Morgunblaðið - 08.04.2015, Blaðsíða 7
FRÉTTIR 7Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. APRÍL 2015
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
–
1
5
-0
7
1
7
Frjálsi lífeyrissjóðurinn hentar þeim sem hafa frjálst val um í
hvaða lífeyrissjóð þeir greiða skyldulífeyrissparnað sinn og
er opinn öllum sem leggja fyrir í viðbótarlífeyrissparnað.
Hafðu samband við okkur í síma 444 7000, sendu tölvupóst
á lifeyristhjonusta@arionbanki.is eða komdu við í næsta
útibúi Arion banka. Einnig má nálgast upplýsingar á vefsíðu
sjóðsins, frjalsi.is.
Ársfundur
Ársfundur Frjálsa lífeyrissjóðsins verður haldinn 29. apríl
kl. 17.15 í höfuðstöðvum Arion banka, Borgartúni 19.
Dagskrá
1. Skýrsla stjórnar
2. Kynning ársreiknings
3. Tryggingafræðileg athugun
4. Fjárfestingarstefna sjóðsins
5. Kosning stjórnar og varamanna
6. Kjör endurskoðanda
7. Tillögur um breytingar á samþykktum sjóðsins
8. Laun stjórnarmanna
9. Önnur mál
Tillögur um breytingar á samþykktum sjóðsins verða birtar á
vef sjóðsins, frjalsi.is, tveimur vikum fyrir ársfund.
Á fundinum verður kosið um tvo stjórnarmenn til tveggja ára
og tvo varamenn til eins árs. Framboð til stjórnar þarf að
liggja fyrir eigi síðar en sjö dögum fyrir ársfund og ber að
tilkynna framboð til stjórnar með sannanlegum hætti.
Stjórn sjóðsins hvetur sjóðfélaga til að mæta á fundinn.
Sjóðurinn hefur hlotið fjölmörg alþjóðleg verðlaun:
2014 – besti lífeyrissjóður Evrópu í sínum stærðarflokki
2014 – besti lífeyrissjóður smáþjóða í Evrópu
2013 – besti lífeyrissjóður smáþjóða í Evrópu
2011 – besti lífeyrissjóður á Íslandi
2010 – besti lífeyrissjóður á Íslandi
2009 – besti lífeyrissjóður á Íslandi
2005 – besti lífeyrissjóður Evrópu í þemaflokknum
Uppbygging lífeyrissjóða
Meginniðurstöður ársreiknings
(í milljónum króna)
Efnahagsreikningur 31.12.2014
Verðbréf með breytilegum tekjum 58.264
Verðbréf með föstum tekjum 73.703
Veðlán 2.741
Bankainnstæður 2.965
Aðrar fjárfestingar 40
Fjárfestingar alls 137.713
Kröfur 886
Aðrar eignir 8.251
Eignir samtals 146.849
Skuldir -551
Hrein eign til greiðslu lífeyris 146.298
Yfirlit um breytingar á hreinni eign til greiðslu
lífeyris fyrir árið 2014
Lífeyrisskuldbindingar skv. niðurstöðu
tryggingafræðings 31.12.2014
Nafnávöxtun
Kennitölur
Iðgjöld 9.912
Lífeyrir -3.237
Fjárfestingartekjur 8.094
Fjárfestingargjöld -342
Rekstrarkostnaður -163
Hækkun á hreinni eign á árinu 14.264
Hrein eign frá fyrra ári 132.034
Hrein eign til greiðslu lífeyris 146.298
Eignir umfram áfallnar skuldbindingar 818
Í hlutfalli af áföllnum skuldbindingum 2,1%
Eignir umfram heildarskuldbindingar 1.778
Í hlutfalli af heildarskuldbindingum 1,7%
¹ Meðaltal fjölda sjóðfélaga sem greiddu iðgjald á árinu.2
Meðaltal lífeyrisþega sem fengu greiddan lífeyri á árinu.
Eignir í íslenskum krónum 79,2%
Eignir í erlendri mynt 20,8%
Fjöldi virkra sjóðfélaga¹ 14.936
Fjöldi sjóðfélaga í árslok 49.536
Fjöldi lífeyrisþega² 1.927
2014 2010-2014
Frjálsi 1 6,8% 9,2%
Frjálsi 2 4,0% 8,1%
Frjálsi 3 1,7% 6,9%
Frjálsi Áhætta 4,2% 10,0%
Tryggingadeild* 5,6% 8,4%
*Skuldabréf gerð upp á kaupkröfu
Ávöxtun í fortíð gefur ekki vísbendingu um ávöxtun í framtíð. 5 ára ávöxtunartölur
sýna meðalnafnávöxtun frá 31.12.2009 – 31.12.2014 en ávöxtun er mismunandi
milli ára. Frekari upplýsingar um ávöxtun hvers árs má nálgast á frjalsi.is.
Frjálsi
lífeyrissjóðurinn
Margverðlaunaður
lífeyrissjóður
Eignir
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
Bæjarráð Akureyrar fellst ekki á til-
lögu sem kom frá fulltrúa D-lista í
samfélags- og mannréttindaráði um
að setja skýr viðmið um notkun per-
sónulegs samskipta- og tölvubúnaðar
á fundum ráðsins og öðrum nefndum
bæjarins. Vísar bæjarráð til þess sem
fram komi í siðareglum og samþykkt
um stjórn og fundarsköp bæjarins og
telur það duga.
