Bókasafnið - 01.06.2010, Síða 32
32
Ákveðið var að hefja skil nemenda við Háskóla Íslands frá
og með sameiningu HÍ og KHÍ. Skil allra sviða skólans annarra
en menntavísindasviðs (áður KHÍ) í Skemmuna hófust því
með októberútskrift 2008. Vegna tafa við uppsetningu var
Skemman ekki tilbúin fyrr en á vormánuðum 2009 en reynt
var að safna ritgerðum á annan hátt, til dæmis með því að
fá ritgerðina senda í tölvupósti eða þá að nemendur skiluðu
ritgerðinni á geisladiski. Skólaárið 2008-2009 voru farnar
ýmsar leiðir til að innheimta stafrænu eintökin en frá og með
vorútskriftinni gátu nemendur sjálfir skilað ritgerðum sínum í
Skemmuna.
Nú eru rúmlega 5000 höfundar að efni í Skemmunni, þar
af hafa um 3000 nemendur Háskóla Íslands sent inn sína
ritgerð. Þar kennir ýmissa grasa. Til dæmis er hægt að finna
ritgerðir um bankahrunið, kreppuna, Facebook og blogg auk
hefðbundnari ritgerða í lögfræði, bókmenntum og efnafræði,
svo dæmi séu nefnd. Hægt er að fletta upp eftir höfundum,
titlum eða efnisorðum en einnig er hægt að leita innan
ákveðinna sviða eða deilda. Í Gegni er að finna tengingu við
ritgerðir sem eru í opnum aðgangi.
Safnið hefur lagt áherslu á að sem flestar ritgerðir séu
í opnum aðgangi en safnið styður hreyfingu um opið
aðgengi að rannsóknarupplýsingum (Open Access – OA) og
vinnur markvisst að því að vísindalegt efni verði sem víðast
aðgengilegt, ekki síst niðurstöður rannsókna sem unnar
eru fyrir opinbert fé. Það hefur samt komið á óvart að hluti
nemenda kýs að loka aðgangi að ritgerðum sínum en til þessa
hafa þeir haft val um það.
Skemman notar hugbúnaðinn DSpace sem er opinn
hugbúnaður og verður ný útgáfa opnuð haustið 2010.
Áslaug Agnarsdóttir
Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn (Lbs-Hbs) býður
um þessar mundir upp á tólf vefi eða vefþjónustur þar sem
umferð er mæld með samræmdri vefmælingu frá fyrirtækinu
Modernus. Þetta eru vefir sem er haldið úti á vegum safnsins
eða tengjast því beint. Sumir vefirnir eru samstarfsverkefni
og er vefur Landsaðgangs, hvar.is, þá talinn með. Á bak
við vefina liggja ólík gögn, skrár og gagnagrunnar með
mismunandi virkni og nú stendur yfir heildarendurskoðun
á vefjum safnsins. Viðmót þeirra flestra verður fært í sama
vefumsjónarkerfið, CMS Made Simple, auk þess sem útlit
og leiðakerfi verður samræmt. Mikilvægt er að fylgjast með
notkun á þessu efni þar eð mikil vinna liggur á bak við það
og notkun eykst sífellt, enda er þessi þjónusta í boði allan
sólarhringinn allt árið um kring (24/7). Hér á eftir er gerð grein
fyrir þremur ólíkum vefjum.
skemman.is
Skemman er rafrænt gagnasafn nokkurra háskólabókasafna
og er hýst í Lbs-Hbs. Skemman var upphaflega rafrænt
gagnasafn Háskólans á Akureyri (HA) og Kennaraháskóla
Íslands (KHÍ). Þar voru geymd lokaverkefni nemenda beggja
skóla og einnig rannsóknarrit kennara í HA. Snemma árs 2008
sendi samstarfsnefnd Háskóla Íslands og Lbs-Hbs tillögu
til háskólaráðs HÍ um rafræn skil og varðveislu lokaritgerða
nemenda og á fundi 21. febrúar 2008 var tillagan samþykkt
einróma. Í kjölfarið var ákveðið að ganga til samstarfs við HA
og KHÍ og við sameiningu KHÍ og HÍ þann 1. júlí sama ár var
ákveðið að safnið tæki við hýsingu og rekstri Skemmunnar af
KHÍ sem hafði hýst hana áður.
Á svipuðum tíma og HÍ samþykkti að taka þátt í Skemmunni
var samþykkt að Háskólinn í Bifröst, Listaháskólinn og
Landbúnaðarháskóli Íslands (LBHÍ) fengju aðild að verkefninu.
Allir fyrrnefndir háskólar eru nú þátttakendur. Háskólinn
í Reykjavík hefur sótt um inngöngu og mun væntanlega
gerast þátttakandi haustið 2010. Ný verkefnisstjórn var
skipuð fyrir Skemmuna 2008 og í henni sitja fulltrúar frá öllum
þátttökusöfnum.
Vefir á vegum
Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns