Bókasafnið - 01.06.2010, Blaðsíða 14
14
1953 hóf hann störf sem bókavörður við Borgarbókasafnið
þar sem hann starfaði í um 27 ár. Hann lét þar af störfum 72
ára gamall árið 1980.
Páll hafði eins og fyrr sagði mikinn áhuga á ljósmyndun,
útivist og náttúruskoðun. Hann var einn stofnenda
Farfuglahreyfingarinnar og sat í stjórn Ferðafélags Íslands
í um þrjá áratugi og var ritstjóri Árbókar þess um 15 ára
skeið. Sem dæmi um vægi ljósmyndasafns Páls má nefna að
hann fór um Skagafjörð 1944-45 og tók þar myndir vegna
Sturlunguútgáfu og útgáfu Árbókar 1946. Alls hafa 70 myndir
úr ferðinni varðveist. Þar á meðal eru ómetanlegar myndir
úr Stíflu í Fljótum, sem skömmu síðar var sökkt að stórum
hluta vegna Skeiðsfossvirkjunar. Árið 1980 var Páll kosinn
heiðursfélagi Ferðafélagsins. Í minningu hans var síðar
stofnaður hjá félaginu sérstakur minningarsjóður sem veitir
þeim viðurkenningu sem í máli eða myndum stuðlar að
aukinni þekkingu manna á landi og þjóð. Þetta er svokölluð
Pálsvarða sem fyrst var veitt árið 1985.
Páll sá einnig um útgáfu nokkurra afmælisrita og á 75 ára
afmæli hans 1984 útbjuggu vinir hans honum sjálfum veglegt
afmælisrit, Land og stund, sem Sverrir Kristinsson gaf út.
Síðastliðið sumar stóð Safnahús Borgarfjarðar ásamt
Landsbókasafni Íslands fyrir málþingi í Borgarnesi til minningar
um Pál Jónsson bókavörð. Þingið var haldið í samvinnu
við Ferðafélag Íslands og Héraðsskjalasafn Skagfirðinga
og efnisval erinda fræðimanna á þinginu miðaðist við
áhugaefni Páls. Hann var öflugur liðsmaður Ferðafélagsins og
Héraðsskjalasafnið í Skagafirði geymir ljósmyndasafn hans sem
er mikið að vöxtum. Báðir aðilar stóðu á þessum forsendum að
málþinginu til að heiðra minningu góðs manns. Páll var lengst
af bókavörður við Borgarbókasafn Reykjavíkur, en meðal
annarra áhugamála hans voru ferðalög um náttúru Íslands og
ljósmyndun. Í einkabókasafni hans er stór hluti ævistarfs hans
fólginn. Þar hefur næmni og þekking bókasafnarans notið sín
eins og best verður á kosið, en í safninu eru tæplega 7.000
bækur og margar þeirra afar fágætar. Þess skal einnig getið
að margar af bókum sínum batt Páll inn sjálfur og þótti hann
meðal bestu bókbindara landsins. Ekki sótti hann þó iðnnám í
þeirri grein, en lærði mest á námskeiðum þýsks listbókbindara
er hér dvaldist um nokkurra ára skeið eftir stríðslok.
Páll Jónsson
Páll var fæddur 1909 og var málþingið haldið á 100 ára
afmæli hans, þann 20. júní 2009. Hann var fæddur á Lundum
í Stafholtstungum í Borgarfirði, en fór fljótlega í fóstur að
Örnólfsdal í Þverárhlíð. Leiðin lá síðan að heiman um 16
ára aldur og þá til Reykjavíkur þar sem hann starfaði við
verslunarstörf fyrstu árin, en réðst svo sem auglýsingastjóri að
dagblaðinu Vísi og starfaði við það í hátt á annan áratug. Árið
Í minningu bókvinar
Guðrún Jónsdóttir og Sævar Ingi Jónsson
Páll Jónsson í bókaherbergi sínu.