Morgunblaðið - 08.04.2015, Page 24
24 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. APRÍL 2015
✝ Gunnar Guð-geir Steinsson
fæddist á Þverá í
Ólafsfirði hinn 28.
nóvember 1932.
Hann lést á Heil-
brigðisstofnun
Fjallabyggðar 26.
mars 2015.
Gunnar Guðgeir
er sonur Steins
Árna Ásgríms-
sonar, f. 6.12. 1898,
d. 28.5. 1976, og Önnu Sigurðar-
dóttur, f. 31.1. 1904, d. 17.1. 1987.
Systkini Gunnars eru Sigurður, f.
1926, d. 1992, Guðfinna Hólm-
fríður, f. 1928, d. 2013, Kristinn
Guðvarður, f. 1930, d. 2002, Jó-
hannes Anton, f. 1935, d. 1979,
Bragi, f. 1937, Anna, f. 1941, og
Málfríður, f. 1943.
Gunnar eignaðist fimm börn:
Hauk Véstein, f. 1957, með Sjöfn
Ísaksdóttur, f. 1938.
Með eiginkonu
sinni, Esther Guð-
brandsdóttur, f.
1937, d. 1992, eign-
aðist hann Önnu
Maríu, f. 1960,
Steinunni, f. 1963,
Guðbrand Brynjar,
f. 1965, d. 1965, og
Sigurð Pál, f. 1975.
Hann giftist Esther
3. júní 1962 og voru
þau gift alla tíð.
Gunnar fór ungur til sjós og
starfaði allt sitt líf við sjómennsku
á skipum og bátum, einkum frá
Ólafsfirði, og síðustu fimm árin á
Mánabergi ÓF, eða alveg þangað
til heilsan leyfði honum ekki að
halda vinnu sinni áfram.
Gunnar verður jarðsunginn frá
Ólafsfjarðarkirkju í dag, 8. apríl
2015, kl. 14.
26. mars 2015 gleymist ei. Í
helgri bók stendur: Drottinn gaf,
drottinn tók, erfitt að skilja á
sorgarstundu. Vinurinn einstaki,
ljúfmennið, félaginn tryggi
kvaddi.
Mér þykir svo vænt um þig,
elsku Gunni minn. Minningar
skærar sem daggarperlur flæða.
Man þegar þú varðst sjötugur,
fyrsta ferðin mín norður með
sjö rósir og þessa vísu.
Rósirnar sjö, í huga sinnum tíu,
eiga að sýna kæran hug til þín.
Veistu minn elskulegi vinur, þína rödd
í síma,
ég teyga þyrst, sem gullið væri vín.
Símtölin voru mörg, einstök og
kær. Man páskaliljurnar sem þú
komst með á páskum, stikaðir
stórum, vöndurinn hristist svo
hressilega að einungis ein sat á
stilk sínum, gleðibrosið á vörum
þér var besta páskaliljan. Man
þegar þú sendir mér nýtínd að-
albláber, rjómi og skyr fylgdu
með pakkanum, matur var þínar
ær og kýr, enda góður kokkur.
Man þegar þú söngst fyrir mig
Rósina, svo fallega og þýtt. Man
ferðalögin í hjólhýsinu, Vest-
mannaeyjaferðin og Kanaríferð-
in toppuðu margt.
Nú er hlekkur brotinn, en þú
ert ekki gleymdur, heldur
geymdur þar sem ryð fær ekki
grandað, vinur sæll. Það voru for-
réttindi að þekkja þig, hugljúfar
stundir vil þakka þér, veit þér líð-
ur nú vel í faðmi guðs.
Friður sé með þér elskulegur.
Edda.
Elsku pabbi, mig langar að
skrifa til þín nokkur orð frá okk-
ur systkinunum. Ég veit að þó að
sagan komi frá mínu hjarta þá
gæti hún alveg eins hafa komið
frá systkinum mínum því að þú
varst eins við alla og gerðir eins
vel og þú gast fyrir okkur öll.
Ég á mér minningu.
