Bókasafnið

Ataaseq assigiiaat ilaat

Bókasafnið - 01.06.2010, Qupperneq 38

Bókasafnið - 01.06.2010, Qupperneq 38
38 bókasafnið 34. árg. 2010 gegnum vefina. Safnið setti sér stefnu um stafræna endurgerð árið 2006 og hefur hún verið endurskoðuð reglulega. Söfnun og varðveisla stafræns efnis er í verkahring safnsins og fyrsta stóra verkefnið á því sviði var söfnun íslenskra vefsíðna. Safnið hefur tekið þátt í erlendu samstarfi um söfnun vefsíðna og þróun vefsafna með Norðurlandaþjóðunum og undir formerkjum IIPC (International Internet Preservation Consortium). Íslenska vefnum, það er þjóðarléninu.is, og erlendum síðum sem fjalla um Ísland og íslensk málefni hefur verið safnað síðan 2003. Vefsafn.is var opnað árið 2009 og í því eru nú um einn milljarður vefslóða. Þá er verið að stíga fyrstu skref við móttöku og söfnun á öðru efni sem verður til stafrænt, svo sem bókum, tímaritum, tónlist og fleiru. Einnig er fylgst með þróun á sviði langtímavarðveislu þessa efnis. Nú er stafrænt efni safnsins um 22 terabyte eða tvöfalt það vegna afritatöku. Stefnt er að því að stafrænu gögnin verði aðgengileg víðar en á vefjum safnsins. Þau eru gerð leitarbær og lýsigögn fyrir þau unnin þannig að unnt verður að birta þau í öðrum upplýsingaveitum. Gegnir, kortavefurinn, sagnanetið og timarit.is eru nú aðgengileg gegnum TEL (The European Library) og stafrænu leitargáttina Europeana. Þá tekur safnið þátt í gerð samþættrar leitarvélar fyrir Ísland með Landskerfi bókasafna, en stefnt er að opnun hennar árið 2011. Þar verður veittur aðgangur að stafrænu íslensku efni frá bókasöfnum, skjalasöfnum og minjasöfnum auk annarra þeirra aðila sem vilja veita aðgang að stafrænu efni sínu. Þá er safnið að feta sig áfram í nýju vefumhverfi, svo sem á samskiptasíðunum MySpace og Facebook en þar er hægt að gerast vinur safnsins. Facebook-síðan er hugsuð fyrir kynningar á starfsemi safnsins almennt og viðburðum sem þar eru. MySpace-síðan er leið tón- og myndsafns til að nálgast tónlistarfólk sem kemur tónlist sinni á framfæri á vefnum. Starfsemi Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns byggist að verulegu leyti á vinnu starfsmanna og hvernig þeim tekst að nýta það fjármagn sem safninu er ætlað hverju sinni. Vel hefur tekist til og skal núverandi og fyrrverandi starfsmönnum þakkað fyrir framlag þeirra til safnsins þau ár sem það hefur starfað. Meðal verkefna sem unnið hefur verið að s.l. 15 ár eru: 1994-95 Þjóðarátak stúdenta – Fyllum bókhlöðuna 1996 Fyrsti vefur safnsins opnaður 1996 Útgáfa Passíusálmanna 1996 Kvennasögusafn opnað 1997 Kortavefurinn opnaður 1997 Samstarfssamningur við Háskóla Íslands 1998 Aðgangur keyptur að fyrsta gagnasafninu með tímaritum – ABI/Inform 1998 Stöður starfsmannastjóra og forvarðar verða til 1999 Endurskoðað skipurit 1999 Fyrsti árangurssamningur við menntamálaráðuneytið undirritaður 2000 Bókminjasafn í Þjóðmenningarhúsi opnað 2001 Sagnanetið opnað 2002 Þjónustusamningur um rekstur Landsaðgangs undirritaður 2002 Innri vefur – Inngangur opnaður 2002 Útgáfa flokkunarkerfis Deweys – stytt íslensk útgáfa 2003 Nýr Gegnir, bókasafnskerfi fyrir allt landið opnað 2003 Stafræn endurgerð íslenskra dagblaða hefst (lýkur 2010) 2004 Útgáfa Starfsmannahandbókar 2004 Útgáfa Galdrakversins 2005 Vefsöfnun hefst 2005 Forskráning íslenskra bóka í Gegni hefst 2006 Skrá yfir doktorsritgerðir opnuð 2007 Íslensk útgáfuskrá opnuð 2007 Skjalastjórnarkerfi tekið í notkun 2008 Ný myndvinnslulína fyrir stafrænt efni tekin í notkun 2009 Vefsafn.is opnað 2009 Skemman.is, safn lokaritgerða háskóla opnað Abstract The National and University Library of Iceland. December 1st 1994-2009 – 15th Anniversary The National and University Library of Iceland celebrated its 15th anniversary in 2009. The Library was established in 1994 with the union of the National Library of Iceland (founded in 1818) and of the Library of the University of Iceland (founded 1940). The National Librarian gives an overview of the National Library´s statutes, strategies, both older ones and a new one from 2009 under the banner Access to Knowledge for Everyone, organisational chart, staff and administration, housing and special units. The role of the Library in the Consortium of Icelandic Libraries, accessible at gegnir.is and the National Licences at hvar.is. are discussed as well as projects and collaboration in the field of harvesting, dissemination, and preservation of digital material. Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn Handritadeild Tón- og myndsafn Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Bókasafnið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.