Bókasafnið - 01.06.2010, Page 35
35
bókasafnið 34. árg. 2010
Landsfundur Upplýsingar 2010 - Upplýsingalæsi á 21. öldinni
Landsfundur Upplýsingar verður haldinn dagana 17. – 18. september 2010.
Fundurinn verður haldinn á Vesturlandi að þessu sinni, í Hótel Stykkishólmi. Þema fundarins er upplýsingalæsi/
leikni og mikilvægi þess í öllum safnategundum.
Fyrirlesarar eru Guðrún Tryggvadóttir frá Háskólanum í Reykjavík, Kristín Björgvinsdóttir frá Fjölbrautaskólanum
við Ármúla og Birgir Björnsson frá Landsaðgangi bókasafna, hvar.is. Goethe Institut styrkir fundinn með komu
Fr. Dr. Claudiu Lux Statsbibliothek Berlin, fráfarandi forseta IFLA, en hún mun flytja erindi á fundinum. Þá flytur
Kristín R. Vilhjálmsdóttir frá Borgarbókasafni erindi um hlutverk bókasafna í þjóðfélaginu, ný verkefni á bókasöfnum,
fjölmenningu og markaðssetningu bókasafna og sendir okkur heim með fullt af hugmyndum og full eldmóðs!
Veislustjóri hátíðarkvöldverðar er Sigríður Margrét Guðmundsdóttir frá Landnámssetrinu í Borgarnesi.
Að sjálfsögðu verður tími fyrir faghópa að funda og fólki gefst einnig tækifæri til að skoða Eldfjallasafnið og
Vatnasafnið, bjórverksmiðjuna og annað skemmtilegt sem Stykkishólmur hefur upp á að bjóða. Í lokin gefst
fundarmönnum kostur á að fara í siglingu með Sæferðum um Breiðafjörð.
Landsfundarnefnd hvetur félagsmenn í Upplýsingu að fjölmenna á fundinn en þess má geta að Upplýsing er 10 ára
á þessu ári.
Landsfundarnefnd 2010 skipa : Halldóra Jónsdóttir, formaður, Nanna Þóra Áskelsdóttir, báðar frá Bókasafni Akraness,
Hafdís Dögg Hafsteinsdóttir, FVA, Andrea Jóhannsdóttir, Háskólanum á Bifröst, Steinunn Aradóttir, LMÍ, Ragnheiður
Óladóttir, Amtsbókasafninu Stykkishólmi og Sunna Njálsdóttir, Bókasafni Grundarfjarðar.