Morgunblaðið - 18.04.2015, Side 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. APRÍL 2015
Áþreifanleg vellíðan EDDA
HEILDVERSLUN
Stofnsett 1932
Höfðabakka 9, 110 Reykjavík • Sími: 525 8210
eddaehf@eddaehf.is • www.eddaehf.is
82
ÁRA
EDDA Heildverslun
Draumur um góða nótt
Heildverslun með lín fyrir:
• hótelið
• gistiheimilið
• bændagistinguna
• veitingasalinn
• heilsulindina
• hjúkrunarheimilið
• þvottahúsið
• sérverslunina
Gæði og glæsileiki
Heildverslunin Edda hefur um áratuga
skeið sérhæft sig sem innflytjandi á líni.
Mörg af stærstu hótelum landsins jafnt
sem minni nota allt lín frá okkur.
Bjóðum einnig upp á lífrænt lín.
Svanhildur Eiríksdóttir
Reykjanesbær
Frumleikhúsið iðar af lífiþessa dagana. Þar æfirhópur fólks af kappi ævin-týraleikrit eftir leikstjór-
ana Guðnýju Kristjánsdóttur og
Höllu Karen Guðjónsdóttur sem
sýnt verður á listahátíðinni List án
landamæra 25. og 26. apríl. Hópur-
inn samanstendur af fötluðum full-
orðnum einstaklingum og ófötluðum
börnum og segja leikstjórarnir að
einstaklega fallegt samband hafi
skapast á milli þeirra. Hópurinn
kallar sig Bestu vinir í bænum.
Þetta er í 6. sinn sem Reykja-
nesbær og nágrannasveitarfélögin
taka þátt í List án landamæra en há-
tíðin hófst á Evrópuári fatlaðra árið
2003. Á hátíðinni er lögð áhersla á
fjölbreytileika mannlífsins með það
að markmiði að auka skilning manna
á milli og auðga samfélagið. Allir
sem vilja geta tekið þátt og fólkið í
hópnum sem blaðamaður heimsótti í
Frumleikhúsið í vikunni er allt að
taka þátt af því að það langar að taka
þátt og finnst þetta verkefni svo
skemmtilegt.
Ný og kærkomin reynsla
Þær Guðný og Halla Karen eru
þekktar í leik- og sönglistarlífinu í
Reykjanesbæ og stutt er síðan
Guðný fékk Súluna, menningar-
verðlaun Reykjanesbæjar, fyrir
framlag sitt til listalífsins í aldar-
fjórðung. Hún hefur í mörg ár haldið
námskeiðin Gargandi snilld og alið
þar upp sviðsvön börn. Þær stöllur
koma að þessu verkefni vegna þeirr-
ar miklu reynslu sem þær búa yfir,
en segja hér á ferðinni alveg nýja en
kærkomna reynslu.
„Við erum að vinna með mjög
Mjög fallegt sam-
band hefur skapast
Hópurinn Bestu vinir í bænum, samanstendur af fötluðum fullorðnum og ófötl-
uðum börnum, sem leika í ævintýraleikriti eftir Guðnýju Kristjánsdóttur og Höllu
Karen Guðjónsdóttur. Þær leikstýra jafnframt verkinu sem verður sýnt á listahá-
tíðinni List án landamæra á Suðurnesjum.
Margreyndir leikstjórar Halla Karen og Guðný eru margreyndar en fá hér
alveg nýja reynslu. Hér búa þær Unni Hafstein Ævarsdóttur undir hlutverkið.
Svakalega sæt Perunni fannst ekkert leiðinlegt að fá að spegla sig.
Kvikmyndaáhugafólki þykir efalítið
fengur að vefsíðunni letterboxd.com
sem hvort tveggja er upplýsingaveita
um kvikmyndir sem og samfélags-
miðill þar sem skráðir notendur geta
eignast vini, deilt upplýsingum og
skrifað gagnrýni. Þeir geta líka búið
sér til lista yfir allar bíómyndir sem
þeir hafa séð, skráð hvenær þeir sáu
hana og fleira. Skipulagið er algjör-
lega eftir þeirra höfði.
Þeir sem ekki eru skráðir notendur
geta aflað sér upplýsinga, rétt eins
og til að mynda á imdb.com sem efa-
lítið er einn þekktasti kvikmyndavef-
urinn. Það er þó ekki þrautalaust að
skrá sig sem notanda á síðuna letter-
boxd.com. Umsækjendur þurfa a.m.k.
að vera þokkalega að sér um tilvitn-
anir í bíómyndum. Dæmi um „inn-
tökupróf“: „Come with me if you
want to .......“ Gefnir eru upp fjórir
svarmöguleikar: Se my etching, Live,
Pump iron, Party. Svarið er Live og
tilvitnunin er úr The Terminator.
Vefsíðan www.letterboxd.com
Morgunblaðið/Golli
Bíó Vefsíðan letterboxd.com fjallar um kvikmyndir og flest sem að þeim lýtur.
Inntökupróf á kvikmyndasíðu
Flóamarkaður Konukots er troðfullur
að fatnaði af öllum stærðum og gerð-
um, fyrir konur, karla og börn. Laug-
ardagur til lukku segja aðstandendur
flóamarkaðarins sem er í sama húsi
og Konukot, Eskihlíð 4, og hvetja fólk
til að koma, skoða og máta; flíkurnar
séu flottar og komi öllum í gott skap.
Konukot er næturathvarf fyrir
heimilislausar konur, samstarfsverk-
efni Rauða krossins í Reykjavík og
Reykjavíkurborgar.
Allur ágóði rennur til Konukots.
Markaðurinn er opinn frá klukkan 12
til 16 alla laugardaga. Alltaf kaffi á
könnunni og fatagámurinn fyrir utan.
Endilega …
… styrkið
Konukot
Morgunblaðið/Ásdís
Konukot Fatasala í dag laugardag.
Á sýningunni Endurbókun í Bókasafni
Reykjanesbæjar gefur að líta brot úr
smiðju Arka, hópi tíu listakvenna sem
stunda bókverkagerð. Öll verkin eiga
það sameiginlegt að vera unnin úr
gömlum bókum, flestum úr Gerðu-
bergssafni. Bókasöfn afskrifa árlega
fjölda bóka sem lokið hafa hlutverki
sínu og eru ekki lengur útlánshæfar.
Slíkar bækur eru efniviðurinn í lista-
verkum Arka.
Listakonurnar hafa hist reglulega
til að bera saman bækur sínar, en
þær hafa allar hrifist af bókverkum
og stundað bókverkagerð af ýmsum
toga um margra ára skeið. Fjöl-
breytni bókverka er mikil enda hug-
myndaflug listamannsins eina tak-
mörkunin. Þau geta verið fjölfölduð
eða einstæð, aðeins til í einu eintaki,
með augljósu yfirbragði handverks-
ins eins og mörg verkanna á sýning-
unni. Aðferðirnar í listsköpuninni eru
m.a. pappírsbrot, klippitækni og
skurður, textílaðferðir, málun, teikn-
ing og þrykk.
Sýningin verður opnuð í dag, 18.
apríl, og stendur til 30. apríl.
Endurbókun – sýning á bókverkum
Gamlar bækur fá nýtt líf
Samheiti Bókverk eru listaverk sem tengjast bókinni sem formi og hugtaki.
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.