Morgunblaðið - 16.04.2015, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 16.04.2015, Blaðsíða 9
FRÉTTIR 9Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. APRÍL 2015 Agnes Bragadóttir agnes@mbl.is Mjög hefur færst í vöxt að nýir veitingastaðir sem opnaðir eru hér á landi heiti erlendum nöfnum. Nýleg dæmi eru Dirty Burger and Ribs og nú síðast á Selfossi verður nafni veitingastaðarins Kaktus, sem áður hét Hrói Höttur, breytt í sumar, í Steakhouse surf and turf, grill and bar. „Guð sé oss næstur!“ nánast hrópaði Har- aldur Bern- harðsson, vara- formaður Íslenskrar mál- nefndar, þegar blaðamaður sagði honum frá nýju nafngiftinni á Sel- fossi. Steikhúsið haf og hagi Í Dagskránni, fréttablaði Suður- lands, kemur fram hjá blaða- manni, ÖG, að Steakhouse surf and turf útleggist á íslensku Steikhúsið haf og hagi. Haraldur var spurður hvort slík nafngift væri ekki meir við hæfi á veitingastað á Suðurlandi. „Jú, vit- anlega væri það meir við hæfi og ég tel að slíkt nafn myndi einnig falla Sunnlendingum mun betur í geð. Raunar held ég líka að það væri hyggilegra upp á við- skiptin að menn sæju sóma sinn í því að hafa nafn- giftir á veitingastöðum á íslensku,“ sagði Har- aldur. „Mér finnst þessi þró- un alveg af-leit. Segjum bara að ég væri ferða-maður í Toscanahéraði á Ítalíu. Þá myndi ég síst af öllu leita að veit- ingastað sem héti ensku nafni. Ég býst við því að þeir erlendu ferða- menn sem hingað koma, hafi áhuga á að kynnast því sem ís- lenskt er og eitt af því er náttúr- lega tungumálið. Þannig finnst mér nafngiftir af þessum toga byggðar á misskiln- ingi. Ég veit ekki hvort hér er um að ræða mállega minnimátt- arkennd en ég tel að til mikilla bóta væri að nefna þennan stað á Selfossi og aðra veitingastaði á ís- lensku,“ sagði Haraldur. Ekki með formlegum hætti Haraldur segir að nafngiftir ís- lenskra veitingastaða komi ekki til kasta Íslenskrar málnefndar með formlegum hætti, en vissulega sé ástæða til þess að staldra við og taka þetta til umræðu. Hann sagði að sig minni að eitt sinn hafi verið skylda að skrá fyrirtæki hjá fyr- irtækjaskrá undir íslenskum nöfn- um og eins hafi það verið regla hér áður fyrr að fyrirtæki í síma- skrá hafi heitið íslenskum nöfnum. „Ef mig misminnir ekki hét veit- ingastaðurinn Hard Rock Cafe, Hart Rokk Kaffi í síma-skránni. En ég held að það séu engar hömlur á þessu lengur,“ segir Haraldur. Þá bendir Haraldur á að furðu- lega víða hér á landi séu matseðl- ar eingöngu á ensku. Það sé sjálf- sagt að matseðlar séu á ensku og ýmsum tungumálum, en þau eigi ekki að koma í stað íslenskunnar. Erlendar nafngiftir afleitar  Erlendar nafngiftir á veitingastöðum og börum æ algengari  Veitingastað- urinn Kaktus á Selfossi verður að Steakhouse surf and turf, grill and bar Morgunblaðið/Kristinn Útlensk nöfn Erlendar nafngiftir á veitingastöðum og börum hér á landi verða æ algengari, eins og dæmin sanna. Myndin er úr Austurstræti. Björn Þór Baldursson, veitinga- maður á Kaktusi, var spurður hvers vegna hann héldi sig ekki við íslenskt nafn á veitingastað sínum. „Það var markaðs- fræðingurinn, vinur minn, sem ráðlagði mér þessa nafngift. Við erum við þjóðveg 1 og byggjum ársreksturinn á því að hala inn sem mest af tekjum okkar á þremur mánuðum á sumrin, þegar erlendir ferða- menn eru sem flest- ir. Þeir vita ekkert hvað haf og hagi þýðir. Maður verður að láta stað- inn heita eitthvað sem þá langar í og koma þess vegna við. Þeir skilja Steakhouse surf and turf, bar and grill, sem mun standa á skiltinu, en þeir myndu ekki skilja Steik- húsið haf og hagi,“ sagði Björn Þór. Undanfarin tvö ár hafi veit- ingastaðurinn heitið Kaktus og er- lendir ferðamenn hafi haldið að hann byði upp á mexíkóskan skyndibita eða að þarna væri blómabúð. Verða að skilja heitið á staðnum BJÖRN ÞÓR BALDURSSON VEITINGAMAÐUR Björn Þór Baldursson Haraldur Bernharðsson Laugavegi 82, á horni Barónsstígs sími 551 4473 www.lifstykkjabudin.is Úrval af sundfatnaði og sólkjólum GARDEUR SUMARBUXUR VERÐLÆKKUN Laugavegi 63 • S: 551 4422 SKOÐIÐ BUXUR Á LAXDAL.IS Ljósar og bláar gallabuxur 20% AFSLÁTTUR AF VÖLDUM STÖNDUM KLASSÍSKI LISTDANSSKÓLINN Inntöku próf 30. apr íl Vorhátíð skólans í Borgarleikhúsinu mánudaginn 27. apríl kl. 18:00 WWW.BALLET.IS Grensásvegi 14 & Álfabakka 14a s: 534 9030 mail: info@ballet.is Inntökupróf fer fram á Grensásvegi 14 fimmtudag 30. apríl nemendur 13 ára og eldri mæti kl.18:00 Miðasala hefst 20. apríl á www.borgarleikhus.is Skráning fyrir nýja nemendur fyrir haustönn 2015 er hafin á Vegagerðin hef- ur ákveðið að hætta í bili vinnu við mat á um- hverfisáhrifum Sprengisands- leiðar. Eitt af markmiðum verkefnisins var að stilla saman legu vegar og há- spennulínu, eink- um með tilliti til sjónrænna áhrifa. Í drögum að tillögu að matsáætlun liggur fyrir líklegasta lega vegar um Sprengisand. Ekki stendur til að taka ákvörðun um nýjan veg yfir Sprengisand í nánustu framtíð. Skipulagsstofnun, sem hefur drög að tillögu til matsáætlunar til með- ferðar, var tilkynnt þetta óformlega á dögunum, segir á vef Vegagerð- arinnar. Ekki er reiknað með að til- lögur um framkvæmdir við nýja Sprengisandsleið verði lagðar fram í samgönguáætluninni 2015-2026. Hætta með mat á Sprengisandsleið Urð og grjót á Sprengisandi. Á samráðsfundi ríkis og sveitarfé- laga í gær skrifuðu Bjarni Bene- diktsson, fjármála- og efnahags- ráðherra, Halldór Halldórsson, formaður Sambands íslenska sveit- arfélaga, og Dagur B. Eggertsson borgarstjóri undir samkomulag um aukið samstarf opinberra vinnu- veitenda í kjaramálum. Samkvæmt samkomulaginu er sett á laggir kjaramálaráð sem hefur það hlut- verk að vera ráðgefandi gagnvart aðilum samkomulagsins og skal það stuðla að samhæfingu við gerð kjarasamninga. Samkomulagið er til tveggja ára. Hið opinbera í sam- starf í kjaramálum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.