Morgunblaðið - 14.04.2015, Side 35
Árni átti sæti í stjórn Blaðaprents
og var formaður þar, sat í stjórn Al-
prents, var formaður starfsmanna-
félags Ríkisútvarpsins og Blaða-
mannafélags Íslands, sat í stjórn
Landverndar, var formaður und-
irbúningsnefndar árs fatlaðra 1982,
var einn af stofnendum og stjórnar-
maður í AE-starfsendurhæfingu
Hlutverkaseturs, sat í stjórn Félags
forstöðumanna sjúkrahúsa, var for-
maður Bókmenntafélags jafnaðar-
manna, sat í stjórn FUJ, SUJ, var
ritari Alþýðuflokksins, sat í flokks-
stjórn og framkvæmdastjórn, var
varaborgarfulltrúi 1970-74, forseti
neðri deildar Alþingis 1979 og 1989-
91, sat í útvarpsráði, útvarpslaga-
nefnd og um árabil í útvarpsréttar-
nefnd. Hann var formaður menning-
armálanefndar Norðurlandaráðs
1980-81, átti sæti í Vestnorræna
þingmannaráðinu, sat í fulltrúaráði
Þróunarbanka Evrópu, var varafor-
maður Jafnréttisráðs og formaður
stjórnarnefndar Ríkisspítalanna.
Hann er nú formaður Bókmennta-
félags jafnaðarmanna sem undirbýr
aldarafmæli Alþýðuflokksins á
næsta ári.
Þótt Árni sé hættur að vinna í op-
inberum skilningi er hann enn að
sýsla við ýmislegt, eða hvað?
„Já, maður þarf alltaf að vera að
vinna að einhverju, hafi maður
heilsu til. Ég og Gestur Ólafsson
skipulagsarkitekt höfum lengi átt
okkur draum um vandað heilsuþorp
hér á landi. Slíkir staðir eru þekktir
um víða veröld og hér eru kjör-
aðstæður til að koma upp slíkri para-
dís, ekki síst vegna ódýrrar orku og
óspilltrar náttúru.
Við höfum haft augastað á Flúð-
um í þessu sambandi og sinnt mikilli
undirbúningsvinnu, en fjárfestar
virðast enn ekki hafa áttað sig á
þeim möguleikum sem hér eru fyrir
hendi. Kannski er það vegna þess að
við Íslendingar erum ekki vanir að
hlusta á líkamann og sinna for-
vörnum af kostgæfni. Okkur hættir
til að vinna mjög mikið þangað til
eitthvað gefur sig. En þetta viðborf
er nú sem betur fer á undanhaldi.“
Ertu alltaf jafnpólitískur?
„Já, ég er alltaf jafnaðarmaður í
mínum gamla skilningi og þeirri
stefnu mætti gera hærra undir
höfði. Við búum í yndislegu landi þar
sem allir ættu að geta haft jöfn tæki-
færi til menntunar og heilbrigðis-
þjónustu. Ég tel að þessi markmið
fari vel saman við atvinnu- og ein-
staklingsfrelsi. Um þetta ætti ekki
að þurfa að karpa því peningar eru
ekki allt í þessu lífi. Það sjáum við
best þegar aldurinn færist yfir.“
Fjölskylda
Árni kvæntist 27.7. 1962 Hrefnu
Filippusdóttur, f. 30.1. 1942, ritara.
Foreldrar hennar voru Filippus
Gunnlaugsson frá Ósi í Steingríms-
firði og k.h. Sigríður Gissurardóttir
frá Drangshlíð undir Eyjafjöllum,
nú látin.
Dætur Árna og Hrefnu eru Sig-
ríður Ásta, f. 14.10. 1963, flugfreyja,
gift Rúnari Aðalsteinssyni flug-
virkja, og Gunnhildur, f. 17.11. 1983
hjúkrunarfræðingur hjá Læknum
án landamæra.
Systir Árna er Valgerður Þor-
björg, f. 8.12. 1942, húsfreyja í
Seattle í Bandaríkjunum, gift Jónasi
Friðrikssyni verkfræðingi úr Borg-
arnesi og eiga þau þrjá syni.
Foreldrar Árna: Gunnar Stef-
ánsson, f. 24.3. 1915, fórst með Glit-
faxa 31.1. 1951, starfsmaður hjá
Ferðaskrifstofu ríkisins, og k.h.,
Ásta Árnadóttir, f. 6.7. 1911, d. 4.6.
2002, húsfreyja.
