Morgunblaðið - 18.04.2015, Page 43
síðan vinnslustjóri hjá Dominos.
Fjölskyldan flutti síðan á
Stokkseyri árið 2001 þar sem þau
voru búsett næstu tíu árin. Indriði
hóf fjarnám í viðskiptafræði við
HA árið 2002 og lauk BA gráðu
árið 2005. Hann stundaði síðan
meistaranám á Bifröst 2006-2008.
Indriði var skrifstofustjóri á
Grundarfirði veturinn 2006-2007,
var fjármálastjóra í Rangárþingi
Ytra 2007-2012, en í febrúar 2013
var hann ráðinn sveitarstjóri
Tálknafjarðarhrepps til loka kjör-
tímabilsins en eftir sveitastjórn-
arkosningarnar 2014 var hann síð-
an kjörinn sveitarstjóri áfram og
gegnir enn fremur starfi oddvita
hreppsins.
Indriði situr í stjórn Atvinnu-
þróunarfélags Vestfjarða.
Íslendingasögur og Sturlunga
sýna landið í nýju ljósi
Áhugamál Indriða snúast mikið
um enska boltann en hann er Liv-
erpoolmaður af lífi og sál. Þá les
hann Íslendingasögurnar af kappi:
„Ég hef lesið allar Íslendingasög-
urnar sem ég hef komist yfir og
Sturlungu sem maður les ekki
einu sinni heldur oft, enda marg-
slungið meistaraverk um þessa
ótrúlegu skálmöld.
Ég fór að velta því fyrir mér
þegar ég ók um landið að maður
þekkir ekki Ísland nema kunna
skil á þessum sögum. „Landslag
yrði lítils virði ef það héti ekki
neitt“ – sagði Tómas Guðmunds-
son og það er hverju orði sannara.
Með þessum sögum opnast landið
og maður sér það í nýju ljósi. Það
væri t.d. dapurlegt að aka um
Dalasýslu án þess að hafa minnstu
hugmynd um hversu ríkt og hríf-
andi sögusvið hún er.
Ég hef einnig verið að lesa
sagnaskáldsögurnar hans Einars
Kárasonar um Sturlungaöld og
haft mjög gaman af þeim. Einar
er mikill sagnameistari og kann að
planta lesandanum alveg inn í at-
burðarásina. Hann gefur sér að
sjálfsögu ákveðið skáldaleyfi en
mér finnst hann samt nálgast efn-
ið af mikilli virðingu.
En ég les líka ljóð, gömul og ný
og innlend og erlend, og er mjög
hrifinn af Gyrði Elíassyni og Gerði
Kristnýju, svo ég nefni nútímahöf-
unda.“
Indriði nýtur svo samverunnar
við fjölskylduna þegar tími gefst
frá sveitarfélagsmálefnum og þar
eru afastrákarnir í miklu uppá-
haldi.
Fjölskylda
Eiginkona Indriða er Anna Ár-
dís Helgadóttir, f. 28.11. 1964,
hjúkrunarfræðingur. Foreldrar
hennar eru Helgi Seljan, f. 15.01.
1934, fyrrv. alþingismaður, og Jó-
hanna Þóroddsdóttir, f. 11.01.1934,
húsfreyja og starfsstúlka. Þau eru
búsett í Reykjavík.
Börn Indriða og Önnu eru Hild-
ur Seljan, f. 30.6. 1986, Steinunn
Díana, f. 19.6. 1990 og tvíburarnir
Arnar Freyr og Indriði Freyr f.
23.11. 1991.
Sonarsynirnir eru þeir Egill
Seljan Arnarsson, f. 23.11. 2012,
og Bjarni Sólberg Seljan Eyþórs-
son, f. 24.8. 2013.
Systur Indriða eru Ingunn Kar-
ítas Indriðadóttir, f. 28.10. 1959,
viðskiptastjóri hjá Íslandsbanka,
búsett á Reyðarfirði, og Guðný
Vigdís Indriðadóttir, f. 19.2. 1964,
sjúkraliði við Heilbrigðisstofnun
Suðurlands, búsett á Eyrarbakka.
Foreldrar Indriða voru Indriði
Indriðason, f. 1936, d. 2008, véla-
maður og Steinunn Unnur Há-
konardóttir, f. 1935, d. 2013, hús-
freyja og starfaði í áratugi við
umönnun. Þau bjuggu lengst af í
Kópavogi.
