Morgunblaðið - 15.04.2015, Síða 23

Morgunblaðið - 15.04.2015, Síða 23
23 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. APRÍL 2015 Bunað á bílana Vatnið streymdi á götuna og jafnvel bílana líka úr vatnsslöngunni sem maðurinn handlék á Hverfisgötunni. Það er greinilega hægt að gera tvennt í einu; tala í símann og sprauta. Golli Kannski var ekki hægt að ætlast til þess að forystumenn stjórn- arandstöðunnar tækju gleði sína og fögnuðu yfirlýsingu forsætis- ráðherra um afnám gjaldeyrishafta og að sérstakur skattur gæti gefið ríkissjóði hundr- uð milljarða í aðra hönd. Líklega var við of miklu að búast að stjórnarand- stæðingar tækju af skarið og til- kynntu að þeir styddu allir að við losun gjaldeyrishafta og uppgjör þrotabúanna, yrði hagsmuna rík- issjóðs (skattgreiðenda) gætt til hins ýtrasta. Nei. Ef hægt er að finna að ein- hverju, þá er það gert. Aðalatriði verða að aukaatriðum og aukaatriði verða að aðalatriðum. Í pólitísku naggi gefur ýmislegt eftir en von- andi verða það ekki íslenskir hags- munir að þessu sinni. Það fór fyrir brjóstið á stjórnar- andstöðunni að Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra skyldi hafa tekið sér það „bessa- leyfi“ að ræða um stöðuleikaskatt samhliða afnámi gjaldeyrishafta, í ítarlegri ræðu á flokksþingi Fram- sóknarflokksins um liðna helgi. Árni Páll Árnason, formaður Samfylking- arinnar, gat vart á sér heilum tekið. Í viðtali við Ríkisútvarpið síðastlið- inn laugardag hélt hann því fram að það væri „fyrir löngu síðan orðið vandræðalegt“ hvernig ríkisstjórnin héldi á málum um afnám hafta: „Nú er talað um einhvern stöð- ugleikaskatt. Fyrir jól var talað um útgönguskatt. Þannig að menn eru alltaf að leika sér með einhverjar nýjar og nýjar leiðir til að leysa þennan alvarlega vanda …“ Kurteisi og „æpandi þögn“ Birgitta Jónsdóttir, kapteinn Pí- rata, sagðist „bara svo- lítið hissa“ því hún hefði ekki heyrt áður rætt um stöð- ugleikaskatt. Hvorki Árna Páli eða Birgittu datt í hug að stöð- ugleikaskattur gæti verið annað nafn eða útfærsla á út- gönguskatti – jafnvel pínulítið jákvæðara heiti þótt erfitt sé að tala um jákvæða skatta. Katrín Jak- obsdóttir, formaður Vinstri grænna, sagði í viðtali við Fréttablaðið, það furðulegt að forsætisráðherra skyldi boða frumvarp um afnám hafta á flokksþingi Framsókn- arflokksins! Össur Skarphéðinsson, forveri Árna Páls í formannsstóli Samfylk- ingarinnar og fyrrverandi utanrík- isráðherra ríkisstjórnar sem festi gjaldeyrishöftin kirfilega í sessi, var fljótur í pólitískan skotgrafahernað. Hann skrifaði fjálglega á fésbók- arsíðu sinni um „æpandi þögn“ Bjarna Benediktssonar, sem hafði ekki tjáð sig opinberlega um ræðu forsætisráðherra. Auðvitað hvarfl- aði það ekki að Össuri að það væri almenn kurteisi hjá formanni Sjálf- stæðisflokksins að halda sig til hlés í fjölmiðlum þegar samstarfsflokkur í ríkisstjórn heldur flokksþing. Kurt- eisi af þessu tagi er ef til vill óþekkt í herbúðum Samfylkingarinnar. Samkvæmt forskrift var „upp- hlaup“ á Alþingi í upphafi þing- fundar á mánudag, þar sem haldið var áfram með farsakennda leik- færslu, þar sem tvinnuðust saman óttinn við að ríkisstjórnin væri að ná árangri og óttinn við að þurfa að „eyða“ sumrinu í þingsal við af- greiðslu mikilvægra mála – ekki síst losun gjaldeyrishafta. Höftin fest í sessi Ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstri grænna sat að völdum í 52 mánuði. Á þeim tíma var lítið gert til að afnema höftin, þvert á móti voru þau frekar hert og framlengd. Össur og Katrín voru ráðherrar frá upphafi til enda. Árni Páll sat sem ráðherra í 32 mánuði og helming þess tíma sem efnahags- og við- skiptaráðherra. Honum varð ekkert ágengt í viðleitni sinni við að losa höftin. Undir lok mars 2011 til- kynnti Árni Páll að höftin yrðu framlengd til loka árs 2015, en þau hefðu að óbreyttu átt að falla niður þá um sumarið. Í framhaldinu lagði efnahagsráðherra fram frumvarp á grunni fálmkenndrar áætlunar um afnám gjaldeyrishafta sem ríkis- stjórnin hafði samþykkt. Dómur Vilhjálms Egilssonar, sem þá var framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, var skýr: Áætlunin er metnaðarlítil. „Afnám gjaldeyris- hafta væri yfirlýsing um að stjórn- völd hefðu trú á hagkerfinu og ís- lensku hagkerfi en að höftin vari lengur vitnar um hið gagnstæða,“ sagði Vilhjálmur í viðtali við Morg- unblaðið. Í nefndaráliti um frumvarp Árna Páls, sögðu Tryggvi Þór Herberts- son og Pétur Blöndal, fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í efnahags- og skattanefnd: „Ef frumvarpið verður gert að lögum er verið að senda skýr skila- boð um að gjaldeyrishöftin séu komin til að vera. Því gæti hér verið um ein alvarlegustu hagstjórnar- mistök í gjörvallri Íslandssögunni að ræða.