Morgunblaðið - 14.04.2015, Page 38
38 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. APRÍL 2015
flóknara en þeir
hyggja. Sú gamla
leynir á sér.
Paasilinna er
einn vinsælasti
rithöfundur
Finna og hefur
slegið í gegn víða
um lönd fyrir
gamansögur á
borð við þessa.
Íslenskir les-
endur hafa líka tekið bókum hans
vel og er þetta sú fimmta sem kem-
ur út á íslensku.
Hér segir af ekkjunni Linea Ra-
vaska sem hefur komið sér fyrir á
litlu býli úti í sveit og hefði notið þar
áhygjulauss ævikvölds, ef ekki hefði
komið til skíthællinn Kauko
Nyyssönen, óskyldur uppeldissonur
ekkjunnar sem birtist þar mán-
aðarlega ásamt tveimur félögum
sínum til að heimta drjúgan skerf
lífeyris hennar. Einnig njóta þre-
menningarnir þess að svalla þar í
sveitinni, slást og haga sér eins og
svín, og hræða ekkjuna og nágranna
hennar. Þegar þeir pína hana til að
gera erfðaskrá, þar sem hún
ánafnar þeim allar eigur sínar,
finnst ekkjunni loksins nóg komið
og tekur til sinna ráða.
Lýsing höfundar á glæpamönn-
unum þremur og afstöðu þeirra til
heimsins er einn áhugaverðasti
þáttur þessarar fjörmiklu sögu.
Ribbaldarnir hafa komist til manns,
hversu vel eða illa sem það hefur
Norrænar bókmenntir hafafært heiminum úrvalálappalegra glæpa-manna sem stíga ekki í
vitið. Ræningjarnir í Kardimommu-
bæ Egners koma upp í hugann,
þrjótar í sögum Ole Lunds Kirkaga-
ard og ræningj-
arnir í sögunum
um Línu Lang-
sokk. Finnski
gamansagnahöf-
undurinn Arto
Paasilinna kann
þá kúnst að
skapa aulalegar
og skoplegar per-
sónur og glæpa-
mennirnir þrír í Eiturbyrlaranum
ljúfa fylla hæglega þennan flokk, þó
að þeir séu jafnframt harðsvíraðri
en allir þeir fyrrnefndu. Þessar per-
sónur Paasilinna hafa nefnilega
drepið samborgara og hyggjast í
þessari sögu lóga einni gamalli konu
til. Þeim þykir það ekkert tiltöku-
mál en það verður engu að síður
annars tekist, með stuðningi nor-
ræns velferðarsamfélags en botna
ekkert í því að heimurinn sé ekki
enn betri við þá en raun er á og þeir
fái ekki enn hærri bætur að lifa af.
Á sama hátt botna þeir ekkert í því
að ekkjunni þyki ekki sjálfsagt að
leyfa þeim að njóta lífeyris síns með
þeim.
„Hvaða réttlæti var í því að lyst-
arlítil kerling fengi tvöfalt hærri líf-
eyri en ungur maður í fullu fjöri sem
eyddi margfalt meiru í matarinn-
kaup í samanburði við grindhoraða
ekkjuna? … Áhættusamt líf ungs
manns í stórborginni var óhemju-
dýrt …“ (59)
Þegar þremenningarnir skipu-
leggja síðan að koma ekkjunni fyrir
kattarnef finnst þeim ósanngjarnt
að skyldu þeir vera teknir fyrir
glæpinn skipti engu máli, þegar
kæmi að refsingunni, hvort sá
drepni væri ungur eða gamall:
„… ef maður yrði fyrir því að drepa
einhvern gamlingja þá væri full-
nægjandi að greiða sektir enda hefði
sá látni ekki orðið fyrir miska sem
orð væri á gerandi,“ (63) segja þeir.
En ekkjan tekur til varna, með
aðstoð læknis sem er gamall elsk-
hugi. Óvæntar skiptingar verða í
þeirri sögu allri og borgar sig ekki
að greina meira frá því hvernig fer.
Eiturbyrlarinn ljúfi er ágæt
skemmtisaga, lipurlega sögð og fær
lesandann til að skella upp úr hér og
þar, þegar farsinn verður hvað líf-
legastur.
Tilbrigði við norræna aula
Skáldsaga
Eiturbyrlarinn ljúfi bbbnn
Eftir Arto Paasilinna.
Guðrún Sigurðardóttir þýddi.
Skrudda, 2015. Kilja, 203 bls.
