Bókasafnið


Bókasafnið - 01.06.2010, Side 25

Bókasafnið - 01.06.2010, Side 25
25 bókasafnið 34. árg. 2010 Háskólabókasafn stofnað sem sameinaðist svo Landsbókasafni Íslands og fluttist ásamt því í Þjóðarbókhlöðu árið 1994. Safnið er langstærsta rannsóknarsafn landsins en slík söfn eru einnig við aðra háskóla landsins svo og ýmsar stofnanir. Bókasöfn og upplýsingamiðstöðvar hafa verið í örri þróun á síðustu áratugum og er starfsemi þeirra öflug og metnaðarfull. Söfnin hafa með sér öfluga samvinnu, til dæmis um samskrá íslenskra bókasafna, Gegnir.is, og um landsaðgang að rafrænum gagnasöfnum og tímaritum, hvar. is (Þórdís T. Þórarinsdóttir, 2005a). Á áttunda og níunda áratug síðustu aldar spruttu upp skólasöfn við grunn- og framhaldsskóla landsins (Sigrún Klara Hannesdóttir, 1997; Þórdís T. Þórarinsdóttir, 1997). Kennsla í bókasafnsfræði við Háskóla Íslands hófst árið 1956 að tilhlutan þáverandi háskólabókavarðar, dr. Björns Sigfússonar. Mikilvægt var fyrir framþróun starfsemi bókasafna að starfsfólk þeirra ætti þess kost að nema bókasafnsfræði hér á landi. Þegar kennslan hófst voru aðeins fjórir starfandi bókasafnsfræðingar hérlendis en árið 1964 lauk fyrsti nemandinn BA-prófi í bókasafnsfræði frá Háskóla Íslands (Friðrik G. Olgeirsson, 2004). Náminu óx þannig smám saman fiskur um hrygg. Árið 1993 var farið að bjóða upp á framhaldsnám í bókasafns- og upplýsingafræði, frá árinu 2004 hefur verið boðið upp á MLIS nám fyrir þá sem eru með BA-próf í annarri háskólagrein og diplómanám hófst á haustmisseri 2008 (Ágústa Pálsdóttir, 2009). Í desember 2002 var stofnað nýtt starfsnám á sviði bóka - safns- og upplýsingafræða, bókasafnstækni, í framhalds skólum sem ætlað var ófaglærðum bókavörðum og framhalds- skólanemum en áður hafði ófaglært starfsfólk bókasafna átt þess kost að stunda bókavarðanám í Bréfaskólanum (Þórdís T. Þórarinsdóttir, 2006). Bætti námsleiðin úr brýnni þörf á menntunartækifæri fyrir ófaglærða bókaverði. Bókavarðafélag Íslands (BVFÍ) var stofnað 4. desember 1960 um og yfir hálfri öld síðar en í flestum nágrannalandanna. Félag bókasafnsfræðinga (Fb) var stofnað árið 1973. Félögin tvö ásamt aðildarfélögum BVFÍ voru í nóvember 1999 sameinuð í Upplýsingu - Félagi bókasafns- og upplýsingafræða sem tók formlega til starfa 1. janúar árið 2000. Stofnfélagar í BVFÍ voru 37 bókaverðir og í Fb fjórir (Friðrik G. Olgeirsson, 2004). Árið 2004, þegar Upplýsing hafði starfað í fimm ár, voru félagsmenn um 500 (Þórdís T. Þórarinsdóttir, 2005b) svo þróunin hefur verið hröð. Athyglisvert er að félögin hér á landi hafa byggt á einstaklingsaðild fólks starfandi á bókasöfnum en erlendis hafa félögin verið samtök bókasafna sem hafa verið fjárhagslegur bakhjarl félaganna í mun ríkari mæli en hér. Nafngiftin endurspeglar þetta, í öðrum löndum heita félögin yfirleitt samtök bókasafna (til dæmis library association, biblioteksforening). Öll félögin hafa haft mikil áhrif á þróun fagvitundar og eflt starfsemi bókasafnanna. Dewey-kerfið kemur til Íslands Jón Ólafsson ritstjóri, skáld og þingmaður svo eitthvað sé nefnt, var ákaflega mikill