Úr frændgarði Indriða Indriðasonar
Indriði
Indriðason
Borgný Guðrún
Magnúsdóttir
frá Flateyri við
Önundarfjörð
Gísli Björnsson
sjóm. í Dýrafirði
Ingunn Díana Gísladóttir
verkak. á Skagaströnd
Indriði Brynjólfsson
verkam. á Skagaströnd
Indriði Indriðason
vélam. í Kópavogi
Kristín Guðmundína Indriðad.
húsfr. í Ytri-Ey
Brynjólfur Lýðsson
b. í Ytri-Ey í Skagafirði
Ragnheiður Brynjólfsdóttir hótel-
stýra og handavinnukennari
við Húsmæðraskólann á Blönduósi
Lýður Brynjólfsson skólastjóri Iðnskólans í
Vestmannaeyjum
Þráinn
Þorvaldsson
múrarameistari
Ingunn Karítas
Indriðadóttir
viðskiptastj. hjá
Íslandsbanka
Helgi Seljan
fréttam. á RÚV
María Jónsdóttir
húsfr. í Flatey
Bjarni „Flateyingur“
Jónsson
útvegsb. í Flatey
Karítas Bjarnadóttir
húsfr. í Flatey
Hákon Einarsson
útvegsb. í Flatey á Breiðafirði
Steinunn Unnur Hákonardóttir
heilbrigðisstarfsmaður í Kópavogi
Jónína Sigfríður
Jónssdóttir
húsfr. á Hellissandi
Einar Hákonarson
sjóm. á Hellissandi
Þorgrímur Þráinsson
rithöfundur
Hermann Þráinsson
þjónustustj.
Kauphallar Íslands
ÍSLENDINGAR 43
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. APRÍL 2015
Björn Jóhannsson fæddist íHafnarfirði 20. apríl 1935.Foreldrar hans voru hjónin
Jóhann Kristinn Björnsson iðn-
verkamaður og Kristrún Marta
Kristjánsdóttir húsfreyja.
Björn lauk stúdentsprófi frá
Menntaskólanum á Akureyri árið
1956. Hann stundaði nám í heim-
speki við Háskóla Íslands og nám í
ensku, sagnfræði og heimspeki við
háskólann í Edinborg á árunum 1957
og 1958. Hann varð framkvæmda-
stjóri Alþýðublaðsins 1958 og jafn-
framt blaðamaður þar til ársins
1962. Hann var ritstjóri dagblaðsins
Myndar 1962 og hóf sama ár störf á
Morgunblaðinu, þar sem hann starf-
aði æ síðan. Björn var blaðamaður á
Morgunblaðinu á árunum 1962 til
1967 er hann tók við starfi frétta-
stjóra blaðsins og var fréttastjóri til
1981 er hann varð fulltrúi ritstjóra
Morgunblaðsins og gegndi því starfi
til dauðadags.
Björn tók að sér ýmis félags- og
trúnaðarstörf, átti m.a. sæti í stjórn
Blaðamannafélags Íslands á árunum
1960 til 1963 og sat um skeið í stjórn
Varðbergs, félags áhugamanna um
vestræna samvinnu. Björn var um
árabil ritstjóri hins íslenska hluta
Nordisk Kontakt, rits Norðurlanda-
ráðs um stjórnmál, þingmál og nor-
ræn málefni, frá árinu 1965 og rit-
stjóri íslenska kaflans í Árbók
Bókaútgáfunnar Þjóðsögu frá 1966.
Hann var um árabil fréttaritari
Associated press og dagblaðsins
Politiken í Einnig var hann um hríð
fréttaritari dagblaðsins Helsingin
Sanomat í Finnlandi og Dimmalætt-
ing í Færeyjum. Hann skrifaði
greinar fyrir blöð og tímarit í ýmsum
löndum. Hann var einn af umsjónar-
mönnum þáttarins Efst á baugi í
Ríkisútvarpinu frá 1961 til 1970. Þá
sat hann í Íslenskri málnefnd.
Fyrri eiginkona Björns var Val-
gerður Ákadóttir píanókennari, f.
1.9. 1942. Börn þeirra eru Jóhann
Áki og Kristrún Helga. Árið 1973
kvæntist Björn eftirlifandi eigin-
konu sinni, Guðrúnu Egilson, ís-
lenskukennara og rithöfundi, f. 14.7.
1945. Börn þeirra eru Snædís Huld
og Þorsteinn Brynjar.
Björn lést 23. apríl 2003.
Merkir Íslendingar
Björn
Jóhannsson
Laugardagur
101 ára
Guðný Baldvinsdóttir
85 ára
Guðmundur Magnússon
80 ára
Aðalsteinn Eyjólfsson
Svavar Þorsteinsson
Þorgerður Egilsdóttir
75 ára
Lára S. Hansdóttir
Margrét J. Aðalsteinsdóttir
70 ára
Áslaugur Jeremíasson
Bóthildur Halldórsdóttir
Pétur Hans Baldursson
Sigurbjörg Kristjánsdóttir
Sveinn Elísson
Þórdís Þorbergsdóttir
60 ára
Anna Margrét H.
