Morgunblaðið - 18.04.2015, Blaðsíða 31
og dómurum ekki vært í starfi hefðu
þeir sýknað sakborningana. Hæsti-
réttur er einkennilegt fyrirbrigði
með „fjölskyldustemningu“ eins og
Jón Steinar hefur bent á. Hæstarétt
skipar 9 eða 10 manns en í reynd eru
þeir allt að 16 virkir því alltaf er ver-
ið að kalla inn fyrrverandi dómara á
eftirlaunum vegna forfalla og jafnvel
starfandi lögmenn eru skipaðir um
stundarsakir. Þú veist aldrei hverjir
skipa dóminn. Þetta er eins og hand-
hafar forsetavalds, maður veit aldrei
hverjir skipa þá grúppu í utanlands-
ferðum forseta. Fimm af dómaraliði
Hæstaréttar, þ.e. minnihluti dóm-
stólsins, skipa dóm í hverju máli
nema í svokölluðum minniháttar
málum en þá eru þeir aðeins þrír.
Svo er verið að ræða um á Alþingi að
taka upp millidómstig en hvað er
Hæstiréttur í reynd annað en milli-
dómstig án áfrýjunarréttar til raun-
verulegs Hæstaréttar.
Afplánun dóma
Það er vandlifað á Íslandi. Á sama
tíma upplýsir fangelsismálastjóri að
þeim fari sífellt fjölgandi sem þurfa
aldrei að sitja af sér þá dóma sem
þeir hafa hlotið. Ástæðan er pláss-
leysi í fangelsum landsins. Alls
fyrndust yfir 60 afplánunardómar á
Íslandi sl. þrjú ár, þ.e. sextíu glæpa-
menn sátu ekki af sér dóm og hver
verður fjöldinn í ár? Engar konur
verða boðaðar til afplánunar fyrr en
Hólmsheiðarfangelsi verður opnað í
apríl á næsta ári. Í dag bíða 430
manns eftir að sitja af sér dóma í 156
plássum. Hvað komast margir hjá
því að sitja af sér dóma vegna þess
að fjórmenningarnir vilja taka sinn
óréttláta dóm út sem fyrst? Þegar
litið er til skattsvikaumræðna síð-
ustu daga, m.a. vegna eigna erlend-
is, hvað haldið þið að margir skatt-
svikarar sem flestir fá
skilorðsbundna dóma sitji af sér
sektir upp á tugi milljóna sem þeir
borga aldrei fremur en skatta af
skattstolnu fé. Þessir aðilar stela af
almenningi. Gerðu fjórmenningarnir
það? Hvenær má búast við að fjöl-
miðlamenn leggist yfir dóma og
framkvæmd refsinga skattsvikara
sem eru óværur í þjóðfélagi okkar?
Hvað hafa margir setið af sér slíka
dóma á liðnum árum og greitt skatta
af skattstolnu fé og fjársektir?
Að lokum
Þá vil ég að lokum geta þess að við
foreldrar Magnúsar erum eftir sem
áður stolt af honum. Hann stofnaði
og kom á fót fjármálastofnun á er-
lendri grundu sem varð á einum ára-
tug meðal stærstu skattgreiðenda
Lúxemborgar og síðar endurreisti
hann bankann eftir að bankinn fór í
greiðslustöðvun. Var það gert í góðri
samvinnu við skiptastjórnina, fjár-
málráðuneytið, seðlabanka, inni-
stæðueigendur, kröfuhafa, nýja eig-
endur og fjármáleftirlitið í
Lúxemborg. Það hefur aldrei gerst í
bankasögu Evrópu að banki í
greiðslustöðvun taki aftur til starfa.