Úr frændgarði Árna Gunnarssonar
Árni
Gunnarsson
Ingunn Jónsdóttir
húsfr. á Gaul
Magnús Jónsson
b. á Gaul
Þorbjörg Magnúsdóttir
húsfr. á Ísafirði
Árni Jónsson
skipstj. á Ísafirði
Ásta Árnadóttir
húsfr. í Rvík
Jón Jóakimsson
húsm. á Sæbóli
Guðný Sveinsdóttir
húsfr. í Litla-Langadal
Valgerður Hallvarðsdóttir
húsfr. á Ósi
Stefán Guðmundsson
b. á Ósi á Skógarströnd
Gunnar Stefánsson
starfsm. Ferðaskrifstofu Íslands
Guðmundur Björnsson
b. á Ósi
Kristján Daníels-
son b. í Litla-
Langadal
Daði Daníelsson
b. á Setbergi
Ingólfur
Daðason
verkstj. í Rvk
Kristín L.
Ingólfsd.
húsfr. í Rvík
Ingólfur Mar-
geirsson ritstj.
og rithöfundur
Daði Kristjánsson b. í
Drápuhlíð í Helgafellssveit
Sigfús Daðason
skáld og ritstj.
Hallvarður Sigurðsson
b. í Litla-Langadal á
Skógarströnd
Daníel Sig-
urðsson
b. í Litla-
Langadal
Ingibjörg Sakaríasd.
húsfr. á Atlastöðum
Guðni Kjart-
ansson b. í
Hælavík
Stefanía Guðnad.
húsfr. í Hælavík
og á Hesteyri
Kristján Sigurðsson
yfirlæknir í Keflavík
Jakobína Sigurðard.,
skáld og rithöfundur
Fríða Sigurðardóttir
rithöfundur
Sigurfljóð
Sakaríasdóttir
Sakarías
Sakaríasson
b. í Stakkadal
Sigríður Helga
Sakaríasdóttir
húsfr. í Stakkadal
Guðmundur Kristján
Guðmundsson, b. í Stakka-
dal og skipstj. á Ísafirði
Rannveig
Guðmundsd.
fyrrv. alþm.
Steinunn
Jónsdóttir
húsfr. í
Hraunhöfn
Steinunn
Kristjánsd.
húsfr. í Rvík
Margrét
Þorbjörg
Kristjánsd
húsfr. í Rvík
Ólafur Thors
forsætisráðherra
Thor Thors
sendiherra
Kristján Albertsson
ritstj. og rithöfundur
ÍSLENDINGAR 35
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. APRÍL 2015
Ármann fæddist í Reykjavík14.4. 1946 og ólst þar upp.Hann var sonur Margrétar
Lilju Eggertsdóttur og Sveins
Sveinssonar múrarameistara, og var
elztur fjögurra systkina.
Ármann kvæntist 19.8. 1968 Helgu
Kjaran, f. 1947, grunnskólakennara.
Hún er dóttir Birgis Kjaran, hag-
fræðings og alþingismanns, og Svein-
bjargar Helgu Kjaran, ritara og hús-
freyju.
Sonur Ármanns og Helgu er Birg-
ir Ármannsson, f. 12.6. 1968, lögfræð-
ingur og alþingismaður.
Ármann þótti snemma afburða-
námsmaður með sérstakan áhuga á
íslensku og stærðfræði. Hann starf-
aði í barnastúku í æsku og var alla tíð
bindindismaður, stundaði nám við
Menntaskólann í Reykjavík, var þar
formaður Framtíðarinnar, lauk stúd-
entsprófum 1966 og stundaði nám í
lögfræði við Háskóla Íslands.
Ármann sat í Stúdentaráði, í stjórn
Stúdentafélags Háskóla Íslands, var
formaður Vöku, félags lýðræðissinn-
aðra stúdenta, sat í stjórn Heimdall-
ar, var framkvæmdastjóri SUS um
skeið og gegndi ýmsum öðrum
trúnaðarstörfum fyrir unga sjálf-
stæðismenn. Margir þeirra álitu
hann afar efnilegan stjórnmálamann
og upprennandi forystumann í sínum
röðum, enda vinsæll samherji og virt-
ur af pólitískum andstæðingum sín-
um.
En Ármann lést hins vegar úr
heilablóðfalli á heimili sínu, aðeins 22
ára, og var mörgum harmdauði.
Um Ármann sagði vinur hans,
Friðrik Sophusson, m.a. í minning-
argrein: „Jafnframt því að eiga
glæstar hugsjónir var Ármann raun-
sær baráttumaður, sem var ákveðinn
í því að gera hugsjónir sínar að veru-
leika. Vandaður undirbúningur, auk
staðgóðrar þekkingar á íslenskum
hagsmunum og þjóðlífi, var ávallt
grundvöllur undir baráttu hans fyrir
bættu þjóðfélagi. Hann var sívinn-
andi og óþreytandi og missti aldrei
sjónar á markmiðinu. Þeir, sem börð-
ust með honum og undir forystu
hans, gátu ætíð vænst árangurs.“
Ármann lést 10.11. 1968.
