Bókasafnið

Ataaseq assigiiaat ilaat

Bókasafnið - 01.06.2010, Qupperneq 24

Bókasafnið - 01.06.2010, Qupperneq 24
24 bókasafnið 34. árg. 2010 notaðir til hins ýtrasta. Fínflokkun er gjarnan beitt þegar engin frekari efnisgreining fer fram eða jafnvel í rafrænum gagnagrunnum á sambærilegan hátt og lyklun. Flokkun og lyklun (efnisorðagjöf) eru meginþættir efnis- greiningar heimilda og geta bætt hvort annað upp svo að kostir beggja aðferða nýtist þannig að flokkunin gefi til dæmis heildaryfirlit yfir efnisflokka viðkomandi safns en efnisorðin dragi út sérhæfðari svið safnkostsins. Dewey-kerfið – Yfirlit Dewey-kerfið er nefnt eftir höfundi sínum Melvil Dewey (1851-1931) sem hannaði kerfið til að koma skipulagi á safnið þar sem hann starfaði (Amherst College í Massachusetts). Dewey-kerfið var fyrst gefið út árið 1876 og þá sem bækl ingur. Allra fyrsta útgáfan var meira að segja án höfundaraðildar. Í fyrstu útgáfunni var samt að finna alla meginþætti kerfisins, það er stigveldisuppbyggingu efnisflokka (e. hierarchy), flokkstölu/marktölu/mörkun (e. notation) sem byggðist á tugakerfi (eiginlega aukastafir í tugstafakerfi eins og tugstafakomman sé framan við töluna) og afstæðan efnislykil (e. relative index). Ennfremur minnisatriði (e. mnemonics) í flokkstölum þar sem sama talan vísar alltaf til sama efnis. Aðalflokkar Dewey-kerfisins (hundruð) 000 Almennt efni 100 Heimspeki Sálfræði 200 Trúarbrögð 300 Félagsvísindi 400 Tungumál 500 Raunvísindi 600 Tækni (hagnýt vísindi) 700 Listir Skemmtanir Íþróttir 800 Bókmenntir og stílfræði 900 Landafræði Ævisögur Sagnfræði Rætur Dewey-kerfisins ná aftur í aldir sem útskýrir helstu gallana sem kerfið þykir hafa, til dæmis að stórir flokkar eru á milli tungumála (400) og bókmennta (800) annars vegar og félagsfræði (300) og sögu (900) hins vegar. Kerfið er byggt á flokkunarkerfi Harrys frá 1870 sem byggði sitt kerfi aftur á móti á viðsnúinni röð þekkingarkerfis Sir Francis Bacon (Chan og Hodges, 2007) sem skýrir röð flokkana. Dewey-kerfið varð fljótt mjög vinsælt og hefur þróast í gegnum tíðina. Fyrsta útgáfa þess var lítill bæklingur en síðustu óstyttu útgáfur eru fjögur þykk bindi. Sannast á kerfinu að mjór er mikils vísir og segja má að umfang þess endurspegli aukna útgáfustarfsemi í heiminum. Dewey- kerfið er nú eitt útbreiddasta flokkunarkerfið í heiminum og er í stöðugri endurskoðun. Kerfið er notað í yfir 135 löndum og hefur verið þýtt á meira en 30 tungumál. Tvenns konar útgáfa Dewey-kerfisins er fyrir hendi:  Óstytt útgáfa fyrir stærri bókasöfn. – Nýjust er 22. útgáfa frá 2002.  Stytt útgáfa fyrir minni söfn. – Nýjust er 14. útgáfa frá 2003. Útgáfurnar tvær eru nú algerlega samhæfðar (frá og með 19. óstyttu og 11. styttu útgáfunni frá 1979). Það þýðir að það má nota þær saman á sama bókasafni, til dæmis flokka sérefni eftir óstyttu útgáfunni og jaðarefni eftir þeirri styttu. Lengi vel var stytta útgáfan með ýmsum tilfærslum milli flokka sem gerði slíka samnýtingu örðugri. Stiklað á stóru um bókasafnsmál hér á landi Þróun og notkun Dewey-kerfisins hér á landi er samofin stofnun og þróun bókasafna og bókavarðafélaga í landinu en bókasafnsþjónusta var nokkuð seinna á ferðinni hér á landi en í öðrum Evrópulöndum. Á fyrri helmingi 20. aldarinnar var þróunin frekar hægfara en mun hraðari á síðari hluta aldarinnar sem má sjálfsagt meðal annars rekja til þess að efnahagur landsins batnaði verulega um og eftir heimstyrjöldina síðari og lýðveldi var stofnað árið 1944. Dewey-kerfið er notað á flestum bókasöfnum hér á landi og af öllum safnategundum. Af öðrum kerfum sem í notkun eru má nefna NLM kerfið (National Library of Medicine Classification) og UDC kerfið (Universal Decimal Classification). Þó bókmenning eigi sér langa sögu hér á landi á bókasafnsþjónusta eins og við þekkjum hana í dag sér ekki ýkja langa sögu. Fyrsta lestrarfélagið var samt stofnað árið 1790. Á seinni hluta 19. aldar voru lestrarfélög stofnuð víðs vegar um landið og byggðust á fróðleiksfýsn og sjálfboðavinnu. Á árunum 1790 til 1982 er vitað um stofnun 431 safns fyrir almenning, lestrarfélaga og almenningsbókasafna (Ingibjörg Sverrisdóttir, 1997). Árið 1937 voru sett lög um starfsemi lestrarfélaganna (Lög um lestrarfélög og kennslukvikmyndir) og árið 1955 voru fyrstu Lög um almenningsbókasöfn sett (Steingrímur Jónsson, 1983). Sama ár var embætti bókafulltrúa ríkisins stofnað í samræmi við lögin og stuðlaði það að aukinni fagmennsku á söfnunum. Bókafulltrúi ríkisins hafði umsjón með og sinnti almenningsbókasöfnum og skólasöfnum í grunnskólum. Mörg lestrarfélaganna hafa sameinast og verið endurskipulögð sem almenningsbókasöfn. Borgarbókasafn Reykjavíkur, sem stofnað var árið 1923, er langstærsta almenningsbókasafn landsins. Þegar þetta er skrifað (2010) eru um 40 almenningsbókasöfn á landinu og hefur starfsemi þeirra verið í örri þróun hin síðari ár. Landsbókasafn Íslands var stofnað árið 1818 og er langelsta rannsóknarbókasafn landsins. Árið 1886 voru fyrst sett íslensk Lög um skylduskil til bókasafna sem efldi safnkost þeirra safna sem eintök fengu. Háskóli Íslands var stofnaður árið 1911. Árið 1940 voru deildasöfn Háskólans sameinuð og
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Bókasafnið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.