Morgunblaðið - 16.04.2015, Side 23

Morgunblaðið - 16.04.2015, Side 23
23 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. APRÍL 2015 Vorið er komið Ungviðið boðar sannarlega vor og betri tíð með blóm í haga. Ró var yfir þessari hryssu og folaldi hennar í Rangárþingi í vikunni og Hekla skartaði sínu fegursta í baksýn. RAX Það vakti athygli mína að ASÍ og BSRB skyldu í samvinnu við Landvernd boða til ráðstefnu um síðustu helgi um auðlindir Ís- lands, nýtingu þeirra, eignarhald og skipt- ingu auðlindaarðsins. Eins og þessi samtök eru byggð upp hljóta áherslur þeirra að vera ólíkar þegar leitað er leiða til þess að nýta kosti landsins með þeim hætti, að öllum íbúum þess dugi til betri lífsafkomu,– innan póstnúmers 101, fram til dala og úti á ystu nesjum. Ég hef oft orðið undrandi á álykt- unum og álitsgerðum Landverndar. Þar var lagst gegn því að upp- byggður vegur yrði lagður vestan Jökulsár á Fjöllum að Dettifossi og engu skeytt um það, hverjir væru hagsmunir íbúanna eða ferðaþjón- ustunnar norður þar. Andstaða við Héðinsfjarðargöng er annað dæmi um þá þröngsýni sem einkennir mál- flutning forystumanna Land- verndar. Þar var talað um að „ein- angrun fjarðarins“ eigi „ríkan þátt í því að auka verndargildi hans“. Nú var Héðinsfjörður í byggð til skamms tíma. Fræknisaga Gunnars Gunnarssonar „Á botni breðans“ gerist á Grundarkoti og styðst við sannsögulegar heimildir. Hann skall á með iðulausri stórhríð svo dögum skipti svo að kotið fennti í kaf, húsfreyja var ein með börnin en bóndi í kaupstaðarferð að sækja föng til jólanna. Þetta er áhrifamikil saga. Héð- insfjarðagöng hafa blásið nýju lífi í byggð- irnar út með Eyjafirði. Þar er nú iðandi mann- líf í staðinn fyrir doða og bjartsýni ríkjandi. Ég á ekki von á því að forystumenn Land- verndar taki sjónarmið sín til endur- skoðunar. Þó veitir ekki af að þeir dusti af sér rykið og fríski sig upp! Því miður átti ég þess ekki kost að sækja ráðstefnuna. En ég hnaut um það sem fram kom í fréttum RÚV í viðtali við auðlindahagfræðinginn Daða Má Kristófersson – nefnilega að hagsmunir ríkisins séu fyrir borð bornir með þeirri stóriðjustefnu sem fylgt hefur verið. Það sé lítil arðsemi af orkuauðlindunum! Staðhæfingar af þessu tagi stangast á við stað- reyndir. Þegar orkunotkun Íslendinga er sundurgreind kemur í ljós að 5% af rafmagnsframleiðslu Landsvirkj- unar fara til heimilanna en 80% til stóriðju. Það blasir við að lágt raf- orkuverð til almennra nota – sem er mun lægra hér en í öðrum löndum – skýrist af þeim orkusölusamningum sem gerðir hafa verið. Þeir hafa ver- ið til langs tíma og álverin traustir kaupendur. Þegar þetta dæmi er gert upp verður auk þess að taka inn í reikninginn þann virðisauka sem við höfum af því að nýta orkuna til atvinnusköpunar í staðinn fyrir að hún streymi um sæstreng til Eng- lands. Ef við horfum til álveranna vinna þar um 1.500 manns og á 6. hundrað til viðbótar hjá verktökum álver- anna. Ef talin eru bein og óbein störf eru þau 5 þúsund. Kaup álveranna á vörum og þjónustu hafa verið á bilinu 30 og 40 milljarðar kr. og er þá raforkan ótalin enda hefur orðið til gróskumikill iðnaður í kringum álverin – sem flutt hefur út vörur og þekkingu til álvera um allan heim. Álverin greiða hærri laun en al- mennt tíðkast