Merkir Íslendingar
Ármann
Sveinsson
95 ára
Ólöf Pálsdóttir
90 ára
Guðleif Friðriksdóttir
Sigríður Inga Sigurðardóttir
85 ára
Áslaug Þorleifsdóttir
Eiríkur Gíslason
Hilmar Valdimarsson
Ingibjörg Magnúsdóttir
80 ára
Alda Traustadóttir
Arnar Aðalbjörnsson
Auður Filippusdóttir
Berta G. Björgvinsdóttir
Bjarni Ásmunds
Sigurveig Erlingsdóttir
75 ára
Alda Káradóttir
Dagur Kristmundsson
Hilmar Hjartarson
Ingi Walter Sigurvinsson
Þorkell Jónsson
70 ára
Atli Sigurðsson
Ása Kristín Oddsdóttir
Björg Sigurðardóttir
Björg Þórðardóttir
Börkur Guðmundsson
Edda Karlsdóttir
Eyjólfur H. Kúld
Guðríður Árnadóttir
Hlín Torfadóttir
Indiana Sigfúsdóttir
Magnfríður Þórðardóttir
Ólöf Gunnarsdóttir
Rósa Ármannsdóttir
Þorsteinn R Þorsteinsson
60 ára
Álfheiður Gunnarsdóttir
Gíslína Guðrún Jónsdóttir
Jóhannes R. Magnússon
Jónína R. Ketilsdóttir
Kristín Helgadóttir Ísfeld
Magdalena S.H. Þórisdóttir
María Lúísa Kristjánsdóttir
Sigríður V. Bragadóttir
Sigurður Albert
Ármannsson
50 ára
Björn Bögeskov Hilmarsson
Eiríkur Jónsson
Esther Halldórsdóttir
Eva Þórunn Halldórsdóttir
Gunnhildur
Guðmundsdóttir
Hrafn Loftsson
Janusz Frach
Kristján Ólafur Guðnason
María Jórunn Þráinsdóttir
40 ára
Birkir Már Kristinsson
Brynja Kristmannsdóttir
Eiríkur Dór Jónsson
Harpa Guðjónsdóttir
Haukur Sigurðsson
Janis Garavaldi
Ólöf Helga Björnsdóttir
Sigursveinn Ó. Grétarsson
Sverrir Þór Magnússon
Þór Pétursson
Ægir Rafnsson
30 ára
Ariana Katrín Katrínardóttir
Erla Dögg Stefánsdóttir
Guðlaug Erna Álfgeirsdóttir
Mariusz Ponichtera
María Sif Sigurðardóttir
Mikael Donovan
Arnþórsson
Reynheiður
Guðmundsdóttir
Tomasz Kowalczyk
Tómas Örn Sigurðsson
Til hamingju með daginn
30 ára Vilhjálmur ólst
upp í Reykjavík og býr
þar, lauk BS-prófi í stærð-
fræði frá HÍ og er að ljúka
prófum í læknisfræði.
Maki: Kristrún Gunn-
arsdóttir, f. 1989, hljóm-
verkfræðingur.
Foreldrar: Linda Rós
Michaelsdóttir, f. 1951,
kennari við MR, og Stein-
grímur Ari Arason, f.
1953, hagfræðingur og
forstjóri Sjúkratrygginga
Íslands.
Vilhjálmur
Steingrímsson
30 ára Bjarni ólst upp á
Akranesi en býr í Reykja-
vík, lauk stúdentsprófi frá
Borgarholtsskóla og er að
ljúka prófi í tölvunarfræði
frá Tækniskólanum.
Systkini: Andri Örn, f.
1988, Smári Freyr, f.
2001, og Svandís, f.
2003.
Foreldrar: María Hlina-
dóttir, f. 1963, píanókenn-
ari, og Einar Jón Sigmars-
son, f. 1962,
rafvirkjameistari.
Bjarni Þór
Einarsson
30 ára Margrét Lára ólst
upp í Mosfellsbæ, býr í
Reykjavík, lauk MA-prófi í
ritstjórn og útgáfu frá HÍ
og starfar hjá hönnunar-
deild Icepharma.
Maki: Finnur Freyr Stef-
ánsson, f. 1983, körfu-
boltaþjálfari.
Foreldrar: Sigríður
Magnúsdóttir, f. 1946, tal-
meinafræðingur, og Hösk-
uldur Þráinsson, f. 1946,
prófessor í íslensku nú-
tímamáli við HÍ.
Margrét Lára
Höskuldsdóttir
Heyrðu umskiptin
Fáðu heyrnartæki til reynslu
Það er næstum því sama hvernig heyrnarskerðingu þú ert með
og hvernig lifi þú lifir, því ReSound heyrnartækin eru vel til þess
fallin að hjálpa þér við að skilja talmál, hafa framúrskarandi
hljómgæði og snjalla þráðlausa tengingu.
MARGIR
VERÐFLOKKAR
Apple, Apple merkið, iPhone, iPad og iPod touch eru
vörumerki Apple Inc, skráð í BNA og öðrum löndum.
App Store er þjónustumerki Apple Inc. Hlíðasmára 11 · 201 Kópavogur · Sími 534 9600 · heyrn.is