Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.03.2015, Qupperneq 64
SUNNUDAGUR 29. MARS 2015
Elding býður upp á páskaeggjaleit í Viðey í dag, laugardag, í
góðu samstarfi við sælgætisgerðina Freyju, Viðeyjarstofu og
Borgarsögusafn Reykjavíkur.
Um er að ræða skemmtilegan leik í fallegri náttúru sem öll
fjölskyldan ætti að hafa gaman af. Leikurinn gengur út á það að
finna sem flest lítil páskaegg frá Freyju, en einnig verða nokkrir
stærri vinningar fyrir þá sem finna sérstaklega merkt egg.
Páskaeggjaleitin verður ræst kl. 13:30 við Viðeyjarstofu en
siglt verður frá Skarfabakka kl. 13.15. Þátttakendur geta að
sjálfsögðu slegist í hópinn síðar, en leikurinn gengur þó út á þá
meginreglu að „fyrstur kemur, fyrstur fær“ en þó þannig að
hófs sé gætt svo sem flestir fái egg. Afmörkuð verða sérstök
leitarsvæði, þar á meðal eitt fyrir yngstu kynslóðina, það er sex
ára og yngri.
Múgur og margmenni leitar
að páskaeggjum í Viðey.
Ljósmynd/Roman Gerasymenko
LEIKUR FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA
Páskaeggjaleit
í Viðey
Páskaegg í leyni. Fyrstur kemur, fyrstur fær.
„Hvað gerðist í Breiðholti í nótt?
Ekki neitt. Það er nú eitthvað nýtt.
Hvað segirðu, voru einhver læti í
vesturbænum? Já, svoleiðis, eða
þannig sko. Já, það er jafnvel stór-
frétt ef ekkert gerist í Breiðholti
sem telst miður fara. Fjölmiðlar
virðast ekki hafa áhuga á því sem
vel er gert í heilbrigðu og þægi-
legu félagslífi, eðlilegri starfsemi
barna og unglinga í starfi og leik í
því ágæta hverfi Breiðholti.“
Með þessum orðum hófst frá-
sögn í Morgunblaðinu í lok mars
1980 frá fjölsóttum fundi í Fella-
helli sem haldinn var vegna nei-
kvæðra skrifa í fjölmiðlum um
unglinga í Breiðholti.
Á fundinum spurði Inga Birna
Úlfarsdóttir, fundarstjóri: „Sætt-
um við okkur við, að aðrir ákveði
að við séum annars flokks fólk?
Sættum við okkur við, að fólk úr
öðrum hverfum ákveði, að Breið-
holtið sé verra hverfi en önnur
hverfi Reykjavíkur? Sættum við
okkur við það, að örfáir ein-
staklingar skemmi fyrir heildinni?
Sættum við okkur við það, að fólk
líti okkur öðrum augum um leið og
það veit að við erum úr Breiðholti?
Viljum við ekki ráða okkur málum
sjálf og stuðla að betri umgengni í
hverfinu okkar? Viljum við ekki, að
stærsta unglingahverfi Reykjavík-
ur sé besta, mest lifandi og mest
spennandi hverfi Reykjavíkur?“
GAMLA FRÉTTIN
Breiðholt
varið
Ungmenni í Breiðholti fjölmenntu á fundinn í Fellahelli fyrir 35 árum.
ÞRÍFARAR VIKUNNAR
Christopher Eccleston
kvikmyndaleikari
Fjalar Sigurðarson
almannatengill
Brendan Rodgers
knattspyrnustjóri LiverpoolKringlan 2.hæð | Sími 588 0640 | casa.is
flott hönnun – flottar vörur
Ný glæsile
g
verslun í
Kringlunni
Nýjar vörur frá þekktum
framleiðendum, ásamt
okkar þekktu merkjum...
... og miklu fleira
Kíktu við og njó
ttu þess að
skoða úrvalið h
já okkur