EINAR FALUR
INGÓLFSSON
BÆKUR
Arto
Paasilinna
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
„Þarna gefst gott tækifæri til að sjá
úrval fjölbreyttra norræna mynda
sem margar hverjar rata aldrei í
kvikmyndahús hérlendis,“ segir Ilm-
ur Dögg Gísladóttir, kynningar- og
verkefnastjóri hjá Norræna húsinu
um Norræna kvikmyndahátíð sem
hefst í Norræna
húsinu á morgun
og stendur til 22.
apríl nk.
Hátíðin er nú
haldin í þriðja
sinn á jafn-
mörgum árum og
hefur aðsóknin, að
sögn Ilmar, verið
mjög góð. Í ár
verður boðið upp
á tíu nýjar eða nýlegar myndir auk
þess sem Hrafninn flýgur í leikstjórn
Hrafns Gunnlaugssonar frá árinu
1984 verður sýnd í tengslum við
vinnustofu um samstarfsmöguleika í
kvikmyndaiðnaðinum sérstaklega á
sviði menntunar og framleiðslu.
Vinnustofan er á morgun kl. 14 og
myndin sýnd í beinu framhaldi kl. 17.
Meðal þátttakenda í vinnustofunni
eru Marianne Persson, fyrrverandi
lektor og núverandi framleiðandi,
Lars Hedenstedt hjá Svenska In-
stitutet (TBC), Laufey Guðjónsdóttir
hjá Kvikmyndamiðstöð Íslands,
Hrafnhildur Gunnarsdóttir, framleið-
andi og stjórnarformaður í Nordisk
Panorama, Friðrik Þór Friðriksson,
leikstjóri og formaður Samtaka kvik-
myndaleikstjóra, og Hrafn Gunn-
laugsson kvikmyndaleikstjóri.
„Líkt og síðustu ár verður frítt inn
á allar myndirnar og því gildir fyrstu
kemur fyrstu fær, en salurinn rúmar
hundrað manns í sæti,“ segir Ilmur
og tekur fram að myndirnar séu
sýndar með enskum texta. „Þannig
geta þeir sem skilja hvorki finnsku né
íslensku t.d. notið þess að sjá finnsku
myndina The Grump sem nýverið var
sýnd í kvikmyndahúsum hérlendis,“
segir Ilmur og bendir á að Tuomas
Kyrö, höfundur bókarinnar sem kvik-
myndin byggist á, sem og Huldar
Breiðfjörð taki þátt í spurt og svarað
að lokinni sýningu á myndinni laug-
ardaginn 18. apríl, en myndin hefst
kl. 20.
Valið í samvinnu við sendiráðin
Að sögn Ilmar eru myndirnar
valdar í samvinnu við sendiráð nor-
rænu ríkjanna hérlendis. „Allar
myndirnar verða sýndar tvisvar með-
an á hátíðinni stendur, nema danska
myndin Stille hjerte sem aðeins er
sýnd einu sinni,“ segir Ilmur og bend-
ir á að Stille hjerte verður tekin til
sýninga í Bíó Paradís með haustinu.
Bille August leikstýrði myndinni
Stille hjerte sem er frá árinu 2014.
Með helstu hlutverk fara Ghita
Nørby, Morten Grunwald, Paprika
Steen, Danica Curcic, Jens Albinus
og Pilou Asbæk. Myndin hlaut nýver-
ið dönsku Bodil-kvikmyndaverðlaun-
in sem besta mynd ársins auk þess
sem Curcic og Asbæk voru verðlaun-
uð fyrir leik sinn. Myndin gerist eina
helgi í sumarbústað þar sem þrjár
kynslóðir eru saman komnar. Ætt-
móðirin upplýsir að hún glímir við
banvænan sjúkdóm og óski þess að fá
að deyja áður en sjúkdómur hennar
ágerist.
Önnur dönsk mynd verður sýnd á
hátíðinni og er hún líka frá 2014. Þar
er um að ræða Kapgang sem Niels
Arden Oplev leikstýrði, en með helstu
hlutverk fara Sidse Babett Knudsen,
Anders W. Berthelsen og Villads Bø-
ye. Myndin gerist árið 1976 og er
þroskasaga hins fjórtán ára gamla
Martins sem nýverið missti móður
sína og á senn að fermast. Hann veit
ekki hvort hann hrífst meira af stelp-
um eða strákum.
Þrjár norskar myndir verða sýnd-
ar og eru þær allar frá árinu 2014.
