Morgunblaðið - 18.04.2015, Síða 24
24 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. APRÍL 2015
Lukla. AFP. | Eftirvæntingin er blandin kvíða og
ótta meðal fjallgöngumanna í bænum Lukla í Nepal
þar sem þeir búa sig undir að klífa Everest-fjall,
hæsta tind jarðar, ári eftir að sextán nepalskir leið-
sögumenn fórust í snjóflóði í fjallinu.
Á meðal fjallgöngumannanna í Lukla eru nokkrir
sem ákváðu að reyna aftur að klífa tindinn eftir að
hafa þurft að hætta við það vegna snjóflóðsins. „Það
var hræðilegt að sjá svona marga farast,“ sagði
breski fjallgöngumaðurinn Sam Chappatte, sem
sneri aftur í grunnbúðirnar á leiðinni upp Everest
nokkrum klukkustundum eftir að leiðsögumenn úr
röðum sjerpa urðu fyrir snjóflóði á Khumbu-
skriðjöklinum 18. apríl 2014. Sjerparnir voru þá að
undirbúa göngu erlendra fjallgöngumanna.
Sjerparnir taka mikla áhættu
Þessi sorglegi atburður ýtti undir spennu milli
erlendu fjallgöngumannanna og fátækra sjerpa
sem taka mikla áhættu til að tryggja öryggi göngu-
mannanna með því að fara í margar ferðir upp á
skriðjökulinn fyrir ofan grunnbúðirnar til að koma
fyrir reipum og flytja búnað upp á fjallið. Nokkrir
sjerpanna hótuðu að hætta að aðstoða göngumenn-
ina nema nepalska ríkið, sem hefur miklar tekjur af
Everest-göngunum, hækkaði bæturnar til fjöl-
skyldna þeirra sem fórust í snjóflóðinu. Deilan varð
til þess að allir helstu skipuleggjendur leiðangranna
hættu við göngur upp á fjallið á seinni hluta apr-
ílmánaðar og í maí í fyrra, á þeim árstíma þegar
flestir leggja á Everest.
Yfirvöld í Nepal hafa reynt að auka öryggi
göngumannanna með því breyta leiðinni upp
Khumbu-skriðjökulinn, bæta veðurspár og senda
lækna í grunnbúðirnar.
„Missti alla félaga mína“
Ferðamálaráðuneyti Nepals segir að 335 manns
hafi fengið leyfi til að klífa fjallið í ár, þeirra á meðal
118 sem fengu leyfið í fyrra en ákváðu að fresta
göngunni vegna snjóflóðsins.
Nokkur fyrirtæki, sem skipuleggja Everest-
göngur, hafa flutt leiðangrana til norðurhluta Eve-
rest-fjalls í Kína. Nokkrir þaulreyndir leið-
sögumenn úr röðum sjerpa hafa ákveðið að fara
ekki í fleiri ferðir upp á fjallið, þ.á m. Lakpa Rita.
„Ég missti alla félaga mína, vini mína. Ég dró lík
þeirra úr snjónum. Ég hef verið heppinn hingað til,
en ætla ekki að treysta á heppnina áfram.“
Yfirvöld vöktu reiði meðal leiðsögumannanna
með því að bjóða fjölskyldum þeirra sem fórust
bætur að andvirði 400 Bandaríkjadala, jafnvirði
54.000 króna. Ákveðið var síðar að hækka bæt-
urnar í 5.000 dali, tæpar 680.000 krónur.
Leiðsögumenn og burðarmenn úr röðum sjerpa
segja að stjórnin hafi hunsað beiðni þeirra um að
30% af tekjum ríkisins af gönguleyfunum renni í
styrktarsjóð fyrir fjölskyldur þeirra.
„Við eigum svo fárra kosta völ að við þurfum að
taka að okkur störf sem geta kostað okkur lífið,“
sagði sjerpinn Sange sem missti marga vini í snjó-
flóðinu mannskæða fyrir ári. „Þegar upp var staðið
töpuðum við á hléinu sem varð á fjallgöngunum. Á
venjulegu ári þéna ég 3.000 til 4.000 dali [400.000 til
540.000 krónur] á Everest-göngum. Á síðasta ári
voru launin mín 1.500 dalir [rúmar 200.000 krón-
ur].“
Göngur upp á Everest hafnar aftur ári eftir að sextán sjerpar fórust í snjóflóði á fjallinu
Heimildir : 8000ers/RichardSalisbury/HimalayanDatabase
Sextán nepalskir leiðsögumenn
fórust í snjóflóði í Everest-fjalli
fyrir ári, mannskæðasta slysi
sem orðið hefur á fjallinu
Everest-fjall
Búðir I
6.035 m
Búðir III
7.158 m
Khumbu-
skriðjökull
Búðir IV
7.906 m
Grunnbúðir
5.270 m
Everest-
tindur
8.848 m
Nuptse
7.861 m
Katmandú
Everest-
fjall
INDLAND
KÍNA
60 km
NEPAL
Lhotse
8.516 m
Búðir II
6.474 m
200
300
400
500
600
700
1953 60 65 70 75 80 85 90 95 2000 05 2010
Fjöldi Everest-fara á ári
Fjöldi þeirra sem komust á tindinn 1953-2014:
meira en 4.000
Nýsjálendingurinn Edmund Hillary og
sjerpinn Tenzing Norgay klifu tindinn
fyrstir manna 29. maí 1953
2014
100 127
658
633
Fjöldi
dauðsfalla
13 aðrir sem reyndu að klífa tind
Everest fórust á árunum 1922-1952
2
8
6 6
2 2
3
11
8 7
4 4
10
8
4
2
5
8
5
3
15
9
4 4
2
5
3
4
7 6
11
7
5
33
Sjerpar/nepalskir aðstoðarmenn
Erlendir fjallgöngumenn
4
10
8
17
Snjóflóðið
14. apríl
2014
Tilhlökk-
unin ótta-
blandin
Nokkrir danskir fréttaskýrendur
hafa varað við því að deila vest-
rænna ríkja og Rússa um átökin í
Austur-Úkraínu og innlimun Krím-
skaga í Rússland geti varpað skugga
á ráðherrafund Norðurskautsráðs-
ins sem verður haldinn í bænum
Izaluit í Kanada á föstudaginn og
laugardaginn kemur.