Minningu þar sem ungur
drengur öslar snjóinn upp í hné í
áttina að hesthúsunum. Það var
norðanvindur og færið erfitt fyrir
níu ára dreng sem gekk við hlið-
ina á föður sínum. Drengurinn
rétti höndina í átt að föður sínum
til að leita eftir stuðningi. Faðir
hans rétti fram stóra og hlýja
höndina á móti honum og leiddi
hann við hlið sér í gegnum skafl-
ana og veitti honum skjól og
stuðning.
Það er einmitt þannig sem
pabbi hefur alltaf verið; í storm-
um og stórsjóum lífsins hefur
hann alltaf verið kletturinn sem
hægt var að leita skjóls hjá og
veitti manni góð ráð. Hann var
alltaf tilbúinn að hjálpa okkur
systkinunum, sama hvað bjátaði
á.
En nú er hann farinn og það
mun ekkert koma í staðinn fyrir
hann. Hann var nefnilega ekki
bara pabbi minn heldur var hann
líka minn besti vinur og félagi.
Takk, elsku pabbi, fyrir allt
sem þú gerðir fyrir mig, takk fyr-
ir alla sveitahringina sem þú
fórst með mér, bæði þegar þú
leyfðir mér að æfa mig að keyra
bílinn og líka þegar ég fór að
þvælast með byssuna. Þolinmæð-
in í þér að nenna að fara með mig.
En núna verða sveitahringirnir
ekki fleiri hjá okkur saman. Það
er komið að leiðarlokum hjá þér í
bili. Það svíður inn að hjartarót-
um að hugsa til þess að þú sért
farinn og að allt það sem við höf-
um gert saman munum við aldrei
gera aftur. Það er óbærileg til-
hugsun. Ég á eftir að sakna þín
svo hrikalega mikið, elsku pabbi,
þú varst mér svo mikils virði. Ég
vona að mamma hafi tekið á móti
þér og að ykkur líði vel. Mundu
að ég elska þig, því að ég mun
aldrei gleyma hversu mikið þú
elskaðir mig.
Hvíldu í friði, elsku pabbi.
Minning þín er ljós í lífi okkar.
Þegar raunir þjaka mig
þróttur andans dvínar
þegar ég á aðeins þig
einn með sorgir mínar.
Gef mér kærleik, gef mér trú,
gef mér skilning hér og nú.
Ljúfi drottinn lýstu mér,
svo lífsins veg ég finni
láttu ætíð ljós frá þér
ljóma í sálu minni.
(Gísli á Uppsölum)
Sigurður Páll, Steinunn,
Anna María og Haukur.
Elsku afi. Okkur langar með
nokkrum línum að þakka þér
samfylgdina og þær mörgu
ánægjustundir sem við áttum
með þér. Kveðjustundin er erfið
en við trúum því að þér líði betur
núna og amma hafi tekið vel á
móti þér.
Þegar við hugsum til baka eru
margar góðar minningar sem við
eigum um þig og er það mikill
fjarsjóður fyrir okkur að eiga. Öll
munum við eftir að hafa farið
sveitarúnt með þér. Hvort sem
það var fróðleiksrúntur eða þar
sem þú, elsku afi, kenndir okkur
að keyra bíl með misgóðum ár-
angri. Þú gafst aldrei upp á þess-
um ungu ökumönnum og náðum
við góðum tökum á akstrinum,
enda með besta leiðbeinandann.
Þær voru ófáar stundirnar sem
við eyddum með þér og alltaf
hafðir þú nægan tíma fyrir okk-
ur.
Við erum þakklát fyrir að hafa
fengið að eiga þig sem afa því
betri afa og vin hefðum við aldrei
getað fengið.
Elsku afi, það verður skrítið að
hafa þig ekki hjá okkur og hitta
þig ekki reglulega. Þú varst stór
hluti af lífi okkar allra og söknum
við þín sárt.
Hvíldu í friði elsku afi okkar.
Esther, Anton og
Alexía María.
Gunnar Guðgeir
Steinsson
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Til sölu
Hvítt sófasett, verð aðeins 55.000
Skó-skápur úr áli, verð 4.000
Hillur úr IKEA, verð 1.800
Upplýsingar í síma 698-2598.