áhugamaður um bókasafnsmál. Hann kynntist bókasöfnum og starfsemi þeirra í Bandaríkjunum innan við 20 árum eftir að Dewey-kerfið var fyrst gefið út en önnur útgáfa kerfisins, sem kom út árið 1885, var fyrsta útgáfan sem náði einhverri útbreiðslu að marki. Segja má að Jón hafi þannig kynnst kerfinu í frumbernsku þess. Hafa verður það í huga þegar þýðing hans er skoðuð. Á síðasta áratug 19. aldar starfaði Jón á bókasöfnum í Chicago, safni Field Columbium Museum og í Newberry Public Library, og kynnist þar Dewey-kerfinu og notkun þess ásamt aðferðum við skráningu bókakosts (Gils Guðmundsson, 1987; Guðrún Karlsdóttir, 1997). Þegar Jón Ólafsson kom aftur heim til Íslands kynnti hann Dewey-kerfið fyrir Landsbókasafni í bréfi frá árinu 1900 og sækir um starf við að flokka og skrá safnið. Á árunum 1900- 1913 flokkar Jón erlent efni safnsins samkvæmt Dewey- kerfinu og skráir það einnig (Jón Jacobson, 1919-20; Gils Guðmundsson, 1987). Jón var mikill áhugamaður um bókasafnsmál og framgang bókasafna og ritaði greinar um efnið í tímarit, svo sem greinina „Hagnýting bókasafna“ í Ísafold árið 1899. Árið 1902 skrifaði Jón grein um starfsemi bókasafna í Tímarit Hins íslenska bókmenntafélags sem má telja ein fyrstu skrif um bókasafns- og upplýsingafræði á íslensku. Þá grein kveðst Jón skrifa því leitað hafði verið ráða hjá honum um leiðbeiningar um skipulag bókasafna. Til að sem flestir hefðu gagn af leiðbeiningunum birti hann greinina (Jón Ólafsson, 1902). Þar er að finna leiðbeiningar um flokkun, skráningu og skipulagningu bóka- safna og jafnframt fyrstu prentuðu þýðingu Dewey-kerfisins á íslensku og er þannig um algert brautryðjandastarf að ræða. Jón lýsir mjög ákveðnum hugmyndum um hvaða eiginleika góður flokkari þarf að hafa til að bera: „góður flokkari þarf að vera gagnmenntaður maður, ákaflega fjölhæfur og fjölfróður, hafa góða yfirlitsgáfu, glögga dómgreind og frábært minni, og ofan á þetta talsverða verklega æfingu.“ (Jón Ólafsson, 1902, bls. 95). – Og Jón heldur áfram. „Án æfingar getur sá, sem hefir alla hæfileika aðra til þessa að bera, ekki gert sér minnstu hugmynd um, hvert vandaverk þetta er, og hvern tíma það tekur.“ Segja má að þetta sé enn í fullu gildi. Grein Jóns sýnir almennt góðan skilning á starfsemi bókasafna og mikilvægi þeirra. Þýðing Jóns tekur til aðalflokka kerfisins og allmargra undirflokka. Alls eru marktölur hátt í 70 flokka nefndar.Strax í þýðingu sinni frá 1902 kom Jón Ólafsson (bls. 100) með aðlögun Dewey-kerfisins að íslenskum þörfum og notar þar þann valkost kerfisins að nota megi 810 flokkinn, sem annars er notaður fyrir bandarískar bókmenntir, fyrir þjóðtungu þess lands sem notar kerfið. Samanburður á notkun valkosta í bókmenntun í útfærslu Jóns Ólafssonar og í íslensku Dewey útgáfunni frá 2002 Þýðing Jón Ólafssonar 1902 Íslenska útgáfan frá 2002 810 Íslenskar bókmenntir 810.1 Ljóð 810.2 Sjónleikar [Leikrit] 810.3 Skáldsögur 810.4 Ritsöfn höfunda 810 Íslenskar bókmenntir 811 Ljóð 812 Leikrit 813 Skáldsögur 814 Ritgerðir, greinar

x

Bókasafnið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.