Guðbjartsdóttir
Auður Sveinborg Bett
Árni Geir Þórmarsson
Carl Roine Hultgren
Dagbjört Sigrún
Hjaltadóttir
Geir Jónsson
Gísli Jón Þórðarson
Guðbjörg J.
Sveinbjörnsdóttir
Halldóra Mary
Kjartansdóttir
Hilmar Jóhannesson
Hlöðver Pétur Hlöðversson
Sigríður Baldursdóttir
50 ára
Arnar Pálsson
Ásdís Jónsdóttir
Elsa Þorgrímsdóttir
Guðbjörg Lilja Jónsdóttir
Guðmundur Arnarson
Guðmundur Marteinsson
Haraldur R. Gunnarsson
Kristín Helga Jörgensdóttir
Osiris D.S. Arcieri Robles
Ólafía Þóra Óskarsdóttir
Sigríður Þórólfsdóttir
40 ára
Arna Dögg Einarsdóttir
Bjarney Herdís Ólafsdóttir
Edward Morthens
Georg Alfreð Vilhjálmsson
Guðmundur Björnsson
Sara Kamban Reginsdóttir
Sigríður H. Halldórsdóttir
Kjerúlf
Sigursteinn Ingvarsson
Sveinbjörn Þór Jónsson
30 ára
Adólf Sigurjónsson
Adrian Wilicki
Alicja Bajkowska
Arna Pálsdóttir
Atli Már Ágústsson
Ásta Hrönn
Guðmundsdóttir
Bergljót Nikulásdóttir
Bjarki Már Elíasson
Björn Gestsson
Eysteinn Pálmason
Geir Valdimarsson
Guðmundur Kristinn
Vilbergsson
Haraldur Levi Jónsson
Hildur Edda Grétarsdóttir
Hrafnkell Ingi Jóhannsson
Jón Guðbrandsson
Kamil Baranowski
Máni Ólafsson
Michal Jan Czeski
Svajunas Brazaitis
Zsófia Cságoly
Sunnudagur
95 ára
Ragnheiður Vigfúsdóttir
80 ára
Helga Þorgeirsdóttir
Jón Sigurjónsson
Sigrún Hermannsdóttir
75 ára
Auður Alexandersdóttir
70 ára
Finnur Guðmundsson
Grímur Magnússon
60 ára
Angantýr Valur Jónasson
Anna Kristín Einarsdóttir
Dröfn Halldórsdóttir
Elísabet A. Brekkan
Hallgrímur G. Magnússon
Ingibjörg Einarsdóttir
Ingunn Þóra Ríkharðsdóttir
Jón Sævar Jörundsson
Pétur Böðvarsson
Pisamai Phaengsrisarn
Ragnheiður Ríkharðsdóttir
50 ára
Benedikt Sigurðsson
Elke Maria Foelsche Polo
Gísli Friðriksson
Guðbjörg Erna Karlsdóttir
Gylfi Anton Gylfason
Halldór Kristinn Viðarsson
Hildur Svavarsdóttir
Jens Jónsson
Kristín Guðjónsdóttir
María Ólafsdóttir
Páll Skaftason
Sigurður Magnússon
Þórdís Jóna Hrafnkelsdóttir
40 ára
Aníta Guðný Gústavsdóttir
Anna Sigríður Ólafsdóttir
Arnar Scheving
Thorsteinsson
Berglind Ósk Gunnarsdóttir
Christophe Alexandre
Duret
Davíð Örn Ólafsson
Gísli Ágúst Halldórsson
Ína Dögg Eyþórsdóttir
Íris Guðrún Ragnarsdóttir
Íris Hrund Halldórsdóttir
Jón Ari Stefánsson
Jónatan Einarsson
Kolbrún Anna Sveinsdóttir
Snædís Perla
Sigurðardóttir
Thor-Björn Clemmensen
30 ára
Anna Barbara Kordek
Bjarki Ólafsson
Elina Georgsdóttir
Helga Margrét
Jóhannesdóttir
Jökull Þór Þórarinsson
Kristín Halldórsdóttir
Reynir Már Guðmundsson
Rudolf Kristinsson
Svavar Grétarsson
Svavar Jón Bjarnason
Til hamingju með daginn
Allir þeir sem senda blaðinumynd af nýjum borgara eðamynd af brúðhjónum fá fría áskrift
að Morgunblaðinu í einnmánuð.
Hægt er að sendamynd og texta af slóðinnimbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is
Börn og brúðhjón
IÐNVÉLAR ehf. | Smiðjuvegi 44-46 | 200 Kópavogur | Sími 414 2700 | idnvelar@idnvelar.is | idnvelar.is