Morgunblaðið - 15.04.2015, Page 12
12 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. APRÍL 2015
Rannsóknardeild
lögreglunnar á
Akureyri rann-
sakar nú hvort
brotið hafi verið
gegn stúlkubarni
á Þórshöfn á
Langanesi í síð-
asta mánuði.
Að sögn Gunn-
ars Jóhannssonar, rannsóknarlög-
reglumanns á Akureyri, barst lög-
reglu ósk frá barnavernd
Norðurþings um að rannsakað yrði
hvort ungur maður hefði beitt
stúlkubarn kynferðislegu ofbeldi.
Rannsókn á frumstigi
Gunnar segir rannsóknina vera
á frumstigi og ekki sé hægt að
segja frekar frá málinu á þessari
stundu.
Ofbeldi gegn
barni í rann-
sókn lögreglu
fi p y j g p
C p iar acc o ð lh kl lme va netu-vinaigrette og ettasa ati Grafið lam
með hindberja-vinaigrette og geitaosti Villibráðar-paté prikmeð pa
mauki Bruchetta íreymeð tv
ðlatu hangikjöti, bal- samrau
og piparrótarsósu heBruc
ta með hráskinku, balsam
rægrill uðu Miðjarðar- h a f s g
meti Krabba a- s a l
ðboferskum kryddjurtum í brau
Bruchetta rðameð Miðja
hafs-tapende aRisa- rækj
spjóti með peppadew Silunga hrogn i simeð japönsku majónes
nepsrjóma-osti á bruchettu Birkireykt-ur lax alioá bruchettu með
grillaðri papriku og fetaosti Hörpuskeljar ddju, 3 smáar á spjóti m/kry
taídýfu Frönsk súkkulaðikaka m/rjóma og ferskum berjum ufyVanill
tar vatnsdeigsbollur Súkkulaðiskeljar með jarðarberjum nguKjúkli
satay á spjóti með ídýfu Teryaki-lamb á spjóti RisahörpuskSími 511 8090 • www.yndisauki.is
Möndlu Mix og Kasjú Kurl
er ekki bara hollt snakk. Líka
gott í salatið. Hollt og gott
frá Yndisauka.
Fæst í: Hagkaupum, Heilsuhúsunum,
Melabúðinni, Fjarðarkaup,
Þín verslun Seljabraut, Kjöthöllinni,
Hreyfingu, Garðheimum, Mosfellsbakaríi
og Bakaríinu við brúna Akureyri.
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
Hallur Már Hallsson
Farin verður blönduð leið við lausn
aflandskrónuvandans með útgáfu
skuldabréfa í erlendri mynt og með
því að færa kvikar eignir í langtíma-
eignir. Áætlunin verður útfærð í
skrefum og hafa þau ekki verið tíma-
sett. Hitt liggur fyrir að ganga á
hratt á aflandskrónurnar frá og með
miðju þessu ári en þær standa nú í
295 milljörðum króna.
Þetta hefur Morgunblaðið eftir
öruggum heimildum.
Frá og með ársbyrjun hefur verið
unnið nótt og dag að lausn aflands-
krónuvandans og verður áætlunin
kynnt opinberlega fyrir mitt ár.
Bjarni Benediktsson, fjármála- og
efnahagsráðherra, vék að þessari
áætlun í samtali við mbl.is í gær.
Frumvarpið á lokametrunum
„Það er ekki langt síðan við kynnt-
um til sögunnar aðgerðir sem snúa
sérstaklega að snjóhengjunni,
aflandskrónum utan slitabúa, og ég
vonast til þess að við getum farið í út-
boð og boðið fjárfestingarkosti fyrir
þá krónueigendur á fyrri hluta þessa
árs,“ sagði Bjarni og boðaði jafn-
framt lagafrumvarp um stöðugleika-
skatt á slitabúin. „Það verður síðan
að bíða þess að frumvarpið komi
fram að ræða um það hversu breiður
þessi skattstofn er eða hvernig hann
er útfærður. En sú vinna er á loka-
metrunum. Það getur vel verið að
það þurfi að grípa til aðgerða sem
ekki verða óumdeildar, en það er í
mínum huga betra en óbreytt
ástand,“ sagði Bjarni.
Spurður hvernig lausn aflands-
krónuvandans verði útfærð segir
Jón Bjarki Bentsson, hagfræðingur
hjá Greiningu Íslandsbanka, að eig-
endum aflandskróna verði væntan-
lega boðið að fá skuldabréf í erlendri
mynt í skiptum fyrir krónueignirnar.
Bréf með langan líftíma
„Þetta hljómar fyrir mér eins og
nú eigi að bjóða upp á skuldabréfa-
skipti en það er leið sem rætt hefur
verið um sem hluta af lausn snjó-
hengjunnar. Þetta verða væntanlega
ríkisbréf með langan líftíma í gjald-
eyri og verður eigendum aflands-
króna boðið að kaupa þessi bréf sem
endurspegla töluverða afskrift á
þeirra krónueign, með líku lagi og
fólst í gjaldeyrisútboðum Seðlabank-
ans,“ segir Jón Bjarki sem telur að
skuldabréfaskiptin verði fram-
kvæmd í áföngum.
Hann segir aðspurður að skulda-
bréfin verði væntanlega án kvaða um
eignarhald til enda gjalddaga. Eig-
endurnir geti annaðhvort fengið
greiðsluflæðið af bréfunum allt til
lokagjalddaga eða selt þau öðrum
fjárfestum á frjálsum markaði.
