Bókasafnið - 01.06.2010, Síða 50
50
bókasafnið 34. árg. 2010
upplýsingum, bókmenntum, kvikmyndum, tónlist, dagblöðum
og tímaritum, og starfsmenn eru sérlega færir að vísa fólki leið
gegnum frumskóg upplýsinga. Auk þess að eiga feikimikinn
safnkost og vera mikilvægur lykill að upplýsingasamfélaginu
er bókasafnið staður þar sem einstaklingar mæla sér mót og
hópar koma saman. Þar geta ný tengsl myndast og þar má
byggja brýr milli menningarheima og þekkingarsviða. En til
þess að geta notfært sér þetta verður hver einstaklingur að
vita hvar bókasafnið í nágrenni hans er og hvernig hann getur
sjálfur notfært sér starfsemi bókasafnsins í sínu eigin lífi.
Síðan í febrúar 2008 hef ég verið svo heppin að fá að
byggja upp fjölmenningarlegt starf á Borgarbókasafni
Reykjavíkur. Fjölmenningarlegu verkefnin ganga út á að tengja
innflytjendur við bókasöfnin á fjölbreyttan hátt, vekja athygli
á að ólík menning getur auðgað eigin menningu og að miðla
þekkingu og menningu milli Íslendinga og innflytjenda. Boðið
er uppá lifandi stuðning við íslensku- og móðurmálskennslu,
þar sem kennarar koma með hópa af nemendum (fullorðnum
sem börnum), fá kynningu um bókasafnið, fara í ratleik og
nýta möguleika og gögn safnsins í tungumálakennslunni.
Gestirnir fá bókasafnsskírteini og oft verður þessi heimsókn
til þess að safnið eignast dygga gesti. Í tveimur söfnum hafa
skiptibókamarkaðir verið opnir þar sem hægt er að koma með
bækur á erlendum tungumálum og taka sér aðrar í staðinn.
Borgarbókasafnið hefur yfirlýsingu IFLA um fjölmenningar-
legt bókasafn að leiðarljósi í þjónustu sinni við innflytjendur.
Fjölmenningarleg verkefni Borgarbókasafns eru unnin
í samvinnu við ýmsa aðila í samfélaginu og hafa þau
verið sett inn í Horft til framtíðar, sem er stefnumótun og
aðgerðaráætlun Reykjavíkurborgar í málefnum innflytjenda.
Aðalmarkmið safnsins er að gera heimsókn á Borgarbókasafn
hluta af daglegu lífi innflytjenda, og koma því áleiðis að hér er
um að ræða ókeypis þjónustu sem er öllum opin.
Hér á eftir er stutt kynning á fjórum verkefnum þar sem
áhersla er lögð á að flétta fjölmenningarlegt starf Borgarbóka-
safns inn í skólastarf og stuðla að félagslegum samkomum
þvert á aldur og þjóðerni.
Fljúgandi teppi – menningarmót í skólum
Á menningarmótum sem kölluð eru Fljúgandi teppi fá
nemendur, foreldrar og starfsfólk tækifæri til að hittast og
kynna menningu sína og áhugamál í hvetjandi umhverfi
og á skemmtilegan og lifandi hátt. Menningarmótin hafa
verið notuð með góðum árangri bæði í Danmörku og hér
á Íslandi. Þau eru yfirleitt haldin í skólum en geta líka farið
fram á bókasafninu. Með verkefninu tekur bókasafnið þátt í
að stuðla að gagnkvæmri virðingu og skilningi manna á milli.