Regnkápa, stærð 38, verð 3.000
Hvítur jakki, stærð 38, verð 3.000
Ljós kápa, stærð 38, verð 3.000
Upplýsingar í 698-2598.
Svartur jakki stærð 38 verð 2.500
Köflóttur jakki stærð 38 verð
2.500
Ekta pels stærð 38 verð 20.000
Hlýr og góður jakki stærð 36 verð
2.500
Upplýsingar í 698-2598.
Óska eftir
Staðgreiðum gull, demanta og úr
Hringar, hálsmen, armbönd, Rolex,
Cartier, Patek Philippe o.fl.
Hringdu núna og fáðu tilboð þér að
kostnaðarlausu!
www.kaupumgull.is
Opið alla daga 11–18.
Kringlan – 3. hæð
(Hagkaupsmegin)
Upplýsingar í síma 661 7000.
Ýmislegt
TILBOÐ VIKUNNAR
Teg. LUISA - stakar stærðir C-G á
kr. 4.500.
Laugavegi 178, sími 551 3366.
Opið mán.-fös. 10–18,
laugardaga 10–14.
Þú mætir – við mælum og
aðstoðum.
www.misty.is
– vertu vinur
TILBOÐ - TILBOÐ - TILBOÐ
Þægileg dömustígvél úr leðri.
Stakar stærðir.
VERÐ: 12.500.-
Komdu og líttu á úrvalið
hjá okkur!
Sími 551 2070.
GLÆSILEGUR !
Teg IVANA - stærðir 32-40 D-FF
og 32-38 G á kr. 11.885,-
Laugavegi 178, sími 551 3366.
Opið mán.-fös. 10–18,
laugardaga 10–14.
Þú mætir – við mælum og
aðstoðum.
www.misty.is
– vertu vinur
Teg. 41169-11 Vandaðir dömuskór
úr leðri, fóðraðir. Stærðir: 37-40.
Verð: 21.885.
Teg. 240-04 Vandaðir dömuskór úr
leðri, fóðraðir. Stærðir: 37-40.
Verð: 21.885.
Teg. 1327-12 Vandaðir dömuskór úr
mjúku leðri, fóðraðir. Stærðir: 36-40.
Verð: 22.785.
Komdu og líttu á úrvalið
hjá okkur!
Sími 551 2070.
Opið mán.-fös. 10–18,
laugardaga 10–14.
Góð þjónusta – fagleg ráðgjöf.
Sendum um allt land
www.mistyskor.is
Erum einnig á Facebook.
Bílaþjónusta
GÆÐABÓN
Ármúla 17a
Opið mán.-fös. 8-18. S. 568 4310
Það besta fyrir bílinn þinn
Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon,
blettun, bryngljái, leðurhreinsun.
Bílaleiga
HÓPFERÐABÍLAR TIL LEIGU
með eða án bílstjóra.
--------16 manna--------
--------9 manna---------
Fast verð eða tilboð.
CC.BÍLALEIGA S. 861 2319.
Húsviðhald
smidur.com
Sími 897 9933
Tökum að okkur viðhald, við-
gerðir og nýsmíði fasteigna
fyrir fyritæki húsfélög og einstak-
linga. Fagmenn á öllum sviðum.
Tilboð/ tímavinna. S. 858 - 3373.
brbygg@simnet.is
Hreinsa þakrennur,
laga vatnstjón, ryð á
þökum og tek að mér
ýmis smærri verkefni
Uppl. í síma 847 8704
manninn@hotmail.com
Til leigu
3ja herb. íbúð til leigu
Til leigu góð 3 herberja íbúð
við Birkimel, laus strax -
ábyggilegir leigjendur með
bankaábyrgð.
Svör sendist á box@mbl.is,
merkt: ,,H - 25865”.
Smáauglýsingar 569
Þjónustu-
auglýsingar
Þarft þú að koma fyrirtækinu
þínu á framfæri
Hafðu samband í síma
569 1100 eða á
augl@mbl.is
og fáðu tilboð