Bókasafnið


Bókasafnið - 01.06.2010, Blaðsíða 35

Bókasafnið - 01.06.2010, Blaðsíða 35
35 bókasafnið 34. árg. 2010 Landsfundur Upplýsingar 2010 - Upplýsingalæsi á 21. öldinni Landsfundur Upplýsingar verður haldinn dagana 17. – 18. september 2010. Fundurinn verður haldinn á Vesturlandi að þessu sinni, í Hótel Stykkishólmi. Þema fundarins er upplýsingalæsi/ leikni og mikilvægi þess í öllum safnategundum. Fyrirlesarar eru Guðrún Tryggvadóttir frá Háskólanum í Reykjavík, Kristín Björgvinsdóttir frá Fjölbrautaskólanum við Ármúla og Birgir Björnsson frá Landsaðgangi bókasafna, hvar.is. Goethe Institut styrkir fundinn með komu Fr. Dr. Claudiu Lux Statsbibliothek Berlin, fráfarandi forseta IFLA, en hún mun flytja erindi á fundinum. Þá flytur Kristín R. Vilhjálmsdóttir frá Borgarbókasafni erindi um hlutverk bókasafna í þjóðfélaginu, ný verkefni á bókasöfnum, fjölmenningu og markaðssetningu bókasafna og sendir okkur heim með fullt af hugmyndum og full eldmóðs! Veislustjóri hátíðarkvöldverðar er Sigríður Margrét Guðmundsdóttir frá Landnámssetrinu í Borgarnesi. Að sjálfsögðu verður tími fyrir faghópa að funda og fólki gefst einnig tækifæri til að skoða Eldfjallasafnið og Vatnasafnið, bjórverksmiðjuna og annað skemmtilegt sem Stykkishólmur hefur upp á að bjóða. Í lokin gefst fundarmönnum kostur á að fara í siglingu með Sæferðum um Breiðafjörð. Landsfundarnefnd hvetur félagsmenn í Upplýsingu að fjölmenna á fundinn en þess má geta að Upplýsing er 10 ára á þessu ári. Landsfundarnefnd 2010 skipa : Halldóra Jónsdóttir, formaður, Nanna Þóra Áskelsdóttir, báðar frá Bókasafni Akraness, Hafdís Dögg Hafsteinsdóttir, FVA, Andrea Jóhannsdóttir, Háskólanum á Bifröst, Steinunn Aradóttir, LMÍ, Ragnheiður Óladóttir, Amtsbókasafninu Stykkishólmi og Sunna Njálsdóttir, Bókasafni Grundarfjarðar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bókasafnið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.