Morgunblaðið - 15.04.2015, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 15.04.2015, Blaðsíða 16
16 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. APRÍL 2015 Smiðjuvegi 68-72, Rvk Hjallahrauni 4, Hfj Fitjabraut 12, Njarðvík Eyrarvegi 33, Selfossi Barðinn, Skútuvogi 2 Við tökum að okkur: Peruskipti, rafgeymaþjónustu, bremsuviðgerðir, stýrisenda, spindilkúlur, kerti, kertaþræði, hjólalegur, fjöðrunarbúnað, viftureimar, hjólastillingar og margt fleira. LAGFÆRUM BÍLINN VIÐ www.solning.is FRÉTTASKÝRING Malín Brand malin@mbl.is Notkun á endurnýjanlegri orku í sam- göngum hér á landi hefur tífaldast á síðustu fimm árum og framleiðsla á inn- lendu endurnýjanlegu eldsneyti hefur fimmfaldast á sama tímabili. Þetta er á meðal þess sem fram kemur í nýútkom- inni skýrslu sem Græna orkan tók sam- an um þann árangur sem náðst hefur varðandi vistvænt eldsneyti og þá að- gerðaáætlun sem lögð var fram 2011 á Alþingi. Aðgerðaáætlunin nefndist „Orkuskipti í samgöngum“. Skýrslan var lögð fram og kynnt á ríkisstjórnarfundi í gær af Ragnheiði Elínu Árnadóttur, iðnaðar- og við- skiptaráðherra. Græna orkan er sam- starfsvettvangur um orkuskipti í sam- göngum og er stjórn skipuð fulltrúum einkageirans og ríkisins. Sýnilegur árangur Eitt og annað hefur verið gert til að auðvelda og stuðla að orkuskiptum og fólust helstu aðgerðirnar í að koma á skattalegum ívilnunum fyrir raf- magns- og tvinnbíla og setningu sölu- skyldu fyrir endurnýjanlegt eldsneyti. Margt fleira hefur áunnist og má með- al annars sjá það í fjölda seldra vist- vænna bíla eftir að sett voru lög um skattaívilnanir árið 2012. Séu rafbílar einir og sér teknir sem dæmi þá voru þeir 315 talsins í árslok 2014 og voru býsna fáir á götunum fyrir árið 2012. Jón Björn Skúlason er verkefnis- stjóri Grænu orkunnar og segist hann afar ánægður með þann árangur sem þegar hefur náðst í því langtímaverk- efni sem orkuskipti í samgöngum eru. „Menn hafa til dæmis gagnrýnt laga- setninguna um íblöndun en ég held að þegar menn sjá að við erum líka að flytja inn íblöndunarefni í bensín þá höfum við alla vega búið til grunn fyrir heimamarkað. Þeir sem vilja og geta framleitt vistvæna íslenska orku eru nú komnir með heimamarkað og við vonum að sú framleiðsla vaxi í fram- tíðinni þannig að þessi íblöndun verði meira og minna íslenskt hráefni.“ Íslenskt eldsneyti Það má glöggt sjá að hvatinn er fyrir hendi því nú þegar er orðinn til nokkur fjöldi nýrra íslenskra fyrirtækja sem framleiða innlent endurnýjanlegt elds- neyti. Í skýrslu Grænu orkunnar er rakið hvernig innlend eldsneytisfram- leiðsla hefur þróast frá árinu 2000 þeg- ar Sorpa hóf söfnun hauggass á sorp- haugunum á Álfsnesi og það hreinsað og selt sem metan fyrir bíla. Í dag framleiða fyrirtækin metan, lífdísilolíu og metanól. Einnig hefur vetni verið framleitt í tilraunaskyni. Vistvænir bílar teljast þeir sem ganga að öllu eða mestu leyti fyrir end- urnýjanlegum orkugjöfum. Í skýrslu Grænu orkunnar kemur fram að heild- arfjöldi bíla á Íslandi í árslok 2014 hafi verið 218.033. Þar af eru 2.386 vistvænir bílar, eða 1,1% af skráðum bílum. Aðgerðir til orkuskipta Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðn- aðar- og viðskiptaráðherra, segist ánægð með þann árangur sem nú þegar hefur náðst í orkuskiptum í samgöngum. „Við sjáum að með markvissum aðgerðum er hægt að færa þessa hluti til betri vegar,“ segir hún. „Áform mín með skýrsluna eru að kynna hana fyrir þinginu og ég mun leggja hana fyrir þingið núna sem þingskjal og til umfjöllunar. Síð- an höfum við í hyggju að vinna nýja aðgerðaáætlun og setja hana fram á þinginu í haust í formi nýrrar þings- ályktunar og leyfa þinginu að koma að málunum til að tryggja samfelluna í vinnunni og hafa hana markvissa.