Kjör ríkissjóðs á skuldabréfum í
erlendri mynt veiti viðmið um þau
kjör sem vænta megi af skuldabréf-
um sem gefin verða út fyrir krónu-
eignir. Þannig sé 1,3% ávöxtunar-
krafa á skuldabréfi í evrum með
gjalddaga 2020 og 1,3% krafa á
skuldabréfi í dollara með gjalddaga
2016 og 3,3% krafa á annað skulda-
bréf í dollurum með gjalddaga 2022.
Geti bætt lánshæfi ríkissjóðs
Jón Bjarki segir að ef vel gangi
með skuldabréfaútgáfuna muni það
liðka til fyrir afnámi hafta og um leið
bæta lánshæfi ríkissjóðs og þar með
þau kjör sem ríkissjóði bjóðast á
lánamörkuðum. „Það myndi gera
þessi bréf að vænlegri fjárfestingar-
kosti enda leita stórir fjárfestar er-
lendis nú logandi ljósi að skuldabréf-
um stöndugra ríkja sem gefa
þokkalega ávöxtun,“ segir hann.
Komu með 206 milljarða
Fram kemur í greinargerð fjár-
mála- og efnahagsráðuneytisins um
framgang áætlunar um losun fjár-
magnshafta hinn 18. mars sl. að
krónueignir í eigu og vörslu erlendra
fjármálafyrirtækja nema nú um 235
milljörðum. Þessu til viðbótar eigi
erlendir aðilar, aðrir en erlend fjár-
málafyrirtæki, innlán í innlendum
fjármálastofnunum, og ríkisbréf og
skuldabréf Íbúðalánasjóðs, sem ekki
eru í vörslu erlendra fjármálafyrir-
tækja, að fjárhæð nærri 60 milljörð-
um króna. Samtals nema slíkar
aflandskrónur því um 295 milljörð-
um kr. Til samanburðar hafa fjár-
festar komið með 206 milljarða til
landsins í gegnum fjárfestingarleið-
ina frá árinu 2012. Tæp fjögur ár eru
síðan Seðlabankinn hóf gjaldeyrisút-
boð þar sem í boði voru kaup á krón-
um fyrir evrur.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Snjóhengja Seðlabanki Íslands hóf gjaldeyrisútboð á miðju ári 2011. Síðan hefur gengið á „snjóhengjuna“.
Aflandskrónum breytt í
skuldabréf í erlendri mynt
Blönduð leið í bígerð Fjármálaráðherra segir stöðugleikafrumvarp á lokastigi
Bjarni Benediktsson fjármála-
ráðherra hefur ekki áhyggjur af
málaferlum út af frumvarpi um
stöðugleikaskatt.
„Við erum að vinna að frum-
varpsgerðinni í þeim tilgangi að
smíða lög sem standast og
halda fyrir dómstólum, þannig
að ég óttast það ekkert ef við
erum komin fram með frumvarp
sem við teljum að uppfylli
ströngustu kröfur, þótt ein-
hverjir vilji láta á það reyna. Við
göngum bara út frá því að okkar
vinna sé vel undirbúin og yfir-
farin af lögfræðingum, hag-
fræðingum og öðrum sérfræð-
ingum til þess að tryggja að
aðgerðin standist,“ sagði hann.
Óttast ekki
málaferli
STÖÐUGLEIKAFRUMVARP
Þorsteinn Ásgrímsson
thorsteinn@mbl.is
Ef af yfirvofandi verkfalli Starfs-
greinasambandsins (SGS) verður
gæti það haft gríðarlega slæm áhrif
á ferðaþjónustuna og langvarandi
verkfall verið rothögg fyrir mörg
fyrirtæki úti á landi sem hafa byggt
sig upp í kringum aukinn ferða-
mannastraum. Þetta segir Helga
Árnadóttir, framkvæmdastjóri Sam-
taka ferðaþjónustunnar, í samtali við
mbl.is. Atkvæðagreiðsla um verk-
fallsboðun stendur nú yfir en eins og
mbl.is hefur sagt frá gæti verkfallið
náð til þúsunda starfsmanna í ferða-
þjónustunni á landsbyggðinni.
Samkvæmt upplýsingum frá SGS
munu um 10 þúsund manns kjósa
um verkfallsboðun. 41% þeirra er á
matvælasviði og 29% í ýmsum þjón-
ustugreinum. Drífa Snædal, fram-
kvæmdastjóri SGS, segir að mikill
meirihluti þeirra sem falli í þessa tvo
flokka eigi aðild að ferðaþjónustu.
Er þar um að ræða ófaglært fólk
sem starfar við framreiðslu í mötu-
neytum og veitingastöðum, þjón-
ustufólk á hótelum, ræstingafólk og
starfsmenn í alls konar afþreying-
ariðnaði fyrir ferðamenn.
Mega ekki við hækkun
Helga segir stöðuna grafalvar-
lega. „Þetta mun snerta ferðaþjón-
ustu um allt land ef af verkfalli verð-
ur,“ segir Helga og bætir við að hún
hafi að sjálfsögðu áhyggjur af mál-
inu. „Fyrirtækin verða að ráða við
hækkunina,“ segir hún um kröfur
SGS, en ein af grunnkröfunum er að
lægstu laun hækki í 300 þúsund
krónur. „Það er verið að fara fram á
umtalsverðar hækkanir,“ segir
Helga og bendir á að sumir hópar
geti hækkað um allt að 50-70% á
þriggja ára tímabili. Nánar er rætt
við Helgu á mbl.is.
Morgunblaðið/Kristinn
Ferðaþjónusta Helga Árnadóttir,
framkvæmdastjóri SAF.
Rothögg
fyrir mörg
fyrirtæki
Verkfall SGS
hefði mikil áhrif