Morgunblaðið - 08.04.2015, Síða 16
BAKSVIÐ
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Milli áranna 2009 og 2014 urðu til yf-
ir 1.000 störf á vettvangi ferðaskrif-
stofa og ferðaskipulagningar hér-
lendis. Tölur úr vinnumarkaðs-
rannsókn Hagstofunnar sýna að á
sama tíma og þessi mikla aukning
hefur orðið hefur hlutfall háskóla-
menntaðra í þessum störfum farið úr
35% í 51%. Böðvar Þórisson, skrif-
stofustjóri fyrirtækjasviðs hjá Hag-
stofu Íslands, segir að þessi aukning
sé mjög afgerandi. „Þeim hefur
fjölgað með mjög áberandi hætti á
síðustu árum, þ.e. háskólamenntuð-
um sem eru í störfum á þessu sviði,“
segir hann. Á sama tíma er hlutfall
háskólamenntaðra í því sem Hag-
stofan skilgreinir á sviði rekstrar
gistihúsa og veitingastaða mun
lægra. Þar er hlutfallið 11% en þeir
sem búa aðeins að grunnmenntun
telja rúmlega 52% hópsins.
Sama rannsókn Hagstofunnar
sýnir að í fjármálaþjónustu og vá-
tryggingarekstri hefur hlutfall há-
skólamenntaðra tekið stökk úr 46% í
60% en engin fjölgun hefur orðið í
störfum á þeim vettvangi. „Maður
hefur fundið fyrir því að menntastig-
ið í bönkunum hefur farið hækkandi
og það verður alltaf algengara að há-
skólamenntað fólk sé í framlínu
þjónustunnar á þeim vettvangi,“
segir Böðvar.
Ekki er hægt að greina jafn mikl-
ar breytingar hvað menntun varðar
hjá þeim hópi sem starfar á sviði
upplýsingatækni og fjarskiptaþjón-
ustu en þar hefur hlutfall háskóla-
menntaðra farið úr 45% í 49% frá
2009 til 2014 en störfum á því sviði
fjölgaði rétt um 300 á tímabilinu. Al-
mennt má greina úr rannsókn Hag-
stofunnar að þar sem ný þjónustu-
störf verða til leiti háskólamenntað
fólk inn á þann vettvang.
Þörf er á þekkingu
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir,
forstöðumaður mennta- og nýsköp-
unarsviðs Samtaka atvinnulífsins,
segir að fjölgun háskólamenntaðra í
þjónustustörfum hafi bæði á sér já-
kvæðar og neikvæðar hliðar. „At-
vinnurekendur eru að fá menntað
starfsfólk til starfa en á móti kemur,
sem ekki er að öllu leyti jákvætt, að
fólk fær ekki laun í samræmi við það
sem það væntir eftir 3-5 ára háskóla-
nám,“ segir Þorgerður.
Hún segir einnig að það megi ekki
lesa í þessar tölur eins og að háskóla-
menntað fólk sé meira og minna að
sækja í störf þar sem ekki sé þörf á
menntun. „Vaxandi greinar þurfa á
fólki með fjölbreytta menntun og
reynslu að halda.“
Þorgerður segir að margar áskor-
anir mæti þessum atvinnugreinum
og að þær þurfi að eiga í samtali við
háskólasamfélagið og aðra þá sem
koma að því að mennta vinnuaflið
hérlendis. „Aukin samvinna er nauð-
synleg og aukið samtal. Ferðaþjón-
ustan þarf á því að halda að hin
óformlega menntun sem á sér stað
innan atvinnulífsins fái viðurkenn-
ingu, efla þarf samvinnu við há-
skólana til þess að þeir átti sig á því
hvert ferðaþjónustan er að þróast og
það þarf líka að huga að breytingum
á iðn- og starfsnámi. Þar þurfa að
verða töluvert miklar breytingar
sem gætu falið í sér tilkomu nýrra
greina í tengslum við ferðaþjón-
ustuna,“ segir Þorgerður.
Háskólamenntaðir sækja
í nýtilkomin þjónustustörf
Hlutfall eftir menntunarstigi í atvinnugreinum
Grunnmenntun Framhalds og starfstengt Háskólamenntun
100%
90%
80%
70%
60%
50%
40%
30%
20%
10%
0%
Flug Ferðaskrifstofur og
ferðaskipuleggjendur
Rekstur gististaða
og veitingahús
Framleiðslamálma Fjármála og
vátryggingar-
starfsemi
Landbúnaður,
skógrækt
og fiskveiðar
Framleiðslugreinar
alls
Upplýsingar
og fjarskipti
Heimild: Hagstofa Íslands
10,7
58,1
31,2
51,2
11,0 14,8
60,4
11,4 15,2
49,0
31,2
36,3
46,1
23,5
47,8 45,6
32,7
17,6
52,2
39,1
16,2
40,8 39,3
18,1
Breyttur vinnumarkaður
» Háskólamenntuðum á
vinnumarkaði hefur fjölgað um
19% frá árinu 2008.
» Milli áranna 1997 og 2013
hefur laganemum fjölgað um
200%.
» Arion banki hefur bent á að
fjöldi sérmenntaðs starfsfólks
og sérfræðinga hefur staðið í
stað frá árinu 2008.
» Í sömu greiningu segir að
verslunarfólki hafi fjölgað um
6.000 á sama tíma og að leiða
megi líkur að því stór hluti
þess sé háskólamenntaður.
„Vaxandi greinar þurfa á fólki með fjölbreytta menntun og reynslu að halda“
16 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. APRÍL 2015
! "
!"#
"
"$"
%$
#"#
"!$
#
&'()* (+(
,-&.&+/0 -'+(1(23& 45+(2/5
%$#
!"