“ Skattaívilnanir er varða innflutn- ing á umhverfisvænum bifreiðum hafa verið settar til eins árs í senn frá árinu 2012. Vilji er til að lengja gild- istíma ívilnananna og er það í skoðun. „Við höfum rætt það á milli okkar og fjármálaráðuneytisins og erum að hefja þá vinnu. Mín skoðun er sú að við ættum að setja þetta í fastari skorður og líta m.a. til Noregs í þeim efnum. Setja ætti skýr viðmið um markmið, annaðhvort um ákveðið hlutfall bifreiða eða fjölda, þannig að menn geti gert áætlanir fram í tím- ann, en um leið og ekki er lengur þörf fyrir þessa hvata og markmiðunum náð þá falli þeir niður og allir viti að það muni gerast,“ segir Ragnheiður Elín Árnadóttir. Vistvænir bílar eru 1,1% flotans  Hlutfall innlends eldsneytis hefur fimmfaldast á fimm árum  Orkuskipti í samgöngum langtíma- verkefni  Ný aðgerðaáætlun unnin og lögð fyrir Alþingi á komandi hausti  Skattalegar ívilnanir Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Þorvaldseyri Hér á landi hafa orðið til fyrirtæki sem framleiða innlent end- urnýjanlegt eldsneyti á borð við metan, lífdísilolíu og metanól. Endurnýjanlegt eldsneyti í samgöngum 6,5 6,0 5,5 5,0 4,5 4,0 3,5 3,0 2,5 2,0 1,5 1,0 0,5 0,0 20062004 2008 2010 2012 2014 Metan, ktoí. Lífdísill, ktoí. Metanól, ktoí. Rafmagn, ktoí. Notkunarspá endurnýjanlegs eldsneytis í samgöngum, ktoí. Raunnotkun endurnýjanlegs eldsneytis, ktoí. Næstu skref » Uppbygging fari fram á inn- viðum fyrir vistvæn ökutæki. » Þverfaglegt samstarf verði eflt til að afla sem víðtæk- astrar þekkingar. » Bæta aðgengi að fjármagni sem stuðlar að uppbyggingu innviða til dreifingar á end- urnýjanlegu eldsneyti. » Opinberir aðilar setji sér vistvæna samgöngustefnu. » Opinberir aðilar móti vist- væna innkaupastefnu og kaupi vistvæna bíla. » Áfram verði unnið að því að auka hlut endurnýjanlegrar orku í samgöngum og hlutdeild hennar verði 10% árið 2020 » Orkuskipti haftengdrar starfsemi fái aukið vægi. » Fræðslu- og kynningarefni um mismunandi gerðir elds- neytis og bíla dreift á vefnum og í skólum. » Tækifæri nýtt til nýsköp- unarverkefna. Ragnheiður Elín Árnadóttir Jón Björn Skúlason Brynja Dögg Guðmundsd. Briem brynjadogg@mbl.is Framkvæmdastjórar þriggja stórra verktakafyrirtækja á Akureyri segja framkvæmdadeild bæjarins beina tilteknum viðskiptum sínum, sem ekki þurfa að fara í útboðsferli, aðal- lega til eins verk- taka. Fyrirtækið sem um ræðir er Finnur ehf. Stjórnendur fyr- irtækjanna þriggja óskuðu upplýsinga úr bókhaldi Akur- eyrarbæjar. Ósk- að var upplýsinga um viðskipti framkvæmdadeildar við jarðvinnuverktaka á tímabilinu júní til nóvember 2014. Fyrirtækin sem óskuðu upplýs- inganna eru GV-Gröfur, G. Hjálm- arsson og Malbikun KM og Garð- tækni og Garðverk. Í tilkynningu frá framangreindum aðilum er sagt að fyrirtæki í eigu sama aðilans hafi unnið liðlega þriðjung allra fyrr- greinda verka á vegum bæjarins á áðurgreindu tímabili. Fyrirtækin sem bærinn hafi átt í viðskiptum við á þessu tímabili hafi verið hátt í þrjá- tíu talsins. Segja stjórnendur fyrirtækjanna að viðskiptin samræmist illa breyt- ingum sem boðaðar hafi verið af hálfu bæjarins fyrir ári, en þá hafi bæjarstjóri og fulltrúar fram- kvæmdadeildar bæjarins boðað að flest slík viðskipti færu í útboðsferli. Í tilkynningunni furða fram- kvæmdastjórar fyrirtækjanna sig á háttum framkvæmdadeildar og sýn- ist deildin hunsa fyrirmæli bæjar- stjóra um að verkefnin skyldu fara í útboðsferli. Verulegir fjármunir séu í húfi, þar sem framkvæmdadeildin sé stór kaupandi jarðvinnu ýmiskon- ar. Eiríkur Björn Björgvinsson, bæj- arstjóri á Akureyri, segist ekki geta svarað því hvers vegna Finnur ehf. hafi orðið svona oft fyrir valinu. Hann segir að stefnt sé að útboði á allra næstu dögum. „Við buðum út snjómokstur í vetur og fengum á okkur kæru. Niðurstaðan var sú að við hefðum átt að vanda betur út- boðsgögnin vegna snjómokstursins,“ segir Eiríkur. Hann segir að verið sé að laga útboðsgögnin sem snúi að smærri verkum, allt sé í vinnslu en þetta verði boðið út á næstu dögum og gert með réttum hætti. Viðskiptum beint til eins verktaka  Akureyrarbær bregst við gagnrýni Eiríkur Björn Björgvinsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.