Morgunblaðið - 08.04.2015, Síða 28
28 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. APRÍL 2015
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Það getur reynst fyrirhafnarsamt að
láta drauminn rætast en þó er engin ástæða
til þess að leggja árar í bát. Reyndu að sjá
hlutina í bjartara ljósi og þá hefst það.
20. apríl - 20. maí
Naut Settu markið fáránlega hátt. Gættu
þess þó að ganga ekki of nærri sjálfum þér í
þeim efnum. Með því að lesa bók eða hlusta á
sjálfshjálpardisk verðurðu meðvitaðri.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Lífið er óneitanlega ljúft, finnst þér
ekki? Peningar eru ekkert vandamál og hvar
sem þú drepur niður fæti er slegið til veislu.
Dirfska þín í verkefnavali vekur aðdáun ann-
arra.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Allt í einu virðist einstaklega auðvelt
að afla peninga. Ekki vera hissa þegar þú
rekst á fólk eftir langan aðskilnað og það hef-
ur saknað þín mikið.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Trúir þú á álfasögur? Ef svo er þá eru
þeir að stríða þér þessa dagana. Að ljúka því
versta af fyrst er best til að fá orkuna og vilj-
ann til að klára verkið.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Gættu þess að gefa ekki öðrum högg-
stað á þér. Ekkert er sárara en þegar laus-
mælgi annarra opinberar innstu tilfinningar
og leyndarmál.
23. sept. - 22. okt.
Vog Það er rangt að láta eigið skap bitna á
öðrum. Hafðu frumkvæði að þeim breyt-
ingum sem þú veist að eru til hins betra.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þú færð fullt af góðum hug-
myndum sem bætt gætu stöðu þína hvað
varðar vinnu og tekjur. Ef þú getur unnið og
verið hamingjusamur um leið skaltu ekki
sættast á neitt minna.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Láttu öll lögfræðileg mál bíða
betri tíma og láttu önnur og mikilvægari mál
ganga fyrir. Haltu ótrauð/ur áfram, þú finnur
lykilinn að hamingjunni á ólíklegustu stöðum.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Taktu einn hlut fyrir í einu því ef þú
ert með of mörg járn í eldinum fer allt úr
böndunum. Gakktu glaður til verksins og
kláraðu það.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þú þarft að huga vel að stöðu
þinni bæði í starfi og einkalífi. Farðu þér
hægt, val á vini er mjög vandasamt.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Ef maður mætir erfiðri áskorun er
ekki óeðlilegt að stíga skref afturábak. Hæfi-
leiki þinn til að sjá vandamál frá báðum hlið-
um mun koma ástvinum þínum mjög vel.
Hallmundur Kristinsson ortiþessa fallegu vísu á Boðnar-
miði:
Ég með sanni ekki vil
einn á krossi hanga.
Með frelsaranum finn ég til
á föstudaginn langa.
Gunnar J. Straumland hefur aug-
un opin fyrir fyrirbærum náttúr-
unnar:
Undur heims og eðli má
eflaust njóta og kanna
en furðu oft ég fæ að sjá
fegurð regndropanna.
Sigrún Haraldsdóttir orti á
Leirnum á annan í páskum – en þó
með fyrirvara!
Eyðist vetrar angurssónn,
augun fyllast glýju,
kominn léttur töfratónn
í tilveruna að nýju.
Við erum öll að eldast – Pétur
Stefánsson orti:
Ég er ekki, að ég tel,
undir neinni pressu.
Ég hef látið mér líða vel
í lífinu fram að þessu.
Og Ármann Þorgrímsson talar
um „elliglöp“:
Mörgum sækir ellin að
oft á versta tíma og stað
best ég sjálfur þekki það
þegar glatast hefur blað.
„Gamlingjarnir“ er yfirskriftin á
þessari vísu hans:
Við erum mörg í vanda sett
við erum komin á lokasprett
við höfum ekki verkfallsrétt
við erum bara afgangs stétt.
Og Ármann hefur sínar skoðanir
á verkfalli ljósmæðra:
Ólöglegt mér finnst það verkfall vera
væri sanngjarnt fram þær myndu bera
hugmyndir um hækkun launakjara
helst með níu mánaða fyrirvara.
Aðalsteinn Svanur Sigfússon hef-
ur sína sýn á lífið:
Mér er kannski mest af öllu
í mun að tóra
þótt tíðum verði fórn að færa
og fíknir sínar allar næra.