vegna þeirra sér- samninga sem við þau eru gerð. Ég athugaði að gamni mínu kynja- hlutföllin í álverinu við Straumsvík. Þar eru jafnmargar konur og karlar í framkvæmdastjórninni. Tæplega þriðjungur millistjórnenda og sér- fræðinga eru konur. Þar er rekinn skóli fyrir starfsmenn sem gefur þeim rétt til hærri launa. Stóriðja er stundum skilgreind með þeim hætti að fá störf skapi mikil verðmæti. Í því felst að mikill kostnaður liggur á bak við hvert starf en skilar sér margfalt til baka með því að orkunni er breytt í afurð. Það skýrir hvers vegna hægt er að greiða hærri laun í slíkum fyrir- tækjum en t.d. í ferðaþjónustu. Ég rifja upp að stærstu virkjanir okkar, allar með tölu, voru reistar í krafti þess að langtímasamningar náðust um nýtingu orkunnar til iðn- aðar eða stóriðju. Ég nefni fyrst Íra- fossvirkjun, sem var vígð 21. októ- ber 1953, en jafnhliða henni var ráðist í að byggja Sementsverk- smiðjuna og Áburðarverksmiðjuna í Gufunesi. Ég man enn hvílíkum tíð- indum þetta þótti sæta! Búrfellsvirkjun, sem var fullgerð 1969, og álverið í Straumsvík mörk- uðu upphaf stóriðju á Íslandi. Síldar- stofninn hrundi á árunum 1967-69 og gjaldeyristekjur okkar minnkuðu um helming svo að þessi nýja at- vinnustarfsemi gat ekki komið á betri tíma. Þjóðarbúið rétti sig fljótt við, lífskjör fóru batnandi og efna- hagsmálin voru í jafnvægi á árunum 1970-1971. En síðan kom vinstri- stjórn undir forsæti Framsóknar- flokksins. Nýjar gjaldeyristekjur af álverinu í Reyðarfirði og Kárahnjúkavirkjun hjálpuðu okkur að standa hrunið af okkur. Ofan á það bættist 60 millj- arða fjárfestingarverkefni í Straumsvík, það stærsta frá hruni. Á hinn bóginn er rétt að minnast þess að vinstristjórn Jóhönnu Sigurð- ardóttur – sem settist að völdum með tilstyrk Framsóknarflokksins – kæfði þau áform sem uppi voru um stóriðju á Bakka og í Helguvík með þeim afleiðingum að þessi byggðar- lög urðu fyrir þungum búsifjum, verulegt atvinnuleysi varð í landinu og landflótti. Þess vegna er það mik- ið ánægjuefni að framkvæmdir séu að hefjast á Þeistareykjum. Þetta er gamall draumur. Það hefur vantað festu í atvinnulífið á Húsavík og í Þingeyjarsýslum. Þegar horft er til Austfjarða sjáum við að gott og sterkt fyrirtæki getur skipt sköpum fyrir byggðarlag sem stendur höll- um fæti. Í daglegu lífi verður ál víða fyrir okkur, svo sem í farsímum, tölvum, dósum og flugvélum. Ál er notað í æ meiri í mæli í bílaframleiðslu til að draga úr eldsneytisnotkun og út- blæstri. Og eftir að ál hefur verið framleitt er hægt að endurvinna það endalaust. Það er haft í flimtingum að Breznev gamli hafi kallað for- ystumenn Alþýðubandalagsins til Moskvu og sagt þeim að vera á móti álverum – tákngervingi hins fjöl- þjóðlega auðvalds. Kannski var þetta kveikjan að þessari limru karlsins á Laugaveginum: Ég fann slitur af gömlum sálmi, saltstólpa og strá af hálmi, þennan marxíska jöfnuð fyrir sérstrúarsöfnuð gegn sérstakri tegund af málmi. Eftir Halldór Blöndal »… enda hefur orðið til gróskumikill iðn- aður í kringum álverin – sem flutt hefur út vörur og þekkingu til álvera um allan heim. Halldór Blöndal Höfundur er fyrrverandi ráðherra samgöngu- og ferðamála. Auðlindir Íslands og hinn almenni borgari

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.