!$
"$
$"
%$%#
#
#
$"%
#$
!
! #$
!"!
"$$
" "
%$"
#%%
#$
%
#$$$
!%#""
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
● Það sem af er ári hafa tæplega 2.300
fólksbifreiðar verið skráðar, sem er 45%
aukning frá fyrstu þremur mánuðum
síðasta árs, að því er greint er frá í
morgunpósti IFS. Samtals 1.112 bifreiðar
voru skráðar í mars, þar af 977 nýjar
fólksbifreiðar, samkvæmt samantekt
Samgöngustofu. Í greiningu IFS kemur
fram að þessi mikla aukning í mars
kunni að hluta að skýrast af innkaupum
bílaleiga en síðustu árin hefur mest ver-
ið um nýskráningar í maí og júní. Jafn-
framt segir að gera megi ráð fyrir að
heimilin séu líka að endurnýja bílaflot-
ann en tölur Samgöngustofu sundurliði
ekki fólksbifreiðar eftir því hvort þær eru
nýttar til einkanota eða útleigu.
45% fleiri bílar skráðir
á fyrstu 3 mánuðunum
● GreenQloud hefur ákveðið að loka fyrir
nýskráningu að skýjaumhverfi sínu og að
loka skýjaþjónustunni algjörlega með
haustinu. Fyrirtækið mun í kjölfarið ein-
beita sér að QStack-hugbúnaðinum, sem
er heildarskýjalausn til að stýra skýja-
umhverfi fyrirtækja. Í tilkynningu segir
Jón Þorgrímur Stefánsson, forstjóri
GreenQloud, að núverandi við-
skiptavinum verði áfram boðið upp á um-
hverfisvænt skýjaumhverfi hjá Advania
byggt á uppfærðri útgáfu af QStack.
GreenQloud einbeitir
sér að QStack-lausninni
STUTTAR FRÉTTIR ...
Viðskiptaráð Íslands hvetur til
breytinga á landbúnaðarkerfinu og
metur það svo að það sé rík ástæða
til að endurskoða núverandi kerfi
þar sem alþjóðleg samkeppnishæfni
greinarinnar sé slök og rekstraraf-
koma bænda afleit. Auk þess sé
verðlag á tollvernduðum vörum hátt,
vöruskortur hafi reglulega gert vart
við sig og að fjárframlög hins opin-
bera séu umtalsverð sem skili sér illa
til bænda.
Á vef Viðskiptaráðs er vakin at-
hygli á því að eini flokkurinn sem
skilar jákvæðri rekstrarafkomu í
landbúnaði að teknu tilliti til fram-
leiðslustyrkja sé garðyrkja. Í byrjun
aldarinnar voru tollar á grænmeti
felldir niður samhliða breytingum á
styrkjafyrirkomulagi. Verðlækkanir
urðu í kjölfar breytinganna og bend-
ir Viðskiptaráð á að greinin hafi
staðið þær af sér og gott betur. Að
mati Viðskiptaráðs er þetta dæmi
um að aukin samkeppni gagnast ekki
einungis neytendum heldur einnig
þeim sem stunda rekstur.
Þá segir að mikilvægt sé að um-
gjörð landbúnaðarins styðji við hag-
kvæma framleiðslu sem getur staðist
alþjóðlega samkeppni og að neyt-
endur eigi rétt á að kerfið dragi ekki
úr aðgengi þeirra að fjölbreyttum
matvælum á hagstæðu verði. Jafn-
framt ættu útgjöld skattgreiðenda
vegna styrkja til atvinnugreinarinn-
ar að skila sem mestum þjóðhags-
legum ávinningi.
Í skoðun Viðskiptaráðs kemur
einnig fram að hlutfall innflutnings á
landbúnaðarvörum sem framleiddar
eru hérlendis sé mun lægra en hjá
öðrum þjóðum.
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Samkeppni Viðskiptaráð Íslands vill
endurskoðun á landbúnaðarkerfinu.
Þarf meiri sam-
keppni í landbúnað
Garðyrkja eina
greinin sem skilar
jákvæðri afkomu
35.900,-
Verð Kr.
USG CNIP4
Yfirskápur 4 skúffur.
Sterkur skápur með lás.
88.900,-
Verð Kr.
USG FIRP7B Verkfæraskápur
7 skúffur – 1/4", 3/8“ & 1/2" topplyklasett
Splittatangir, skrúfjárn, fastirlyklar, tangir,
skralllyklar, meitlar, sexkantar, rennimál,
þjalir.
115.900,-
Verð Kr.
USG FIRP7B-FOAM Verkfæraskápur
7 skúffur með frauðefnisbökkum. 1/4",
3/8“ & 1/2" topplyklasett. Splittatangir,
skrúfjárn, fastirlyklar, tangir, skralllyklar,
skiptilykill, meitlar, sexkantar, rennimál,
þjalir. 172 verkfæri í sterkum vagni með lás.
15.900,-
Verð Kr.
USG
B5094M
1/2“ & 1/4"
Topplyklasett 94 stk
Skrall 72 tanna, framlengingar,
hjörluliður, átaksskaft, djúpir-
toppar, kertatoppar, bitajárn.
USG GWB2045M
1/4“ Topplyklasett 45 stk
Skrall 72 tanna, framlengingar,
hjörluliður, átaksskaft,
bitar, sexkantar, bitajárn,
4.990,-
Verð Kr.
USG
GWB3029M
3/8“ Topplyklasett 29 stk
Skrall 72 tanna, hjöruliður,
djúpir & grunnirtoppar,
kertatoppar, framlengingar.
7.990,-
Verð Kr.
Síðumúla 11 - 108 Reykjavík Sími 568-6899
Póstfang: vfs@vfs.is Netsíða: www.vfs.is