“ Vegna þessa lögðu þeir félagar til að frumvarpið „verði alls ekki sam- þykkt“. En Árni Páll og ríkis- stjórnin náðu sínu fram. Frum- varpið var samþykkt sem lög með atkvæðum stjórnarþingmanna og Hreyfingarinnar (þar á meðal var Birgitta Jónsdóttir, sem nú er „svo- lítið hissa“), gegn atkvæðum þing- manna Sjálfstæðisflokks og Fram- sóknarflokks. Grafið undan Það átti ekki að koma neinum á óvart að Árna Páli yrði lítið ágengt í verkefni sínu við afnám hafta – nema til að fjölga haftaárunum. Hann hefur alla tíð verið sann- færður um að Ísland sé dæmt til einangrunar og hafta ef töframynt Evrópusambandsins – evran – verð- ur ekki tekin upp. Sem ráðherra efnahagsmála lagði hann sig sér- staklega fram við að grafa undan ís- lensku krónunni, líkt og fleiri ráð- herrar Samfylkingarinnar gerðu, jafnt innanlands sem utan. Í Fréttablaðsgrein 27. desember 2010, skrifaði efnahags- og við- skiptaráðherra meðal annars: „Til skamms tíma þarf peninga- málastefnan að greiða fyrir varkáru afnámi gjaldeyrishafta og til lengri tíma að auðvelda okkur upptöku evru ef okkur sem þjóð ber gæfu til að samþykkja aðild og losa okkur þar með við tjónið og óvissuna sem fylgir sjálfstæðri mynt. Til skemmri tíma munum við búa við krónu í ein- hvers konar höftum. Upptaka evru verður ekki einföld, en flest bendir til að valið verði milli hennar eða afturhvarfs til einhæfari við- skiptahátta og viðvarandi haftabú- skapar.“ Ríkisstjórn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks hefur starfað í tæpa 23 mánuði – nær sjö mánuðum lengur en Árni Páll sinnti embætti efnahags- og viðskiptaráðherra en níu mánuðum skemur en hann sat sem ráðherra í ríkisstjórn. Sá grun- ur læðist að manni að ástæða kóm- ískra viðbragða stjórnarandstöð- unnar við yfirlýsingum um lok haftaáranna og að hagsmunir skatt- greiðenda séu tryggðir, sé einfald- lega sú að nú neyðast margir til horfast í augu við 52ja mánaða verk- og stefnuleysi. Ekki falla í freistni Eðli máls samkvæmt hafa áætl- anir ríkisstjórnarinnar um afnám hafta og uppgjör eða slit þrotabúa bankanna, ekki verið gerðar opin- berar. Slíkt væri fullkomlega óá- byrgt og gæti skaðað hagsmuni al- mennings, íslenskra fyrirtækja og ríkissjóðs. Öllum sem fylgst hafa með hefur hins vegar lengi verið ljóst að undir forystu Bjarna Bene- diktssonar, fjármálaráðherra og for- manns Sjálfstæðisflokksins, hefur verið staðið skipulega að verki. Ólíkt fyrri ríkisstjórn – sem lengdi aðeins í ólinni – er stefnan skýr og verkstjórinn – fjármálaráðherrann – þekkir og skilur verkefnið, sem er forsenda þess að vel takist til. Og kannski er það enn ein ástæðan að baki hinna kómísku viðbragða stjórnarandstöðunnar. Stjórnarandstaðan ætti að hafa minni áhyggjur af því hvað hugs- anlegur skattur verður kallaður samkvæmt lögum og meiri áhyggj- ur af því hvernig fjármununum verður varið. Gangi áætlanir ríkis- stjórnarinnar um stöðugleika-/ útgönguskatt eftir, skiptir mestu að þeir fjármunir sem hugsanlega inn- heimtast verði nýttir til að greiða niður miklar skuldir. Þannig er búið í haginn fyrir lækkun skatta um leið og grunnur er lagður að því að skila komandi kynslóðum öðru en stór- skuldugum ríkissjóði. Hættan er hins vegar sú að stjórnmálamenn falli í freistni og útdeili peningum í fjölmörg verkefni og þá ekki aðeins til að byggja stórhýsi undir því yf- irskini að minnast skuli aldar- afmælis fullveldis. Eftir Óla Björn Kárason » Ástæða kómískra viðbragða stjórn- arandstöðunnar er ein- faldlega sú að nú neyð- ast margir til horfast í augu við 52ja mánaða verk- og stefnuleysi. Óli Björn Kárason Höfundur er varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins. Kómískt haftaleikrit eftir 52ja mánaða verkleysi

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.