Að sögn danska dagblaðsins
Politiken skírskota fréttaskýrend-
urnir meðal annars til þess að rúss-
neska sendiráðið í Kanada hefur til-
kynnt að Sergej Lavrov, utan-
ríkisráðherra Rússlands, ætli ekki
að taka þátt í fundinum. Ráðherra-
fundir Norðurskautsráðsins eru
haldnir á tveggja ára fresti og Lavr-
ov hefur setið þá alla frá árinu 2004.
Í stað hans ætlar rússneska stjórnin
að senda umhverfisráðherrann Ser-
gej Donskoi.
Umdeildur embættismaður fer
fyrir norðurslóðanefnd
Politiken hefur eftir einum frétta-
skýrendanna, Jon Rahbek-
Clemmensen, að Rússar telji sig
þurfa að sýna vestrænu ríkjunum að
þau geti ekki gengið út frá því sem
vísu að deilan um Úkraínu hafi ekki
áhrif á samstarfið í Norður-
skautsráðinu. Rahbek-Clemmensen
bendir einnig á að rússneskur „harð-
línumaður“, Dmítrí Rogozin að-
stoðarforsætisráðherra, hefur verið
skipaður formaður nefndar sem fer
með málefni norðurslóða fyrir hönd
rússnesku stjórnarinnar. Rogozin
var á meðal fyrstu rússnesku emb-
ættismannanna sem voru settir á
lista Bandaríkjanna, Kanada og
Evrópusambandsins yfir þá sem
refsiaðgerðir þeirra beinast að
vegna meintrar þátttöku þeirra í að-
gerðum Rússa í Austur-Úkraínu og
á Krímskaga. bogi@mbl.is
Varpar skugga á
norðurslóðafund
EPA
Lavrov Utanríkisráðherrann mætir
ekki á fund Norðurskautsráðsins.
Úkraínudeilan
gæti haft áhrif á
Norðurskautsráðið
Síðastliðinn marsmánuður var sá
hlýjasti í heiminum frá því að mæl-
ingar hófust árið 1880 og fyrstu þrír
mánuðir ársins voru einnig þeir hlýj-
ustu í sögunni, að sögn bandarískra
vísindamanna í gær.
„Í mars var meðalhitinn á landi og
yfirborði sjávar 0,85 stigum á Cel-
síus yfir meðaltali á tuttugustu öld-
inni,“ segir í skýrslu bandarísku haf-
og loftslagsstofnunarinnar, NOAA.
Meðalhitinn var 0,05 stigum á Cel-
síus meiri en í næstheitasta mars-
mánuðinum til þessa, árið 2010.
Á fyrstu þremur mánuðum ársins
var meðalhitinn í heiminum 0,82
stigum á Celsíus yfir meðalhitanum
á sama árstíma á öldinni sem leið.
Meðalhitinn á fyrsta fjórðungi árs-
ins var 0,05 stigum á Celsíus meiri
en árið 2002 sem hófst með met-
meðalhita í heiminum, að sögn lofts-
lagsstofnunarinnar.
Heitasti
mars
frá 1880
Kambódíumenn minntust þess í
gær að 40 ár eru liðin frá því að
Rauðu khmerarnir réðust inn
Phnom Penh og hröktu meira en
tvær milljónir manna úr höfuðborg-
inni eftir að hafa sigrað her
Khmeralýðveldisins í borgarastríði.
Talið er að um tvær milljónir
manna, eða fjórðungur íbúa lands-
ins, hafi verið teknar af lífi eða dáið
úr hungri á fjögurra ára valdatíma
kommúnistanna sem breyttu land-
inu í helvíti á jörðu.
AFP
Ógnaröld Búddhamunkar minnast
grimmdarverkanna í Phnom Penh.
Ódæða Rauðra
khmera minnst
duxiana.com
D
U
X®
,D
U
XI
A
N
A®
an
d
Pa
sc
al
®
ar
e
re
gi
st
er
ed
tr
ad
em
ar
ks
ow
ne
d
by
D
U
X
D
es
ig
n
A
B
20
12
.
Okkar best varðveitta
leyndarmál!
Allar götur síðan DUX var stofnað 1926 þá
hefur það verið metnaður okkar að framleiða
heimsins þægilegust rúm, því það er frábær
tilfinning að vakna úthvíldur eftir góðan
nætursvefn. Til að ná því marki höfum við hjá
DUX þróað DUX Pascal system er samanstendur
af útskiftanlegu fjaðramottum sem gera þér
kleift að sníða rúmið (stífleikann) að þínum
þörfum hvenær sem þú vilt, eins oft og þú villt.
Það er leyndarmálið að góðum svefni.
DUXIANA Reykjavik, Ármuli 10, 568 9950