Þar má fyrsta nefna Kraftidioten í
leikstjórn Hans Petter Moland, en
með helstu hlutverk fara Stellan
Skarsgård, Birgitte Hjort Sørensen
og Jakob Oftebro. Myndin fjallar um
viðbrögð manns þegar sonur hans er
myrtur fyrir mistök. Børning í leik-
stjórn Hallvard Bræin fjallar um bíla-
áhugamanninn Roy sem fær óvænta
heimsókn frá dóttur sinni rétt áður
en hann á að taka átt í æsilegri akst-
urskeppni. Natt til 17 í leikstjórn Ei-
riks Svensson fjallar um tvo 15 ára
pilta sem hyggja á mikla drykkju-
veislu kvöldið fyrir þjóðhátíðardag
Norðmanna.
Von á erlendum gestum
Tvær sænskar myndir verða sýnd-
ar og eru þær báðar frá árinu 2013.
Annars vegar er um að ræða Stock-
holm Stories í leikstjórn Karin Fa-
hlén sem fjallar um fjórar mann-
eskjur sem verða á vegi hver
annarrar og hins vegar Återträffen í
leikstjórn Önnu Odell sem fjallar um
konu sem ekki er boðið á endurfund
hjá gömlu bekkjarfélögunum. Hún
gerir kvikmynd um hvað hefði getað
gerst hefði hún farið og sýnir síðar
gömlu bekkjarfélögunum, sem lögðu
hana í einelti á sínum tíma, myndina
og tekur upp viðbrögð þeirra. Loks er
það sænsk/finnska myndin Hallon-
båtsflyktingen í leikstjórn Leif Lind-
blom frá árinu 2014. Um er að ræða
gamanmynd um Mikko Virtanen sem
þolir ekkert finnskt og hefur frá
blautu barnsbeini viljað vera Svíi.
Dag einn fær hann tækifæri til að láta
draum sinn rætast.
„Í fyrsta sinn bjóðum við upp á
grænlenska mynd,“ segir Ilmur og
vísar þar til heimildarmyndarinnar
Eskimo Diva frá 2014 í leikstjórn
Lene Stæhr, sem fjallar um Nuka
sem er ung dragdrottning frá Nuuk.
Myndin verður sýnd föstudaginn 17.
apríl kl. 16 og situr leikstjórinn fyrir
svörum í beinu framhaldi.
Að sögn Ilmar er von á fleiri góðum
gestum því Morten Kirkskov, höf-
undur bókarinnar Kapgang sem sam-
nefnd mynd byggist á, situr fyrir
svörum að lokinni sýningu myndar-
innar mánudaginn 20. apríl kl. 19:30
og norski leikarinn Jakob Oftebro sit-
ur fyrir svörum að lokinni sýningu á
myndinni Kraftidioten sunnudaginn
19. apríl kl. 19:30. „Oftebro er norsk-
ur, en menntaður í Danmörku þar
sem hann býr og starfar. Hann er
jafnvígur á bæði dönsku og norsku,“
segir Ilmur og rifjar upp að Oftebro
hafi farið með hlutverk Laust Jensen
í dönsku sjónvarpsþáttunum 1864
sem sýndir voru í Ríkissjónvarpinu
fyrr í vetur.
Allar upplýsingar um sýningartíma
má nálgast á vef Norræna hússins,
nordice.is.
„Úrval fjölbreyttra mynda“
Norræn kvikmyndahátíð sett í þriðja sinn á morgun Alls sýndar tíu nýlegar myndir og ein
klassísk perla Frítt inn á allar myndirnar Boðið verður upp á spjall við ýmsa erlenda listamenn
Hjartnæm Danica Curcic, Jens Albinus, Gita Nørby og Paprika Steen í Stille
hjerte í leikstjórn Bille August sem hlaut fern Bodil-verðlauna í Danmörku.
Gull Återträffen hlaut Gullbjölluna, sænsku kvikmyndaverðlaunin, árið
2014 sem besta mynd ársins og fyrir besta handrit sem Anna Odell samdi.
Ilmur Dögg
Gísladóttir
Diva Grænlenska heimildarmyndin
Eskimo Diva fjallar um Nuka.
PÖNTUNARTÍMI
AUGLÝSINGA:
Fyrir kl. 16,
mánudaginn 27. apríl.
NÁNARI UPPLÝSINGAR:
Katrín Theódórsdóttir
kata@mbl.is
Sími: 569-1105
Morgunblaðið gefur út
glæsilegt sérblað um
Íslandsmótið
Pepsí-deild karla í
knattspyrnu 1.maí.
Farið verður um
víðan völl og
fróðlegar
upplýsingar
um liðin sem leika
sumarið 2015.
–– Meira fyrir lesendur
SÉRBLAÐ
ÍSLANDSMÓTIÐ
PEPSÍ-DEILD KARLA Í KNATTSPYRNU 2015