Engum neyðarlögum var fyrir að
fara til að einfalda endurreisn bank-
ans líkt og á Íslandi og tók ferlið 9
mánuði þar til Skiptabú Kaupþings
seldi dótturfélagið skaðlaust enskri
fjölskyldu og Magnús tók við banka-
stjórastarfinu á nýjan leik með sam-
þykki fjármálaeftirlitsins í Lúxem-
borg allt þar til hann var hnepptur í
varðhald að kröfu Sérstaks vorið
2010. Lifir bankinn enn góðu lífi í
dag á sömu kennitölu undir nafni
Banque Havilland en greiðir senni-
lega lægri skatta.
Þessari grein vildi ég deila með
ykkur, lesendur góðir, þannig að þið
vitið hvernig fölskyldu líður sem sér
á eftir syni sínum í fangelsi að
ósekju og vegna óskilgreindrar reiði
borgara þessa lands og bregst við
kveðjunni: „Sæll, hvað segir þú
gott?“ Vonandi ganga þau orð Jó-
hönnu og Steingríms eftir sem vitn-
að var til hér að framan: „Þetta róar
þjóðina.“
Nýr kafli er hafinn í lífi okkar fjöl-
skyldunnar og við erum staðráðin að
gera það besta úr honum.
Höfundur er faðir Al-Thani-fanga.
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. APRÍL 2015
Fullbúnar íbúðir
við Lindargötu 28
komnar í sölu
–
Hafðu samband við sölumenn Eignamiðlunar í síma 588 9090.
Sala fasteigna frá
588 9090 . www.eignamidlun.is . Grensásvegi 11 . 108 Reykjavík
Íbúð herb fm Söluverð
101 1 47,1 29.500.000
102 2 51,2 31.500.000
103 2 55,4 33.300.000
104 2 61,5 35.200.000
105 3 84,3 47.500.000
201 3 85,1 48.200.000
202 2 54,5 31.900.000
203 2 53,8 31.900.000
204 2 53,5 31.900.000
205 2 49,9 31.500.000
206 2 58,0 35.500.000
301 3 85,1 48.900.000
302 2 54,2 32.900.000
303 2 54,5 32.900.000
304 2 54,6 32.900.000
305 2 49,9 32.500.000
306 2 58,0 35.900.000
401 3 91,4 51.900.000
402 2 60,6 37.500.000
403 2 65,6 39.500.000
404 1 47,8 31.900.000
Vel skipulagðar íbúðir á frábærum stað á bilinu
45-55 fermetrar að stærð.
Íbúðir sem henta vel fyrir þá sem kjósa nýjar minni
íbúðir í miðborg Reykjavíkur þar sem stutt er í verslun,
þjónustu og afþreyingu.
Guðlaugur I. Guðlaugsson,
sölumaður
Brynjar Þ. Sumarliðason
sölumaður
gudlaugur@eignamidlun.is
Hilmar Þór Hafsteinsson,
lögg. leigumiðlari,
lögg. fasteingasali
hilmar@eignamidlun.is
brynjar@eignamidlun.is
Sverrir Kristinsson,
framkvæmdastjóri,
lögg. fasteignasali.
sverrir@eignamidlun.is
Kæling ehf | Stapahrauni 6 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 7918
Ert þú karl/kona í krapinu?
Kæling leitar að 2 starfsmönnum, öðrum í sumar-
afleysingar og hinum til frambúðar.
Kælimaður/Vélstjóri
Starfssvið:
- Reglubundið eftirlit kælikerfa
- Uppsetning á kælikerfum
- Viðhald og þjónusta
- Nýsmíði
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Menntun á sviði kælitækni og/eða
vélstjórnar/járnsmíði/rafvirkjunar
- Reynsla af vinnu við kælibúnað æskileg
- Sjálfstæði í vinnubrögðum
ATH: Við hvetjum laghenta og/eða reynslumikla
til að sækja um, jafnvel þótt þá skorti menntun.
Kæling sérhæfir sig í sölu, uppsetningu og
þjónustu á kælikerfum, auk þess að smíða
kælikerfi og ískrapavélar.
Um Kælingu:
Umsóknir og fyrirspurnir sendist á info@cooling.is.