Davíð Hjálmar Haraldsson yrkir
um lagabreytingu í Frakklandi, þar
sem kveðið er á um að fyrirsætur
megi ekki vera of grannar ef ég
man rétt:
Heimafyrir hans er lítil þörf;
hér er Simmi stundum eins og kjáni,
en yrði fínn í fyrirsætustörf
á Frakklandi og Ítalíu og Spáni.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Yrkisefnin koma
héðan og þaðan
Í klípu
„VIÐ ERUM AÐ LEITA AÐ FÓLKI SEM
GETUR AÐLAGAÐ SIG HRATT AÐ NÝJUM
AÐSTÆÐUM Á VINNUSTAÐNUM.“
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„AF HVERJU ÁKVEÐURÐU ALLTAF AÐ FARA
Í BAÐ EINMITT ÞEGAR MATURINN ER
TILBÚINN?“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að vera rólegur þegar
hún er að keyra.
HVENÆR FENGUM VIÐ
NÝ GLUGGATJÖLD?
HVAÐ FÆ ÉG
Í MATINN?
VÁ! ÞAÐ ER HARÐARA
Í ÁRI EN ÉG HÉLT!
... SPAGETTÍ OG
NÆSTUM
ÞVÍ KJÖTBOLLU
Öll tökum við okkur orðasamböndí munn þegar við viljum leggja
áherslu á orð okkar eða undirstrika
eitthvað, oft án þess að leiða hugann
að merkingu eða uppruna. Víkverji
segir til dæmis iðulega að hinir og
þessir kalli ekki allt ömmu sína. Það
þýðir að menn séu hörkutól og láti
ekki deigan síga. Víkverji hefur hins
vegar aldrei hitt nokkurn mann sem
kallar allt ömmu sína. Reyndar kalla
flestir sem hann þekkir bara ömmu
sína ömmu sína.
x x x
Víkverji hefur stundum velt þvífyrir sér hvað hafi gerst þegar
fyrst var ákveðið að tilvalið væri að
tala um að vera (eða verða) ekki um
sel þegar manni líst ekki á blikuna.
Guðrún Kvaran prófessor fjallar um
orðatiltækið á Vísindavefnum og
segir beina merkingu þess „að líka
ekki við selinn, vera ekki um selinn
gefið“. Hún vísar til þess að orða-
tiltækið eigi rætur í gamalli þjóðtrú
og vitnar í Ferðabók Eggerts Ólafs-
sonar og Bjarna Magnússonar: „Það
gegnir furðu, að alþýða manna á Ís-
landi elur í brjósti einkennilega til-
finningu, blandna viðbjóði og virð-
ingu, gagnvart selunum. Orsakir
þessa eru í fyrsta lagi sú fávíslega
skoðun manna, að selir líkist mönn-
um meira í skapnaði en öll önnur
dýr, og styrkir forvitni selanna og
skynsemi á ýmsum sviðum þessa
skoðun manna.“ Víkverja verður
ekki um sel við þennan lestur.
x x x
Víkverji hefur átt í deilum ummerkingu orðasambandsins
„helmingi meira“. Í huga Víkverja er
alveg skýrt að kosti hamborgari
helmingi meira en pulsa megi tvö-
falda verðið á pulsunni til að fá út
hvað hamborgarinn kostar. Þessi
merking virðist vera á undanhaldi.
Nýja merkingin er sú að hamborg-
arinn kosti 50% meira en pulsan og
reyni Víkverji að halda öðru fram er
hann vændur um skort á rökhugsun.
Nýja merkingin verður sennilega of-
an á og því sér Víkverji fram á að
verða ítrekað misskilinn það sem
eftir er nema hann segi bara „helm-
ingi minna“, þá fer ekkert á milli
mála. víkverji@mbl.is
Víkverji
En mín gæði eru það að vera nálægt
Guði, ég gerði Drottin að athvarfi
mínu og segi frá öllum verkum þín-
um. (Sálmarnir 73:28)
Skjól í amstri dagsins
Smiðjuvegur 9 • 200 Kópavogur • Sími 535 4300 • Netfang axis@axis.is • www.axis.is
EINRÚM Hönnuður: Sturla Már Jónsson Húsgagna og innanhúsarkitekt