Morgunblaðið - 08.04.2015, Blaðsíða 33
MENNING 33
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. APRÍL 2015
Bíólistinn 3. - 5. apríl 2015
Nr.
Var
síðast
Vikur
á listaKvikmynd
Fast & Furious 7
Home
Get Hard
Fúsi
Insurgent
Cinderella
Samba
Ömurleg brúðkaup (Serial Bad Weddings)
Kingsman: Secret Service
The Gunman
Ný
2
1
3
4
5
Ný
8
7
6
1
2
2
2
3
4
1
11
8
3
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
Sjöunda myndin í Fast & Furious-
syrpunni, Fast & Furious 7, er
tekjuhæsta mynd páskahelg-
arinnar og hafa rúmlega 7.500 séð
hana frá frumsýningu fyrir helgi.
Teiknimyndin Loksins heim, eða
Home á frummálinu, er sú næst-
tekjuhæsta aðra helgina í röð og
sú þriðja tekjuhæsta er Get Hard
sem var sú tekjuhæsta helgina á
undan.
Kvikmynd Dags Kára Péturssonar,
Fúsi, er í fjórða sæti og hafa rúm-
lega 4.000 manns séð hana frá
frumsýningu og miðasölutekjur
tæpar fimm milljónir króna.
Tvær franskar myndir eru í efstu
tíu sætum, Samba sem var frum-
sýnd föstudaginn var og Ömurleg
brúðkaup en um 20.800 manns hafa
séð þá síðarnefndu frá upphafi
sýninga.
Bíóaðsókn helgarinnar
Hraðskreiðir á toppnum
Hina klukkustundar lönguPassíu Hafliða Hall-grímssonar, sem frum-flutt var 2001 og end-
urflutt ári síðar, bar loks aftur
fyrir eyru fyrir fullri Hallgríms-
kirkju sl. föstudag. Mátti kalla bið-
ina í lengra lagi – en á hinn bóginn
e.t.v. skiljanlega miðað við kröfu-
hörku verks í framsæknum anda er
nýtur ekki ,sjálftrekkjandi‘ kosta
sígildustu barokkkirkjuverka – fyr-
ir utan að útheimta 35 manna
hljómsveit. Er því varla annað
hægt en að undrast og gleðjast yfir
að slíkt skuli enn reynast kleift á
rímlausri froðuöld skyndiafþrey-
ingar.
Enduruppfærslan var tileinkuð
minningu bróður tónskáldsins,
Guðmundar Hallgrímssonar lyfja-
fræðings, en verkið sjálft (nú end-
urskoðað með tenór í stað annars
kvenhlutverkanna) Mótettukórnum
og Herði Áskelssyni stjórnanda.
Undirritaður kom ,ferskur‘ að
verkinu, eins og sagt er um hlust-
anda sem aldrei hefur heyrt það
áður. Það gerir manni auðvitað erf-
iðara fyrir að meta túlkunaratriði
þegar enginn gefst samanburður
við fyrri tilþrif – en opnar á móti
greiðari gátt að fyrstu áhrifum.
Enda í dyggri samsvörun við æ al-
gengari upplifunarvenjur seinni
tíma þar sem andrá hérs og nús
vegur þyngst á metum hvað sem
allri hefð og sögu líður.
Ég læt mér því alla eldri við-
miðun við þessa virðingarhoknu
kirkjutóngrein í léttu rúmi liggja
og verður þetta s.s. að nægja um
téð fyrstu áhrif – er entust raunar
allt til loka: Sjaldan ef nokkru sinni
hefur jafnafstrakt íslenzkt tónverk
skilað jafnmögnuðu seiðmagni – og
það án þess að aukatekið eft-
irminnilegt lagferli sitji eftir!
Eins og nærri má gruna fólst
galdurinn ekki sízt í gríðarlegri lit-
auðgi jafnt klasóttrar hljóma-
meðferðar sem snjallrar orkestr-
unar, er náðu að mála hlustendum
jafnt skáldlega sem hjartnæma
innlifun í píslarsögu Krists á ýmist
dramatískum eða dulúðarmett-
uðum nótum. Án þess nokkurn
tíma að falla í útjaskaða gryfju
hljóðverkstilrauna tilraunanna
vegna, eins og svo oft ber við í
nýrri framsækni. Verkið hélzt út í
gegn tónverk, jafnvel þótt sterk-
kryddað væri á köflum og á mörk-
um hins bærilega – en ávallt af við-
eigandi tilefni.
Flaug manni því fljótt fyrir hug-
skotssjónir að Passían ætti augljóst
erindi út fyrir landsteina, enda
textarnir fornu og nýju valdir af
mikilli hugvitssemi að auki. Að vísu
mátti stundum hnjóta um einmitt
textameðferð höfundar, þ.e.a.s.
hrynfrösun stakra orða og atkvæða
sem hljómaði ekki alltaf brag-
fræðilega sannfærandi. En burtséð
frá því var viðburðurinn mikill sig-
ur fyrir jafnt tónskáldið sem flytj-
endur, þar sem klukkuhreinir
hljómklasar Mótettukórsins, snarp-
ir litir hljómsveitar og ákallandi
strófur einsöngvaranna byggðu
upp sannkallað heildarígildi meist-
araverks undir innsærri stjórn
Harðar Áskelssonar.
Píslarsagan
í tónalitum
Morgunblaðið/Eva Björk
Sterkkryddað „Verkið hélzt út í gegn tónverk, jafnvel þótt sterkkryddað væri á köflum og á mörkum hins bærilega
– en ávallt af viðeigandi tilefni,“ segir m.a. um flutning á Passíu Hafliða Hallgrímssonar á föstudaginn langa.
Hallgrímskirkja
Kirkjutónleikarbbbbm
Hafliði Hallgrímsson: Passía fyrir tvo
einsöngvara, kór og hljómsveit. Hanna
Dóra Sturludóttir MS, Elmar Gilberts-
son T og Kammersveit og Mótettukór
Hallgrímskirkju. Stjórnandi: Hörður Ás-
kelsson. Föstudaginn langa 3.4. kl. 17.
RÍKARÐUR Ö.
PÁLSSON
TÓNLIST
Nú geta allir fengið
iPad-áskrift
Skráðu þig í iPad-áskrift á
www.mbl.is/mogginn/ipad/
ÍSLENSKUR TEXTI
ÍSLENSKT TAL
SÝND Í 2D OG 3D
HÖRKUGÓÐ
SPENNUMYND
FRÁ LEIKSTJÓRA
TAKEN
WILL FERRELL OG KEVIN HART
HAFA ALDREI VERIÐ BETRI.
Sími: 553-2075
www.laugarasbio.is
SÝNINGARTÍMA MÁ NÁLGAST Á
LAUGARASBIO.IS, MIDI.IS OG
EINNIG Á SÍÐUNNI HÉR VIÐ HLIÐINA Á
- bara lúxus
...sem þola álagið!
TRAUSTAR VÖRUR...
VIFTUR
Í MIKLU ÚRVALI
Það borgar sig að nota það besta!
• Bor›viftur
• Gluggaviftur
• I›na›arviftur
• Loftviftur
• Rörablásarar
• Ba›viftur
• Veggviftur
Dalvegi 10–14 • 201 Kópavogi • Sími: 540 7000 • www.falkinn.is