myndlistarmaður, sem opnar í dag kl. 16 sýningu á eigin verkum í Mjólkurbúðinni í Listagilinu á Akureyri. Hann sýnir olíu- málverk, portrett af ömmu sinni, móður og sjálfum sér og er til- efnið skemmtilegt því á morgun lýkur yfirlitssýningu á verkum móður Iðunnar og ömmu Eiríks, Elísabetar Geirmundsdóttur, í Listasafninu á Akureyri. Það verður því hægt að skoða verk þriggja ættliða í gilinu um helgina og í tilefni af síðustu sýn- ingarhelgi á verkum Elísabetar verður boðið til söngveislu í aust- ursal Listasafnsins kl. 14 í dag. Þar munu nemendur Tónlistar- skólans á Akureyri og Kór Ak- ureyrarkirkju flytja söngdagskrá með lögum og ljóðum Elísabetar. Verk þriggja ætt- liða í Listagilinu Eiríkur Arnar Magnússon d KYNNTU ÞÉR ÁSKRIFTARLEIÐIR Í SKJÁHEIMI – PAKKAR FRÁ AÐEINS 1.990 KR. Á MÁNUÐI. SKJÁRINN | WWW.SKJARINN.IS SPENNAÁÖLLUM VÍGSTÖÐVUM Hjól, skautar, skíði, bolti og margt fleira – og kitlandi spenna á öllum vígstöðvum. FrábærdagskrááEurosportogEurosport2 –eingöngu íSkjáHeimi. EUROSPORT / LAUGARDAGUR 13.15. Heimsmeistaramót í skíðagöngu. Æsispennandi keppni í sprettgöngumeð hefðbundinni aðferð í karla- og kvennaflokki. Heimsmeistaramótið fer fram í Lahti, Finnlandi. EUROSPORT / SUNNUDAGUR 18.00. Heimsbikarmót FIA í Argentínu. Hraði, vélagnýr og kitlandi spenna í einni æsilegustu akstursíþróttakeppni í heimi. EUROSPORT 2 / LAUGARDAGUR 12.45. Strade Bianche. Strade Bianche ermeð sterkustu hjólreiða- keppnum í heimi. Frábærir hjólreiðakappar takast á í glæsilegu umhverfi í Toscana á Ítalíu. EUROSPORT 2 / SUNNUDAGUR 19.30. Heimsbikarmót í skautahlaupi. Skautahlaup á braut er hröð og spennandi keppnisgrein þar sem hver hreyfing getur ráðið úrslitum.Mótið fer fram í Calgary í Kanada. skjárheimur er fáanlegur bæði hjá vodafone og símanum Úrslitaleikur Algarve Cup í beinni 11. mars

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.