Bergþóra Þórhallsdóttir á D-lista
Sjálfstæðisflokksins lagði tillöguna
fram, en D-listi er í minnihluta bæj-
arstjórnar Akureyrar ásamt Bjartri
framtíð og Vinstri grænum. Hún seg-
ist vera að melta niðurstöðu bæjar-
ráðs og málið verði væntanlega tekið
fyrir á fundi samfélags- og mannrétt-
indaráðs á morgun, fimmtudag. Hún
segir ekkert sérstak tilefni eða atvik
hafa hvatt hana til að leggja tillöguna
fram heldur vilji hún fá umræðu um
þessi mál, full þörf sé á að taka tillit til
nýrrar tækni og skerpa reglur um
fundarsköp Akureyrarbæjar. Þar sé
t.d. eingöngu kveðið á um að fá leyfi
fundarstjóra fyrir myndatökum, ekki
hljóðupptökum.
Mikilvægt að hafa viðmið
Í bókun Bergþóru segir: „Breyt-
ingar í samfélagi okkar einkennast
meðal annars af aukinni tækninotk-
un, hraðri þróun í tækni- og hugbún-
aði, auknu aðgengi upplýsinga og
auknum samskiptamöguleikum. Ein-
staklingar sem gegna trúnaðar- og
embættisstörfum á vegum Akureyr-
arbæjar fara ekki varhluta af því.
Þeir mæta gjarnan á fundi á vegum
Akureyrarbæjar með tæknibúnað af
ýmsu tagi sem þykir orðið sjálfsagð-
ur búnaður til að einfalda bæði und-
irbúning, skipulag og verkferla. Mik-
ilvægt er að til séu viðmið um notkun
tækninnar meðan á fundum stend-
ur.“
Viðmiðin í tillögu Bergþóru voru
m.a. þau að persónulegur samskipta-
búnaður, eins og tölvur og símar,
væri eingöngu notaður vegna mál-
efna funda hverju sinni, að slökkt
væri á símatengingu eða hún höfð á
hljóðlausri stillingu og að myndataka
eða hljóðupptaka væri eingöngu leyfð
með samþykki allra fundarmanna.
Hægt væri að óska eftir undanþágu
hjá fundarstjóra frá þessum viðmið-
um ef mikið lægi við. Í tillögunni eru
aðrar nefndir og ráð bæjarins hvött
til að taka svona viðmið upp og lagt til
við bæjarráð að fjalla um málið.
Reglur um búnað á fundum verði skýrari
Bæjarráð Akureyrar fellst ekki á tillögu nefndarmanns
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Akureyri Meirihluti bæjarstjórnar.
Uppstillinga-
nefnd Bandalags
háskólamanna
(BHM) mun til-
nefna Þórunni
Sveinbjarnar-
dóttur í embætti
formanns BHM á
aðalfundi félags-
ins 22. apríl næst-
komandi, en þrír
sóttu um stöðuna
þegar hún var auglýst. Samkvæmt
heimildum þykir ólíklegt að mót-
framboð berist á fundinum sjálfum
og því verði að teljast líklegt að Þór-
unn taki við af núverandi formani,
Páli Halldórssyni, sem sækist ekki
eftir endurkjöri. „Mér finnst þetta
mjög áhugaverður vettvangur, að
fara inn í kjaramál háskólafólks,“
segir Þórunn um ástæður þess að
hún sækist eftir starfinu. „Þetta er
auðvitað fjölbreyttur hópur og mér
finnast þau verkefni sem bíða bæði
ögrandi og skemmtileg þó svo að
þau séu kannski ekki öll auðveld.“
Þórunn sat á þingi fyrir Samfylk-
inguna í 12 ár og gegndi meðal ann-
ars embætti umhverfisráðherra.
Síðastliðin tvö ár hefur hún starfað
sem framkvæmdastjóri flokksins.
Aðspurð hvort leiðir hennar og Sam-
fylkingarinnar skilji nú endanlega
segir Þórunn svo ekki vera. „Eigum
við ekki bara að orða það þannig að
lífssýn mín breytist ekki þó að ég
skipti um starfsvettvang.“
Ögrandi
verkefni
framundan
Þórunn Svein-
bjarnardóttir
Þórunn líklega nýr
formaður BHM
Ólöf Nordal inn-
anríkisráðherra
hefur skipað
stýrihóp til að út-
færa tillögur um
alþjóðlega björg-
unar- og við-
bragðsmiðstöð á
Íslandi. Skal hóp-
urinn skila
áfangaskýrslu
eigi síðar en 1.
júlí næstkomandi. Formaður hóps-
ins er Georg Lárusson, forstjóri
Landhelgisgæslunnar, en með hon-
um í hópnum eru þau Gunnar Páls-
son sendiherra og Sóley Kaldal
verkfræðingur. Verkefnisstjóri
hópsins er Auðunn Kristinsson, yf-
irstýrimaður hjá Landhelgisgæsl-
unni. Við vinnu sína skal stýrihóp-
urinn hafa samráð við innlenda og
erlenda aðila sem eiga mikið undir
því að leit og björgun, þjálfun og
þekkingarmiðlun á norður-
heimskautssvæðinu sé fullnægjandi,
segir í tilkynningu ráðuneytisins.
Stýrihópur
um björgun-
armiðstöð
Georg Kr.
Lárusson