Morgunblaðið - 15.04.2015, Side 34

Morgunblaðið - 15.04.2015, Side 34
34 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. APRÍL 2015 Laufey Kristjánsdóttir er gæðastjóri hjá Mannviti og sér umgæða-, umhverfis- og öryggismál. Hún er matvælafræðingurað mennt frá HÍ og er með MBA gráðu frá Leeds á Englandi. „Eitt af mínum stærstu verkefnum í vinnunni er að halda utan um vottanir sem Mannvit er með samkvæmt gæða-, umhverfis- og ör- yggisstjórnunarstöðlum. Utanaðkomandi úttektaraðilar hafa eftir- lit með því að við uppfyllum staðlana og ég sé um að þau mál séu í lagi. Þótt staðlarnir breytist ekki mikið þá eru úttektaraðilarnir alltaf að ýta meira á okkur með ákveðnum kröfum sem styður við það að fyrirtækið þróist í rétta átt í þessum málum. Utan fjölskyldunnar þá hef ég áhuga á hlaupum. Við erum með hlaupahóp í vinnunni sem er mjög skemmtilegur félagsskapur. Ég er enginn maraþonhlaupari, en hef tekið þátt í hálfu maraþoni og 10 km hlaupum.“ Eiginmaður Laufeyjar er Valur Norðri Gunnlaugsson, matvæla- fræðingur og verkefnastjóri hjá Matís. Dætur þeirra eru Þórunn 7 ára og Hanna Kristín 4 ára. „Við hjónin ætlum í tilefni afmælisins að skella okkur í til Bret- lands í helgarferð. Við förum mikið til Bretlands, ég kann alltaf svo vel við mig þar eftir að hafa búið þarna. Við fórum t.d. til London þegar maðurinn minn varð fertugur. Nú ætlum við að fara til Bri- stol. Það er beint flug þangað og gaman að prófa eitthvað annað. Í haust er svo á dagskrá að fara aftur til Bretlands með vinkonunum, og að sjálfsögðu er planið einnig að halda afmælisveislu, en það verður ekki gert fyrr en seinna á árinu.“ Laufey Kristjánsdóttir er fertug í dag Mæðgurnar Staddar á hvalasafninu á Húsavík síðastliðið sumar. Veisla seinna á árinu Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson,Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Grindavík Adam Breki Sworowski fæddist 27. maí 2014 kl. 14.05. Hann vó 4.220 g og var 54 cm langur. For- eldrar hans eru Guðrún Kristjana Jónsdóttir og Adam Miroslaw Sworowski. Nýr borgari S kúli fæddist í Reykjavík 15.4. 1965 og ólst upp í Vesturbænum, á Fálka- götunni: „Fálkagatan var þá kölluð „Litla Holly- wood“ af gárungunum, því þar bjó mikill fjöldi listamanna. Í blokkinni minni, Fálkagötu 17-21, voru m.a. Halldór Laxness, Gunnar Eyjólfs- son, Jón Sigurbjörnsson og Dagur Sigurðarson. Mest áhrif á mig hafði þó nábýlið við „fóstbróður minn“ Snorra Má Skúlason, sem bjó hinum megin við ganginn í sama stigagangi á Fálkagötu 19. Við urðum góðir fé- lagar í frumbernsku sem „skriðdýr“ og höfum haldið nánum vinskap alla tíð síðan. Ég eyddi svo flestum sumrum fyrstu árin í Hrunamannahreppi þar sem foreldrar mínir áttu sumar- bústað á æskuslóðum föðurömmu minnar, Sigríðar Ágústsdóttur.“ Skúli var í Melaskóla og Haga- skóla, lauk stúdentsprófi frá MR 1984, BA-prófi í stjórnmálafræði frá HÍ 1993, stundaði síðar MA-nám í opinberri stjórnsýslu í Minneapolis í Bandaríkjunum og útskrifaðist 2005, en kona hans, Anna-Lind Péturs- dóttir, lauk þar doktorsámi í mennt- unarsálfræði. Skúli varð dagskrárgerðarmaður á nýstofnaðri Rás 2 1983 og sá þar um tónlistarþætti með Snorra Má í nokkur ár og síðan einn. Þeir héldu úti tónlistarþáttum í Sjónvarpinu um miðjan níunda áratuginn en Skúli starfaði á Rás 2 með hléum til 1995. Hann stýrði síðan, ásamt Snorra Má, þjóðmálaþættinum Þjóðbrautinni á Bylgjunni til 1998, var dagskrár- stjóri Bylgjunnar 1998-99 og var framkvæmdastjóri innlendra við- burða við verkefnið Reykjavík menningarborg Evrópu árið 2000. Hann stýrði síðan stofnun og rekstri nýrrar tónlistardeildar hjá Skúli Þór Helgason borgarfulltrúi – 50 ára Í sumarfríi Skúli og Anna-Lind, ásamt drengjunum, njóta veðurblíðunnar í Villafrance í fyrra sumar. Stjórnmálamaður úr „Leikarablokkinni“ Á hugmyndaþingi Skúli fjallar um skólamál og Pétur Glói fylgist með. Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is Börn og brúðhjón Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Heildsöludreifing: ACT ehf, Dalvegi 16b, 201 Kópavogi, sími 577 2150 Remington rakvélar Gæði - Gott verð - Frábær ending Shaving has never looked so good!

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.